Morgunblaðið - 21.02.1986, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRtJAR 1986
6
Að höggva
mann...
Eg verð víst að fara nokkrum
orðum um nýjasta „smell" rík-
isútvarps/sjónvarpsþáttinn hans
Ómars, Á líðandi stundu er skartaði
á skerminum síðastliðinn miðviku-
dag. Aðalgestur þáttarins að þessu
sinni var sjálfur dr. Jóhannes Nord-
al sem Agnes kallaði valdamesta
mann á Islandi. í samræmi við
áætluð völd Nordals voru þau
Agnes og Ómar nánast bljúg og
afar mjúkmál, spurðu í mesta lagi
hvort Jóhannes væri álíka laginn
við að veiða stjómmálamenn og lax
á flugu. Að sjálfsögðu var Nordal
afar ljúfur viðræðu og varð rabbið
um tíma álíka manneskjulegt og
þegar Jónas Jónasson tekur menn
tali en slík manneskjulegheit virðast
nú nánast útlæg úr ljósvakafjöl-
miðlunum. Menn eiga helst að vera
ágengir og „þrýsta" á viðmælendur.
Hvurskonar þjóðfélag er eiginlega
að rísa hér á íslandi, á að innleiða
hér samfélag frekjudólga er geta
ekki talast við nema í hálfkveðnum
vísum eða með ónotum. Ég hef það
á tilfinningunni að „dólgafijáls-
hyggjan" (andheiti við dólgamarx-
isma) valdi því að menn séu ekki
gjaldgengir nema þeir kunni að rífa
kjaft og sá í mestum hávegum
hafður er setur viðmælandann
rækilegast úr jafnvægi. Það er svo
aftur stór spuming hvort Agnes
Bragadóttir skyggnist dýpra í sína
viðmælendur en Jónas Jónasson.
Persónulega er ég þeirrar skoðunar
að menn kynnist fólki ekki nema
fara varlega að því og hafí þá frum-
reglu í heiðri að ... aðgát sé höfð
í nærvem sálar. Óttast ég að hinn
ljúfí stfll Jónasar, er hefír svo oft
opnað útvarpshlustendum víða sýn
inná sálarlendur, hverfí þegar
samkeppnin harðnar og Ijósvaka-
fjölmiðlamenn neyðast til að taka
upp hinn ágenga stfl, en vissulega
munu aðeins þeir útvarps- og sjón-
varpsmenn lifa af á öld „dólgafrjáls-
hyggjunnar" er halda athygli áhorf-
andans. Auðveldasta leiðin að því
marki er sú sem gjaman hefír verið
farin í þættinum Á líðandi stundu.
Þar eru fáfengileg smáatriði úr
fortíð þekktra persóna grafín upp
og notuð til að „þrýsta“ á viðmæ-
landann í þeim tilgangi að sýna
fram á öfluga „rannsóknarblaða-
mennsku" en þó fyrst og fremst til
þess að „klekkja" á viðmælandan-
um — menn hafa jú alltaf gaman
af því að sjá þekktar persónur fara
úr jafnvægi. Sjónvarpsáhorfendur
fá þar með sitt „brauð" og sína
„leika" rétt eins og lýðurinn í Róm
forðum er aftur þýðir að auglýsend-
ur fá eitthvað fýrir sinn snúð og
einnig þeir ríkisfjölmiðlamenn er
hringsnúast nú í valdastólunum af
ótta við samkeppnina við nýju út-
varpsstöðvamar.
Myndlistin
Það fór sum sé vei á með Jóhann-
esi Nordal og fyrirspyijendunum
og bæði Agnes og Ömar virtust
njóta samverunnar eins og vera
ber. Þá ber þess að geta að Sig-
mundur Emir brá sér niðrí Gallerí
Borg og ræddi við nokkra myndlist-
arfróða menn um ástandið á mynd-
listarmarkaðnum! I þeirri umræðu
kom berlega í ljós að laun myndlist-
armanna hafa lækkað í réttu hlut-
falli við laun annarra launþega enda
næsta eðlilegt þar sem almenningur
á Islandi er helsti kaupandi mynd-
verka.
þannig virðist nokkur lægð á
myndlistarmarkaðnum þessa dag-
ana en máski snýst þessi þróun til
betri vegar í kjölfar nýs listmiðlun-
arfyrirtækis, Islenskrar listmiðl-
unar sf., sem §órir sómamenn hafa
stofnað, þeir bræður Gunnar og
Ólafur Kvaran listfræðingar og
lögmennimir Haraldur Johannessen
og Hallgrímur Geirsson. Mikið væri
annars gaman að hitta þá félaga í
sjónvarpssal og kynnast viðhorfum
þeirra til listarinnar.
