Morgunblaðið - 17.07.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
23
Pólland:
Kvikmynd
gerð eftir
ástarsögu páfa
Reuter
Leikarinn Burt Lancaster ráðfærir sig hér við leikstjórann Micha-
el Anderson — utan við skartgripabúðina, en myndin er tekin í
Kraká.
og það sem gerst hefur í millitíð-
inni.
Miðpunktur sögunnar er gamli
gullsmiðurinn, sem Lancaster
leikur, en hann gefur ungum elsk-
endum í hringaleit góð ráð um
ástina, lífið og tilveruna. „Astin
er ekki ævintýri. Hún getur ekki
enst í aðeins eitt augnablik. Hið
eilífa eðli mannsins kemur fram
í ástinni,“ segir gullsmiðurinn.
„í raun er ég að leika Guð, sem
er afskaplega erfitt í hvaða mynd
sem er, svo mark sé takandi,"
segir hinn 73 ára gamli Lancaster.
Leikstjóri myndarinnar er eng-
inn aukvisi heldur, því það er
Michael Anderson, sem m.a. er
þekktur fyrir myndirnar „Logan’s
Run,“ „Conduct Unbecoming" og
„Around The World In 80 Days.“
Hann neitar því alfarið að nafn
páfa hafi mestu ráðið um gerð
myndarinnar. „Það var var ekki
páfi, sem skrifaði leikritið. Það
skrifaði Karol Wojtyla — maður
með djúpan skilning á mannlegu
eðli.“
Vatíkanið mun fá 6% heildar-
tekna af myndinni, en þeir
fjármunir munu renna beint til
aðstoðar hungruðum heimi.
Páfagarði, Reuter.
ÞESSA dagana er verið að taka
kvikmynd í Póllandi. í fyrstu
mætti álíta að hér væri á ferð-
inni dæmigerð stórmynd frá
Hollywood: stjörnur á borð við
Burt Lancaster, Ben Cross og
Oliviu Hussey, en þegar grannt
er skoðað kemur í ljós að hér
er um annars konar mynd að
ræða. Höfundur sögunnar er
Karol Wojtyla, sem betur er
þekktur sem Jóhannes Páll páfi
II. „Utan við skartgripabúðina”
er kvikmyndaútgáfan af leik-
riti, sem páfinn reit fyrir 27
árum, og er að sögn framleið-
enda ástarsaga.
„Þetta er ný tegund sögu um
hvað ástin táknar," sagði Burt
Lancaster á blaðamannafundi fyr-
ir skömmu. „Hún sýnir mátt
ástarinnar — hvers ástin er megn-
ug hafi maður þann styrk og þá
trú sem þarf til þess að meðtaka
hana.“
Það er ítalska ríkissjónvarpið
sem framleiðir myndina og er tal-
ið að kostnaðurinn muni nema um
9 milljónum Bandaríkjadala.
Myndin verður sýnd í kvikmynda-
húsum skömmu fyrir jól, en
sjónvarpsstöðvar geta væntan-
lega fest kaup á henni einu og
hálfu ári síðar.
Upphaflega hét leikritið „Hug-
leiðingar um sakramenti hjóna-
bandsins", en hana skrifaði
Jóhannes Páll 2. páfí.
monsjör Wojtyla árið 1960, sem
þá var aðstoðarbiskup í Kraká.
Páfi hefur reyndar lengi haft
áhuga á leiklist því hann starfaði
með neðanjarðarleikhúsi undir
hernámi Þjóðvetja í Seinni heims-
styijöld. Leikritið naut talsverðra
vinsælda þegar það kom út, en
eftir að Wojtyla varð kjörinn páfi
hefur það selst í 50 milljónum
eintaka á 22 tungum. Það fjallar
um reynslu tveggja para í Kraká
árið 1939 og þá upplausn sem
stríðinu fylgdi. Tuttugu árum
síðar hittast pörin aftur í Kanada
og reyna að gera upp hið liðna
Líbanon:
7 látast og
77 slasast
-í bílasprengingum
Trijjólí, Líbanon. Reuter.
SJO manns biðu bana og 77 særð-
ust er tvær bílasprengjur
sprungu í borgunum Trípólí og
Baalbeck í Líbanon á miðviku-
dag.
Báðar þessar borgir eru í raun
undir stjórn Sýrlendinga og voru
sex sýrlenskir hermenn meðal hinna
slösuðu. Sprengjan í Trípólí sprakk
fyrir utan verslunarmiðstöð þar sem
fjöldi fólks, aðallega konur, voru
við innkaup. I Baalbeck var sprengj-
unni komið fyrir í leigubíl fyrir utan
kvikmyndahús.
Tyrkland:
Kúrdar fella
tvo hermenn
Ankara, Reuter.
KURDISKIR uppreisnarmenn
felldu tvo tyrkneska hermenn í
árás á varðstöð í suðausturhluta
Tyrklands í fyrrinótt, að sögn
Anato/ian-fréttastofúnnar.
Fréttastofan sagði að fimmtán
skæruliðar hefðu tekið þátt í árás-
inni og síðan flúð yfir írösku
landamærin í um tveggja kílómetra
fjarlægð.
Hinn marxíski Verkamanna-
flokkur Kúrda, sem berst fyrir
sjálfstæði Kúrdistans, hefur aukið
hryðjuverkastarfsemi sína undan-
farið og drepið meira en sextíu
almenna borgara á síðustu mánuð-
um.
VÖRN GEGN VEÐRUN
Það er misskilningur að járn þurfi að veðrast.
Alltof lengi hafa menn trúað því að galvaníserað
járn eigi að veðrast áður en það er málað. Þannig
hafa menn látið bestu ryðvörn, sem völ er á
skemmast og afleiðingin erótímabær ryðmyndun.
Með réttum HEMPELS grunni má máia strax
og lengja þannig lífdaga bárujárns verulega.
HEMPELS þakmálning er sérhæfð á bárujárn
og hefur frábært veðrunarþol.
SILPPFELAGIÐ
Dugguvogi4 104 Reykjavík 91-842 55
íslenskt veðurfar gerir meiri kröfur til utanhússefna en
veðurfar flestra annara landa. Ef steinn er óvarinn við þessar
aðstæður grotnar hann niður á skömmum tíma, aðallega
vegna frostþíðuskemmda og áhrifa slagveðurs við útskolun
fylliefna steinsteypunnar. Steinsílan gefur virka vörn gegn
þess konar áhrifum.
Opin veggjamálning, grunnur jafnt og yfirefni á stein, múr-
stein og eldri málningu. Hefur afbragðs þekju og mikið veðr-
unarþol. Fjöldi lita sem halda skerpu sinni lengi án þess að
dofna.