Morgunblaðið - 17.07.1987, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
47
vT'✓v' < ^ ■o-' < ✓V VX \VV V \ \MA\A '\AM< A Wv <W/X XXM X'
MARKAMETIÐ11. DEILD ER19 MORK: Pétur Pétursson ÍA, 1975 og Guðmundur Torfason, Fram, 1986
vv7\ \MMA '\M^< A M Vv <VvW)Ö« x ax
W^WW
©©©©
©©©©
®@®@
y-N aWWNA'X
Björn Rafnsson, KR
HeimirGuðmundsson, (A
Hlynur Birgisson, Þór
Hörður Benónýsson, Völsungi
Jónas Róbertsson, Þór
Kristján Kristjánsson, Þór
Óli Þór Magnússon, ÍBK
Sigurjón Kristjánsson, Val
HalldórÁskelsson, Þór
Pétur Ormslev, Fram
Tryggvi Gunnarsson, KA
V
Þeir eru markahæstir í 1. deild !
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KARLA
Hugsa ekki um að
setja markamet
- segir Pétur Pétursson, sem er markahæstur í deildinni
PÉTUR Pétursson KR er
markahæstur í 1. deild karla,
þegar mótið er hálfnað. Pótur
hefur skorað fimm mörk, átta
leikmenn hafa skorað fjögur
mörk hver, þrír leikmenn þrjú
mörk hver og aðrir færri, en
alls hafa verið skoruð 114 mörk
í deildinni til þessa.
Fjörutíu og fjórum leikjum af
90 er nú lokið í deildinni. Flest-
ir leikimir hafa verið mjög
skemmtilegir á að horfa og kunna
áhorfendur greinilega vel að meta
knattspymuna — þeim hefur fjölgað
um 25% frá því í fyrra, en þá varð
einnig töluverð aukning frá fyrra
ári.
Uðshelldln aðalatriðið
Þó knattspyma sé fyrst og fremst
leikur liðs en ekki einstaklinga er
það einu sinni svo að þeir, sem
skora mörkin, eru yfirleitt meira í
sviðsljósinu en hinir. „Þetta á ekki
að vera svona,“ sagði Pétur Péturs-
son í spjalli við Morgunblaðið.
„Árangur liðs byggist á samvinnu
allra leikmannanna, liðsheildinni,
og það er enginn einn mikilvægari
en annar.“
Pétur var markakóngur 1. deildar
1978, skoraði 19 mörk í 18 leikjum
og sló met Hermanns Gunnarssonar
frá 1973, sem var 17 mörk, en þá
voru átta lið í deildinni. Þórólfur
Beck skoraði 16 mörk 1961, en þá
voru aðeins sex lið í deildinni og
leikir hvers liðs tíu. Guðmundur
Torfason jafnaði síðan met Péturs
í fyrra.
Þegar Pétur setti markametið,
skoraði hann sex mörk í fyrstu níu
umferðunum, var fimmti marka-
hæsti leikmaðurinn, en þá var félagi
hans, Matthías Hallgrímsson,
markahæstur með 10 mörk. Pétur
skoraði síðan eitt mark í 10. um-
ferð, annað í 11. umferð, fjögur í
12., eitt í 13. og sex mörk í næstu
þremur, tvö í hverri umferð. Mörkin
dreifðust meira hjá Guðmundi í
fyrra. Hann skoraði í öllum um-
ferðum nema þremur, einu sinni
þrennu og fjórum sinnum tvö mörk
í leik, en eftir níu umferðir hafði
hann skorað níu mörk.
Hugsa ekld um met
Pétur hefur skorað fimm mörk í
deildinni í ár í þremur leikjum, en
fellur metið í haust?
„Satt best að segja, þá hugsa ég
ekki um það eins og hefur vonandi
komið fram í leikjunum í sumar.
1978 var takmarkið að skora sem
flest mörk, en nú hugsa ég ekki
eins. Ef ég hugsaði aðeins um að
skora, léki ég öðruvísi, en aðalatrið-
ið er að liðið skori fleiri mörk en
mótheijamir og við höfum skorað
í hverri umferð. Það er samt alltaf
gaman að skora, en ég yrði ekki
síður ánægður ef Bjöm Rafnsson
skoraði 20 mörk eða fleiri í sumar
og setti þar með nýtt met,“ sagði
Pétur.
- Er erfiðara að skora núna en
fyrir níu árum?
„Já, því leikurinn og leikskipulag
hefur breyst svo mikið. Þegar ég
setti metið skoraði ég flest mörkin
með skalla við íjærstöng, en núna
er minna um fyrirgjafir utan af
kanti. Mest ber á þeim hjá Fram
og Val, en Valsarar hafa átt í erfið-
leikum með að nýta færin. Breiddin
er líka meiri núna og mörkin dreif-
ast á fleiri menn.“
Svo auðvelt! MorgUnb,aöiö/BAR
Pétur Pétursson til hægri og Guðmundur Torfason eiga markametið í 1. deild,
19 mörk. Pétur setti metið 1978, en Guðmundur jafnaði það ( fyrra. Félagam-
ir hittust í fyrrakvöld og voru sammála um að metið yrði ekki slegið á næstu
árum! Guðmundur hefur sem kunnugt er gert samning við Winterschlag og
hélt utan til æfinga 1 gær, en tlmabilið hefst í lok næsta mánaðar.