Ólafur M. Jó-
hannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Aðbúnaður
o g öryggi á
öyggingar-
vinnustöðum
!■■■ Á dagskrá út-
1 '740 varpsins í dag
A í “ klukkan 17.40
verður á dagskrá þátturinn
„Úr atvinnulífínu" í umsjá
Harðar Bergmann. í þætt-
inum í dag verður að sögn
Harðar íjallað um aðbúnað
og öryggi á byggingar-
vinnustöðum og aðallega
varpað ljósi á það efni með
því að birta brot úr ræðum
framsögumanna á ráð-
stefnu sem haldin var þann
18. þ.m., en þangað var
boðið fulltrúum iðnmeist-
arafélaga, iðnaðarmanna-
félaga og verkamannafé-
laga sem tengjast bygg-
ingariðnaði og fujltrúum
Verktakasamtaka íslands,
Vinnuveitenda og Alþýðu-
sambandsins.
„Komið hefur í ljós að
slysatíðni er með mesta
móti í byggingariðnaði
samanborið við aðrar at-
vinnugreinar," sagði Hörð-
ur. „I ljós hefur komið að
vinnupöllum er víða ábóta-
vant, handrið vantar á
ýmsum stöðum, og örygg-
ishjálmar eru lítt notaðir."
Hörður sagði að í ráð-
stefnulok hefði verið sam-
þykkt tillaga um að mynda
samstarfsnefnd til að vinna
nánar að þessum málum.
Eiginmaðurinn óhamingjusami sem grípur til þess
örþrifaráðs að koma konu sinni fyrir kattamef.
Charles Laughton í hlutverki Philip Marshall.
Bresk sakamálamynd frá 1945:
Grunaður um græsku
Á dagskrá sjón-
50 varpsins í kvöld
“‘ klukkan 20.50
er bresk sakamálamynd
frá 1945. Myndin fjallar
um miðaldra Lundúnabúa,
Philip Marshall, sem giftur
er Coru. Cora er að gera út
af við Philip með stöðugu
nöldri, einkasonur þeirra
yfírgefur heimilið af henn-
ar völdum og Philip er
óhamingjusamur og ein-
mana. Þá hittir hann hina
ungu Mary Grey, sem er
jafn einmana og hann, og
þau verða ástfangin hvort
af öðru. Philip biður Coru
konu sína um skilnað, en
er hún þvertekur fyrir það
grípur hann til örþrifaráðs;
kemur konu sinni fyrir
kattamef og lætur sem hún
hafi látist af slysförum.
Lögreglufulltrúi Scotland
Yard grunar hann þó um
græsku. Philip segir Mary
frá því að hann sé grunaður
um morð, en hún vill að
þau standi saman í erfíð-
leikunum. Leikstjóri mynd-
arinnar er Robert Siodmak.
í aðalhlutverkum era Char-
les Laughton, Ella Raines,
Dean Harens og Stanley
C. Ridges.
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
21.febrúar
7.00 Veðurfregnír. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Undir regnbogan-
um„ eftir Bjarne Reuter. Ól-
afur Haukur Símonarson les
þýðingu sína (9).
9.20 Morguntrimm. Til-
kynningar. Tónleikar, þul-
ur valurog kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál
Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Siguröur
G. Tómasson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum
dagblaöanna.
10.40 „Sögusteinn". Umsjón:
Haraldur I. Haraldsson. (Frá
Akureyri).
11.10 „Sorg undir sjóngleri"
eftir C.S.Lewis. Séra Gunn-
ar Björnsson les þýðingu
sína (3).
11.30 Morguntónleikar
a. Andante fyrir flautu og
hljómsveit K.315 eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart.
Claude Monteux og St.
Martin-in-the-Fields hljóm-
sveitin leikur; Neville Marrin-
erstjórnar.
b. Janet Baker syngur þrjár
aríur eftir Christoph Willi-
bald Gluck með Ensku
kammersveitinni; Reymond
Leppard stjórnar.
c. Konsert í C-dúr fyrir tvo
trompeta og hljómsveit eftir
Antonio Vivaldi. Heinz Zickl-
er og Herbert Thal leika
með Kammersveitinni í
Mainz; Gunther Kehr stjórn-
ar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Svað-
ilfjör á Grænlandsjökul
1888" eftir Friðþjóf Nansen.
Kjartan Ragnars þýddi. Ás-
laug Ragnars les (10).
14.30 Sveiflur. - Sverrir Páll
Erlendsson. (Frá Akureyri).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Síödegistónleikar
17.00 Helgarútvarp barnanna
Stjórnandi: Vernharður
Linnet.
