Morgunblaðið - 04.12.1986, Side 52

Morgunblaðið - 04.12.1986, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986 Meðal gesta í samkvæmi FuUbrightstofnunarinnar var Nicholas Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna, sem er lengst til vinstri á þessari _ mynd. Við hlið hans stendur Peggy Oliver Helgason sem er varamað- ur í stjórn stofnunarinnar af hálfu Bandaríkjanna. Til hægri eru Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða og Sigmundur Guðbjamason, rektor Háskóla íslands. Menntastofnun íslands og Bandaríkjanna: Samstarf tekið upp við fyrirtæki og einstaklinga um námsmannastyrki Menntastofnun íslands og um. í dag taka 120 ríki þátt í Bandaríkjanna, Fulbrightstofn- unin, hélt árlegt samkvæmi sitt i síðustu viku. Þar komu saman núverandi bandarískir styrk- þegar, islenskir styrkþegar sem em á leið utan næsta haust og þeir sem nýlega em komnir heim úr námi. I hófinu vom einnig fulltrúar menntamálaráðuneytis- ins, bandaríska sendiráðsins, Háskóla íslands og meðlimir Fullbrightnefndarinnar. í fréttatilkynningu stofnunarinn- ar kemur fram að í ár eru fjörutíu ár liðin frá því að námsmanna- skipti í nafni J. Willam Fullbright hófust. Fullbright var öldungadeiid- arþingmaður Arkansasfylkis í Bandaríkjunum, sem vildi með þessu leggja skerf til friðar í heimin- námsmannaskiptum við Banda- ríkin, og hafa um 100.000 útlend- ingar notið styrkja stofnunarinnar auk um 56.000 Bandarikjamanna. Um 350 íslendingar hafa hlotið styrki Fullbrightstofnunarinnar, og hafa meira en 75 bandaríkjamenn dvalið hér með styrk hennar. Arið 1987 verður þrítugasta starfsár Fullbrightstofnunarinnar á Islandi. I tilefni afmælisins er ætl- unin að víkka starfssvið hennar. Tekin verður upp samvinna við ein- staklinga og fyrirtæki til að styrkja menn til æðra háskólanáms. Gef- endum byðist að tilgreina sérstak- lega þá námsgrein sem þeir vildu styrkja, og bæru styrkimir nafn þeirra. Hafnarfjörður: Frystitogarinn Yenus kominn til heimahafnar FRYSTITOGARINN Venus HF 519 var væntanlegur til heimahafnar í Hafnarfirði í nótt. Hann hét áður Júní GK 345, en hefur nú verið breytt í frystiskip, sem er í eigu Hvals hf. Fyrri eigandi var hlutafé- lag í eigu Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbæjar. Aætlaður kostnaður við breytingar milljónir króna, en það kostaði um Togarinn var byggður á Spáni 1973 og var þá 942 lestir. Skipt var um vél í honum árið 1980. í byrjun apríl var byrjað á breyting- um á togaranum í Dannebrogs Værft í Arósum og átti þeim að vera lokið í seinni hluta ágústmán- aðar. Verkið hefur hins vegar tekið um helmingi lengri tíma en áætlað var og stafar það fyrst og fremst af því, að nægur mannsskapur var ekki fyrir hendi í skipasmíðastöð- inni að sögn Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals. Hann sagði enn- fremur í samtali við Morgunblaðið, að vegna þess hefði komið upp ágreiningur um verð, sem nú hefði verið leystur og virtust þessar viðamiklu breytingar kosta um 200 milljónir króna. Hann sagði það mjög bagalegt að ekki hefði verið að he§a veiðar á þessu ári, en svo virtist hæpið nú. Skipið væri skráð og endurbætur a skipinu er 200 100 milljónir er það var keypt. á sóknarmarki, sem þýddi að því væri óleyfilegt að selja kvóta. Því væri þorskurinn þeirra vonandi óá- reittur í sjónum enn sem komið væri. Eftir breytingamar mælist tog- arinn Venus 1.002 brúttólestir og er með MaK-vél frá 1980, 2.354 hestöfl. Meðal annars hefur skipið verið sandblásið, trolldekk og vinnsludekk verið endurbætt og lestar einangraðar. Þá hafa frysti- vélar og -tæki verið sett upp svo og vinnsluvélar fyrir algengustu físktegundir og rækju. Allt spilkerf- ið hefur verið endumýjað og „Autotrawl-búnaður" verður settur í skipið við heimkomuna. Skipt hef- ur verið um brú á skipinu og íbúðir, eldhús og aðrar vistarverur verið endurbættar. Þá hafa flest tæki í brú verið endumýjuð. ATHYGLISVERÐ BÓK UM DULRÆN MÁLEFNI DRAUMAR OG ÆÐRI HANDLEIÐSLA Ingvar Agnarsson skráir í þessa bók af hógværð og vandvirkni frásagnir Aðalheiðar Tómasdóttur, eiginkonu sinnar. Helgi Vigfússon skrifar formála. Aðalheíöur Tómasctóttir DRACIMAR OG ÆÐRI HANDLEIÐSLA Skfásetl a( tngvari Agnajssyra Dyngja bókaútgáfa, Borgartúni 23 105 Reykjavík, s 91-36638, 91-28177 og 91-30913. Varanlega af rafmagnað. Engar óþægi legar snerting Auðvelt að hreinsa Teflon-húðað Mjög slitsterkt Antron Excel þráður Antron' Fiberen til kvalitetstæpper Teflon m Sendum gegn póstkröfu um land allt — Góð aðkeyrsla — Næg bílastæði. TomsTunonHusiÐ hf Laugavegi 164, sími 21901

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.