Morgunblaðið - 17.07.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
19
Ég er líka að selja norðurljós:
Steinunn Sigurðardóttir hitti að máli Ágúst Guðmundsson leik-
stjóra á heimili hans í Lundúnum. í viðtalinu ræða þau um störf
Ágústs í heimsborginni, þar sem hann hefur búið og starfað undan-
farin ár. Nú í sumar er Ágúst að hefjast handa við stórt verkefni,
sem byggt er á Nonnabókunum, en tökur eru um það bil að hefjast
í Flatey á Breiðafirði. Ágúst segir meðal annars í viðtalinu: „Mér
finnst ég stundum i svipuðum sporum og Einar Benediktsson. Ég
er líka á minn hátt að selja norðurljós."
Lifandi blað
— fullt af athyglisverðu efni
Vala Ásgeirsdóttir Thoroddsen:
Stjórnmál hafa verið ríkari þáttur í lífi Völu Ásgeirsdóttur Thorodd-
sen en flestra annarra en þeirra, sem beinan þátt hafa tekið í
stjórnmálum. í athyglisverðu viðtali fjallar hún meðal annars um
hlutverk eiginkonu stjórnamálamanns og þau áhrif, sem störf stjórn-
málamanna hafa á fjölskyldur þeirra. Vala kemur víðar við í viðtalinu.
Fjallar um æsku sína og uppvöxt í foreldrahúsum, skólagöngu, fyrstu
kynni þeirra Gunnars, forsetakosningarnar 1952 og 1968 og ýmis-
legt sem þeim fylgdi. Þegar rætt er um framboð Gunnars Thoroddsen
til embættis forseta 1968, segir hún meðal annars: „Þetta var mjög
erfið barátta og mikil illska sem kom fram. Ótrúlegar sögusagnir
gengu. Milli Gunnars og Kristjáns kom þó aldrei upp neinn ágreining-
ur og samskipti þeirra voru alla tíð með miklum ágætum. lllskan og
heiftin kom frá fólkinu í kring.“
Móðir um fertugt:
Nýtt Líf
Alltaf ferskt og lifandi
TlSKUBLAO
5. tbl. 10. árg- 1987
Hvaða gjöf hefur forsjónin gefið manninum sem honum er jafn
kær og börnin?" Það var mælskusnillingurinn Cicero sem
mælti þessi orð. Þó að um það bil tvö þúsund ár séu liðin síðan er
ljóst, að orð hans eru enn í fullu gildi. Nýtt Lif hitti að máli fjórar
konur sem eiga það sameiginlegt að hafa átt börn um fertugt, þær
Kristínu Jóhannsdóttur leikstjóra, dr. Ragnheiði Briem, Sigríði Haga-
lín leikkonu og Stefaníu Borg. Þær ræða reynslu sína af þvi að eignast
börn svona seint, þrýsting þjóðfélagsins á konur sem ekki eiga börn,
muninn á að eignast börn um tvítugt og svo um fertugt og ýmislegt
fleira. Jafnframt leitaði Nýtt Líf álits Þóru Fischer, sem er sérfræðing-
ur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp á hinu svonefnda seinna
barneignaskeiði kvenna.
í blaðinu er meðal annars þetta efni:
Tiska: Nýjar fyrirsætur hasla sér völl. Nýtt Líf sýnir sumartísk-
una frá Akureyri.
Matur: Nýtt Líf setti upp grillveislu i tilefni sumarsins.
Greinar: Læknirinn í sjálfum þér — Getum við læknað okkur
sjálf?
Cellulites — Fitan sem minnir á appelsíubörk. Hvað er til ráða?
Hugarreik — Pétur Gunnarsson rithöfundur lætur hugann reika.
Bókaþjóð í sumarskapi — Hvaða bækur ættum við að lesa i sumar?
Isabella Rosselini og Ingrid Bergman — Er dóttirin að feta i fótspor
móðurinnar?