Morgunblaðið - 23.06.1985, Síða 49
MORGUNBVAfflÐ, ftUNNUDAGUR 23. JtlNl 1985
49
forðast lungnaþembu heldur og
aðra sjúkdóma er geta stafað af
reykingum, þ.e. aukin líkindi á
hjartasjúkdómum, heilablóðfalli
og krabbameini í hinum ýmsu líf-
færum líkama þíns, ekki síst lung-
um, (sú tegund krabbameins, er
tíðast leggst á karla og önnur í röð
krabbameins er herjar á konur,)
þvagblöðru, legi og vélinda. Þó
öndunarhæfni sé ekki nema lítil-
lega skert, er Lífsnauðsyn að hætta
að reykja strax! Hvað er til ráða,
finnist einkenni lungnaþembu?
Svarið er einfalt: Að sjálfsögðu
ættu þessar niðurstöður að vera
hvati til að forðast allt það er geti
gert ástandið verra. Hætta sam-
stundis að reykja og reyna eins og
hægt er að forðast mengað and-
rúmsloft. Reykingarnar skipta að-
almáli. Þær ber fyrst og fremst að
forðast. Flestir sjúklingar, er gera
sér grein fyrir hrakandi heilsu
sinni, hafa vit fyrir sjálfum sér,
gera sér fulla grein fyrir að þeir
verða að taka í hnakkadrambið á
sjálfum sér og hætta sjálfviljugir
reykingunum eigi ekki illa að fara.
Viljinn verður þó að vera fyrir
hendi og ekki eiga allir gott með
að venja sig af fíkninni, en þá er
að leita aðstoðar. Læknar munu
geta gefið góð ráð og sjálfsagt er
að leita umsagnar síns eigin heim-
ilislæknis, meðan verið er að kom-
ast yfir erfiðasta hjallann.
Undirstöduatriðin sem
hafa þarf í huga eru
raunar aðeins tvíþætt:
Reykingar eru afar vanabind-
andi, því þarf að brjóta þær viðjar
fyrst. Sumir virðast fá sér sígar-
ettu ósjálfrátt, með kaffinu, eða
þegar þeir tala í símann, eftir
máltíð o.s.frv.
hætta að reykja. Það hjálpar fólki
við að yfirstíga níkótínfíknina,
með því að það inniheldur smáa
skammta þessa eiturs, er fer þá
útí líkamann með munnvatninu i
stað þess að skaða jafnframt lung-
un með koltvísýringi auk 2000
annara efnasambanda, sem eru í
tóbaksreyk.
Þegar tekist hefur að losna end-
anlega við sígaretturnar, virðist
fólki ekki reynast erfitt að hætta
fljótlega við tyggigúmmíið. Önnur
aðferð er að nota eftirlíkingu af
sígarettu, sem kölluð er: EZ-Quit.
Sú er búin til úr plasti og má totta
hana og í stað reyksins fær maður
frísklegt mintubragð í munninn,
en sían á þessari „dúsu“ er gegn-
vætt efninu. Neytendur segja
þetta gefa góða raun, einkum ef
það er notað jafnframt tyggi-
gúmmíinu með níkótíni í.
__________Læknislyf____________
Snúum okkur nú að lyfjameð-
ferð er grípa má til við fyrstu ein-
kenni lungnaþembu. Þar sem tak-
markið er að stöðva sjúkdóminn,
er áríðandi að leita til læknis ef
þrálátur hósti og uppgangur slíms
gera vart við sig. Slík eru einkenni
bronkítis (lungnakvefs), en sá
sjúkdómur er oft fylgifiskur
lungnaþembu. Venjulega er hægt
að lækna gerlasjúkdóma með
fúkkalyfjum, sem sjúklingurinn
getur tekið heima. Læknir verður
þó að skera úr eftir rannsókn,
hvaða lyf eru við hæfi og oftast er
látið nægja að veita lyfseðla á slík
lyf, til heimaneyslu, án sjúkra-
húsvistar þegar einkenni þyngsla í
lungum og hósti eru aðaleinkenni.
Leiki hinsvegar grunur á að sjúkl-
Uppræting
Hverjar eru líkur þess, að upp-
ræta megi lungnaþembu (N.B. Hér
er átt við Bandaríkin.) á næsta
áratug? Slíkt mark virðist fjar-
lægt þar sem nú eru þar a.m.k. 10
milljón manns er þjást af sjúk-
dómnum, og ekki færri en 30
milljónir, séu taldir með þeir sem
eru með hann á byrjunar- eða lágu
stigi. Þar í landi eru nú þegar 500
þúsund manns er þiggja örorku-
bætur vegna þess að þeir eru
óvinnufærir af völdum lungna-
þenibu einnar. Það gæti því virst
fáránlegt takmark að keppa að, að
ætlast til að hægt verði að útrýma
sjúkdómnum innan tíu ára. Mitt
álit er þó að það takmark sé innan
seilingar. Geri menn sér grein
fyrir, að lungnaþemba er ættgeng-
ur kvilli, leggst á reykingafólk og
versnar með aldrinum, er ég viss
um að allir muni krefjast einfaldr-
ar öndunarmælingar til að kanna
hvort einhver einkenni séu komin
fram hjá því sjálfu. Séu þau til
staðar er það mikill hvati til að
hætta reykingum, sem er fyrsta
skilyrði til bættrar heilsu. Þar að
auki mun stór hluti þess fólks
einnig fara að huga betur að
heilsu sinni yfirleitt, er þeir kom-
ast að því að þeir eru ekki ómót-
tækilegir fyrir sjúkdómum, en það
er sem kunnugt er ekki óalgengt
meðal ungs fólks að álíta sig
ódauðlegt eða að minnsta kosti að
hugsa ekki mikið út í þá hluti.
