Morgunblaðið - 23.06.1985, Page 56
E
BTTNMTAllSSEftMR
OPINN 9.00-00.30
SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Framkvæmdastofnun:
25 hafa sótt um
lán til fiskeldis
Aætlað lánsfé stofnunarinnar dugar hvergi nærri
FRAMKVÆMDASTOFNUN ríkisins auglýsti nýlega eftir umsóknum um
lin til fiskeldisstöóva vegna framkvæmda i irinu 1985. 25 umsóknir hafa
þegar borist og er Ijóst að það fé sem stofnunin hefur til riðstöfunar til
þessara hluta (67 milljónir kr.) dugar hvergi nærri til aó anna eftirspurn.
Benedikt Antonsson skrifstofu-
stjóri Framkvæmdastofnunar rík-
isins sagði að á lánaáætlun
Byggðasjóðs væri 12 milijónum
varið til fiskeldis og áætlað hefði
verið að verja 55 milljónum úr
Framkvæmdasjóði til sömu hluta.
Hann sagði að auglýst hefði verið
eftir umsóknum til að kanna þörf-
ina. Þegar hefðu borist 25 um-
sóknir. Þar af væru 4 sem áætluðu
að framkvæma fyrir meira en 20
milljónir kr. í ár, 4—5 sem áætl-
uðu að framkvæma fyrir 10—20
milljónir í ár, en aðrir væru með
hugmyndir um minni fram-
kvæmdir. Sagði Benedikt að rætt
hefði verið um að lána 30—40% af
framkvæmdakostnaði, en miðað
við þann fjölda umsókna sem bor-
ist hefði væri ljóst að Fram-
kvæmdastofnun hefði helmingi of
lítið fjármagn til ráðstöfunar f
þessu skyni.
Benedikt sagði enn ekki ljóst
hvernig lánveitingum til fiskeldis
yrði hagað, hvort lánin yrðu veitt
beint eða í gegnum atvinnuvega-
sjóðina. Þá væri ekkert búið að
ákveða hverjir fengju lán, né hve
mikið. Bjóst hann við að þessi mál
kæmu til umfjöllunar á næsta
stjórnarfundi Framkvæmdastofn-
unar ríkisins.
ráði að breyta götunni í vistgötu i
kaflanum frá Skólavörðustíg að
Klapparstíg. Áætlað er að fram-
kvæmdum verði lokið með haust-
Neðsta hluta Lauga-
vegs breytt í vistgötu
HAFINN er undirbúningur að
breytingum á umferð um Laugaveg
og endurbótum á götunni og er í
Þjófanet tek-
in á fjörum
Heiroari 21. jóai.
Veiðieftirlitsmenn sem hafa gát á
veiði í Ölfusá og Þjórsá hafa undan-
farna daga tekið nokkur ólögleg net
úr sjó við Eyrarbakka og Þorlákshöfn.
Að sögn annars eftirlitsmannsins
er þetta hreinn veiðiþjófnaður eða
tilraun til slíks en enginn fiskur
hefur verið í netunum. Skýringin á
þessum netum er sennilega sú að
veiðihugurinn gagntekur menn
strax á vorin og þeir láta undan
freistingunni, en eftirlitsmennirnir
hafa gát á öllu og nota m.a. flugvél
við eftirlitsstörfin þannig að erfitt
er að komast undan vökulum aug-
um þeirra. Sig. lóns.
Sigltfrá Valþjófsstað
________ í Fljótsdal til sjávar
GeitagerM.
ÞAÐ BAR til tíðinda um síðustu helgi að fjórir menn, þeir Stefán Þormar, Geitagerði, Jón Þráinsson, Fellaborg,
og bræðurnir Sveinn og Þorvarður Ingimarssynir, Eyrarlandi, sigldu á bát sennilega eina lengstu leið sem sigld
hefur veríð eftir íslenzku vatnsfalli. Hófu þeir ferðina á Jökulsá I Fljótsdal við Valþjófsstað kl. 22 á Töstudags-
kvöld, sigldu síðan niður ána í Lagarfljót og út eftir fljótinu, þar til komið var út á Héraðsflóa. Þangað voru þeir
komnir um kl. 16 á laugardag. Leiðin er u.þ.b. 90 km.
