Morgunblaðið - 23.06.1985, Síða 53
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 23. JtMf 1985
53
neyzlustýring og undanþágu-
ákvæði, sem valda erfiðleikum í
skatteftirliti.
íu ára könnun
viröisaukaskatts
Virðisaukaskattur hefur verið
til athugunar hér landi í rúman
áratug. Margvíslegar kannanir
hafa farið fram, hann varðandi, og
a.m.k. tvær skýrslur um hann
gerðar á vegum fjármálaráðu-
neytis, 1971 og 1975. Það eru fyrst
jpg fremst megingallar söluskatts-
ins, sem knúið hafa á um könnun
virðisaukaskatts, en þá má draga
saman í tvo höfuðpunkta:
• Undanþágur frá söluskatti, sem
hér viðgangast, raska samkeppn-
isaðstöðu framleiðslugreina og
framleiðsluaðferða og hafa óeðli-
leg áhrif á neyzluval.
• Þær skapa og verulega erfið-
Íeika við framkvæmd og eftirlit
>neð skattinum.
Virðirsaukaskattur viðgengst
nú í flestum ríkjum V-Evrópu.
Hann er talinn bæta úr höfuðgöll-
um söluskattskerfisins, ef skatt-
skyldusvið er jafnframt víkkað út.
Hann er hinsvegar flóknari, viða-
bieiri og dýrari í framkvæmd.
; Virðisaukaskattur er neyzlu-
skattur sem lagður er á söluverð
vöru og þjónustu á öllum við-
skiptastigum, þ.e. fjölstigaskattur.
Hann hefur ekki margsköttun í
för með sér. Hvert fyrirtæki greið-
ir ríkissjóði aðeins skatt af VIRÐ-
ISAUKA, sem hjá því myndast.
Aðaleinkenni virðisaukaskatts
er sá að hann leggst í raun aðeins
einu sinni á sama verðmætið,
hversu oft sem það gengur milli
viðskiptastiga, og verður hann því
hlutlaus gagnvart söluverði til
endanlegs neytanda. Ef 21% virð-
isaukaskattur verður upp tekinn
svarar heildarfjárhæð skattsins
til endanlegs neytanda.
Undanþágulaus virðisauka-
skattur raskar hinsvegar illa því
„samræmi" sem nú er milli mis-
munandi vöru. Virðisaukaskattur,
sem kæmi af fullum þunga á mat-
vörur, sem eru undanþegnar sölu-
skatti, þyngdi mjög, að öðru
óbreyttu, almenna framfærslu
heimila. Hinsvegar kynnu aðrir
útgjaldaþættir en matvæli að
lækka nokkuð. Meðfylgjandi töfl-
ur, sem teknar eru að láni úr
frumvarpi um virðisaukaskatt,
sem Alþingi hefur á ný vísað til
ríkisstjórnarinnar, sýnir áætluð
verðáhrif virðisaukaskatts, í sam-
anburði við söluskatt, miðað við
einkaneyzlu o.fl. þætti 1980.
Samdóma álit þingnefndar
Fjárhags- og viðskiptanefnd
efri deildar Alþingis segir m.a. í
samdóma nefndaráliti um virðis-
aukafrumvarpið:
„Allir eru sammála um að hár
virðisaukaskattur yrði ekki lagður
á brýnustu lífsnauðsynjar sem nú
eru undanþegnar söluskatti nema
víðtækar hliðarráðstafanir yrðu
gerðar, en um þær eru engar
ákveðnar tillögur fram komnar.
Nefndin hefur spurzt fyrir um
það hvernig álagningu virðisauka-
skatts væri háttað í öðrum
Evrópulöndum og hefur nú fengið
þær upplýsingar að þar sé víða um
misháan skatt að ræða eins og eft-
irfarandi bréf ríkisskattstjóra til
fjármálaráðuneytisins, dags. 22.
maí sl., ber með sér:
„Hér með sendist ráðuneytinu
svar við fyrirspurn varðandi virð-
isaukaskatt sem barst símleiðis
17. maí sl. Fyrirspurnin var:
Hvaða virðisaukaskattshlutföll
eru í nágrannaríkjum okkar og ef
um fleiri en eitt skatthlutfall er að
ræða, hvert er skatthlutfallið á
vörum annars vegar og þjónustu
hins vegar?
Skipta má nágrannaríkjum
okkar í tvo hópa að því er varðar
virðisaukaskattshlutfall. Annars
vegar eru ríki sem hafa í aðalat-
riðum eitt skatthlutfall með til-
tölulega fáum undanþágum, hins
vegar eru ríki sem hafa eitt al-
mennt skatthlutfall en með all-
miklum frávikum. Hér á eftir er
tafla sem sýnir hið almenna virð-
isaukahlutfall í 12 nágrannaríkj-
um okkar og meginfrávik frá því:
Ríki með „eitt“ virðis-
aukaskattshlutfall
Danmörk ..._________ 22%
Noregur .............. 20%
Svíþjóð .............. 23%
Bretland ________...... 15%.
