Morgunblaðið - 21.02.1986, Page 1
64SÍÐUR B
STOFNAÐ1913
43. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
írakar skjóta niður
íranska farþegavél
Þingmenn og fulltrúi Khomeinis meðal þeirra sem fórust
Nikósíu, Teheran, 20. febrúar. AP.
ÍRANIR skýrðu frá því í dag, að íraskar orrustuþotur hefðu
skotið niður íranska farþegaflugvél í innanlandsflugi og að
allir um borð hefðu farist. Irakar neita þessari frétt. Óljósar
fréttir eru af stríðj þjóðanna. írakar segjast sækja að íranska
innrásarliðinu en íranir halda þvi fram, að áhlaupunum hafi
verið hrundið.
Grænland:
Þingmenn vilja
skólastj óralaun
Kaupmannahöfn, 20. feb. Frá Nils Jörgen Bruun, Grænlandsfréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKU þingmennirnir eru allir á einu máli um að stór-
hækka við sig launin. Finnst þeim við hæfi, að þeir hafi sömu laun
og skólastjórar.
Laun grænlensku landsþings-
mannanna verða hér eftir um
833.000 fsl. kr. á ári, þau sömu og
skólastjórar hafa, og þar við bætast
176.000 kr. fyrir símakostnað,
leigubíla og fleira smálegt. Heildar-
launin munu því losa eina milljón
króna. Að auki á hið opinbera að
greiða allan ferðakostnað þing-
manna. Um þetta var einhugur á
landsþinginu en ekki um hitt hvem-
ig launa skuli „ráðherrana". Meiri-
hluti stjómarflokkanna, Siumut og
Inuit Ataqatigiit, vill margfalda
þingmannslaunin með þremur, að
þau verði nærri tvær og hálf milljón
ísl. kr., en stjómarandstöðunni,
Atassut, finnst nóg að tvöfaida þau.
íranir skýrðu frá þvi í dag, að
íraskar herþotur hefðu skotið
niður farþegaflugvél, sem var í
áætlunarflugi milli Teheran og
Ahvaz. Hefðu allir, sem með
henni vom, 46 manns, farist, þar
á meðal nokkrir þingmenn og
sérlegur fulltrúi Khomeini erki-
klerks, Fadhollah Mahallagi.
Flugvélin var af gerðinni Fokker
Friendship og eftir heimildum í
Bahrain er haft, að hún hafi verið
á vegum íranska hersins. írakar
neita fullyrðingum írana, segjast
aðeins gera árásir á hemaðarleg
skotmörk.
írakar segja her sinn sækja
að olíuborginni Faw, sem nú er
í höndum Irana, en íranir halda
því fram, að árásunum hafí verið
hmndið og að þeir sæki enn
vestur eftir strandlengju Iraks
við Persaflóa. Veður hefur verið
vont á þessum slóðum síðustu
daga en í dag gekk það niður og
hörðnuðu þá bardagar mjög.
Fréttamenn, sem fengið hafa að
fara til vígstöðvanna, segja, að
írakar haldi uppi gífurlegum ár-
ásum á Irana úr lofti og á landi
en lítið sé um að þeir síðamefndu
svari skothríðinni.
Bandar íkj aþing:
Filippseyja-
sljóm svipt
aðstoðinni?
Washington, 20. febrúar. AP.
EIN af undimefndum Bandaríkjaþings samþykkti í dag einróma að
hætt yrði beinni efnahagsaðstoð við stjórn Ferdinands Marcos á
Filippseyjum. Lagði hún til, að þess í stað yrði hluti af framlagi
Bandaríkjamanna fenginn í hendur kaþólsku kirkjunni i landinu.
Corazon Aquino hefur lýst yfir stuðningi sínum við frumvarpið eins
og það kemur frá nefndinni.
Undimefnd fulltrúadeildarinnar
um málefni Asíu- og Kyrrahafsríkja
samþykkti með 9 atkvæðum gegn
engu, að hernaðaraðstoð Bandaríkj-
anna við Filippseyjar yrði lögð til
hliðar og geymd þar til við völdum
tæki „lögmæt ríkisstjóm", sem nyti
stuðnings þjóðarinnar. í frumvarpi
nefndarinnar er ennfremur lagt til,
að efnahagsaðstoðin og framlög til
mannúðarmála verði látin ganga
beint til kaþólsku kirkjunnar á
Filippseyjum. Formaður nefndar-
innar, Stephen Solarz, kvaðst hafa
haft samband við Corazon Aquino,
forsetaframbjóðanda stjómarand-
stöðunnar á Filippseyjum, og hefði
hún lýst ánægju sinni með frum-
varpið.
Fulltrúar ríkisstjómarinnar báðu
nefndina um að fresta afgreiðslu
þessa máls þar til Philip Habib,
sendimaður Reagans, forseta, kæmi
frá Filippseyjum en Solarz sagði,
að ekki hefði mátt bíða með að
„skýra Filippseyingum frá því, að
stuðningi við stjóm Marcosar yrði
hætt en stuðningi við fílippísku
þjóðina haldið áfram". Frumvarpið
verður nú sent utanríkismálanefnd
Bandaríkjaþings til umQöllunar.
í flárhagsáætlun fyrir árið 1986
er gert ráð fyrir 245 milljón dollara
beinni hemaðar- og efnahagsaðstoð
við Filippseyjar en ef fyrmefnt
frumvarp nær fram að ganga mun
mestur hluti þess fjár ekki fara um
hendur Marcosar og stjómar hans.
Moskva:
A geðveikra-
hæli vegna
friðarstarfs
Moskvu, 20. febrúar. AP.
FÉLAGI í óopinberri friðar-
hreyfingu í Sovétríkjunum var í
gær handtekinn og lokaður inni
á geðveikrahæli. Eru þessar
fréttir hafðar eftir öðrum félaga
í hreyfingunni.
Talsmaður friðarhreyfíngarinnar
eða „Samtaka um aukinn skilning
milli Sovétmanna og Bandaríkja-
manna" sagði í dag í Moskvu, að
Nina Kovalenko, ung kona og félagi
í hreyfingunni, hefði verið hand-
tekin í gær þegar hún var á leið
til fundar hjá samtökunum og síðan
lokuð inni á geðveikrahæli. Tveir
aðrir vora handteknir og er ekki
enn vitað hvar þeir em niðurkomn-
ir. Fyrr í þessum mánuði voru 16
félagar í samtökunum handteknir
og hafðir í haldi daglangt.
Stríðið í Chad
Franskar flugbrautarsprengjur sprínga á líbýskum flugvelli í
Norður-Chad. Fremst á myndinni sjást tvær slíkar sprengjur
svífa niður í fallhlíf. Frakkar, sem styðja stjórnina i Chad, hafa
að undanförnu sent þangað aukinn liðsafla vegna nýrra árása
uppreisnarmanna. Njóta þeir fulitingis Khadafys, Líbýuleiðtoga.