Ferðin gekk mjög vel. Veður var eins og bezt varð á kosið, hægur andvari af suðvestri og jafnvel sjórinn
rennisléttur. Víðast var leiðin greið en sums staðar þurfti að varast grynningar, jafnvel staksteinóttar.
Við Lagarfoss þurfti að flytja bátinn nokkur hundruð metra fram hjá fossinum, sem var álíka óárennilegur og
laxastiginn er laxinum.
Yfirborðsstaðan í Lagarfljóti var í hærra lagi og er það skilyrði fyrir því að svona ferðalag gangi vel. G.V.Þ.
Umræddur kafli götunnar
verður eftir breytingarnar eins
konar torg, þar sem gangstéttir
hverfa, og samkvæmt þeim hug-
myndum, sem unnið er eftir, er
gert ráð fyrir að lagðar verði flís-
ar í götuna og gróðursett tré.
Jafnframt er gert ráð fyrir að
umferð bifreiða verði mjög tak-
mörkuð frá því sem nú er. Stræt-
isvagnar munu áfram fara um
þennan kafla Laugavegs, en
væntanlega verður þrengt svo að
umferð ökutækja, að menn leggi
ekki leið sina þarna um nema í
brýnustu erindagjörðum, enda
eru vistgötur sem þessar einkum
hugsaðar fyrir gangandi vegfar-
endur.
Fiystíhúsið Baldur í Keflavík:
Flytja ferskfisk á
Bandaríkjamarkað
EIGNIR Frystihússins Baldurs í
Keflavík hafa verið seldar nýju
hlutafélagi og verður gengið form-
lega frá kaupunum 29. júní. Kaup-
endurnir eru Björn Ólafsson, for-
stjóri Baldurs, og hlutafélagið Stefn-
ir hf„ sem er í eigu Eiríks Hjartar-
sonar og Heklu hf. Eignarhlutar í
nýja fyrirtækinu munu skiptast
þannig að Björn Ólafsson á 75% en
Stefnir hf. mun eiga 25%. Að sögn
Björns Ólafssonar ætlar nýja fyrir-
tækið að einbeita sér að vinnslu á
ferskum fiski til útfluttnings.
Krómmengun af sementi:
Múrurum hættara en öðrum
að deyja úr lungnakrabba
MÚRURUM hér á landi er tvöfalt hættara við að deyja úr illkynja æxlum,
sérstaklega lungnakrabbameini, en öðrum íslenskum körlum. Þeim er
sex sinnum hættara við að deyja úr illkynja æxium í barka, berkjum og
lungum. Þetta kom í Ijós í rannsókn á dánarmeinum íslenskra múrara frá
1951—1982, sem gerð var af Vilhjálmi Rafnssyni og Sofflu G. Jóhannes-
dóttur. Niðurstöðurnar voru birtar í grein í nýjasta hefti Læknablaðsins.
I úrtakinu voru alls 449 múr-
arar fæddir á árunum 1905—
1945 og hafði 81 þeirra látist er
rannsóknin var gerð. Segir í
greininni, að 20 árum eftir að
múrararnir hlutu sveinsréttindi
virðist þeir vera í meiri hættu á
að deyja en almennt megi búast
við með íslenska karla. Af múr-
urum, sem starfað höfðu í 30 ár
við greinina, höfðu 38 dáið en
eðlilegt væri að 27,82 þeirra
væru látnir.
Sérstaklega er vikið að snefil-
efnum í sementi, krómi, nikkeli
og kóbaiti og minnt á, að þau
geti haft áhrif á heilsufar múr-
ara. „Sérstaklega þarf að beina
athyglinni að krómi en í sementi
er mest af því af þessum efnum,“
segir i greininni í Læknablaðinu.
