Morgunblaðið - 05.10.1986, Side 73

Morgunblaðið - 05.10.1986, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986 73 UMSJÓN/VILMAR PÉTURSSON Morgunbiaðiö/VI P Þaö er fagmannlegur etfll yflr Baldrl Steinl þegar hann býr sig undir að „smassa" boltanum { gólfið hjá andstaaAingnum. „Doldið erfitt" - sagði Jón Þórarinn „ÞETTA er doldið erfitt. Það er erfiðast þegar maður er aftarlega og boltinn kemur laust rétt yfir netið. Þá þarf maður að hlaupa til að ná honum," svaraði Jón Þórarinn Þorvaldsson spurningu blaðamanns um hvort badminton væri erfið íþrótt. Jón hafði aldrei spilað badmin- ton áður en hann kom með skólafélögum sínum í tíma hjá TBR en kvaðst nú ákveðinn í að halda áfram. „Það er dáldið auðvelt að spila við strák sem heitir Fjalar en ég hef nú samt aldrei farið í al- mennilegan leik við hann," sagði Jón að lokum. Björn Hrafnkelsson: Örugglega skemmti- legast að keppa „ÉG VARÐ ofboðslega hissa þeg- ar mér var gefinn spaði og fríir tímar,“ sagði Bjöm Hrafnkelsson um viðbrögð sín við framtaki TBR að bjóða 9 ára krökkum Lang- holtsskóla fría badminton- kennslu. Björn var eins og félagar hans nýkominn úr sprautu hjá skóla- hjúkrunarkonunni þegar hann mætti á æfingu en hann bar sig karlmannlega og sagðist ekkert hafa fundið fyrir því. „Við erum nú ekki farnir að spila leiki ennþá en erum stundum að slá kúlunni á milli. Það verður ör- ugglega skemmtilegast að keppa en svo er líka gaman að halda boltanum á lofti. Metið mitt er 17,“ sagði Björn. V f' rnk,mm wj Morgunblaðið/VIP Árans, missti ég nú af honum þessum. Jón Þórarinn er greinllega ekki ánægður með að hltta ekkl þennan bolta. Sigurður Valtýsson var kjörlnn Mkmaður ársins f 2. flokki KR í knatt- spymu fyrir skömmu. LUMA stóð aig frábærlega í sumar, strákamir urðu bæði fslands- og bikarmelstarar undir öruggrí stjóm Sigurðar f vörninni. Slgurður er til hasgri á myndinni, ánægður á svip, en við hlið hans eru félagar hana, ekki síAur ánægðir, þeir Þorsteinn Hall- dórsson og Magnús Gytfason til vinstri, en þeir léku sína fyrstu leiki með meistaraflokki f sumar og eru miklar vonir bundnar við þá eins og allt 2. flokks liðið. Vikingar héldu uppskeruhátfð afna fýrir skSmmu og veittu þá ungu og efnilegu knattspymufólkl félagsins verðlaun. 40 skip eru búin með kvótann 40 FISKISKIP hafa nú lokið aflakvóta sínum og önnur 109 eiga eftir minna en 10% af hon- um. 728 skip eru skráð með kvóta og 145 smábátar. Mun minna hefur verið um söiu eða færslu kvóta milli skipa nú en á síðasta ári. Samkvæmt upplýsingum Fiskifé- lags íslands eru 28 skipanna 40 á aflammarki, en 12 veiða samkvæmt sóknarmarki með hánark á þor- skafla en ótakmarkaðar veiðar á öðrum fiskitegundum. í báðum til- ás. fellum er leyfilegt að taka á þessu ári 5% af kvóta næsta árs, en að- eins er heimilt að færa aflakvóta milli skipa, sem gerð eru út eftir aflamarki. Eitt þessara skipa er togari. Af hinum 109, sem eiga eftir minna en einn tíunda leyfilegs afla, eru 6 togarar. Hjálpræðisherinn: Ofursta- heimsókn og foringja- ráðstefna Einar Madsen ofurstí í Reykjavk OFURSTAHJÓNIN Einar og Berg- ljót Madsen eru í heimsókn á íslandi um þessar mundir. Einar er yfir- maður Hjálpræðishersins á íslandi, í Færeyjum og Noregi. Einar mun halda fyrirlestra á foringjaráðstefnu, sem verður hald- in í Reykjavík. Hana sækja allir foringjar sem starfa í deild Færeyja og íslands. Ráðstefnunni lýkur með almennri samkomu í umsjá ráð- stefnumeðlina miðvikudaginn 8. okt. kl. 20.30, ræðumaður verður ofursti Einar Madsen. Bergljót Madsen er forseti ýmissa samtaka innan hersins, þ.a. m. heimilasambandsins. Hún mun tala á fundi heimilasambandsins í Reykjavík, mánudaginn 6. okt. kl. 16.00. Gestimir ftá Færeyjum munu taka þátt f samkomunni á sunnudag 5. okt., það em þær kapteinn Ingrid Björke og lautinantamir Marianna Jakobsen, Björg Tronstad og Britt Grimstad. Þær mun einnig heimsækja vist- fólk á Dalbraut og Heilsuhælinu í Hveragerði og syngja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.