Morgunblaðið - 04.07.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.07.1987, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987 ÚTVARP/SJÓNVARP Löggulíf Fimmtudagsleikritin á rás 1 eru hinn fasti punktur í tilveru fjöl- miðlarýnisins og bjarga honum oft frá þeirri angist er fylgir auðum skermi eða þegar velja skal á milli fjölmargra girnilegra dagskrárat- riða. En fátt er svo með öllu gott að ekki boði nokkuð illt, ef þannig má snúa alkunnum málshætti. Smæð íslensks samfélags birtist einkar ljóst í leikhúsinu þar sem sömu leikaramir mæta æ og síð og alla tíð til leiks. í hinu hefðbundna leikhúsi á leikhússgagnrýnandinn þess kost að rýna hinn sjónræna þátt sýningarinnar, og minnist ég gjaman þeirra augnablika frá leik- húsgagnrýnendaferlinum er hinn sjónræni þáttur sýningarinnar stýrði pennanum. í útvarpsleik- húsinu er það hins vegar rödd leikarans er fyllir ein út í persónuna og því er gagnrýnandanum nokkur vandi á herðum er sömu raddimar hljóma í sífellu. Oft ber þó við að velskrifað hlutverk lyftir gamal- kunnugri rödd leikarans yfir stað og stund. A því augnabliki hreyfír persónan, er höfundur og leikari lífguðu á hinu ósýnilega sviði, ekki aðeins við penna gagnrýnandans heldur tilfínningum hans og hugsun er rúmast ekki öll í prentsvertunni. Já útvarpsleikurinn er dularfullur galdur og hlýtur að vera óskastund hvers leikara að lífga við leikper- sónu — með röddina eina að vopni. Fimmtudagsleikritinu; Brot úr sekúndu eftir Dennis Mclntyre var lýst þannig í fréttatilkynningu Foss- vogshæðaleikhússins: Leikritið gerist í einu af skuggahverfum New Yorkborgar. Svartur lögregluþjónn, Val Johnson, sem er þar við gæslu, hefur komið auga á ungan hvítan mann sem er að bijótast inn í bíl. Johnson handtekur manninn sem ögrar honum með ókvæðisorðum um litarhátt hans. Þar kemur að Johnson er nóg boðið og hann skýt- ur manninn fullur haturs. Þessi atburður veldur honum sálarkvöl og áleitnar siðferðislegar spuming- ar sækja á huga hans. Stefán Baldursson leikstjóri valdi Valdimar Öm Flygenring til að leika bílþjófinn lánlausa. Valdimar er ekki mjög þjálfaður útvarpsleik- ari en það kom ekki að sök því hann hæfði smáþjófínum og mellu- dólginum frá Bronx. Slíkur maður talar náttúmlega ekki „Oxford- ensku“ og Valdimar sneyddi vendi- lega framhjá hinum norðlenska framburði, sem er honum máski ekki eðlislægur. Helgi Bjömsson er Iék félaga Vals lagði líka áherslu á hinn harðbeitta framburð. Pálmi Gestsson lék Parker lögreglufull- trúa er yfírheyrði Val skömmu eftir að skotið hljóp út byssunni. Pálmi er prýðilega skýrmæltur þótt hann sé ekki að norðan og fannst mér hann hér ná þessu hljómfalli er ein- kennir góðan útvarpsleik en Róbert Amfínnsson er lék hér föður Vals, býr einmitt yfír þessu næmni á hljómfall raddarinnar. Sigurður Skúlason lék sjálfan Val Johnson. Sigurður er ákaflega innlífur og einlægur leikari en stöku sinnum er einsog hljómfall raddarinnar breytist án þess að innihald textans hafí gefíð tilefni til slíkrar áherslu- breytingar. Hér gerist undirritaður máski full smámunasamur og sennilega tilheyra áherslubreyting- amar bara eðlilegri málvitund leikarans en svona þróast nú heym- amæmni þess er situr árið um kring með eyrað límt við fímmtudagsleik- ritin. Tinna Gunnlaugsdóttir lék konu Vals og fannst mér hún of- leika ögn á stundum enda skammt frá Yermu. Birgir Sigurðsson þýddi þetta verk ágætlega og náði næst- um „bronxmállýskunni" mdda- fengnu. Að lokum legg ég til að leikritið verði flutt í Lögregluskóla Ríkisins því það vekur upp ýmsar áleitnar spumingar um áhrif lög- reglustarfsins á sálarlífíð. Ólafur M. Jóhannesson Rás 2: VIÐ GRILLIÐ ■■■■ í kvöld klukkan I 1 Ö00 18 er á dagskrá rásar 2 þáttur sem ber heitið „Við Gril- lið“. Eins og nafnið gefur til kynna kemur matargerð nokkuð við sögu þáttarins. Ýmsir landsþekktir menn gerast kokkar í eina klukkustund og koma með skemmtilegar uppskriftir að grillréttum og fleim, spjalla við hlustendur og leika létta tónlist. Kokkur að þessu sinni er Karl Ágúst Úlfsson. Karl Ágúst Úlfsson UTVARP © LAUGARDAGUR 4. júlí 6.45 Veöurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 „Góðan dag, góðir hlustendur". Pétur Péturs- son sér um þátlinn. Fréttir eru sagöar kl. 8.00, þá lesin dagskrá og veðurfregnir sagðar kl. 8.15. Að þeim loknum heldur Pétur Péturs- son áfram að kynna morgunlögin. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.15 i garðinum með Haf- steini Hafliðasyni. (Endur- tekinn þáttur frá miðviku- degi.) 9.30 I morgunmund. Guðrún Marinósdóttir sér um barna- tíma. (Frá Akureyri.) 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Óskalög sjúklinga. Alma Guömundsdóttir kynnir. Tilkynningar. 11.00 Af Torginu. Brot úr þjóðmálaumræðu vikunnar i útvarpsþættinum Torginu og einnig úr þættinum Frá útlöndum. Einar Kristjáns- son tekur saman. 11.40 Næst á dagskrá. Stiklað á stóru í dagskrá útvarps um helgina og næstu viku. Umsjón: Trausti Þór Sverris- son. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 14.00 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál. Umsjón: lllugi Jökulsson. 15.00 Nóngestir. Tónlistar- þáttur í umsjá Eddu Er- lendsdóttur. 18.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 16.16 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpiö. 17.00 Stundarkorn í dúr og moll með Knúti R. Magnús- syni. (Þátturinn verður endurtekinn nk. mánudags- kvöld kl. 00.10.) 17.50 Sagan: „Dýrbítur" eftir Jim Kjeldgaard. Ragnar Þor- steinsson þýddi. Geirlaug Þorvaldsdóttir les (8). 18.20 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 Bandarísk tónlist. a. „Holyday" eftir Charles Ives. b. Lög úr „Túskildings- óperunni" eftir Kurt Weill. c. Lög úr „Porgy og tíess" eftir George Gershwin. 20.00 Harmoníkuþáttur. Um- sjón: Sigurður Alfonsson. 20.30 Úr heimi þjóðsagnanna. Sjöundi þáttur:,, Skugga- valdi, skjólið þitt" (Útilegu- mannasögur). Umsjón: Anna Einarsdóttir og Sól- SJÓNVARP LAUGARDAGUR 4. júlí 16.30 íþróttir. 18.00 Garðrækt. Tíundi þáttur. Norskur myndaflokkur í tfu þáttum. Þýðandi Jón O. Edwald. (Nordvision — Norska sjón- varpið.) 18.30 Leyndardómar gull- borganna. (Mysterious Cities of Gold) — Áttundi þáttur. Teikni- myndaflokkur um ævintýri i Suður-Ameríku fyrr á tímum. Þýðandi Sigurgeir Steingrímsson. 19.00 Litli prinsinn. Fimmti þáttur. Bandarískur teiknimyndaflokkur. Sögu- maður Ragnheiður Stein- dórsdóttir. Þýðandi Rannveig Tryggvadóttir. 19.25 Fréttaágrip á táknmáli. 19.30 Tommahamborgara- mótið. Umsjónarmaður Erla Rafnsdóttir. • 20.00 Fréttir og veöur. 20.35 Lottó. 20.40 Allt í hers höndum. (’Allo 'Allol) - Fjórði þáttur. Breskur gamanmyndaflokk- ur í sjö þáttum. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 21.16 Kvöldstund í Fillmore- hljómleikahöllinni. Sumarið 1986 voru haldnir tónleikar í San Francisco og komu þar saman ýmsir þeir listamenn sem settu svip á sjöunda áratuginn. Þar á meðal má nefna Joan Baez, Joe Cocker, Donovan, Country Joe, Sly & The Fam- ily Stone, Paul Butterfield, John Lee Hooker, Al Koop- er, Carlos Santana og fleiri gamlar kempur. 22.15 „í góðsemi vegur þar hver annan" (The Thomas Crown Affair) — Bandarísk bíómynd frá 1968. Leikstjóri Norman Jewison. Aðalhlutverk: Faye Dunaway og Steve Mc- Queen. Auðkýfingur nokkur styttir sér stundir við að skipuleggja og fremja full- komið bankarán og hyggst með því andmæla ríkjandi þjóöfélagsskipan. Fyrr en varir kemst þó glæsilegur starfsmaður tryggingafé- lags viökomandi banka á slóð hans. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 00.05 Dagskrárlok. r) 0 STOD2 LAUGARDAGUR 4. júlí i 091.00 Kum, Kum. Teikni- mynd. i 09.40 Jógi björn. Teikni- mynd. i 09.40 Alli og íkornarnir. Teiknimynd. i 10.00 Högni hrekkvísi. Teiknimynd. i 10.20 Ævintýri H.C. Ander- sen. Ljóti andarunginn. Fyrri hluti. Teiknimynd með islensku tali. } 10.40 Herra T. Teiknimynd. } 11.30 Fimmán ára (Fifteen). í þessum þáttum fara ungl- ingar með öll hlutverk. »12.00 Hlé. j 16.00 Ættarveldið (Dyn- asty). Fallon lendir í bílslysi og er flutt á spítala. Þar fæðist henni sonurog Blake Carrington heldur vart vatni af ánægju. } 16.45 Islendingar erlendis. í þessum þætti er Helgi Tómasson balletdansari og listastjóri San Francisco- ballettsins sóttur heim. Umsjónarmaður er Hans Kristján Árnason og upp- töku stjórnaði Ágúst Bald- ursson. 117.30 bíladella (Automania). Julian Pettifer ferðast um heiminn og kannar hvernig yfirvöld reyna að hafa hemil á og draga úr bíladellu manna. I Hong Kong stend- urt.d. til að láta menn borga sérstakt vegagjald f hvert skipti sem þeir aka bílnum sínum, (Tokyo er mælt fyrir stæði áöur en mönnum leyf- ist að kaupa bíl og i suður Kóreu heyrir bílpróf til opin- berra sýninga. § 18.00 Golf. Framvegis mun golf vera á dagskrá Stöðvar 2 á laugardögum. í þetta sinn er sýnt frá Opna ítalska meistaramótinu (Italian Open). i 19.00 Lucy Ball. Oft hefur verið sagt að konur hafi ekki húmor og geti ekki ver- ið skemmtilegar. Lucille Ball kveöjur þessar raddir i kútinn í sjónvarpsþáttum sínum sem þykja með þeim skemmtilegri sem sýndir hafa veriö. 19.30 Fréttir. 20.00 Undirheimar Miami (Miami Vice). Bandarískur spennuþáttur með Don Jo- hnson og Philip Michael Thomas í aðalhlutverkum. Tubbs og Crockett gruna franskan Interpol lögreglu- mann um græsku. } 20.45 Spáspegill (Spitting Image). Bresku háðfuglun- um er ekkert heilagt. } 21.10 Bráðum kemur betri tíð (We’ll Meet Again). Breskur framhaldsþáttur um lífið og ástandsmálin í smábæ í Englandi I seinni heimsstyrjöldinni. 12. þátt- ur. } 22.05 Hollywood — til ham- íngju (Happy Birthday Hollywood). Um þessar mundir á Hollywood 100 ára afmæli sem miðstöð kvikmyndageröar i heimin- um. Haldiðer upp á afmælið með glæsisýningu, eins og þeirra er von og vísa, þar sem fram koma helstu stjörnur hvíta tjaldsins fyrr og nú. Meðal þeirra sem fram koma eru Clint East- wood, Liza Minelli, Olivia De Havilland, Katherine Hepburn, Bob Hope, Molly Ringwald og margir fleiri. § 00.30 Áhættusöm iðja (Acc- eptable Risks). Bandarísk sjónvarpsmynd með Cicely Tyson, Brian Dennehy og Kenneth McMillan i aðal- hlutverkum. Leikstjóri er Rick Wallace. I meir en 30 ár hefur efnaverksmiðja fært ibúum Oakbridge atvinnu og velmegun. Þó heyrast raddir sem halda því fram að ekki sé allt sem skyldi í öryggismálum verksmiðj- unnar og að hún sé tíma- sprengja sem geti sprungiö hvenær sem er. En flestum íbúunum verða á þau mis- tök að halda: Svona kemur ekki fyrir okkur. § 02.05 Dagskrárlok. veig Halldórsdóttir. Lesari með þeim: Arnar Jónsson. Knútur R. Magnússon og Sigurður Einarsson völdu tónlistina. 21.00 íslenskir einsöngvarar. Garöar Cortes syngur lög eftir Árna Thorsteinsson, Sigvalda Kaldalóns og Ey- þór Stefánsson. Krystyna Cortes leikur með á píanó. 21.20 Tónbrot. Umsjón: Krist- ján R. Kristjánsson. (Frá Akureyri.) (Þátturinn verður endurtekinn nk. mánudag kl. 15.20.) 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Stund með Edgar Allan Poe. Viðar Eggertsson les söguna „Langa kistan". 