Morgunblaðið - 21.02.1986, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986
4
Það þarf að fækka mótum“
' — segir Franz Klammer um minni áhuga á heimsbikarnum
FRANZ Klammer austurríski
brunkóngurinn vill fella niður
keppni i risastórsvigi heimsbik-
Frá Bob Hennessy, fréttarKara Morgun-
^ blaðsins í Englandi.
BRUCE Grobbelaar markvörður-
inn snjalli hjá Liverpool spilar
sennilega ekki með Liverpool
gegn Everton á laugardaginn.
Hann meiddist á hendi í bikar-
leiknum gegn York City á þriðju-
dagskvöld.
Grobbelaar hefur ekki misst út
einn einasta leik með Liverpool
síðan hann kom til liðsins fyrir fjóru
og hálfu ári er hann tók við mark-
mannsstöðunni af Ray Clemence.
Hann meiddist á vinstri olnboga
er hann rakst harkalega utan í
Gary Gillespie félaga sinn í Liv-
erpool. Hann meiddist er 20 mínút-
ur voru eftir af venjulegum leiktíma
og notaði því aðeins aðra höndina
þann tíma og í framlengingunni
gegn York.
Grobbelaar fer í læknisskoðun
í dag og verður þá úr því skorið
hvort það sé ráðlegt að láta hann
leika á morgun. Ef hann leikur ekki
verður það markvörðurinn Mike
Hooper sem leikur sinn fyrsta leik
fyrir Liverpool. Hann var keyptur
frá Wrexham í upphafi keppnis-
tímabilsins fyrir 40.000 pund.
Það er einnig óvíst hvort lan
arsins. Hann vill að risastórsvig
verði aukagrein og telji ekki til
stiga f keppninni. Þessi grein
Rush geti leikið á morgun. Hann
lék síðustu 45 mínúturnar gegn
York á dögunum og var ekki alveg
búinn að ná sér eftir þau meiðsli
sem hann hefur átt við að stríða
að undanförnu.
Talið er líklegt að Kenny Dalgl-
ish, framkvæmdastjóri Liverpool,
hafi áhuga á að kaupa Peter Da-
venport frá Nottingham Forest.
Davenport er nú á sölulista og vilja
þeir hjá Nottingham fá 500.000
pund fyrir þennan snjalla fram-
herja.
höfðar ekki til áhorfenda og mót-
in eru orðin það mörg að fólk fer
að missa áhugann á heimsbikar-
keppninni ef heldur fram sem
horfir.
Franz Klammer, sem nú er 32
ára og hætti að keppa í heims-
bikarnum á síðasta ári, er nú hótel-
eigandi í Austurríki. Hann er einn
frægasti brunmaður sem uppi
hefur verið og var til skamms tíma
kallaður „Brunkóngurinn". Hann
hefur unnið 25 sigra í brunkeppn-
um heimsbikarsins á 11 ára ferli
sínum. Fimm sinnum hefur hann
unnið heimsbikarinn.
„Það þarf að fækka mótum og
auðvelda stigagjöfina þannig að
fólk eigi auðveldara með að fylgj-
ast með. Það er alveg fullkomlega
nóg að keppa í bruni, stórsvigi og
svigi, “ sagði Klammer.
ítalski skíðamaðurinn, Gustavo
Thoeni, sem var í fremstu röð
skíðamanna á áratugnum eftir
1970, var á sama máli og keppi-
nautur hans frá þeim árum. Hann
vildi meina að það væri áhyggju-
efni að skíðaíþróttin væri ekki eins
vinsæl og áður og hefur áhorfend-
um og umfjöllun um skíði farið
hnignandi á síðustu tveimur árum.
Leikur Grobbelaar
ekki með á morgun?
Fjölmennt unglinga-
mót í badminton
• Guðrún Júlíusdóttir, TBR, og Ásta Pálsdóttir, ÍA, stóðu sig mjög
vel á unglingameistaramóti TBR.
Unglingameistaramót TBR í
badminton var haldið helgina
15.—16. febrúar í húsi félagsins
í Gnoðarvogi 1. Keppendur voru
fjölmargir frá sjö félögum og voru
spilaðir 105 leikir samtals. Und-
anrásir voru spilaðar á laugar-
deginum en einungis úrslit á
sunnudeginum. Meðan á keppn-
jS-inni stóð efndi TBR til happ-
drættis og voru Yonex-vörur f
vinning, fatnaður og spaðar.
