Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.04.1986, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. APRÍL1986 Fj ölskyldutónleikar Tónlist Egill Friðleifsson Háskólabíó 24.4. '86. Efnisskrá: Verk eftir Rossini, Katsjatúrjan, Dukas og Pro- kofief. Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit íslands Stjóraand: Páll P. Pálsson. Sögumaður og kynnir: Þór- hallur Sigurðsson. Sinfóníuhljómsveit íslands efndi til Ijölskyldutónleika í Háskólabíói á sumardaginn fyrsta. Það þarf varla að tíunda hér hversu mikil- vægur þessi þáttur er eða ætti að vera í starfí hljómsveitarinnar. Að gefa ungviðinu tækifæri til að alast upp við tónleikaferðir með foreldrum sínum, hlustandi á verk við hæfí með stuttum skýringum, er sjálfsagður hlutur fyrst haldið er úti sinfóníuhljómsveit á annað borð. Tónleikamir voru vel sóttir og þar mátti sjá mörg áhugasöm ung andlist, sem fylgdust af athygli með því, sem fram fór á sviðinu, enda efnisskráin vel valin og spennandi. Það er full ástæða til að benda foreldrum og öðrum forráða- mönnum bama og unglinga á þennan þátt í starfí hljómsveitar- innar. Þegar ungverska tónskáld- ið Kodály var eitt sinn að því spurður hvenær hefja ætti tónlist- aruppeldi svaraði hann: „Níu mánuðum fyrir fæðingu." E.t.v. fínnst einhverjum hér nokkuð sterkt til orða tekið, en hitt er víst að gildi fagurlista er áreiðanlega vanmetið hjá stórum hópi fólks, ekki síst nú á þessum síðustu og verstu tímum fjölmiðlafársins, þar sem ömurleg flatneskja iðnaðar- poppsins flæðir yfír allt og engu eirir, þar sem hvergi örlar á fram- sækinni hugsun eða listrænum tilþrifum, þar sem markaðshyggja og gróðasjónarmið ein ráða ríkj- um. Er þá ekki verið að fást um hve slík lágkúruleg síbylgja hefur sljóvgandi áhrif á ungviðið. Það ætti að vera hveiju hugsandi foreldri kappsmál að gefa bami sínu kost á listkennslu og fagur- uppeldi, þar með töldu tónlistar- uppeldi. Faguruppeldi byggir á reynslu af listrænum fyrirbærum, þar sem m.a. tónleikaferðir er mikilvægur þáttur, sem stuðlar að þroska bamsins og gerir það færar um að njóta tónlistar af skilningi og tilfínningu og að hlusta á tónlist á meðvitaðan og gagnrýninn hátt. Sem fyrr segir var efnisskráin ágæt. Tónieikamir hófust á for- leiknum „Þjófótti skjórinn" eftir Rossini. Þá komu tveir þættir úr „Gajaneh-ballettinum" eftir Kat- sjatúijan. Síðan var skotið inn „Remmington-laginu" hans Lee Roy Anderson, og síðast fyrir hlé var hið myndríka verk Dukas „Lærisveinn galdrameistarans". Eftir hlé hljómaði svo hið sígilda meistaraverk Prokofíefs „Pétur og úlfurinn" unga fólkinu til mikillar ánægju. Hljómsveitin lék hressilega og vel undir öruggri stjóm Páls P. Pálssonar. Sögu- maður og kynnir var Þórhalldur Sigurðsson og gerði hlutverki sínu góð skil. Hinir ungu tónleikagestir létu óspart ánægju sína í ljós og fóm glaðir og reynslunni ríkari heim. Morgunblaðið/Jóhannes Long Eldri félagar í Karlakór Reykjavíkur, en þeir komu fram á 60 ára af mælistónleikum kórsins fyrir skömmu. Karlakór Reykjavíkur: Eldri félagar í