23.00 Sólarlag. Tónlistarþátt- ur í umsjá Ingu Eydal. (Frá Akureyri.) 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar. Um- sjón: Jón Örn Marinósson. 01.00 Veöurfregnir. Næturútvarp á samtengd- um rásum til morguns. LAUGARDAGUR 4. júli 01.00 Nætun/akt útvarpsins. Þorsteinn G. Gunnarsson stendur vaktina. 6.00 ( bitið. — Rósa G. Þórs- dóttir. Fréttir á ensku sagöar kl. 8.30. 9.03 Með morgunkaffinu. Umsjón: Guðmundur Ingi Kristjánsson. 11.00 Fram að fréttum. Þáttur í umsjá fréttamanna út- varpsins. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Laugardagsrásin. Um- sjón: Kristín Björg Þor- steinsdóttir, Sigurður Sverrisson og Stefán Sturla Sigurjónsson. 18.00 Við grillið. Kokkur að þessu sinni er Karl Ágúst Úlfsson. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Kvöldrokk. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson. 22.05 Út á lífið. Þorbjörg Þóris- dóttir kynnir dans- og dægurlög frá ýmsum tímum. 00.05 Næturvakt útvarpsins. Óskar Páll Sveinsson stend- ur vaktina til morguns. Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 12.00, 16.00, 19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI 18.00—19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5. Fjallað um íþróttaviöburöi helgarinnar á Norðurlandi. LAUGARDAGUR 4. júlí 08.00—12.00 Jón Gústafsson á laugardagsmorgni. Jón leikur tónlist úr ýmsum átt- um, lítur á það sem fram- undan er um helgina og tekur á móti gestum. Fréttir kl. 08.00 og 10.00. 12.00-12.10 Fréttir. 12.10—15.00 Ásgeir Tómas- son á léttum laugardegi. Öll gömlu uppáhaldslögin á sínum stað. Fréttir kl. 14.00. 15.00—17.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Hörður Arnar- son kynnir 40 vinsælustu lög vikunnar. Fréttir kl. 16.00. 17.00—20.00 Rósa Guð- bjartsdóttir leikur tónlist og spjallar við gesti. 18.00-18.10 Fréttir. 20.00—23.00 Anna Þorláks- dóttir í laugardagsskapi. Anna trekkir upp fyrir helg- ina. 23.00—04.00 Þorsteinn Ás- geirsson nátthrafn Bylgj- unnar heldur uppi helgar- stuðinu. 04.00—08.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Ólafur Már Björnsson með tónlist fyrir þá sem fara seint í háttinn og hina sem fara snemma á fætur. / FM 10Z.J LAUGARDAGUR 4. júlí 8.00—10.00 Rebekka Rán Samper. Það er laugardag- ur og nú tökum við daginn snemma með laufléttum tónum sem Rebekka raðar saman eftir kúnstarinnar reglum. 10.00-12.00 Jón Þór Hann- esson. Með á nótunum, svo sannarlega á nótum æsk- unnar fyrir 25 til 30 árum. 11.55 Stjörnufréttir. 12.00—13.00 Pia Hanson. Pia athugar hvað er að gerast á hlustunarsvæði Stjörn- unnar, umferðarmál, sýn- ingar og uppákomur. Blandaður þáttur. 13.00—16.00 Örn Petersen Helgin er hafin. Hér er Öm í spariskapinu og tekur létt á málunum, gantast við hlustendur með hinum ýmsu uppátækjum, sann- kallaöur laugardagsþáttur með ryksugu-rokki. 16.00—18.00 Jón Axel Ólafs son. Á ferð í laugardags- skapi. 17.30 Stjörnufréttir. 18.00—22.00 Árni Magnús- son ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, 22.00— 3.00 Helgi Rúnar Óskarsson. Stjörnuvakt. 23.00—23.10 Stjörnufréttir. 3.00— 8.00 Bjarni Haukur Þórsson vaktar stjörnurnar og gerir ykkur lífiö létt með tónlist og fróöleiksmolum. ALFA Éi.npiim FM 102,9 LAUGARDAGUR 4. júlí 13.00 Skref í rétta átt. Stjórn endur: Magnús Jónsson Þorvaldur Daníelsson og Ragnar Schram. 14.30 Tónlistarþáttur. í um sjón Hákonar Muller. 16.00 Á þeinni braut. Ungl- ingaþáttur. Stjórnendur: Gunnar Ragnarsson og Sæmundur Bjarklind. 17.00 Hlé. 22.00 Vegurinn til lífsins: Tón listarþáttur með lestri úr Ritningunni. 24.00 Dagskrárlok.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.