Morgunblaðið - 17.07.1987, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
GASIDIBOTN!
Þaö er dagsatt aö á bensín-
stöðvum Esso er sumarlegt andrúmsloft.
Þar fæst sænskt gas á hylkjum frá „Primus“
auk vandaðra gaslukta og gashellna.
Einnig bjóðast þar ýmsar aðrar ferðavörur
svo sem létt borð og stólar, vatnspokar,
veiðisett, grillvörur og margt fleira.
Gasluktir frá 621 kr.
Gashellur -1428 kr.
Gashylki (einnota) - 89 kr.
Gashylki (áfyllanleg) - 800 kr.
Veiðisett -1190 kr.
Olíufélagið hf
Skref til hálfs — hvers vegna?
eftir Gunnar
Snorrason
Pann 1. ágúst nk. munu taka
gildi ný lög um innheimtu sölu-
skatts og er það einn liður af
mörgum í fyrstu aðgerðum nýrrar
rikisstjómar í efnahagsmálum.
Þessi lög kveða á um það m.a. að
10% söluskattur verði lagður á
matvæli að undanskildu þó kjöti,
fiski, grænmeti, ávöxtum og mjólk.
Ef marka má ummæli Jóns Bald-
vins Hannibalssonar fjármálaráð-
herra mun þessi ráðstöfun vera
áfangi í þá veru að söluskattur verði
lagður á allar vörur án undantekn-
inga.
Eg sem þessar línur rita hef
margoft látið þá skoðun mína í ljós
á opinberum vettvangi að einmitt
þetta eigi að gera og ætti raunar
að vera búið fyrir löngu. Mér er
því hulin ráðgáta hvers vegna þetta
var ekki gert nú með tilkomu nýrr-
ar ríkisstjómar í stað þess að gera
þetta kerfi enn flóknara en orðið
er. Gildistíminn 1. ágúst er nú ekki
sem allra bestur heldur, ég á ekki
von á því að auðvelt verði að fá fólk
í vörutalningu og endurmerkingu á
sjálfri verslunarmannahelginni. En
kannski eru aðrir á annarri skoðun,
sér í lagi þeir, sem finnst að verslan-
ir þurfi að vera opnar lungann úr
sólarhringnum alla vikuna og líka
um helgar. Enginn talar um þjón-
ustu opinberra stofnana svo sem
Tryggingastofnunar ríkisins, Gjald-
heimtunnar, borgarstofnana og
banka svo eitthvað sé nefnt.
Gunnar Snorrason
„Ég býð Dagfara í sjálf-
boðastarf yfir verslun-
armannahelgina til
endurmerkingar, hann
eða hún ætti að fara
létt með það.“
{ DV 14. júlí sl. skrifar Dagfari
um söluskattinn og segir orðrétt:
„Ríkisstjóminni er umhugað um að
kaupmenn þurfí ekki að leggja of
mikið á sig þegar vöruverðið hækk-
ar.“
Hér á Dagfari við að óþarfí hafí
verið að fresta 10% hækkuninni til
1. ágúst, það hafí einungis verið
fyrir kaupmenn gert. Ég býð Dag-
fara í sjálfboðastarf yfir verslunar-
mannahelgina til endurmerkingar,
hann eða hún ætti að fara létt með
það.
Á undanförnum árum hefur það
verið stefna ríkisstjórnar að leggja
niður innheimtu á söluskatti en taka
virðisaukaskatt upp í staðinn. Nú
virðist vera dregið í land með þetta
mál, en í málefnasamningi ríkis-
stjómar er kveðið á um það, að
stefna beri að því að taka í gildi
virðisaukaskatt eða endurbætt
söluskattskerfi. Ég hef áður bent
á og vil endurtaka, að ég hræðist
flókna skriffinnsku við skil á virðis-
aukaskatti, enda er það ljóst að
söluskattsformið er einfaldast ef
það er ekki eyðilagt með allskonar
undanþágum og breytilegum pró-
sentuupphæðum eftir vörutegund-
um eins og nú hefur gerst. Ollum
á einnig að vera ljóst hvílík feikna
vinna það verður fyrir kaupmenn
að inna þessa innheimtu af hendi
við slíkar aðstæður. Ég vil að lokum
beina því til stjórnvalda að flýta
endurskoðun á innheimtu sölu-
skatts, með það í huga að einfalda
kerfíð, það er, að ein söluskattspró-
senta verði lögð á allar vörur, að
sjálfsögðu mun lægri en nú er.