„Störfum við múrvinnu fylgja
reyndar óhreinindi af ýmsum
efnum og vinnuaðstæðurnar fela
í sér mikið líkamlegt álag og erf-
iði. Aðstæður þessa hóps, sem
hér hefur verið athugaður, hafa
að sjálfsögðu verið mismunandi
með tilliti til þessa, bæði hvað
varðar hag hvers einstaklings
fyrir sig og einnig hafa vinnuað-
ferðirnar og þau efni, sem unnið
hefur verið með, að einhverju
leyti breyst á því tímabili, sem
rannsóknin nær til. Ekki Iiggja
fyrir upplýsingar um starfsferil
einstaklinga í hópnum, en sam-
eiginlegt þeim er, að allir hafa
hlotið sveinsréttindi sem múrar-
ar og þannig unnið lágmarks-
tíma við múrverk. Allir í hópn-
um hafa því unnið með sement
og steypulögun og orðið fyrir
krómmengun, sem því fylgir,
bæði í formi loftmengunar, ryks
og úða, auk óhjákvæmilegrar
húðsnertingar."
í niðurlagi greinarinnar í
Læknablaðinu segja þau Soffía
G. Jóhannesdóttir og Vilhjálmur
Rafnsson:
„Niðurstöður þessarar rann-
sóknar sýna, að múrararnir eru í
meiri hættu á að deyja en ís-
lenskir karlar almennt. Þessi
aukni manndauði er vegna fleiri
dáinna úr illkynja æxlum, sér-
staklega lungnakrabbameini.
Þess vegna verður að leita í
vinnuaðst "ðum múrara að skýr-
ingum á , ví, að svo margir
þeirra deyja úr lungnakrabba-
meini. Gera verður nákvæma út-
tekt á hollustuháttum við múr-
vinnu og sérstaka leit að hugsan-
legum krabbameinsvöldum. Á
niðurstöðum slíkra kannanna
verður að byggja forvarnarað-
gerðir."
1 Keflavík er nú aðeins eitt
frystihús starfandi, en það er
Hraðfrystihús Keflavíkur sem er
Sambandsfyrirtæki. Röstin hefur
verið lokuð í tvö ár, Heimir hf. varð
gjaldþrota og frystihús Keflavíkur
hf. brann fyrir tveimur árum. „Það
sem háði okkur er m.a. aflabrestur,
gengi og erfið fjárhagsstaða. Þann-
ig ákvaðu bankarnir til dæmis að
breyta öllum lánum frystihúsa úr
dollurum og krónum yfir í SDR
(sérstök dráttarréttindi, innsk.
Morgunblaðsins) og reiknaðist það
sem 9% eignaupptaka á birgðum
okkar,“ sagði Björn Ólafsson. Að
sögn Eiríks Hjartarsonar forstjóra
ístros vilja margir frystihúsaeig-
endur selja fyrirtæki sín. „Það
virðist vera nóg af frystihúsum á
markaði, en kannski ekki mikill
markaður fyrir þau.“
Fyrirtæki Eiríks Hjartarsonar,
ístros, flytur út ferskfisk til
Bandaríkjanna. Frystihúsið Baldur
hefur tvo báta sem hafa leyfi til að
veiða kola og vélar þess eru sérút-
búnar til vinnslu á honum. Fyrst
um sinn er áætlað að vinna kola og
skarkola fyrir Bandaríkjamarkað
en síðar ætlar fyrirtækið að hefja
vinnslu á öllum fisktegundum sem
eru á boðstólum. Þetta mun valda
fjórföldun á starfsmannafjölda úr
7 manns uppí 25—30. „Við erum
bjartsýnir, enda hef ég enga trú á
því að Ingimundur Sigfússon i
Heklu og Eiríkur Hjartarson leggi
peninga í óarðbært fyrirtæki,"
sagði Björn ólafsson útvegsmaður
í Keflavík.