Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR11. JÚNÍ 1985 • Píoneeríng micro-electromc tecríoology • Super-light pumice • Export beer • People • Swlmming, lcelandlc style Tímaritið Modem Iceland: Tækninýjung- ar á sviði sjávarútvegs á íslandi NÝTT HEFTI af tímaritinu Mod- ern Iceland kom út fyrir skömmu og fjallar það aðallega um tækni- nýjungar á sviði sjávarútvegs á ís- landi. í yfirliti er gerð grein fyrir ' margvíslegum tæknibúnaði, sem íslenzk fyrirtæki hafa framleitt til útflutnings. Þá eru í þessu tölublaði ýmsar fréttir úr íslenzku viðskiptalífi og grein um stöðu efnahagsmála í landinu. Fjallað er um útflutning á ferskum fiski, sagt frá starfsemi erlendra fyrirtækja á íslandi og gerð grein fyrir íslenzkri frí- merkjaútgáfu. Þá er starfsemi samgöngufyrirtækja og ferðamál til umfjöllunar í blaðinu og einnig er lýst framleiðsluvörum nokk- urra innlendra iðnfyrirtækja. Modern Iceland er tímarit á ensku um viðskipti, framleiðslu- starfsemi og samgöngumál á ís- landi. Blaðið kemur út fjórum sinnum á ári og er dreift víða um lönd á vegum helztu fyrirtækja, samtaka og opinberra stofnana á sviði utanríkisverzlunar. Ritstjóri er Robert Mellk en útgefandi er útgáfuþjónustan Víkverji. (I r rrétutilkynningii.) Skoðanakönnim DV: Sjálfstæð- isflokkur eykur fylgi — Alþýðubandalag tapar Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið verulega á samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var á vegum DV um síðustu helgi. Fær flokkurinn 40,9% fylgi ef aðeins eru teknir þeir sem tóku ' afstöðu í könnuninni, en í DV-könnun, sem gerð var í mars síðastliðnum hafði Sjálf- stæðisflokkurinn fylgi 36,1% kjósenda. Samkvæmt könnun- inni tapar Alþýðubandalagið mestu fylgi, fer niður í 10,5%en var með 15,1% í könnuninni í mars. Ef aðeins eru teknir þeir sem afstöðu tóku fær Alþýðu- flokkurinn nú 19,0% en hafði 19,9% í marskönnuninni, Framsóknarflokkurinn fær nú 14,3% en hafði 16,2% i mars, Bandalag jafnaðar- manna fær nú 7,9% en hafði 5,6% og Samtök um kvenna- lista fá nú 6,4% en höfðu 6,7%. í mars. Flokkur manns- ins fær 0,9%< en hafði 0,3% í mars. Hækkun göjuskatts og eignarskattsauki: Gengur þvert á stefnu og gef- in fyrirheit ríkisstjórnarinnar — segir Eyjólfur Konráð Jónsson Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður fjárhags- og viðskiptanefndar efri deildar, leggur til að frumvarp til laga um sérstaka fjáröflun til húsnæðis- mála verði fellt. í nefndaráliti segir þingmaðurinn að með flutningi frum- varpsins gangi ríkisstjórnin þvert á stefnu sína og fyrirheit um skattalækkan- ir. Aðrir stjórnarþingmenn í fjárhags- og viðskiptanefnd, þeir Valdimar Indriðason, (S), Egill Jónsson, (S) og Jón Kristjáns- son, (F) leggja til að frumvarpið verði samþykkt. Nefndarálit Eyjólfs Konráðs Jónssonar fer hér á eftir í heild: „Með flutningi frumvarps þessa gengur ríkisstjórnin þvert á birta stefnu sína og margítrek- uð fyrirheit um skattalækkanir. í þessu efni er fylgt fordæmi vinstri stjórna frá 1978 sem kristallaðist í svokölluðum Ólafslögum þar sem ofstjórnar- æðið var lögfest. Stefna þessi gekk sér til húðar 1983 þegar verðbólguhraði var kominn í 130% miðað við eitt ár, erlendar skuldir hrönnuðust upp í mesta góðæri íslandssögunnar og gjaldmiðiliinn var hruninn. Úrræðin höfðu ætíð verið þau að dengja yfir nýjum sköttum, einkum neyslusköttum i kjölfar gengisfellinga og kjaraskerðing- ar eða sem fyrirboða slíkra að- gerða, en samhliða var hindrað að íslenskir peningar mættu vera í umferð til annarra en út- valdra og