Morgunblaðið - 21.02.1986, Page 47
MORGUNBliKÐIÐ/FÖSTUDAKSÖRfii: FEBEÚAR1986'
47
Pálmar var hreint
stórkostlegur
HAUKAR sluppu með skrekkinn
í gærkvöldi er þeir sigruðu
KR-ingana í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik. Haukar skoruðu
Knattspyrnu-
punktar
Frá Bob Hennessy, fréttaritara
Morgunbladsins á Englandi.
ABERDEEN skaust upp í ann-
að sætið í skosku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu á miöviku-
dagskvöldið er liðið vann
Rangers með einu marki gegn
engu í alisögulegum leik. Það
voru alls átta leikmenn bókaðir
og tveir reknir útaf, einn úr
hvoru liði. Það var James Bett
sem var rekinn útaf úr liði
Aberdeen.
PAT JENNiNGS sagði á
miðvikudaginn að hann væri
ekki viss um að hann hefði
gert rétt í því að samþykkja
að fara til Mexíkó. „Ég hef
ekki leikið í 1. deildinni nú í
10 mánuði og ég er orðinn
fertugur þannig að ég er ekki
alveg eins viss um að ég hafi
gert rétt þegar ég tók þessa
ákvörðun. Ef ég fer til Mexíkó
þá er þetta sjötta heimsmeist-
arakeppnin mín og það er bara
ansi gott held ég," sagði hann
í gær. Því má svo bæta hér
við að hann hefur haldið mark-
inu hreinu í síðustu fimm leikj-
um með N-[rlandi en alls hefur
hann leikið 113 leiki fyrir N-íra.
BANDARÍKJAMENN settu
enn eitt metið í vikunni. Steve
Guzell, sem er knattspyrnu-
maður, var þá seldur fyrir eina
milljón dollara frá San Diego
til Tacoma Stars. Rétt er að
það fylgi sögunni að drengur
þessi leikur aðeins innanhús-
knattspyrnu. Strax að sölunni
lokinni léku liðin saman og var
Guzell skipt útaf eftir 15 mínút-
ur. Hann labbaði sér að bekkn-
um og settist auðvitað á vara-
mannabekk San Diego af
gömlum vana.
PAUL MILLER hefur fram-
lengt samningi sínum við Tott-
enham um tvö ár en hann
hefur nú verið hjá félaginu í
rúm tíu ár eða frá því hann var
14ára.
HULL er mikið í fréttunum
núna. Framkvæmdastjóri
knattspyrnuliðs staðarins ætl-
ar að kaupa Gary Parker,
miðjuleikmanninn hjá Luton, í
dag og kaupverðið er 70.000
pund sem þykir mikið fyrir tví-
tugan knattspyrnumann.
SKATTHEIMTUMENN í
Skotlandi eru að gera knatt-
spyrnumönnum lífið leitt
þessa dagana. Þeir komust að
því á dögunum að frímiðar
þeir sem knattspyrnumenn fá
fyrir hvern leik og dreifa til vina
og kunningja eiga að teljast til
skatts. Þetta gæti þýtt að
þegar leikið er á laugardögum
þurfi þeir 800 knattspyrnu-
menn sem þá leika að greiða
alls um 10.000 pund.
FYRIR ÞREMUR árum léku
Brighton og Manchester Un-
ited til úrslita í bikarkeppninni
ensku. í liði Brighton lék þá
Gordon nokkur Smith sem
þótti standa sig mjög vel þó
svo honum tækist ekki að
skora á lokamínútunni er hann
komst einn í gegn. Hvað um
það í vikunni keypti Oldham
Smith frá Manchester City
fyrir aðeins 5.000 pund. Hann
má muna sinn fífil fegri dreng-
urinn sá.