FRJÁLSAR / STÚDENTALEIKARNIR
Þettaerbotn-
- — w
inn hjá mér
- segir EinarVilhjálmsson
„ÞETTA er botninn hjá mór.
Ég get áreiðanlega ekki komist
neðar. Það er eins og það hafi
orðið meiriháttar spennufall í
skrokknum við að ná Norður-
landametinu langþráða," sagði
Einar Vilhjálmsson í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Einari gekk illa í úrslitum spjót-
kastskeppninnar á heimsleik-
um stúdenta í Zagreb í Júgóslavíu
í gærkvöldi, varð í 11. sæti með
73,64 metra. Marek Kaleta frá
Sovétríkjunum sigraði og kastaði
81,42 metra. Var það eina kast
hans yfír 71 metra, hin voru á bil-
inu 69-71. í öðru sæti varð Júgó-
slavinn Sejad Krdzalic með 80,26,
þriðji Volker Hadwich A-Þýzkal-
andi með 78,82, fjórði Nicu Roata
Rúmeníu með 77,82 og fimmti Pet-;
er Blank V-Þýzkalandi með 74,72.
„Mér finnst alveg furðulegt hvemig
maður getur dottið svona niður. Það
þýðir hins vegar ekki að gráta Bjöm
bónda og nú þarf ég að rífa mig
upp úr þessu,“ sagði Einar. Hann
náði lengst kastinu í fyrstu umferð.
í annarri umferð kastaði hann
72,84 og síðan 72,62. „Ég var í
engu jafnvægi, það fór allt úrskeið-
is, tæknilega. Ég náði mér aldrei á
strik".
FRJÁLSAR
Eggert ynr 60 ‘
metraí
EGGERT Bogason FH náði í
gærkvöldi sínum næstbezta
afreki í kringlukasti er hann
kastaði 60,72 metra á móti í
Svíþjóð.
Eggert varð þriðji og Helgi Þór
Helgason USAH fimmti með
52,42, sem er hans bezti árangur
í ár. Tveir Norðmenn vom á undan
Eggert. Olav Jensen kastaði 62,50
og Svein Inge Valvik 62,32. Valvik
kringlu
kastaði 67,70 metra á þriðjudag.
„Ég er nokkuð ánægður því kvöidið
áður keppti ég í þremur kastgrein-
um á móti hér í Svíþjóð. Kastaði
þá kringlu 58,76, sleggju 55,10 og'
varpaði kúlu 17 metra. Þá var
kastserían sæmileg, öll köstin yfir
58 metra og ég náði þeim öllum
sex gildum. Þetta er ailt á réttri
leið og ég vonast til að kasta lengra
á íslandsmeistaramótinu um aðra
helgi," sagði Eggert.
Vésteinn kast-
aði 62,54 metra -
- og sigraði á móti í Svíþjóð
VÉSTEINN Hafsteinsson HSK
kastaði kringlunni 62,54 metra
á móti í Helsingjaborg í Svíþjóð
í fyrrakvöld og sigraði. Eggert
Bogason FH varð í öðru sæti
með 58,76 metra.
Ísamtali við Morgunblaðið sagð-
ist Vésteinn ekki vera orðinn
góðir af meiðslum, sem hann hlaut
í júnílok en væri á góðri leið með
að ná sér. „Ég hef lyft vel en kast-
að óverulega. Þetta var lítið
æfingamót og mig langaði til að
sjá hvar ég stæði. Verð vonandi
orðinn nógu góður fyrir land-
skeppnina í Reykjavík 8. og 9. ágúst
og takmarkið er að verða orðinn
fullfrískur og standa sig á heims-
meistaramótinu í Róm í byijun
september," sagði Vésteinn.
Helgi Þór Helgason USAH keppti
einnig á mótinu í Helsingjaborg og
kastaði 50,12 metra.
KNATTSPYRNA
ÍAogFHá
Akranesi í kvöld
TÍUNDA umferð í 1. deild karla
í knattspyrnu hefst f kvöld með
leik ÍA og FH á Akranesi.
Hefst leikurinn kl. 20, ekki kl.
19, eins og stendur í mótabók
KSÍ.
Á sunnudag fara ffarn þrír leikir.
KR og KA leika á KR-velli, Þór og
Fram á Akureyri og ÍBK og Völs-
ungur í Keflavík. Umferðinni lýkur
síðan á mánudag með leik Vals og
Víðis á Vals-velli. Allir leikimir
heflast kl. 20.
Þá verða tveir leikir í 1. deild
kvenna í kvöld. KR og ÍBK leika á
KR-velli og KA og UBK á KA-velli
og hefjast báðir leikimir klukkan
20.