Ríki með fleiri en eitt
virðisaukaskattshlutfall
Austurríki 20% almennt hlut-
fa.ll, 32% hækkað hlutfall og 10%
lækkað hlutfall; Belgía (samsvar-
andi tölur): 10%, 25%, 6% og
5,5%; Frakkland 18,6%, 33%, 7%
og 5,5% ...“ í frekari upptalningu,
sem á eftir fylgir, er Irland með
hæsta almennt hlutfall, 35%, en
Luxemborg með lægst, 14%.
Síðan segir áfram í bréfinu:
„Þeir flokkar vöru og þjónustu
sem falla undir hækkað eða lækk-
að hlutfall eru yfirleitt tilgreindir
í reglum einstakra ríkja sem und-
anþága frá hinu almenna skatt-
hlutfalli.
Almennt má segja að hækkað
hlutfall leggist á lúxusvörur, svo
sem skartgripi, ljósmyndavörur,
hljómflutningstæki, bifreiðar,
skinnavörur o.fl.
Almennt má segja að lækkað
hlutfall komi á matvörur ýmiss
konar, þjónustu leikhúsa, hljóm-
leikahald, fólksflutninga, lista-
verk, blöð, bækur, ýmsa þætti
landbúnaðar, lyf, ýmsa ferða-
mannaþjónustu o.fl. o.fl.
Reglurnar um hækkað eða
lækkað skatthlutfall eru dálítið
mismunandi eftir ríkjum ...“
Lokaorð nefndarálitsins eru
þessi:
„Ljóst er af framansögðu að mál
þetta þarfnast fyllri undirbúnings
og frekari athugunar og því leggur
nefndin til að því (frumvarpinu)
verði vísað til ríkisstjórnarinnar."
Fulltrúar allra þingflokka, sex
talsins, vóru samdóma um fram-
angreint nefndarálit og frávísun,
svo og viðkomandi þingdeild.
Virðisaukaskattur hér á landi
stendur því í sömu sporum eftir
þetta þing sem fyrir það.
Vegna skrifa Helga Hálfdanarsonar um Kermóafoss:
Á hverju ári er sett fyr-
irstaða í vesturkvíslina
göngu í þessar ár og laxinn hefur
af af einhverjum ókunnum ástæð-
um valið að ganga í austurkvíslina
en aldrei í vesturkvíslina.
Yfirleitt er gengið ákaflega
Sumarbúðir á Hólum
— segir Haukur Pálmason, aðstoðarraf-
magnsstjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur
„Á hverju ári um laxveiöitímann, sem stendur frá 10. júní til 10. septem-
ber, er sett fyrirstaða í svokallaða vesturkvísl í Elliðaánum og vatninu beint
í austurkvíslina til að tryggja að laxinn komist upp árnar,“ sagði Haukur
Pálmason, aðstoðarrafmagnsstjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur þegar hann
var inntur eftir hversvegna ekkert vatn væri í Kermóafossi í vesturkvísl f
Elliðaánum.
í Morgunblaðinu föstudaginn
21. júní síðastliðinn fer Helgi
Hálfdanarson þess á leit við þá
aðila, sem bera ábyrgð á vatns-
leysi í Kermóafossi að þeir skýri
mál sitt.
Að sögn Hauks háttar þannig til
við Höfðabakkabrúna að árnar
skiptast í austur- og vesturkvísl
og svo lengi sem hann man, eða
frá því hann kom til starfa hjá
Rafmagnsveitum Reykjavíkur
1950, hefur á hverju vori verið sett
fyrirstaða í árnar á þessum stað
ofan við fossinn. Fyrirstaðan er úr
timbri og skorðuð við steyptan
þröskuld á árbotninum þann tíma
sem hún er í ánum. Þröskuldurinn
er í kafi þegar vatnið er eðlilegt I
ánum.
„Það geta auðvitað allir verið
sammála um að Kermóafoss er
fallegri með miklu vatni heldur en
litlu sumarvatni, en þarna er ekki
um neinar beinar aðgerðir að
ræða við fossinn sjálfan, við hon-
um hefur ekkert verið snert,“
sagði Haukur. „Þó að við vildum
allt gera til að halda fullu vatni I
fossinum á sumrin þá getum við
ekki gert það. Meðal annars vegna
þess að það er líka ákveðin nátt-
úruvernd í því að tryggja laxa-
varlega um Elliðaársvæðið og það
haft að leiðarljósi að spilla ekki
umhverfinu þrátt fyrir að um
svæðið hafi verið lagt holræsi og
hitaveita."