í hnokkaflokki hefur Gunnar
Már Petersen TBR sýnt mikið
öryggi og sigraði hann Kristján
Daníelsson TBR með yfirburðum
11 — 1 og 11—1. Gunnar er sonur
gömlu kempunnar Steinars Pet-
ersen. í tvíliðaleik í sama flokki
sigruðu þeir Gunnar og Kristján
hina efnilegu tvíbura Ómar og Ótt-
ar Guðnasyni TBR 15—6 ogh
15—3. í einliðaleik tátna hafa þær
Anna G. Steinsen TBR og Áslaug
Jónsdóttir TBR skipst á um að
sigra í vetur en í þetta sinn hafði
Áslaug betur í spennandi leik eins
og tölurnar gefa til kynna, 12—10,
9—12 og 11—4. í tvíliðaleiknum
sigruðu stöllurnar Aðalheiður Páls-
dóttir TBR og Áslaug Jónsdóttir
TBR systurnar Önnu og Brynju
Steinsen TBR 15—12 og 18—16.
Þess má geta að Bi^nja er aðeins
á tíunda aldursári. í tvenndarleik í
hnokka- og tátuflokki sigruðu
Gunnar og Áslaug þau Guðlaugu
Júlíusdóttur og Kristján Daníelsson
TBR tiltölulega auðveldlega 15—1
og 15—1.
I einliðaleik í sveinafiokki sigr-
aði hinn stórskemmtilegi leikmað-
ur Óli B. Zimsen TBR Skagamann-
inn Arnar Gunnlaugsson IA 11—2
og 11—4. Arnar náði fram hefnd-
um í tvíliðaleiknum en þar sigraði
hann ásamt félaaa sínum Einari
Pálssyni ÍA þá Ola og Sigurjón
Þórhallsson TBR 15—8 og 15—10.
Sigurbjörg Skarphéðinsdóttir
UFHÖ sigraði Jóhönnu Snorradótt-
ur úr sama félagi í oddaleik 11—1,
8—11 og 11—2. Aðeins tvö lið
voru skráð í tvíliðaleik meyja en
þar sigruðu þær Jóhanna og Sigur-
björg þær Sigrúnu Erlendsdóttur
TBR og Margréti Gísladóttur nokk-
uð örugglega 15—4 og 15—5.
Vegna skorts á meyjum voru einn-
ig mjög fá lið mætt til leiks í
tvenndarleiknum en þar sigruðu
Óli B. Zimsen með Önnu Steinsen
sem spilaði einum aldursflokki ofar
en venjulega þau Sigurjón Þór-
hallsson og Sigrúnu Erlendsdóttur
í drengjaflokki kom einna helst
á óvart árangur Jóns P. Zimsen
TBR á móti Njáli Eysteinssyni TBR
sem er taplaus í mótum vetrarins.
Njáll sigraði að lokum eftir langan
leik 12—15, 15—11 og 15-4. Þeir
kapparnir unnu svo tvíliðaleikinn á
móti Skúla Þórðarsyni og Garðari
Adolfssyni TBR, sem er bróðir
Guðmundar Adolfssonar Islands-
meistara í meistaraflokki, 15—1
og 15—4. Birna Peterseri TBR
sigraði í einliðaleik telpna Ágústu
Andrésdóttur ÍA 11—5 og 11—6.
Birna og Ásdís Dan Þórsdóttir
sigruðu síðan þær Laufeyju Guð-
munsdóttur Selfossi og Hrafnhildi
Garðarsdóttur Víkingi örugglega
15—4 og 15—0. Njáll og Birna
fullkomnuðu síðan þrennu sína í
tvenndarleiknum með sigri yfir Jóni
og Ásdísi 15—5 og 15—3.
í elsta flokknum, piltaflokki,
vann Árni Þór Hallgrímsson TBR
sannfærandi sigur yfir Ármanni
Þorvaldssyni TBR 15—9 og 15—5.
Þeir unnu síðan tvíliðaleik í sama
flokki þá Hauk P. Finnsson og
Guðmund Bjarnason TBR 15—4
og 15—2. Guðrún Júlíusdóttir TBR
vann í stúlknaflokki Ásu Pálsdóttur
ÍA 11-8 og 11-0. í tvíliðaleik
sigruðu Ása og Guðrún Gísladóttir
ÍA þær Guðrúnu Júlíusdóttur og
Helgu Þórisdóttur TBR öruggt
15—5 oa 15—6. i tvenndarleiknum
bætti Arni þriðja sigrinum við
ásamt Ásu með því að vinna sann-
færandi sigur á Ármanni og Guð-
rúnu Júlíusdóttur 15—5 og 15—1.
