Morgunblaðið - 28.06.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1986
21
Graslaukur vex villtur í Mið-
Evr’opu allt frá Suður-Svíþjóð
niður til Korsíku og þvert yfir
Evrópu og Asíu allt til A-Síberíu.
Langt er síðan menn tóku að nota
hann sem kryddjurt, t.d. er vitað
að Rómverjar notuðu hann í
matreiðslu sinni. Einnig eru sagn-
ir um að Norðurlandabúar hafi
bæði ræktað slíkan lauk og notað
blöð af villtvaxandi graslauk áður
en kristin trú barst þangað. Gras-
laukurinn verður 15—25 sm hár
og vex í þéttum þúfum. Rótar-
laukamir eru smáir, en pípumynd-
uð, hol, dökkgræn blöðin eru með
fínu mildu laukbragði og það eru
þau sem notuð eru til matar.
Graslaukurinn er ágætlega harð-
gerður hérlendis, kemur snemma
til á vorin og má þá fljótlega fara
að nota hann. Skorið er ofan af
lauknum rétt neðan við mitt lauk-
grasið, knippið skolað undir renn-
andi vatni og síðan er hann klippt-
ur eða skorinn niður og notaður
á margvíslegan hátt t.d. er ágætt
að dreifa honum jrfir kartöflur rétt
áður en þær eru bomar fram.
Graslaukur er auðugur af A- og
C-vítamínum, hollastur er hann
hrár, þá nýtur hið milda laukbragð
sín best. Graslauksplantan sem
klippt var ofan af vex fljótt á ný,
þannig að klippa má ofan af
BLÓM
VIKUNNAR
Umsjón:
Ágústa Björnsdóttir
brúskunum aftur og aftur allt
sumarið. Ef ekki er klippt ber
plantan Qólulit blóm og blöðin þá
ekki eins góð til matar.
Graslauk er auðvelt að fjölga
með skiptingu á vorin og fást
margar plöntur úr litlum hnaus.
Gott er að dreifa honum í smá
raðir eða bryddingar um garðinn,
fer hann vel þannig og blaðlýs
forðast hann svo að hann ver
næsta umhverfi sitt fyrir óþrifúm.
Graslaukur grænkar með fyrstu
plöntum á vorin. Ef hnaus af
honum er settur í jurtapott að
hausti og geymdur á svölum stað
lítið vökvaður fram yfir hátíðar,
en þá settur við yl og venjulega
vökvun, vex hann til nytja strax
um miðjan vetur.
Graslaukur er ein af þeim
nytjajurtum sem bæði gagn og
gaman er af að hafa i garði sínum.
Sigurlaug Árnadóttir,
Hraunkoti.
Graslauk má rækta jafnt til skrauts sem nytja.
Graslaukur
Alliiim schoenoprasum
Graslaukur er þægileg og
auðveld kryddjurt, fyrirhafn-
arlítil í ræktun að öðru leyti
en því að gæta þarf þess að
gras nái ekki að laumast mn í
blaðbrúskana.
Nýtt tímarit
um Ijósmyndun
ÚT ER komið nýtt íslenskt tima-
rit um ljósmyndun og heitir það
„ljósmyndablaðið“.
Tímaritið flallar um ljósmyndun
sem tómstundagaman og birtir það
úrval lit- og svart-hvítra mynda,
jafnt atvinnu sem áhugamanna,
auk annars efnis er tengist ljós-
myndun. Þetta mun vera fyrsta
tímarit sinnar tegundar sem gefíð
er út hérlendis.
FYrsta tölublaðið er 32 síður að
stærð og er áætlað að það komi út
ársfjórðungslega. Litgreining og
filmuvinna fór fram á Prentmynda-
stofúnni hf., en Prentsmiðjan Oddi
hf. prentaði. Útgefandi Ljósmynda-
Fyrsta tölublað Ljósmyndablaðs-
ins er komið út.
blaðsins er Háljos og skuggar sf.,
pósthólf 4371,124 Reykjavík.
Stórútsala
á tískufötum frá Bazar.
Notaðu þetta sérstaka
tækifæri og fataðu þig
upp í dýrt -ódvrt.
í leiðinni bjóðum við þér góð
föt á börnin í sveitina.
Opið frá kl. 10-19 og laugardaga frá kl. 10-17.
H-HÚSID
KOPAVOGI
Auðbrekku 9. Sími 4 44 40
(
EUX-LÍFGARVÉUNAVIÐ