söngbræðraheimsókn til Stefnis ELDRI félagar í Karlakór Reykjavíkur fara í söngbræðra- heimsókn til karlakórsins Stefnis í Mosfellssveit á lokasöng- skemmtun þeirra f Hlégarði sunnudaginn 27. aprfl klukkan 20.30. í lok söngskrár taka kóramir lagið saman. Stefnir hefur í röðum sínum nokkra söngmenn, sem hafa verið virkir félagar í Karlakór Reykjavíkur, t.d. báða einsöngvara kórsins núna. Ennfremur Sigurð Ólafsson, sem var einn helsti söngv- ari Stefnis og er meðal eldri félaga Karlakórs Reykjavíkur. (Fréttatilkynning) SjMAR 21150-21370 S0LUSTJ LARUS Þ VA10IMARS L0GM J0H Þ0RÐARS0N HDl Sýnishorn úr söluskrá: Einbýlishús í Ártúnsholti í byggingu eln hæð 165 fm auk bílsk. 31,5 fm. Fokhelt á næstu vikum. Teikningar á skrifstofu. Ennfremur góð einbýlish. við: Efstasund — Brúnastekk — Akrasel — Dynskóga — Heiðargerði — Þingasel — Heiðarbæ — Reynihvamm — Markarflöt — Vesturbraut. Teikningar á skrifst. Góð 3ja herb. íbúð við Dvergabakka Á 2. hæð 80,1 fm nettó. Tvennar svalir. Útsýni. Skipti æskileg á 4ra-5 herb. íb. helst í nágrenninu. Ennfremur góðar 3ja herb. íb. við: Furugrund — Njálsgötu — Hraun- teig — Æsufell — Álfhólsveg — Hrfsateig — Ránargötu — Hrafnhóla. Verðfrá 1,5 millj. 4ra herb. góð íbúð við Álfheima Á 4. hæð 96 fm nettó. Vel um gengin. Suðursvalir. Ágæt endurnýjuð sameign. Ennfremur góðar 4ra herb. íb. við: Hverfisgötu — Hraunteig — Holta- gerði — Háaleitisbraut — Hvassaleiti — Dvergabakka. Vinsamlegast kynniö ykkur söluskrána. í Holta- eða Tangahverfi i Mos. Traustur kaupandi óskar eftir rúmgóðu raðh., helst meö bilsk. Losun 1. júní til 1. sept. nk. Góðar greiðslur. Hlíðar — Vesturborgin — Nágrenni Góö 3ja-4ra herb. ib. óskast til kaups fyrir fjársterkan kaupanda. Helst í Smáíbúðahverfi Einbýlish. óskast til kaups með bilsk. Skipti möguleg á góðri sérh. í Heimunum. Opið í dag laugardag kl. 10-12 og 1-5 síðdegis. ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Opið ídag kl. 1-4 Dalsel — raðhús — fullgert Hléskógar — einbýiishús Esjugrund — fokhelt raðhús Daisel — raðhús — fullgert Kelduhvammur — sérhæð Stór 5 herb. íbúð. Allt sór. Bílskúrsréttur. Furugrund — 3ja herb. + herb. í kjallara Góð 3ja herb. íbúð + aukaherb. í kjallara. Bjargarstígur — hæð — laus Mjög snyrtileg 3ja herb. íbúð. Álfaskeið — 2ja herb. — bflskúr 2ja herb. íbúð í góðu standi. Fasteignaeigendur athugið! Höfum kaupendur að einbýlishúsum, raðhúsum, sérhæðum og öðrum gerðum íbúða. Ennfremur kaupanda að stóru iðnaðar- og verslunarhúsnæði. Einar Sigurðsson hrl. 16767 Laugavegi 66, sfmi 10 ára afmæli Garðabæjar haldið hátíðlegt í dag I. JANÚAR sl. voru liðin 10 ár frá þvf Garðabær hlaut kaup- staðarréttíndi, segir S fréttatíl- kynningu frá bæjarstjóra Garða- bæjar. Hátíðaraefnd bæjar- stjórnar hefur nú kynnt sérstaka hátíðardagskrá dagana 26. apríl til 4. maí t tilefni þessara tíma- móta. verður Búnaðarbankinn með skák- mót þann dag. Sérstakt hátíðarmerki hefur ver- ið teiknað af Sverri Sv. Sigurðar- syni, 18 ára starfsmanni Félagsmið- stöðvarinnar Garðalundi. Dagskrá hátíðarhaldanna