Morgunblaðið - 17.07.1987, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
Ómar Torfason á landsliðsæfíngu. Hann æfír þessa dagana með Dussel-
dorf í Vestur-Þýskalandi.
KNATTSPYRNA
Omar æfir með
Diisseldorf
ÓMAR Torfason hefur að
undanförnu œft með vestur-
þýska liðinu Dusseldorf og
getur þess vegna fengið til-
boð frá félaginu á nœstu
dögum.
Frá þessu er greint í þýska
íþróttablaðinu Kicker í gær.
Blaðið segir að Diisseldorf hafi
boðið þremur leikmönnum að æfa
með liðinu, Ómari og tveimur
Þjóðveijum, og verði einum þeirra
boðinn samningur.
Diisseldorf féll í 2. deild í vor, en
þá hafði liðið leikið samfellt í 15
ár í 1. bundesligunni. Ómar leikur
sem kunnugt er með Luzem í
Sviss, en hefur áhuga á að skipta
um félag.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Breiðablik tekur sæti
Fram í úrvalsdeildinni
í FYRRAKVÖLD var ákveðið að
UBKtœki sœti Fram í úrvals-
deildinni íkörfubolta nœsta
keppnistímabil.
Asíðasta tímabili léku sex lið
í úrvalsdeildinni, UMFN, ÍBK,
Valur, KR, Haukar og Fram. Fram-
arar hlutu ekkert sig og áttu að
falla í 1. deild, en ákveðið var að
fjölga í úrvalsdeildinni úr sex liðum
í níu. Samkvæmt því hélt Fram
sæti sínu, en við bættust ÍR, sem
sigraði í 1. deild, Þór Akureyri og
Grindavík. Síðan gerðist það að
körfuknattleiksdeild Fram var lögð
niður og því var fyrmefnd ákvörðun
tekin á fundi fulltrúa úrvalsdeildar-
félaganna.
Samfara fjölgun liða verður fyrir-
komulagi mótsins breytt. í stað
fjórfaldrar umferðar, verður leikin
tvöföld umferð, en úrslitakeppni
fjögurra efstu liða verður eftir sem
áður.
Þá verður sú breyting á bikarkeppn-
inni að úrvalsdeildarliðin koma inn
í keppnina í 16 liða úrslitum og
verður leikin tvöföld umferð, heima
og að heiman, og jafntefli látin
gilda.
FRJALSAR / MEISTARAMOT UNGLINGA
Um 550 ungmenni
keppa um helgina
í dag hefs á Laugardalsvelli í
Reykjavík meistaramót frjálsí-
þróttamanna 14 ára og yngri
og stendur þaö yfir til sunnu-
dags. Keppendur eru 374 alls
staðar að af landinu. Mótið
verður sett með athöfn og hóp
göngu keppenda á laugardags
morgun.
Alaugardag fer svo fram meist-
aramót 15 til 18 ára fíjálsí-
þróttamanna og verður það haldið
í Keflavík. Þátttakendur þar verða
170 talsins, svo að á mótunum
tveimur keppa um 550 keppendur.
UMFK sér um framkvæmd mótsins
í Keflavík og ÍR-ingar í Reykjavík.
Á mótinu í Reykjavík keppa ungl-
ingar úr nær hveiju byggðarlagi
landsins, en þeir eru frá 23 félögum
og héraðssamböndum. Flestir
þeirra eru frá Héraðssambandinu
Skarphéðni, þ.e. úr Ámes- og Rang-
árvallasýslum, eða 55. Frá Héraðs-
sambandi Snæfells- og Hnappadals-
sýslu koma 35 keppendur, frá
Ungmenna og íþróttasambandi
Austurlands 33 og 31 frá Ung-
mennasambandi Dala og Norður
Barðastrandar.
MORGUIMBLAÐSLIÐIÐ
9. umferð
SEX lið skoruðu 11 mörk í 9.
umferð og voru sex markanna
skoruð í sama leiknum, en
leikmönnum fjögurra liða
tókst ekki að skora að þessu
sinni. Fjögur lið eiga leik-
menn í liði umferðarinnar
og eru fimm menn valdir
úr leik Völsungs og Vals,
sem varbesti leikur
umferðarinnar, þó
ekkert mark hafi
verið skorað.
/
Halldór
Áskelsson
Þór (3)
Morgunblaðið/ GÓI
...
0 Pétur
M Ormslev
M Fram(5) « ...
Hlynur
Birgisson ’
Þór(1)
Við viljum vekja athygli ykkar sem útivist stunda
á Barbour fatnaði. Durham jakkinn hefur þessa
kosti: Hann er framleiddur úr laufléttu bómullar-
efni, hann er hlýr og hleypir frá sér raka, hann
er vatnsheldur og einstaklega sterkur, hann er
fallegur og léttur og þegar allra veðra er von er
hann tvímælalaust hentugasti jakki í lengri
eða skemmri ferðir.
V
Veiðimaðurinn sf.,
Hafnarstræti 5, sími: 16760.
KNATTSPYRNA
Gull og Silfur-
mótið
fyrir yngstu
knattspymu-
konumar
YNGSTU knattspyrnukonur
landsins, 3. aldursflokkur,
munu safnast saman í Kópa-
vogi helgina 25. og 26. júlí en
þá fer fram þar í bæ Gull og
Silfur-mótið í kvennaknatt-
spyrnu og eru það Gull og
Silfur h.f. og Ungmennafélagið
Breiðablik sem sjá um fram-
kvæmd mótsins eins og
undanfarin ár.
Mót þetta var fyrst haldið 1985
og er þetta því í þriðja sinn
sem það fer fram. Á fyrsta mótinu
kepptu um 70 stúlkur, í fyrra tvöfal-
daðist fjöldi þátttakenda og í ár er
búist við um 250 ungum knatt-
spymudömum á Kópavogsvöllum.
Mótið er því eitt hið viðamesta sem
haldið er fyrir þennan aldursflokk.
Keppnin hefst klukkan 10 á laugar-
dagsmorgun og verður leikið fram
undir kvöldmat. Á sunnudaginn
verður einnig hafíst handa um
klukkan 10 og mótinu lýkur síðari
hluta dags. Það eru bæði A og B
lið sem keppa á mótinu og verða
veitt gull-, silfur- og bronsverðlaun
í hvorum flokki. Markadrotning
keppninnar fær einnig gullboltann
sem viðurkenningu fyrir að skora
mikið af mörkum og allir þátttak-
endur fá heiðursskjal til minningar
um þátttöku í mótinu.
Keppendur koma víða að og verður
þeim séð fyrir gistingu í skólum í
Kópavogi. Vífilfell gefur Hi-C eins
og hver getur í sig látið og einnig
munu allir fá Tommahamborgara
og franskar í lok móts.
Mót þetta er svipað og Tommaham-
borgaramótið í Eyjum nema hvað
hér eru það stelpumar sem leika
en strákamir í Eyjum, „rökrétt þró-
un á jafnréttistímum", eins og segir
í fréttatilkynningu um mótið.