sjávarútveginum kom- ið á vonarvöl þegar hvergi var starfsfé að fá nema á okurkjör- um hjá Aröbum og Ameríku- mönnum. Þennan vítahring ætl- aði ríkisstjórnin að rjúfa og tókst framan af margt vel og enn er unnið að umbótamálum. En meginstefnubreytingin í skatta- og peningamálum hefur látið standa á sér. Fyrsti liður svokallaðra „mild- andi aðgerða" í stefnuskrá ríkis- stjórnarinnar 1983 hljóðar svo: Skattar og tollar, sem nú leggjast með miklum þunga á ýmsar nauðsynjavörur verði lækkaðir. Þetta ákvæði var sett að skil- yrði fyrir stuðningi við stefnu stjórnarinnar áður en hún var mynduð og samþykkt af öllum þingmönnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks enda mátti ljóst vera að dæmið gat aldrei gengið upp nema til þessara úr- ræða væri gripið samhliða frjálsræði í peningamálum. Að framkvæmd þessa þýðingar- mesta ákvæðis var mikið unnið strax síðla árs 1983 og síðar, en ákvörðun hefur aldrei verið tek- in. Þvert á móti var söluskattur hækkaður á síöasta þingi um hálfan af hundraði án þess að sú aðgerð skipti einangruð öðru máli en því að auglýsa fyrir al- þjóð að ofsköttunarstefnunni skyldi haldið áfram þrátt fyrir gagnstæð loforð. Afleiðingarnar þekkja allir. Hækkun söluskatts nú er röng ákvörðun. Þvert á móti ber að standa við marggefin fyrirheit um skattalækkanir til að tryggja vinnufrið og kveða verðbólguna í kútinn. Lækkun okurtolla og skatta á brýnustu nauðsynjavör- ur hvers einasta manns er nú sem fyrr vænlegasta úrræðið enda hefði slík skattalækkun tví- efld áhrif; hún mundi gera launafólki unnt að una við minni kauphækkanir og hún væri bein aðgerð gegn verðbólgu gagn- stætt þessu frumvarpi. Vandi húsbyggjenda er mikill, úr honum og erfiðleikum at- vinnuveganna ætti að bæta með því að gera Seðlabanka íslands — eða a.m.k. heimila honum — að fullnægja þeirri frumskyldu sinni „að annast seðlaútgáfu og vinna að því, að peningamagn i umferð og framboð lánsfjár sé hæfilegt..." í stað þess að „loka“ viðskiptabönkum og sparisjóðum og færa allt fjár- málalíf þjóðarinnar til útlanda en sprengja upp vexti á „al- mennum" markaði innanlands Eyjólfur Konráð Jónsson því að engum er heimilað að gefa út peninga, starfsfé, ávísanir á mikla auðlegð lands og þjóðar, svo að jafnvægi geti myndast á peningamarkaði og mismunun og ranglæti linni. Hér er fylgt tveim andstæðum stefnum, ann- ars vegar eru vextir frjálsir en hins vegar er hindrað að fram- boð fjár sé eðlilegt. Að því er söluskattshækkun nú varðar til aðstoðar húsbyggj- endum er auk þess um að ræða kaldhæðnislega þversögn. Skatt- urinn leggst auðvitað með marg- földum þunga á þá sem eru að Kjartan Jóhannsson (A), hefur lagt fram breytingartillögu við frum- varp til lánsfjárlaga 1985, þar sem gert er ráð fyrir að ríkissjóður ábyrg- ist skuldbindingar fiskeldisstöðva gagnvart Framkvæmdasjóði íslands vegna lántöku hjá Norræna fjárfest- ingarlánasjóðnum, allt að 150 millj- ónum króna. Sami þingmaður hefur einnig byggja. Þeir þurfa ekki einungis að borga hækkunina á neyslu- vörunum eins og aðrir, heldur til viðbótar á öllu því sem til íbúð- arinnar þarf, einmitt þegar erf- iðleikarnir eru mestir. Þess er þá að gæta að gífurlega há aðflutn- ingsgjöld eru lögð á ýmsar bygg- ingarvörur svo sem á hreinlæt- istæki og eldhúsbúnað en ofan á þau og álagningu leggst sölu- skatturinn með miklum þunga. Og svo má húsbyggjandinn, þeg- ar greiðslubyrði hans er þyngst, eiga von á stórhækkuðum eign- arskatti ef honum kynni að auðnast að halda húsinu og flytja inn í það. Engin orð er unnt að