Morgunblaðið - 21.02.1986, Síða 23
essemm s(a
Kohl
Fréttamenn
aðvaraðir
Bonn, 20. febrúar. AP.
ÞAU óvenjulegu tíðindi gerðust
í dag, að vestur-þýska ríkis-
stjórnin tók fréttamönnum vara
fyrir að vera með lítt rökstuddar
hugleiðingar um rannsókn þá
sem ríkissaksóknari í Koblenz
hefur ákveðið á framburði Kohls
kanslara fyrir tveimur rannsókn-
arnefndum, sem höfðu Flick
mútuhneykslið til athugunar.
í bréfi sem sent var erlendum
fréttastofum sagði að núverandi
staða málsins ætti ekki að verða
tilefni til lítt rökstuddra hugleið-
inga. „Rannsóknin sem hefst nú
mun sýna hvort nokkur fótur er
fyrir kærunni," sagði þar .
MORGUNBIiAÐIÐ,' FÖSTUDAGUR 21. ’FEBRÚ AR1986
Iðnnjósnir:
Sovétmenn reyndu að
ná eignarhaldi á
3 bandarískum bönkum
SOVÉTRÍKIN gerðu leynilega tilraun um
miðjan síðasta áratug til að ná eignarhaldi á
þrem bönkum í Norður—Kaliforniu í þeim til-
gangi að fá aðgang að bandariskum hátækniiðn-
aði, að sögn háttsetra manna hjá bandarisku
leyniþjónustunni. Er þessu lýst sem víðtækri
áætlun Sovétmanna til að fá aðgang að vestrænni
hernaðar— og framleiðslutækni, i grein i Herald
Tribune fyrir skömmu.
Áætlun þessi rann út í sandinn þegar bandaríska
leyniþjónustan varð vör við sérstakt lánafyrirkomu-
lag hjá bönkum í eign Sovétmanna í Singapore sem
miðaði að því að ná eignaraðild að bandarískum
bönkum. Yfirmenn leyniþjónustunnar, hersins og
banka kerfisins segja að þetta mál hljóti að vekja
spumingu um það hvort bandaríska bankakerfið sé
fært um að útiloka ógnanir af þessu tagi við öryggi
þjóðarinnar.
Hefði Sovétmönnum tekist að ná eignarhaldi á
bönkunum hefði það gert þeim kleift að komast að
ýmsum trúnaðarmálum varðandi fjármál banda-
rískra hátæknifyrirtækja, og það hefði aftur opnað
þeim leið til að beita fyrirtækin þrýstingi og jafnvel
ná völdum innan þeirra.
Bankarnir sem Sovétmenn reyndu að ná meiri-
hluta í eru Peninsula National Bank í Brulingame,
First National Bank í Fresno og Tahoe National
Bank í Lake Taboe. Einnig reyndu Sovétmenn að
ná ítökum hjá Califomia Bank í San Franscisco.
Peninsula National bankinn hefur lánað mikið til
hátækniiðnaðar og em margir háttsettir starfsmenn
hjá hátækniiðnaðarfyrirtækjum meðal viðskiptavina
hans. „Þarna var greinilega um lævíslega tilraun
KGB að ræða til að ná ítökum í bandaríska banka-
kerfinu," segir Bartholomew Lee lögfræðingur í San
Francisco sem fengist hefur við málið. „Hér er
greinilega um nýja tegund iðnnjósna að ræða," segir
öldungadeildarþingmaðurinn Daniel Patrick Moyni-
han. „Þessi aðferð fellst ekki í því að áætlunum og
gögnum fyrirtækja sé stolið heldur gæti leyniþjón-
usta Sovétmanna komist yfir þær með löglegum
hætti."
Indverjar banna
Rambo II
Bombay, 19. febrúar. AP.
INDVERSK yfirvöld hafa bann-
að sýningar á hinni vinsælu kvik-
mynd Rambo II vegna andsov-
ésks og andvíetnamísks innihalds
myndarinnar.
Sýningar á myndinni verða bann-
aðar með öllu á Indlandi. Megin-
ástæðan að sögn talsmanns kvik-
myndaeftirlits landsins, er andsov-
éskur andi myndarinnar, en í mynd-
inni „kvelja og pína sovéskir þorpar-
ar hina amerísku hetju“. „Sýning
myndarinnar gæti leitt til versnandi
samskipta við vinveitta þjóð," sagði
talsmaðurinn, Anna Dani og var
með þessum orðum að vísa til klás-
úlu í indverskri löggjöf um kvik-
myndasýningar.
COROLLA er hönnuð til að vera fremst meðal jafningja og gœðaflokki ofar en
verðið segir til um.
Hún er framhjóladrifin, með fyrsta flokks fjöðrunar- og stýrisbúnaði. Léttbyggð 12 ventla
vélin er f senn kraftmikil og sparneytin.
Farþega- og farangursrýmið stenst allan samanburð ö nýtingu, þœg-
indum og hagkvœmni.
COROLLA D)' SPECIAL SERIES er sérbúinn bfll, þar sem saman fara
aukin þœgindi og útlit sem vekur athygli.
enndu við í reynsluakstur og þú sannfœrist
um að COROLLA DX SPECIAL SERIES er hverrar krónu virði.
TOYOTA