Eins og er, er lungnaþemba
mikill skaðvaldur og kostar þjóð-
arbú Bandaríkjanna um tíu þús-
und milljón dollara, sé reiknað með
bæði tapi á framleiðslugetu og
læknishjálp. Þar eð afleiðingar
þessa sjúkdóms leiða af sér heilsu-
leysi ungs fólks og andlát um ald-
Margir læknar láta ajúklinga aina nota ainföld
hjálpartæki til aö úöa lyfi til aö vlkka út öndunar-
vegina. Þaö ar þó aöeins gert aé slíkt talið ómisa-
andi eftir aó ýtarleg rannsókn á heilsu viökomandi
hefur farió fram.
Geri maður sér grein fyrir þess-
um vana (eða óvana) er betra að
reyna að hafa sigaretturnar ekki
handbærar við þessi tækifæri,
jætja sér það markmið að þú þurf-
>r að hugsa þig um áður en þú
kveikir ósjálfrátt í, hafa þær t.d.
lokaðar niðri í skúffu, fjarri þeim
stöðum er þú heldur þig mest við.
Settu þér afmörkuð svæði, þar
sem „bannað" er að reykja, t.d.
svefnherbergið, baðherbergið, bfll-
inn o.s.frv. Haltu þannig áfram,
bar til enginn „reykingastaður" er
eftir.
_______Nfkótínþörfin________
Reykingarnar eru vissulega
meira en vani. Líkaminn er orðinn
háður níkótíninu, svo eitthvað
annað verður að finna sér til af-
þreyingar þegar fíknin segir til
sín. Farið er að framleiða tyggi-
Kúmmí, er inniheldur níkótín, og
er það fáanlegt í Bandaríkjunum
(?egn framvísun lyfseðla. Tyggi-
Kúmmí þetta er nefnt „Nicorette"
og hefur verið á markaðnum í
Evrópulöndum í nokkur ár og
reynst vel. Kannanir er voru gerð-
ar á neytendum sýndu að 48%
þeirra, er notuðu gúmíið, tókst að
ingur sé einnig með lungnaþembu,
er ráðlegt að fá einnig ónæmis-
sprautur gegn influensu, hvert
haust, vegna þess að þannig
veirusjúkdómar geta haft alvarleg
afköst hjá sjúklingum er þjást af
lungnaþembu. Það hefur einnig
færst í vöxt, að læknar veiti sjúkl-
ingum með öndunarfærasjúkdóma
lyf sem úðað er ofan í lungnapíp-
urnar ef þær þrengjast skyndilega
vegna berkjukrampa. Lyf þetta
opnar loftpípurnar og veitist
sjúklingnum þá auðveldara að
draga andann eða losa loft úr
lungunum. Slíkir krampar geta
komið fyrirvaralaust og þrengjast
loftpípumar þá svo mikið, að
lungun verða óstarfhæf sé ekki
gripið til einhverra ráða. Verið er
að kanna hvað reynist best af
þessum efnum, en sá máti er lík-
lega er bestur til að koma þeim
lyfjum er nota skal í hverju tilfelli
ofaní lungnapípurnar er með ein-
földum munnúðurum, líkum þeim
er eru á meðfylgjandi mynd. Þó
ber að varast að nota hverskonar
lyf í óhófi, sem kunnugt er, og
læknar veita því ekki ótæpilega
sík hjálparlyf fyrr en eftir ýtar-
lega rannsókn á því hvort þau geri
viðkomandi raunverulegt gagn eða
séu ómissandi.
ur fram, tekur þó 20—30 ár að ná
því stigi að leiða af sér fötlun, auð-
velt er að greina einkenni hans á
fyrstu stigum með einfaldri lækn-
isskoðun, ætti ekki að vera til of
mikils ætlast, að láta sig dreyma
um að sjúklingar og læknar taki
nú höndum saman og reki þennan
vágest af höndum sér. Hver vill
ekki fá að draga lífsandann létt?“
Viðtal þetta var haft við Dr.
