Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLl 1985 43 -z? VELVAKANDI SVARAR i SÍMA 10100 KL 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þakkir fyrir heiðarlega og trausta viðskiptahætti hórdís G. Stephensen Hverafold 96 í Reykjavík skrifar: Kæri Velvakandi. Ég vil byrja á að þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Ég er ein þeirra er rita ekki oft i blöð. Nú rita ég þér hinsvegar bréf í þeim tilgangi að vekja athygli á smá máli er ég lenti í á dögunum. Svo er mál með vexti að við hjónin erum að byggja, og festum við fyrir ári síðan kaup á eldhúsinn- réttingu og stiga frá fyrirtækinu Benson. Fyrirtæki þetta naut svo mikils trausts og álits manna á meðal að við staðgreiddum inn- réttinguna og stigann og fengum ríflegan afslátt. Húsið reis af grunni og dag einn mættu smiðir með sín tól og hófu að setja upp innréttinguna eins og um var sam- ið. Hófst vinna þeirra um miðja viku og á föstudegi var uppsetn- ingu eldhúsinnréttingarinnar næstum lokið. Á mánudegi lesum við hjónin þá frétt í DV að fyrir- tækið Benson hafi hætt starfsemi sinni en staðið verði við allar skuldbindingar. Við hröðuðum okkur á staðinn en þar var þá allt lokað og læst. Nú var úr vöndu að ráða. Sumir álitu að við ættum að leita til lögfræðinga, en lögfræðilegir ráðunautar okkar tjáðu okkur að málsókn myndi sennilega ekki svara kostnaði, neytendur' væru nú einu sinni nánast réttlausir í málum sem þessum, þó væri hér ekki um hlutafélag að ræða og því sjálfsábyrgð eigendans meiri. Við sáum því ekki fram á annað en að stiginn glæsilegi yrði aldrei smíðaður og eldhúsinnréttingin hálfgerð hrákasmíð, því nú var húsið risið og buddan tóm. Einn kunningi okkar úr viðskiptalífinu hughreysti okkur jafnvel með þeim orðum að best væri að gleyma þessu máli, út úr svona nokkru fengist aldrei neitt. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Smiðirnir sem höfðu starfað hjá Benson-fyrirtækinu reyndust heiðarlegir menn. Þeir neituðu að gefast upp fyrr en í fulla hnefana, héldu gömlu aðstöðunni hjá Ben- son í Borgartúninu og nú er verið að reisa stigann i húsinu okkar og fullsmíða innréttinguna. Nýja fyrirtækið heitir Fossás hf. og ég veit ekki hvort menn trúa því en við hjónin þurftum ekki að borga krónu aukalega fyrir stigann og það sem á vantaði í eldhúsinnrétt- ingunni. Um leið og ég þakka Þorsteini yfirsmið og Finni „stiga- manni“ fyrir viðskiptin og óska hinu nýja fyrirtæki alls góðs í framtíðinni, þá vil ég taka skýrt og greinilega fram að ég skrifa ekki þessa grein í auglýsinga- skyni. Ég er aðeins að benda á hve miklu varðar að heiðarlegir og trausti viðskiptahættir séu hafðir í heiðri. Lærdómsrík bók Hættið að kvarta yfir dagskrá útvarpsins Víðsýnn skrifar. Hverslags nöldurlið er þetta sem sífellt er að kvarta í Velvak- anda yfir lélegri dagskrá útvarps- ins. Hvað vill fólk eiginlega? Áður en rás tvö kom til sögunnar var allt of mikið af sinfóníutónlist og óperugargi eins og sagt var. Núna þegar rásin er komin nöldrar fólk yfir einhæfri dagskrá. Veit fólk ekki að það er hægt að skipta yfir á milli rása? Ekkert er auðveld- ara. í dá'lkum þínum hef ég séð bréf þar sem fólk staðhæfir að öll tónlist á rásinni sé sú sama. Það vill svo til að á rás tvö eru þættir sem nánast engin tónlist er í. Ég ætla að leyfa mér að benda hátt- virtum nöídrurum á þætti á borð við Gestagang, sem er að mínu viti einn besti þátturinn á rás tvö. Þar er ekki bara spiluð ágæt tónlist heldur einnig talað við fólk. Ég veit um marga af eldri kynslóðinni sem hlusta mikið á þennan þátt. Svo má líka benda fólki á að þeir sem stjórna bestu þáttunum á rás tvö eru allir „aldir upp“ á rás eitt, Ragnheiður Davíðs, Arnþrúður Karls, Ásta Ragnheiður, Páll Þorsteins, Ásgeir Tómasson og margir fleiri. Síðan eru líka skemmtilegir þættir á rás eitt svo sem þættir sem koma frá Akur- eyri, sem margir eru hreint af- bragð. Ágætu nöldrarar, skoðið nú málin og reynið að líta raunhæft á dagskrána. Svo er til takki sem má nota í neyðartilfellum. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að akrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma þvf ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða- skipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina þvi til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér i dálkunum. Helgi Vigfússon skrifar: Einn vandaðisti bókaútgefandi landsins, Hafsteinn Guðmundsson í Bókaútgáfunni Þjóðsögu, hefir sent frá sér enn einu sinni vand- aða bók. Þessi bók ber Hafsteini gott og höfðinglegt vitni og sýnir hlýju hans og virðingu fyrir bók- um. Hafsteinn er sérstakur sæmdar- maður í orði og verki og aldrei verður nógsamlega þökkuð sam- viskusemi hans og vandvirkni. „Orð eins og forðum" eftir Bjama Vilhjálmsson, fyrrv. þjóð- skjalavörð, er mikil bók er fjallar um hugleiðingar um margvísleg áhugamál höfundar sem vekur umhugsun og er sannarlega lær- dómsrik aflestrar. Ekki þarf að efa, að þessi .bók verður öllum kærkomin, sem hana hreppa. Gullfalleg gjafabók sem unum vekur að handfjatla. + ♦ * ■* * * •* + * * * * * * + * ♦ * * __ __ _______ ____f * * * bihtgo í Œ ó n a b æ I : I KVÖLD KL. 19.30 * Aðalvinningur * að verðmæti... .kr. 25.000 * * Heildarverðmœti * vinninga.... .kr. 100.000 • NEFNDIN. KEROÍUN STEINOLÍUOFNAR Moonlighter: 2,11 kw. Brennir 6,4 Itr. á 26—36 klst. Hentar fyrir ca. 27 mJ. Radiant 26: 1,81 kw. Brennir 3,4 Itr. á 19—27 klst. Hentar fyrir ca. 20 m2. Radiant 36: 2,92 kw. Brennir 4,9 Itr. á 16—23 klst. Hentar fyrir ca. 34 ms. Skeljungsbúðin SíÖumúla33 simar81722 og 38125 /------------\ 1 léttum dúp Smekklegar gjafír, léttar og hentugar, — og hitta í mark. Höföabakka 9 Reykjavík S. 685411 fHttgtmMfifeife Metsölubku) á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.