17.40 Úr atvinnulífinu - Vinnu-
staöir og verkafólk. Umsjón:
Hörður Bergmann.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.15 Á döfinni. Umsjónar-
maður Karl Sigtryggsson.
19.25 Húsdýrin. 1. Kýrin.
Barnamyndaflokkur í fjórum
þáttum. Þýðandi Kristín
Mantylð. (Nordvision —
Finnska sjónvarpið.)
19.35 Finnskar þjóðsögur.
Teiknimyndaflokkur í fimm
þáttum. Þýðandi Kristin
Mántylá. (Nordvision —
Finnska sjónvarpiö).
19.60 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Rokkararnir geta ekki
þagnaö. ( þessum þætti
veröur rifjuð upp og kynnt I
19.45 Þingmál. Umsjón Atli
Rúnar Halldórsson.
19.50 Daglegtmál
Örn Ólafsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins
Þóra Björg Thoroddsen
kynnir.
20.40 Kvöldvaka
a. „Hvar er sjalið hennar
móður þinnar?" Óskar Ingi-
marsson les síðari hluta frá-
sagnar eftir Jón Gíslason.
b. Alþýðufróðleikur (3). Hall-
freður Örn Eiríksson tekur
saman og flytur.
c. „Síðasta gangan" eftir
Rögnvald Erlingsson. Gyða
Ragnarssdóttirles.
21.30 Frá tónskáldum
Atli Heimir Sveinsson kynnir
tónverkið „Um ástina og
dauðann" eftir Jón Þórarins-
son.
22.00 Fréttir. Frá Reykjavíkur-
skákmótinu. Dagskrá morg-
FÖSTUDAGUR
21.febrúar
Rokkveita ríkisins, unglinga-
þættir frá árinu 1977, en
þáttarööin verður öll endur-
sýnd í vor. Kynnir: Jón Gúst-
afsson. Stjórn upptöku:
GunnlaugurJónasson.
21.05 Þingsjá. Umsjónarmað-
ur Páll Magnússon.
21.20 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjónar-
maður Helgi E. Helgason.
21.55 Ævintýri Sherlock
Holmes. 4. Dansandi karl-
arnir. Breskur myndaflokkur
í sjö þáttum sem gerðir eru
eftir smásögum Conan
Doyles. Aðalhlutverk: Jer-
emy Brett og David Burke.
Eiginmaöur leitar til Holmes
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma
(23). 22.30 Kvöldtónleikar
a. Paata Burchuladze syng-
ur tvær aríur úr óperunni
eftir Giuseppe Verdi með
Ensku kammersveitinni;
Edward Downes stjórnar.
b. Gideon og Elena Kremer
leika á fiðlu og píanó „Cho-
ses vues á droite et á gauc-
he" eftir Eric Satie og „Le
Printemps" eftir Darius Mil-
haud.
23.00 Heyrðu mig — eitt orð
Umsjón: Kolbrún Halldórs-
dóttir.
24.00 Fréttir.
00.05 Djassþáttur
- Jón Múli Árnason.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á Rás 2 til kl.
03.00.
vegna kynlegra skrípa-
mynda sem hafa skotið
konu hans skelk í bringu.
Þýðandi Björn Baldursson.
22.45 Seinni fréttir.
22.50 Grunaöur um græsku.
(The Suspect) s/h. Bresk
sakamálamynd frá 1945.
Leikstjóri Robert Siodmak.
Aöalhlutverk: Charles
Laughton, Ella Raines,
Dean Harens og Stanley
C. Ridges. Miðaldra versl-
unarstjóri myrðir eiginkonu
sína til aö geta gengið aö
eiga þá konu sem honum
er meir að skapi. Þýðandi
Björn Baldursson.
00.20 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
21. febrúar
10.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og ÁsgeirTómasson.
12.00 Hlé.
14.00 Pósthólfiö
. Stjórnandi: Valdís Gunnars-
dóttir.
16.00 Léttir sprettir
Jón Ólafsson stjórnar tón-
listarþætti með íþróttaívafi.
18.00 Hlé
20.00 Hljóðdósin
Stjórnandi: Þórarinn Stef-
ánsson.
21.00 Dansrásin
Stjórnandi: Hermann Ragn-
arStefánsson.
22.00 Rokkrásin
Stjórnendur: Snorri Már
Skúlason og Skúli Helga-
son.
23.00 Á næturvakt
með Vigni Sveinssyni og
Þorgeiri Ástvaldssyni.
03.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjár
mínútur kl. 11.00, 15.00,
16.00og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
AKUREYRI
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
REYKJAVÍK
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
SJÓNVARP