hafa um það ákvæði að „af tekjuafgangi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins skulu 30 millj. kr. renna til húsnæðismála..." af því að ríkissjóður er svo illa haldinn að hann getur ekki greitt upphæð- ina. Þess er loks að gæta að skatt- heimta þessi er ekki hugsuð til að mæta einhverjum halla eins sjóðs eða annars innanlands eða utan. Hér er einungis um það að ræða, að færa fé frá almenningi til ríkisins, sem það síðan lánar út með fullri verðtryggingu og vöxtum. Það er með öðrum orð- um verið að færa eignarráðin frá fólkinu til ríkisins. Með tilvísun til þess er ljóst að 1. minni hluti leggur til að frum- varpið verði fellt.“ lagt fram, ásamt Svavari Gests- syni (Abl), tillögu um að fjármála- ráðherra verði heimilað að gefa út verðtryggð ríkisskuldabréf, án vaxta. Nýta á andvirði bréfanna til að flýta verkáföngum frá gild- andi vegaáætlun. Lagt er til að ríkissjóði verði heimiluð lántaka allt að 150 milljónum króna, vegna þessa. Breytingartillaga við lánsfjárlög: Ríkissjóður ábyrgist skuld bindingar fiskeldisstöðva Stuttar þingfréttir Odagsettar þinglausnir — Eldhús á þingi í kvöld Eldhúsdagur ídag Ekki er gert ráð fyrir miklum fundahöldum á Alþingi í dag, enda „eldhúsdagur" að kveldi, þ.e. almennar stjórnmálaum- ræður, sem útvarpað verður frá Alþingi. Sameinað þing mun þó vænt- anlega funda milli klukkan tvö og fjögur miðdegis. Ódagsettar þinglausnir Þinglausnir eru enn ódagsett- ar. Hugur stóð til þess að ljúka þingi fyrir þjóðhátíð, 17. júni nk. Ekki er enn ljóst, hvort slíkt tekst. Allt eins getur farið svo að þing standi fram í eða út næstu viku. Næsta víst er að þingið af- greiðir lánsfjárlög og lög um tekjuöflun til húsnæðislánakerf- isins (þ.e. um sérstakt 1% hús- næðisgjald á söluskattsstofn og 0,25% eignakattsauka). Mikill hugur er í sumum þingmönnum að ná einnig fram nýjum fram- leiðsluráðslögum. Einnig svo- kölluðum „þrílembingum", þ.e. stjórnarfrumvörpum um þróun- arfélag (nýsköpun í atvinnulífi), Byggðastofnun og Fram- kvæmdasjóð, að ógleymdu sjóða- frumvarpinu, sem líka er í far- vatninu. Þá er þingið langleiðina gengið með bjórfrumvarp og frumvarp um frjálsara útvarp. Ljúki þingi fyrir þjóðhátíð er líklegt að eitthvað af framan- greindum málum verði lagt í salt. Lánsfjárlög Frumvarp til lánsfjárlaga 1985 var afgreitt til þriðju og síðustu umræðu í síðari þing- deild í gær. Samþykktar vóru nokkrar breytingartillögur frá stjórnarliðum. Breytingartillög- ur stjórnarandstöðu, sem ti.l at- kvæða komu, vóru felldar. • • Onnur frum- vörp við enda- punkt Nokkur önnur mál gengu og til síðustu umræðu í neðri deild í gær og gátu hugsanlega orðiö að lögum á ráðgerðum kvöldfundi í gær, eða síðar í þessari viku: frumvarp um ríkislögmann, frumvarp um sölu Þörunga- vinnslunnar við Breiðafjörð, frumvarp um veitinga- og gisti- staði og frumvarp um Veðdeild Búnaðarbanka Islands. Frum- varp Egils Jónssonar (S) um dýralækni í fisksjúkdómum gekk til nefndar og annarrar umræðu í síðari þingdeild. Krafizt var nafnakalls um frumvarpið um sölu Þörunga- vinnslunnar (eftir aðra um- ræðu). 28 þingmenn greiddu at- Kjartan Ólafsson kvæði með frumvarpinu, enginn gegn, átta sátu hjá og þrír vóru fjarverandi. Kjartan Ólafs- son tekur sæti á þingi Kjartan Ólafsson, fyrrv. rit- stjóri, tók í gær sæti á Alþingi í fjarveru Guðrúnar Helgadóttur (Abl.), sem er fjarverandi er- lendis í opinberum erindagjörð- um. Kjartan er fyrsti varaþing- maður landskjörinna þing- manna Alþýðubandalags.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.