95 stig gegn 89 stigum KR en
staðan í leikhléi var 62:44. Það
var fyrst og fremst frábær leikur
!>eirra Pálmars Sigurðssonar og
vars Webster sem skóp sigur
Hauka því þrátt fyrir að vera vel
yfir í leikhléi var sigurinn alls ekki
öruggur þar sem KR-ingar léku
frábærlega í sfðari hálfleik og
voru nærri því að vinna en það
tókst ekki og þar með eru þeir
ekki lengur inni f myndinni varð-
andi úrslitakeppnina. Pálmar
skoraði átta þriggja stiga körfur
í leiknum og er það met í úrvals-
deildinni í vetur, en alls skoraði
kappinn 48 stig og er nú stiga-
hæstur í deildinni.
Haukar léku hreint frábærlega í
fyrri hálfleik og komust um tíma í
22ja stiga forystu, 58:36, en hún
átti eftir að minnka. Vörnin var
mjög góð og nýtingin í sóknunum
einnig. Þeir hittu bókstaflega úr
hverju skoti og voru vel að foryst-
unni komnir.
í síðari hálfleik snerist dæmið
algjörlega við. KR-ingar léku mjög
vel en Haukar að sama skapi mun
verr en í fyrri hálfleiknum. Það
hvorki gekk né rak hjá þeim núna
en allt gekk eins og i lygasögu hjá
KR-ingum. Þeir léku mjög skyn-
samlega því þeir spiluðu upp á góð
færi og smám saman tókst þeim
að minnka muninn.
Staðan þegar fjórar mínútur
voru til leiksloka var 83:82 en þá
misstu KR-ingar sinn besta mann,
Guðna Guðnason, útaf með fimm
villur. Guðni hafði átt mestan þátt
í góðum leik KR í síðari hálfieik
ásamt bakvörðunum Páli og Ást-
þór.
Haukar náðu síðan að knýja
fram sigur með stórkostlegum
kafla þeirra Pálmars og Webster
eins og áður sagði og sigra í þess-
um bráðskemmtilega leik. Bæði
liðin geta verið stolt af þessum
leik, en því miður Haukarnir aðeins
í fyrri hálfleiknum.
Stig Hauka: Pálmar Sigurösson 48, ivar
Webster 20, Henning Henningsson 8, Kristinn
Kristinsson 8, Ólafur Rafnsson 5, ívar Ás-
grímsson 4, Eyþór Árnason 2.
Stig KR: Birgir Mikaelsson 33, Guðni
Guönason 19, Garöar Jóhannsson 10, Páll
Kolbeinsson 10, Ástþór Ingason 8, Þorsteinn
Gunnarsson 4, Guömundur Jóhannsson 3,
Guömundur Björnsson 2. -ágás.
HM í badminton:
Frakkar lagðir
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
badminton vann franskar bad-
mintonkonur f heimsmeistara-
keppninni í badminton sem fram
fer íV-Þýskalandi. íslensku stúlk-
Svisslendingar græða
Frá Jóhanni inga Gunnarssyni fréttaritara Morgunblaösins í Þýskalandi.
SVISSLENDINGAR eru ánægðir
með væntanlega heimsmeistara-
keppni í handknattleik sem hefst
þar nú eftir helgina. Þegar er búið
að selja 80% af þeim 120.000
miðum sem seldir verða á keppn-
ina og þeir áætla að þegar öllu
er lokið þá standi þeir uppi með
um 1,8 milljóna afgang og þá er
auðvitað verið að tala um sviss-
neska franka.
Nýlega spáðu allir þjálfarar
þeirra liða sem þátt taka í úrslita-
keppninni um hvaða þjóðir myndu
leika til úrslita og þá kom í Ijós aö
mikil óvissa virðist meðal þeirra
IpM
ItaktíACT
Skógerðin á Akureyri færði landsliðinu f handknattleik og farar-
stjórn tvenn pör af ACT-skóm f gærkvöldi að gjöf. Skógerðin
verður 50 ára á þessu ári og að gömlum og góðum sið sjá þeir
um að landsliðið okkar verði vel skóað þegar það heldur f lang-
ferðina til Sviss. Hver leikmaður fókk skinnfóðraða kuldaskó, sem
koma sór vel f kuldunum f Mið-Evrópu, og ACT spariskó. Það eru
þeir félagar Þorglls Óttar Mathiesen og Kristján Arason sem
bregða hór á lelk fyrir Bjarna Ijósmyndara.
um hvaða þjóðir það verða og enn
frekar ef spurt var um væntanlega
heimsmeistara.
