Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1985 RANN ÚT AF FLUGBRAUTINNI AP/Símamynd DC-10 flugvél bandaríska flugfélagsins American Airlines rann út af flugbrautinni á alþjóðaflugrellinum Munoz marin á San Juan á Puerto Rico í gær. Flugstjóri flugvélarinnar, sem var á leið til Ilallas í Bandaríkj- unum, þurfti að hætta við flugtak vegna þess að hjólbarðar þotunnar sprungu rétt áður en hún átti að fara í loftið. Nokkrir hinna 653 farþega, sem voru um borð, slösuðust lítillega er flugvélin rann af flugbrautinni í votlendi, sem er umhverfis flugvöllinn. Bush sakar Sovétríkin um að auka yígbúnað Sovétmenn koma stöðugt upp fleiri SS-flaugum Hrusw l, 28. júní. AP. GEORGE Bush, varaforseti Bandaríkjanna, sakaði í dag Sov- étríkin um að auka á vígbún- aðarkapphlaupið með því að fjölga hjá sér meðaldrægum eldflaugum, sem miðað væri á Vesturlönd. James Bobbins, embættismaður í bandaríska utanríkisráðuneyt- inu, skýrði svo frá í dag, að Rússar hefðu fjölgað SS-flaugum sínum um 9 eða úr 414 í 423 á tveimur mánuðum og til viðbótar væri enn verið að koma upp mörgum slíkum flaugum bæði í vestur- og austur- hluta Sovétríkjanna. Á fundi með fréttamönnum í Brússel gagnrýndi Bush Sovétrík- New York: Hótelstarfs- menn semja New York, 28. júní. AP. ÞÚSUNDIR fagnandi hótelstarfs- manna samþykktu í gær kjarasamn- ing við vinnuveitendur en sam- kvæmt honum hækka laun fólksins um 75 dollara á viku, eða um 3.125 ísl. kr. Hækka þá mánaðarlaunin um 12.500 kr. Voru þessir samningar sam- þykktir með yfirgnæfandi meiri- hluta og eru starfsmennirnir mjög ánægðir með þá. Var verkfall 25.000 hótelstarfsmanna búið að standa í 28 daga og lengst af bar mikið i milli. Hótelstarfsmenn höfðu áður 315 dollara í vikulaun sem gera tæpar 53.000 ísl. kr. á mánuði, en nú munu launin fara í 390 dollara, um 65.000 ísl. in fyrir að taka ekki alvarlega af- vopnunarviðræðurnar í Genf. Það væri hins vegar markmið Banda- ríkjanna að ná þar samkomulagi um að draga „verulega úr vígbún- aði“. Með því að halda áfram að koma upp SS-eldflaugum, sem búnar væru þremur kjarnaoddum hver og gætu dregið til allra staða í Evrópu, væri ljóst, að Sovétmenn væru ekki einlægir í að draga úr vígbúnaði. Bush gerði einnig grein fyrir geimvarnaáætlun Reagans for- seta. Þá ræddi hann ennfremur um þá vaxandi ógn, sem stafar af London: Er ástandið í Uganda verra en í tíð Amins? Fyrrum öryggislögreglumaöur segir frá manndrápum og pyntingum London, 28. júní. aP. MAÐUR, sem kveóst vera fyrrum öryggislögreglumaður í Uganda, sagði frá því í gær, fimmtudag, að hann hefði drepið með eigin bendi 350 manns og pyntað marga eftir skipunum frá Ugandastjórn. Á blaðamannafundi í London i gær, sem útlagar frá Úganda og stjórnarandstæðingar efndu til, sagði Emmanuel Kaddu frá því hvernig hann hefði rist fólk á kvið, hellt bráðnu plasti inn í iðrin og brotið höfuð þess og limi með hamri. Sagði Kaddu, að ástandið í Uganda væri nú enn verra en það hefði verið á dögum Idi Amins, sem var þó alræmdur fyrir manndráp og pyntingar. Hermenn frá Tanzaníu hröktu Amin frá ár- ið 1979 og var þá Milton Obete kjörinn forseti. Kaddu gekk í öryggislögregluna árið 1980 og var þjálfaður á Kúbu ásamt 150 öryggisvörðum öðrum. Níu mánuðum síðar var hann bú- inn að fá nóg. „Ég drap marga menn, um 350 alls,“ sagði hann, „en félagar mín- ir myrtu enn fleiri, fleiri en þeir höfðu tölu á.“ Það var verk Kaddus að fylgja stjórnarhermönnunum eftir þegar þeir voru að eltast við skæruliða og hann segir frá því, að einu sinni hafi 200 óbreyttir borgarar verið drepnir vegna þess, að skærulið- arnir voru flúnir. „Við ruddumst inn í húsin og ristum fólkið á kvið með byssusting án tillits til hvort um var að ræða skæruliða eða ekki. Okkur var skipað að fara svona að,“ sagði Kaddu. Hann sagði einnig frá pyntingum, sem stundaðar væru í Uganda og oft að beinni skipan æðstu manna. Væri þá t.d. bráðnu plasti hellt yfir fólk Bandaríska fulltrúadeildin: Dauðadómur fyrir njósnir á friðartíma Wa.shington, 28. júní. AP. FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings samþykkti í gær, að