Morgunblaðið - 02.06.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.06.1987, Blaðsíða 25
 > Q 25 T f f » T 7 T r MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1987 Kór Neander-kirkjunnar S DUsseldorf. Myndin er tekin áður en kórinn lagði upp í ferðina til íslands. Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju: Neander-kórinn frá Dtissel- dorf með fyrstu tónleikana KOMINN er til landsins kór Neander-kirkjunnar f Diissel- dorf, en hann tekur þátt í kirkjulistahátíð í Hallgrfms- kirkju f Reykjavík um hvíta- sunnuna. Kórinn er nú á ferð um Norðurland og heldur tón- leika f Akureyrarkirkju annað kvöld, miðvikudag, en kemur til Reykjavikur á fimmtudaginn. Stjórnandi kórsins er tónskáldið Oskar Gottlieb Blarr, en hann hefur samið Jesúpassiu sem flutt verður á setningartónleik- um kirkjulistahátíðarinnar en miðasala stendur nú yfir f Hallgrímskirkju. Neander-kórinn skipa um 80 manns. Jesúpassían sem kórinn flytur á laugardag í Hallgríms- kirkju er í þremur þáttum og var verkið frumflutt á kirkjuhátíð í Dusseldorf 1985 og hlaut afburða góðar viðtökur. Hefur passían ver- ið flutt í þremur öðrum borgum Þýskalands en er nú í fyrsta sinn flutt erlendis. Á næsta ári er ráð- gert að flytja hana í Israel. Flytj- endur Jesúpassíunnar hér auk Neander-kórsins eru Skólakór Kársness, málmblásarar úr Lúðra- sveitinni Svani, Sinfóníuhljómsveit íslands og einsöngvarar bæði þýskir og íslenskir, alls um 200 manns. Þessa viku fer fram lokaundir- búningur fyrir kirkjulistahátíðina. Æfíngar eru í Hallgrímskirkju hjá þeim fjölmörgu sem þar eiga að koma fram alla vikuna. Miðasala fer fram í kirkjunni daglega kl. 10 til 18, einnig í bókaverslun Sig- fúsar Eymundssonar. Afsláttar- miðar á alla tónleikana fímm kosta kr. 1.500. * Islenskuprófið í 9. bekk í Reykjavík: Hæsta meðaleínkunnin í Álftamýrarskóla NEMENDUR Álftamýrarskóla, Tjarnarskóla og Æfinga- og til- raunaskóla Kennaraháskólans voru með hæstu meðaleinkunnir á samræmda prófinu í fslensku í 9. bekk grunnskólans í Reykjavík samkvæmt upplýs- ingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér. Meðaleinkunnin í Álftamýrar- skóla var hæst, 59,2 stig af 100 mögulegum. Tjarnarskóli var í öðru sæti með 58,8 stig og í þriðja sæti var Æfíngaskólinn með 58.0 stig. Meðaleinkunnin á landinu öllu var 48,0 stig, en 50,1 í Reykjavík. Lægsta meðaleinkunn í skóla í Reykjavík var 44,6 stig. byggingarmeistari. „Aðilar þurfa að skila inn teikningum, samkvæmt reglugerð og skoða ég sjálfur teikn- ingamar og fylgist með að eftir þeim sé farið. Ég þori að fullyrða að hér sé ekki byggt undir burðar- getu, enda eru hér vandaðir verk- takar." Sjálfur sagðist Sigurður ekki standa í byggingum, enda væri reynt að komast hjá því alls staðar, að byggingarfulltrúi væri að dæma í eigin sök. „Auðvitað væri æskilegast, að tæknimenntaður maður sinnti þessu eftirlitsstarfí, en ekki er fjár- hagslegur grundvöllur fyrir því af hálfu sveitarfélagsins. Ef breyta á eftirlitinu, yrði rfkið að koma inn í myndina." Eyrabakki „Hér reynir iítið á burðarþolseft- irlitið, enda lítið verið byggt síðast- liðin tvö ár“ sagði Jón Karl Ragnarsson byggingarfulltrúi Eyrabakkahrepps. „Það er gengið hart eftir teikningum, en maður veit nokkurn veginn hvort hús standast kröfur, enda farið eftir stöðlum. Hér er gott ástand á nýrri byggingum, enda hús með tvöfaldri jámabindingu. Ég er hins vegar hræddur um að pottur sé víða