Níu þjálfarar spáöu Rúmenum í
úrslitaleikinn, sex töldu að Sovét-
ríkin yrðu þar, þrír að Júgóslavía
léki til úrslita og einn nefndi
A-Þýskaland.
Vestur-Þjóðverjar, íþróttasjóður
þar í landi, greiða hverjum leik-
manni landsliðsins 20.000 mörk
fyrir að tryggja sór sæti á næstu
Olympíuleikum og ef þeir komast
ofar þá fá þeir auðvitað mun meira.
Þetta samsvarar því að hver leik-
maður fær að minnsta kosti
350.000 íslenskar krónur ef liðið
kemst í eitt af sex efstu sætum
keppninnar.
urnar sigruðu f fimm viðureignum
en þeim frönsku tókst ekki að
vinna leik. Síðar um daginn lóku
stúlkurnar við Hollendinga og sá
leikur fór eins nema nú voru
Holiendingar f hlutverki sigurveg-
arans. Karlaliðið tapaði f gær fyrir
Svfum með fimm vinningum gegn
engum.
A miðvikudaginn unnu karlarnir
lið Zambíu með fimm vinningum
gegn engum en töpuðu síðan fyrir
Austurríki með 4:1. Konurnar
kepptu hins vegar viö Sovétríkin
og töpuðu þar, 5:0.
Valsmenn
ÁRSÆLL Kristjánsson knatt-
spyrnumaður úr Þrótti hefur nú
gengið frá félagaskiptum yfir í
Val og verður hann löglegur með
liðinu þann 20. mars.
Ámundi Sigmundsson, Víkingur,
hefur einnig gengið til liðs við
Valsmenn og það er því Ijóst að
Valsmenn ættu að geta orðið
sterkir í sumar eins og reyndar
undanfarin ár.
Knattspyrnan:
Mexíkó vann
Sovétríkin
MEXÍKÓ sigraði Sovétrfkin í vin-
áttulandsleik í knattspyrnu, 1—0,
f Mexíkóborg í gær. Mexíkanar
og Sovótmenn hafa verið að
undirbúa sig fyrir heimsmeistara-
keppnina sem hefst í Mexfkó 31.
maí f sumar.
Eina mark leiksins gerði miðvall-
arleikmaðurinn Javier Aguirre, eftir
39 mínútna leik. Leikurinn þótti
mjög vel leikinn af beggja hálfu og
fór hann fram á Aztec-leikvangin-
um þar sem opnunarleikur heims-
meistarakeppninnar og úrslitaleik-
urinn fara fram. 65.000 áhorfendur
voru á leikvanginum sem hefur
sæti fyrir 110.000 áhorfendur.
Sovéska liðið hefur verið á æf-
ingaferð í Mexíkó í tvær vikur og
leikið gegn nokkrum félagsliðum
þar. Þeir reyna að venjast þunna
loftslaginu sem þarna er, en
Mexíkóborg er í 2200 metra hæð
yfir sjávarmáli.
Mexíkó lék einnig æfingaleik við
Austur-Þýskaland á miðvikudag og
töpuðu þá með einu marki gegn
tveimur. Austur-Þjóðverjar leika
ekki ílokakeppni HM.
Sovétmenn leika í riðli með
Frökkum, Kanadamönnum og
Ungverjum. Mexíkanar eru í riðli
með Paraguay, írak og Belgíu.
Fyrsti leikur keppninnar verður 31.
maí og úrslitaleikurinn 29. júní.
2. og 3. flokks
Islandsmót
stúlkna innanhúss verður haldið á Akranesi dag-
ana 8. og 9. mars.
Þátttökutilkynningar skulu berast skrifstofu KSÍ,
pósthólf 8511, 128 Reykjavík, fyrir 28. febrúar
ásamt þátttökugjaldi 1.500 kr. pr. flokk.
Knattspyrnusambandið.