Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 16
16____________________MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 29. JÚNt 1985_ Um Hafnarbúðir og hreppaflutn- inga aldraðs fólks til Fossvogs — eftir Einar Valdimarsson Fram kom í Morgunblaðinu þann 9. þ.m. að fjármálaráðherra hafi fyrir hönd Ríkissjóðs gert kauptilboð í Hafnarbúðir og að borgarráð hafi fallist á kauptilboð þetta með ákveðnum fyrirvara. Skömmu síðar er haft eftir heil- brigðismálaráðherra í sama blaði að Landakotsspítali taki að öllum líkindum við rekstri Hafnarbúða ef af kaupunum verði og að þeir sjúklingar sem þar vistast nú verði fluttir í B-álmu Borgarspít- alans! Af þessu tilefni lét Læknaráð Borgarspítalans frá sér fara greinargerð um Hafnarbúðir, sem birtist í Morgunblaðinu þ. 16. júní sl. í greinargerðinni er sagt frá stofnun sjúkradeildarinnar í Hafnarbúðum á sínum tíma, húsið var algjörlega endurbyggt með ærnum kostnaði, sem greiddur var að fullu af Reykjavíkurborg. Lýst er þeirri ágætu starfsemi sem þar er nú rekin. Hjúkrunardeildin er ein af deildum Borgarspítalans, plássunum þar er að nokkru leyti ráðstafað í samráði við heimilis- hjálp og heimahjúkrun Reykjavík- urborgar. Þannig hefur vel rúmur þriðjungur langlegusjúklinga deildarinnar frá upphafi komið beint úr heimahúsum, einnig hef- ur deildin boðið upp á skammtíma innlagnir fyrir lasburða gamal- menni í heimahúsum, þannig hef- ur verið hægt að veita 280 heimil- um skammtíma hvíld á starfstíma deildarinnar. í greinargerðinni lýsir Læknaráð Borgarspítalans furðu sinni á fréttum um hugsan- leg kaup rikisins á Hafnarbúðum, þar eð ekkert samráð hafi verið haft um mál þetta við forráða- menn og starfsfólk Borgarspítal- ans eftir að stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum 11. jan. sl. eftirfar- andi: „Stjórn sjúkrastofnana Reykja- víkur telur ekki að það leysi neinn vanda hjúkrunarsjúklinga í Reykjavík, þó að Hafnarbúðir yrðu fengnar Landakotsspítala í hendur, þar sem rúmafjöldi í heild ykist ekki við það. Það mundi aft- ur á móti raska starfsemi hjúkr- unardeilda, sem langan tíma hef- ur tekið að byggja upp og eru vel reknar í samræmi við upphafleg- an tilgang og markmið." { framhaldi af birtingu þessarar greinargerðar hafði Morgunblaðið viðtal við Ólaf Örn Arnarson, yfir- lækni á Landakotsspítala þ. 22. júní sl. Ólafur yfirlæknir segist í viðtali þessu álíta að Landa- kotsspítali eigi fullan rétt á því að taka við rekstri Hafnarbúða, enn fremur telur hann það vekja at- hygli að í grein Læknaráðs Borg- arspitalans séu alls ekki taldar upp þær langlegudeildir, sem spít- alinn hafi yfir að ráða, nefnir hann þar m.a. Grensásdeild og Arnarholt á Kjalarnesi. Þessi um- mæli þarfnast athugasemda. Hjúkrunarrými í Arnarholti eru ætluð geðsjúku fólki og tilheyra Geðdeild Borgarspítalans. Þau gagna ekki öðrum deildum spítal- ans. Kunnugt er að engin geðdeild er við Landakotsspítala. Grensásdeild Borgarspítalans er ekki langlegudeild heldur eru stundaðar þar rannsóknir, með- ferð og endurhæfing sjúklinga með taugasjúkdóma og gigtar- sjúkdóma svo og endurhæfing eft- ir alvarleg slys. Þessi starfsemi innan vébanda Borgarspítalans, sér í lagi endurhæfing sjúklinga með einkenni frá taugakerfi, eyk- ur verulega þörf spítalans fyrir langvistunarpláss. I þessu sam- bandi er einnig rétt að geta þess að Borgarspítalinn rekur einn spítalanna hér í Reykjavík svo- kallaða slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn, því er hlutur Borg- arspítalans langsamlega stærstur í bráðaþjónustunni í borginni. Það skal einnig nefnt að með tilkomu Okkur tókst þaó aftur. Litur-. Brúnn með gylltum strípum Vinyl toppur: Brúnn Klæðning innan: Ljóst leður Vél: V8 5.2 1. Sjálfskiptur Tölvustýrð elektrónisk kveikja Heavy duty fjöðmn m/jafnvægisstöng að framan Aflhemlar Aflstýri Loftkæling (Aír Conditioning) Veltistýri — leðurklætt Gólfmottur — framan/aftan Rafdrifnar rúður Rafdrifnar hurðalæsingar Rafdrifið útvarpsloftnet / Rafdrifinn skottloksopnari i Rafdrifin sæti (h/v) Útvarp/kassettutæki AM/FM m/sjálfvirkum stöðvaleitara Digital klukka Þurrkur m/biðtíma Litað gler Plussteppi á gólfum Hjólbarðar: P205/75R15 (Michelin) m/hvítum hring Teinahjólkoppar Verð aðeins: 1.364.770,- s > DODGE ARIES CUSTOM 4-DYRA ÁRG. 1984 - NÝR 2ja dyra framdrifinn lúxusútfærsla af Chrysler. CHRYSLER LE BARON ÁRG. 1983 - NÝR Framdrifinn og spameytinn amerískur gæðavagn Litur: Brúnn-sanseraður Klæðning innan: Drapplitað tauáklæði Vél: 4 cyl 2,2 1. Sjálfskipting — framdrif • Tannstangar-aflstýri • Aflhemlar *Tölvustýrð elektrónisk kveikja • De luxe innrétting • Hituð afturrúða • Þurrkur með biðtíma • Stillanlegir höfuðpúðar • Læsanlegt hanskahólf »De luxe hjól- koppar • Halogen aðalljós Verð aðeins: 824.190,- Litur: Gullsanseraður Vinyl toppur: Brúnn Klæðning innan: Brúnt velour Vél: 4 cyl 2.2 1. Sjálfskipting — framdrif • Tannstangar-aflstýri • Aflhemlar • Tölvustýrð elektrónist kveikja • Loftkæling (Air Conditioning) • Veltistýri — leður- klætt • Rafdrifnar rúður • Rafdrifnar hurðarlæsingar • Rafdrifið útvarps- loftnet «Rafdrifin sæti •Rafdrifinn skottlosopnari *Útvarp/kassettutæki AM/FM m/sjálfvirkum stöðvaleitara • Digital klukka • Dömuspegill m/ljósi • Sjálfvirkur hraðastillir • Þurrka með biðtíma • Litað gler Verð aðeins: 1.037.360,- opið í dag frá ki. 13.00—17.00 yjá CHRYSLER JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.