Thomas L. Petty, yfirmann
Webb-Waring-rannsóknarstöðvar
lungnasjúkdóma. Hann hefur
einkum fengist við rannsóknir á
lungnaþembu og skyldum sjúk-
dómum undanfarin 20 ár. „Ég hef
einkum hug á að kanna samband
milli reykinga og fyrstu einkenna
lungnaskemmda, sem eru venju-
lega sköddun á minnstu loftpípun-
um. Þannig hefst þróunin til þess
er verða vill, þó það geti liðið
20—30 ár þar til sjúkdómurinn er
kominn á hæsta stig.“ Petty varar
unglinga alvarlega við, að meðan
líkaminn er ekki enn orðinn full-
þroska, sé hættan margfalt meiri
vegna reykinga jafnvel þó ekki sé
reykt í miklum mæli. „Með öðrum
orðum, lungun ná aldrei fullum
þroska eftir að unglingur byrjar
að reykja."
Þýtt og endursagt: H. Filippusdóttir.
SigurAur Sveinsson við mötunartækin sem hann stjórnar á Þorvaldseyri.
Sigurður sagði að sumarið leggðist vel í sig, enda sláttur hafinn.
Sláttur hafinn
undir Eyjafjöilum
Holti, 19. júoi.
f MORGIJN var hafínn sláttur á
stórbýlinu Þorvaldseyri undir Eyja-
fjöllum. Eggert Ólafsson byrjaði að
slá í súrhey en á heimilinu er fjórir
turnar sem geyma fullir um 50 kýr-
fóður.
Aðspurður kvað Eggert súrhey-
ið hafa bjargað sínum búskap i
vetur, þurrheyin hefðu verið nær
ónýt, það hefði þurft yfir 3 kg í fé
á móti 1,5 kg í fé af súrheyinu.
Vorið hefði verið óvenju þurr-
viðrasamt og allt til þessa, þannig
að sprettan væri heldur í lakara
lagi. Hins vegar gilti mestu við
súrheysverkun að slá nógu
snemma og nýta með þeim hætti
heimafengið fóður. Nú fremur en
áður reyndi á sparnað í búskapn-
um og að nýta til fullnustu það
sem jörðin gæfi af sér. Vinnan nú
við súrheyið væri orðin ein létt-
asta og auðveldasta vinnan við
búskapinn. Höndin kæmi þar
varla nærri. Það væri slegið að
morgni, hirt upp í heyhleðsluvagn,
síðan keyrt heim og losað í þar til
gert mötunartæki tengt blásara.
Við blásarann væri annað mötun-
artæki sem blandaði jafnt kofa-
salti í heyið, um 2 kg í hvert tonn,
en kofasaltið væri um 80% maura-
sýra og er óskaðlegt. Að vetrinum
sér sjálflosunartækið um að flytja
heyið úr súrheysturnunum beint
að jötu. Þessi tæki keypti Eggert
beint frá Austurríki og sá Glóbus
um að flytja þau inn. Eggert sagð-
ist stefna að meiri súrheysgjöf.
Annað væri ekki gerandi gagnvart
heyskapartíðinni á Suðurlandi.
Úti á hlaði var Sigurður
Sveinsson við mötunartækin
ásamt vinnumönnum og sagði
hann að sumarið legðist vel i
hann.
FrétUriUri.
Gamli skálinn í VatnaskógL
Almenna kristilega
mótiö í Vatna-
skógi 28.—30. júní
ALMENNA kristilega mótið verður
haldió í Vatnaskógi helgina 28.—30.
júní nk., á vegum Sambands ís-
lenskra kristniboðsfélaga. Mót þetU
hefur verið haldið í Vatnaskógi um
árabil.
Séra Kjartan Jónsson, kristni-
boði, hefur ásamt fleirum séð um
skipulagningu mótsins og annast
hann jafnframt mótsstjórn.
Kjartan sagði í samtali við blm. að
mótið yrði með svipuðu sniði og
áður. Kynnt verður kristniboð sem
Samband íslenskra kristniboðsfé-
laga, SÍK, rekur í Konsó í Eþiópiu
og í Pókot í Kenýa. Jónas Þóris-
son, kristniboði sem nýkominn er
frá Eþíópíu, segir frá kirkjustarf-
inu þar og þeirri hungursneyð sem
ríkir í landinu.
Þá verða söngsamkomur og
bibliulestur, og á sunnudeginum
verður guðsþjónusta með altaris-
göngu. Ýmislegt verður við að
vera fyrir börnin á meðan mótið
stendur yfir. Efnt verður til
barnasamverustundar, leiktækj-
um verður komið upp utandyra og
hægt verður að leigja báta og sigla
á Svínavatni. Allar samkomur
verða í íþróttaskálanum.
Afmarkað svæði verður fyrir
tjöld og húsvagna. Seldur verður
matur á staðnum og einnig sæl-
gæti og kaffi. Þá verða einnig
seldar kristilegar bækur. Móts-
gjald er krónur 200 fyrir 12 ára og
eldri og áætlunarferðir verða frá
Umferðarmiðstöðinni á föstudag
kl. 19 og til baka á sunnudags-
kvöldi. Fargjaldið aðra leiðina er
krónur 185 en báðar leiðir 370.
Séra Kjartan vakti sérstaklega
athygli á því að nauðsynlegt er að
panta far með áætlunarbíl fyrir
26. júní, á aðalskrifstofu KFUM og
K og SIK á Amtmannsstíg 2b.