brot- inn í gömlum húsum," sagði Jón Karl, en minnti jafnframt á að áhrif jarðskjálfta væru mjög takmörkuð á Eyrabakka. Þorlákshöfn „Ég hef daglegt eftirlit með byggingu húsa á mínu svæði,“ sagði Sverrir Sigurjónsson byggingarfull- trúi Ölfushrepps. „Byggingar hér em hins vegar ekki sambærilegar við það sem gerist í Reykjavík; mest er byggt af einbýlishúsum og landbúnaðarbyggingum. Tvílyft hús hafa ekki verið hér byggð í mörg ár. Sverrir gat þess, að nú væri ver- ið að byggja tveggja hæða skóla- byggingu. „Sú bygging er hönnuð af viðurkenndum hönnuði og hefur teikningum verið skilað til mín, enda er það forsenda fyrir því að ég samþykki byggingar." Sverrir taldi ástand nýbygginga viðunandi; „það voru veikir punktar í einingarhúsunum, en þau hafa verið tekin í gegn og lagfærð. Um gamlar byggingar veit maður ekki og em ömgglega einhverjar bygg- ingar, sem byggðar vom fyrir 1979, sem ekki standast kröfur dagsins í dag.“ Vestmannaeyjar „Við sinnum okkar starfi eftir bestu getu og er allt tekið út sam- kvæmt reglugerð," sagði Valtýr Sæmundsson byggingarfulltrúi í Vestmannaeyjum og vildi ekki tjá sig frekar um málið. Björgunarsveitir — Bændur Verktakar — Veiðimenn HONDA kynnir fjórhjóla- farartækið með drifi á öllum hjólum, sem ferallt. ★ Vél, 25 hestöfl ★ Sprengirúm 350 cc ★ 4-gengis benzínvél ★ 5-gírar, 1 afturábak ★ Rafstart ★ Vökvafjöðrun ★ Vökvabremsur ★ Hjólbarðar 24x9-11 ★ Benzíntankur 10,5 I ★ Tengill fyrir 12 volt 15A ★ Hæð frá jörðu 16 sm ★ Þyngd 259 kg Síðast en ekki síst driföxlar og hjöruliðir vandlega lokaðir. Kr. 226.000.- stgr. Eigum nú þessi frábæru fjórhjól fyrirliggjandi. Honda á íslandi — Vatnagörðum 24, sími 689900. Ert þú ein(n) af þeim sem vita að hvítlaukur er mjög hollur, en þolir ekki lyktina? Veist þú að nú í fyrsta sinn á íslandi getur þú fengið alla hollustuna sem hvítlaukur býður upp á, án þess að hafa áhyggjur af elskunni þinni. 20 mánaðar kaldgeymsluaðferð KYOLIC hráhvítlauksins fjarlægir alla lykt en við- heldur öllum hinum frábæru eiginleikum. KYOLIC ereini lífrænt ræktaði hvítlaukur- inn í heimi, án tilbúns áburðar eða úðunar skordýraeiturs. KYOLIC er rækt- aður á nyrstu eyju Japans, þar sem jörð, vatn og loft er ómengað. Jarðvegur er ein- ungis blandaður laufi, jurtarrótum og öðrum lífrænum efnum. KYOLIC inniheldur margfalt meira af virkum frumefnum og efnasamböndum hráu hvítlauksjurtarinnar í fullu jafnvægi, en nokkkur önnur framleiðsla í veröld- inni. Það er sameiginlegt öllum öðrum hvítlauks framleiðendum að nota mjög háan hita við fjarlægingu lyktar og þurrkun, eða þá að innihald er mestmegnis jurtaolíur annarrra jurta. (Mjúk hylki og perlur). Hita meðferð eyðileggur hvata og önnur mikilvæg efnasambönd. KYOLIC hefur nýlega verið bætt við hið sérstaka heilsufæði, sem íþróttamenn í Bandaríkj- unum borða meðan þeir æfa fyrir Ólympíuleikana. Ókeypis bæklingar fást á sölustöðum. Þeir fjalla m.a. umnýjustu vísindarannsóknir, undra- verða lækninga- og heilsustyrkjandi eiginleika hvítlauks og einstæð áhrif KYOLIC hvít- lauksins. Lesið sjálf hvað læknarit segja. Helstu úfsölustaðir eru heilsuvöruverslanir, lyfjaverslanir og fleiri. Sendum í póstkröfu. Fæst í töflum, hylkjum og fljótandi. Heildsölubirgðir: Logaland, heildverslun símar 12804 og 29015 Njótið lífsgleði, orku oghreysti, komið í veg fyrir sjúkdóma, notið þess vegna KYOLIC daglega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.