hefur verið dreift í öll hús í Garðabæ. Eru allir Garðbæingar hvattir til að taka þátt í hátíðarhöldunum og kynnast þannig bænum og fbúum hans betur. I hátíðamefnd eiga sæti: Guðjón E. Friðriksson, Ragna Lára Ragnarsdóttir, Sverrir Hall- grímsson, Kristján Jóhannesson og Hallgrímur Sæmundsson. Hátíðarhöldin heíjast með fána- hyllingu við Sveinatungu laugar- daginn 26. apríl kl. 10.00 en lýkur með kaffísamsæti kl. 15.00 fyrir alla bæjarbúa í Garðalundi í boði bæjarstjómar. Alla vikuna verður opin sérstök myndlistarsýning, þar sem lista- menn úr Garðabæ sýna verk sín. í Kirkjuhvoli sína beir Pétur Friðrik og Gísli Sigurðsson en í Gallerí Lækjarfít, Lækjarfít 7, sýna þau Edda Jónsdóttir, Jón Óskar og Ragnheiður Jónsdóttir. Sýningam- ar eru opnar alla daga vikunnar frákl. 13.00-21.00. Hápunktur hátíðarhaldanna er úrslitaleikur bikarkeppninnar mið- vikudaginn 30. apríl kl. 20.00 í Laugardalshöll, en þar leikur 1. deildarliðið úr Garðabæ, Stjaman, við íslandsmeistara Víkings úr Reykjavík. Ýmislegt annað verður á dagskrá og má þar nefna bæjarskokk Iðnað- arbankans sunnudaginn 27. apríl, Hverfakeppni í innanhússfótbolta fimmtudaginn 1. maí og verslunar- hátíð í miðbæ þar sem verslanir kynna vörur sínar og þjónustu. Þá Tónlistarskóli Njarðvíkur 10 ára SUNNUDAGINN 27. apríl munu kennarar Tónlistarskóla Njarð- víkur ásamt aðstoðarmönnum úr Sinfónfuhljómsveit íslands og ís- lenzku hljómsveitinni halda tón- leika í Ytri-Njarðvíkurkirkju klukkan 15 i tilefni af 10 ára afmæU skólans. Flutt verða kammerverk eftir Johann Strauss og Gustav Mahler o INNLENT Barnastarfi Dómkirkjunnar lýkur með messu á morgxtn og einleiksverk eftir Georg P. Tele- mann, Camille Saint-Saens og Manuel M. Ponce. Aðgangseyrir er 200 kr. og rennur hann óskiptur til hljómplötusafns skólans. BARNASTARF Dómkirkjunnar hefur í vetur farið fram í Dóm- kirkjunni. Samkomurnar hafa veríð á laugardagsmorgnum og hefur þar veríð starfræktur kirkjuskóli undir stjóra sr. Agn- esar M. Sigurðardóttur, en hún hefur einnig notið aðstoðar eig- inmanns sins, Hannesar Baldurs- sonar, sem hefur leikið á orgel og stjórnað söng. Einnig hafa ýmsir aðilar úr söfnuðinum og Kirkjunefnd kvenna Dómkirkj- unnar veitt ómetanlega aðstoð. Nú er bamastarfinu að ljúka að þessu sinni, og verður kirkjuskólan- um slitið við bamaguðsþjónustu í Dómkirkjunni á morgun kl. 14.00. Þar munu böm sýna helgileik og einnig munu þau syngja nokkra söngva, sem þau hafa lært. Sr. Agnes talar við bömin og dóm- kirkjuprestamir þjóna fyrir altari. Þess er vænst, að bömin fjöl- menni ásamt foreldrum sínum og öðmm ættingjum og vinum í mess- una á morgun. Allir em hjartanlega velkomnir, eldri sem jmgri. (Frá Dómkirkjunni) Steinunn Þorvarðardóttir Burtfararpróf s- tónleikar í píanóleik TÓNLISTARSKÓLINN f Reykja- vik heldur burtfararprófstón- leika sunnudaginn 27. aprU kl. 17.00 í sal skólans í Skipholtí 33. Steinunn Þorvarðardóttir leikur á píanó verk eftir J.S. Bach, Beet- hoven, Chopin, Liszt og Prokofieff. Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.