leyfilegt væri að kveða upp dauðadóma í málum her- manna, sem gerðust sekir um njósn- ir á friðartímum. Núgildandi lög heimila dauða- dóm yfir hermönnum sem gerast njósnarar á stríðstímum, en að- eins 10 ára fangelsisdóm þegar friður ríkir. Ef tillagan verður endanlega samþykkt munu gilda ein lög um njósnir hermanna hvort sem er í stríði eða friði. Bill McCk)llum þingmaður repúblik- ana, bar tillöguna fram og kvaðst hann geta nefnt eitt mál öðrum fremur, sem gerðu þessi lög nauð- synleg, en það væri Walker-málið svokallaða. Átti hann þá við John Anthony Walker og þrjá menn aðra, núverandi eða fyrrverandi hermenn, sem hafa verið hand- teknir og sakaðir um njósnir fyrir Sovétmenn. hryðjuverkamönnum, en vildi ekk- ert segja um það, hvaða ráðstaf- anir væru í undirbúningi til þess að frelsa bandarísku gíslana í Beirút. Fréttamannafundur Bush var haldinn eftir sérstakan 75 mín- útna fund hans og sendiherra þeirra 16 ríkja, sem aðild eiga að NATO. Síðdegis í dag hélt Bush svo flugleiðis til Genf. eða það neytt til að halda á hand- sprengju, sem kveikipinninn hefði verið tekinn úr, og barið með hamri. Væri þetta gert til að kom- ast yfir upplýsingar, sem fólkið byggi hugsanlega yfir, og skipti það hermennina engu máli hvort fórnarlömbin lifðu af eða ekki. Kaddu flýði til Kenýa árið 1981 og komst til Bretlands árið 1984 þar sem hann býr nú með konu sinni og barni. Veður víða um heim Akureyri Amrturdam Aþuna Barcekma BrOaaal Chtcago Dubtin Frankturl Ganf Holslnlci Hong Kong lonfmlini Kaupmannah Lúramborg MaMorca Moakva Naw York OalA Pakmg Raykjavík Ri6 da Janairo Stokkltólmur Sydnoy Tófcýó Vinarborg Mrahðtn 10 20 12 0 21 I 10 11 27 10 11 1« 12 10 25 10 13 14 11 12 20 13 10 18 1« « •kýfað 17 akýjað 33 haiðakfrt 21 miatur 18 akýjað 18 akýjað 27 akýjaö 16 akýjað 22 Mttakýjað 16 rigning 21 haiðakirt vantar 31 haiðakfrt 27 haiðakirt 18 akýjað 24 Mttak. 28 haiðakirt 17 akýjað 35 akýjað 13 akýjað 27 haiðakirt 28 Mttak. 32 akýjað 23 akýjað 15 haiðakirt 16 rigning 18 akýjað 18 akýjað 31 akýjað 12 akýjað 27 akýjað vantar vantar 18 haiðakirt 18 haiðakfrt 24 rigning 8 alakýjað Fríhöfnin á Kastrup: Áfengi og tóbak lækkar í verði Um mánaðamótin tekur gildi verðlækkun á áfengi og tóbaki í fríhöfn- inni á Kastrup-flugvelli fyrir utan Kaupmannahöfn. Er þetta liður í þeirri stefnu danska samgönguráðuneytisins, að gera fríhöfnina á vellinum hina ódýrustu í Evrópu. Til marks um verðlækkunina má nefna, að hver vindlinga- lengja lækkar að meðaltali úr 105 dönskum krónum í 76 d.kr. Hver flaska af Smirnoff-vodka lækkar úr 72 d.kr. í 45 kr. og flaska af Chivas Regal-viskíi lækkar úr 200 d.kr. í 144. Lækkun sumra annarra áfeng- istegunda er minni. T.d. lækkar Álaborgar-ákavíti aðeins úr 59 d.kr. í 50 og flaska af Ballant- ine-viskíi úr 86 d.kr. í 70 kr. Þá verður sú breyting jafn- framt í fríhöfn Kastrup-vallar á mánudag, að þar hefst sala á súkkulaði. Það hefur ekki verið á boðstólum þar fyrr. Irakar gera loft- árás á olíuskip Baedad, 28. júní. AP. HERÞOTUR íraka gerðu í dag loftárás á olíuflutningaskip í grennd við olíuhöfn írana á Kharg-eyju. Var þcssi árás gerð í refsingarskyni fyrir það, að íranir hertóku fyrir nokkru flutningaskip frá Kuwait. Sagði talsmaður íraka, að „haldið yrði áfram að refsa fyrir sjórán árásar- mannanna og spilla fyrir olíuútflutningi þeirra, þar til þeir hefðu fallizt á algeran frið/ Herskip Irana tóku flutn- ingaskipið Al-Muharraq frá Kuwait 20. júni sl., er það nálg- aðist Hormuz-sund á siglingu frá Evrópu og færðu það til hafnar í íran. IRNA, hin opinbera frétta- stofa írans, hélt því fram í dag, að íranskar hersveitir hefðu algerlega hrundið árás íraka á Majnoon-eyju, þar sem mikil olía er unnin úr jörðu. Hefðu Irakar orðið þar fyrir miklu manntjóni. Frásögn IRNA af þessum at- burðum var mjög á annan veg en tilkynning írösku herstjórnar- innar í útvarpinu í Bagdad á fimmtudagskvöld. Þar var sagt, að 10.000 manna lið íraka hefði „gert skyndiárás á stöðvar óvin- anna á olíusvæðinu á Suður- Majnoon" og náð því á sitt vald.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.