•Tveir keppendur sem mikið létu að sér kveða á Febrúarmótinu um
síðustu helgi. Jón G. Hafsteinsson er til vinstri. Hann sigraði í 50 og
350 metra hlaupum. Til hægri er Sigurður Pétursson sem sigraði í
hástökki. Báðir keppa þeir fyrir íþróttafélagið Ösp.
íþróttirfatlaðra:
Mikil gróska í
frjálsíþróttum
- 70 keppendur í Febrúarmótinu
Um síðustu helgi fór fram í
Baldurshaga og fþróttahúsi Selja-
skóla febrúarmót íþróttasam-
bands Fatlaðra í frjálsum íþrótt-
um. Þátttakendur á mótinu voru
um 70 frá 6 félögum.
Keppt var í flokkum þroska-
heftra, hreyfihamlaðra og blindra
og sjónskertra. í flokki hreyfihaml-
aðra var keppendum skipt í sitjandi
og standandi flokk, en í flokki
þroskaheftra var keppendum skipt
í þrjá flokka, þannig að í fyrsta
flokki voru þeir keppendur sem
bestan árangur áttu en í þriðja
flokki þeir sem lakastan árangur
áttu. Blindir og sjónskertir kepptu
allirísamafl.
Bestum árangri í einstökum
greinum náðu eftirtaldir:
Þroskaheftir:
Karlar.
50 m hlaup: Jón Grétar Hafsteinss.
Ösp6,7 sek.
350 m hlaup: Jón Grétar Haf-
steinss. Ösp 59,01 sek.
Langstökk: Aðalsteinn Friðjónss.
Eik4,66 m.
Langstökk án atrennu: Kristján
Guðbrandsson Ösp 2,53 m.
Hástökk: Sigurður Pétursson Ösp
1,30 m.
Konur.
50 m hlaup: Sonja Ágústsdóttir
Ösp 8,2 sek.
350 m hlaup: Guðrún Ólafsdóttir
Ösp 1:18,85 mín.
Langstökk: Bára B. Erlingsdóttir
Ösp 3,58 m.
Langstökk án atr. Lilja Pétursdóttir
Ösp 2,20 m.
Hástökk: Bára B. Erlingsdóttir Ösp
1.20 m.
Hreyfihamlaðir:
Sitjandi flokkur:
50 m hjólastólaakstur: Reynir
Kristófersson Í.F.R. 13,25 sek.
Kúluvarp: Reynir Kristófersson
Í.F.R. 7.63 m.
Standandi flokkur:
50 m hlaup: Haukur Gunnarsson
Í.F.R. 7,3 sek.
Kúluvarp: Haukur Gunnarsson
Í.F.R. 10.08m.
Kon'ur standandi flokkur:
Kúluvarp: Helga Bergmann Í.F.R.
6.20 m.
Blindirog sjónskertir:
50 m hlaup: Rúnar Guðsteinsson
Í.F.R. 7.6 sek.
Langstökk án atrennu: Rúnar
Guðsteinsson Í.F.R. 2,25 m.
350 m hlaup: Rúnar Guðsteinsson
Í.F.R. 1:11,85 mín.
Islandsmótið í
innanhússknatt-
spyrnu hefst í dag
ÍSLANDSMÓTIÐ í innanhúss-
knattspyrnu hefst í Laugardals-
höil í dag kl. 16.00 og lýkur á
sunnudag.
Leikið verður í 1. og 4. deild
karla og kvennadeild. Mótið hefst
í dag 21. febrúar kl. 16.06 með
leikjum í kvennadeild og kl. 19.24
í 1. deild, og verður leikið til kl.
11.00. Laugardaginn 22. febrúar
hefst svo mótið aftur kl. 09.00,
með leikjum í 4, deild, kl. 16.20
hefjast svo leikir í kvennadeild, og
kl. 18.44M.deildtilkl. 22.30.
Sunnudaginn 23. febrúar hefst
svo síðasti dagur mótsins kl. 09.00
með leikjum í 4. deild, kl. 13.24 í
kvennadeild og kl. 17.32 hefjast
svo leikirí 1. deild.
Úrslitaleikir byrja kl. 20.28 með
verðlaunaafhendingu kl. 22.28.
4i