Morgunblaðið - 23.06.1985, Síða 30

Morgunblaðið - 23.06.1985, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNl 1985 CUPRIIMOL alvörufúavarnarefnið sem fegrar og fyrirbyggir Um allangt skeið hafa verið til alls kyns undraefni, fúavarnarefni, sem áttu að verja timbur fyrir rotnun. I Ijós hefur komið að aðeins örfá þeirra rísa undir nafni. Vandinn er því sá að velja rétta efnið og nýta það skynsamlega. Vísindalegar kannanir sýna ótvírætt að Cuprinol er með bestu fúavarnarefnum sem framleidd hafa verið. Þetta er reynslan, hún er ólygnust. Cuprinol fúavarnarefni greinist í 4 aðalflokka: 1. Grunnfúavarnarefni án yfirborðsfilmu. 2. Hálfgagnsætt litað fúavarnarefni í fjölda viðarlita. 3. Þekjandi lituð fúavörn í 7 litum. 4. Grænt fúavarnarefni í vermireiti og á gróðurhús. 1-2 yfirferðir af Cuprinol grunnfúavarnarefni með 1-2 yfirferðum af hálfgagnsæju eða þekjandi Cuprinol. Cuprinol þjónar tilgangi sínum við hinar ólíkleg- ustu aðstæður-allt frá vermireitnum upp í háfjalla- skálann. Umboðsmenn um land allt! ' Slippfélagið íReykjavik hf Má/ningarverksmiðjan Dugguvogi Sími 84255 Lítið miðaði í viðræðum kór- esku ríkjanna Pmuaijom, Kóreu, 21. júní. AP. Efnahagssérfræðingar Norður- og Suður-Kóreu héldu þriðju viðræðu- lotu sína í landamærabænum Panm- unjom í gær, fimmtudag. Skipst var í tillögum um aukin viðskipti ríkj- anna og ákveðið að halda fram- haldsfund eftir þrjá mánuði. Fundurinn var haldinn fyrir luktum dyrum að undantekinni setningarathöfninni og stóð í eina klukkustund og 37 mínútur. í fundarlok var tilkynnt að við- ræðunefndirnar mundu hittast að nýju 18. september. Á fundinum í dag var mikið brosað og handabönd og fínar heilsanir voru tíðar, eins og á fyrri fundum viöræðunefndanna í nóv- ember og mái, en raunverulegur árangur lítill eins og þá. Þó náðist samkomulag um aukin viðskipti og gæti það hugsanlega orðið fyrsta skrefið í átt til nánari efna- hagssamvinnu ríkjanna. Góðar sölur togara í Cuxhaven og Grimsby TOGARINN Ögri RE seldi afla sinn í Cuxhaven sl. miðvikudagsmorgun fyrir mjög gott verð. Ögri landaði alls 257,3 tonnum, mest karfa en einnig talsverðu af grálúðu, og fékk fyrir það um 808 þúsund þýsk mörk, eða 11.105.800 krónur. Meðalverð var 43,17 krónur og hefur aðeins Viðey RE fengið hærra meðalverð fyrir afla sinn, það var í Cuxhaven um páskana. Þá fengust alls 1,1 milljón marka fyrir aflann. Á miðvikudag seldi Börkur NK afla sinn í Grimsby og fékk rétt rúmar fimm milljónir króna fyrir 108,5 tonn, sem var að mestu leyti smærri þorskur. Meðalverð Bark- ar var 46,10 krónur, sem telst mjög gott verð — ekki síst þegar haft er í huga að mikið framboð er nú á fiskmörkuðum í Bretlandi, skv. upplýsingum LÍÚ. Fleiri íslensk fiskiskip selja ekki í erlendum höfnum í þessari viku. Schliiter hittir Reagan Wuhiaxtoii, 21. júní. AP. HVÍTA húsið tilkynnti í dag, að hinn 10. september næstkomandi muni Poul Schliiter forsætisráðherra Dan- merkur hitta Ronald Reagan forseta og eiga fund með honum í Hvíta húsinu. i í CD pioiveer' ....OG BÍLLINN NERÐUR EINS OG HUÓ41LEIK4HÖLL Á HJÓLUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.