Mér er einnig ljóst að samfara
þessu þurfi til að koma ákveðnar
ráðstafanir fyrir hina efnaminni í
þjóðfélaginu gegnum trygginga-
kerfið. Ef þetta er gert og ráðamenn
gleyma öllum hugmyndum um virð-
isaukaskatt te) ég það spor í rétta
átt.
Höfundur er kaupmaður í
Reykjavík.
ERÐU /ÍR REIÐA
Ekkiskemma góð lög með því að spila þau í lélegu tæki.
Fáðu þér SHARP ferðatækiog uppáhaldslöginþín verða miklu
betri, hvort sem þau eru spiluð afkassettu eða leikin íútvarpinu.
Tækin eru fáanleg írauðu, bláu, brúnu og svörtu.
Tónninn ertær og tækin falleg. Verð
kr.8,950.-
Umboðsmenn: Bókaskemman Akranesi, KaupfólagBorgfirðinga, Hljómtorg Isafiröi, Kaupfólag Skagfirdinga Sauöárkróki, KEA Akureyri,
Radtover Húsavík, Eyco Egilsstöðum, Skógar Egilsstöðum, KaupfélagHéraðsbúa Egilsstöðum, MyndbandaleigaReyðarfjarðar Reyðarfirði.
Ennco Neskaupstað. Djúpið Djúpavogi, Hornabær Hornafirði, Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, M.Mbúöin Selfossi, Rás Þorlákshöfn,
Fataval Keflavík, Rafeindaþjónusta ómars Vestmannaeyjum, Radioröst Hafnarfirði, JLHúsið Reykjavík.
Manuela Wiesler, Einar Grétar Sveinbjörnsson og dóttirin María Lind.
Manuela Wiesler og Ein-
ar Grétar Sveinbjöms-
son í Skálholtskirkju
Á ÞRIÐJU tónleikahelgi Sumar-
tónleika í Skálholti munu
Manuela Wiesler og Einar Grétar
Sveinbjörnsson leika bæði gömul
og ný verk fyrir flautu og flðlu.
Þau komu fram á Skálholtstón-
leikum síðastliðið sumar.
Laugardag kl. 15 munu þau ein-
göngu leika verk eftir G.Ph.
Telemann. Á efnisskrá þeirra eru
tvær sónötur í G-dúr og A-dúr fyr-
ir flautu og fiðlu; fjórar einleiks-
fantasíur, tvær í f-moll og D-dúr
fyrir fiðlu og tvær í B-dúr og g-
moll fýrir flautu.
Laugardag kl. 17 leika þau
blandaða efnisskrá. Hún hefst á
pratítu í E-dúr fyrir einleiksfíðlu
eftir J.S. Bach. Þá koma tvö
samtímaverk. Fyrst er Kransaköku-
bitar eftir Þorkel Sigurbjömsson.
Verk þetta var samið í tilefni gift-
ingar þeirra Manuelu og Einars 17.
maí 1986, og er þetta frumflutning-
ur verksins. Hitt nútímaverkið er
eftir Cristobal Halffter og ber nafn-
ið Debla. Þau enda síðan tónleikana
á að leika svítu í h-moll fyrir flautu
og fíðlu eftir Jacques Hotteterre.
Sunnudag kl. 15 verða seinni
tónleikar frá laugardegi endurtekn-
ir. __
Á sunnudeginum kl. 17 er síðan
messa. Dr. Sigurður Öm Stein-
grímsson prédikar, en sr. Guðmund-
ur ÓIi Ólafsson þjónar fyrir altari.
Organisti er Ólafur Sigurjónsson.
Manuela Wiesler og Einar G. Svein-
bjömsson munu einnig leika við
messu.