Meðalrennsli í ánum eru 4
rúmmetrar á sek., en á sumrin fer
rennslið allt niður í 1,2 til 1,5
rúmmetra á sek. Vatnsmiölun úr
vatninu er nýtt á veturna og þá
notuð til rafmagnsframleiðslu. Á
vorin hefur hinsvegar gengið það
mikið á vatnsforðann í vatninu,
sem er í hæstu stöðu á haustin, að
þörf er á vatnssöflun til vetrarins.
Bae, Höfdwrtrönd, 21. Júnf.
ÞAÐ var sól og sumar eins og get-
ur best orðið er við Stína Gísla-
dóttir, guðfreðinemi, beimsóttum
sumarbúðir barna á vegum þjóð-
kirkjunnar á Hólum. Þarna voru
40 börn í fimm daga orlofi, 9 til 12
ára gömul. Áætlað er að þar dvelji
160 börn í sumar, en á þeim þrem-
ur árum sem búðir þessar hafa
starfað hafa þar verið 500—600
börn og mörg af þeim sækjast eftir
að koma ár eftir ár. Nú voru þarna
20 úr Skagafirði og 20 úr Húna-
þingi.
Kostnaður í hverjum flokki er
krónur 1000 á barn. Sumarbúða-
stjóri er Karl Lúðviksson,
Varmahlíð, en þar að auki eru
þar til skiptis prestar úr Skaga-
firði og Húnavatnssýslu og skól-
astjórinn á Hólum. Er við kom-
um þangað var Hjálmar Jóns-
son, prófastur Skagfirðinga, þar
starfandi. í þessum sumarbúð-
um eru börnum kynntir ýmsir
þættir sem þroskað geta skap-
höfn þeirra. Staðurinn og kirkj-
an eru skoðuð, búskapur í mörg-
um greinum, sem rekinn er á
Hólum, sund og þjálfun á hest-
um, hirðing á herbergjum og föt-
um, skyndihjálp og æfing í fé-
lagsmálum sem uppvaxandi fólki
má að gagni verða. Börnin eru
stillt og prúð og full af áhuga að
taka þátt í þessu uppbygg-
ingarstarfi. Því miður er ekki
hægt að fullnægja öllum þeim
umsóknum sem berast, en sann-
kölluð lífsfylling fannst mér að
kynnast þessu starfi.
Björn í Bæ.
Morgunblaðið/Gunnar Vigfússon
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og Matthías Á. Mathiesen viðskipta-
ráðherra ásamt hinum nýskipuðu sendiherrum: Francizek Stachowiak, Muz-
ammel Hussain og Abdelaziz Kara.
Þrír nýskipaðir sendiherrar
NÝSKIPAÐUR sendiherra Pól-
lands, hr. Franciszek Stachowiak,
nýskipaður sendiherra Bangla-
desh, hr. Muzammel Hussain, og
nýskipaður sendiherra Alsírs hr.
Abdelaziz Kara, afhentu forseta
Islands trúnaðarbréf sín þriðju-
daginn 11. júní að viðstöddum
Matthíasi Á. Mathiesen viðskipta-
ráðherra.
Síðdegis þáðu sendiherrarnir
boð forseta íslands á Bessastöðum
ásamt fleiri gestum. Sendiherra
Póllands hefur aðsetur í Osló en
sendiherrar Als'r og Bangladesh í
Stokkhólmi. (Frétutilkynning.)
Flateyringum færð
þrektæki
FUteyrí, 13. júní.
LIONSKLÚBBUR Önundarfjarð-
ar gaf nýlega mjög fullkomin
þrektæki, að verðmæti um 70 þús-
und krónur, til Sundlaugar Flat-
eyrarhrepps.
Ægir E. Hafberg, sparisjóðs-
að gjöf
stjóri, afhenti tækin fyrir hönd
Lionsmanna, en Eiríkur Finnur
Greipsson, oddviti, tók við þeim
fyrir hönd Flateyrarhrepps.
Sagði Eiríkur þessa rausnarlegu
gjöf sýna glöggt hvern hug
lionsmenn bæru til heimahag-
anna. glH "
Tökum að okkur að rétta og
lagfæra legsteina í kirkjugörðum.
S.HELGASONHF
STEINSNIIOJA
SKEMMUVEGI 48 SlMI 76677
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
S.HELGASON HF
STEINSMIOJA
SKOvWLfVEGI 48 SÍMI 76677
V
LEGSTEE ^AR “ H.F. ími 81960
MOSAIK Hamarshöfða 4 — S
m Itfgnndiifeifr
tn CO MetsöluUað á hverjum degi!