Morgunblaðið - 31.07.1987, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.07.1987, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987 Jarðarber Fyrstu jarðarber sem ég sá, uxu villt rétt fyrir ofan neðsta klettabeltið í Bjólfínum á Seyðisfirði. Þetta var beint fyrir ofan Liverpool. Ég var smátelpa þegar þetta var, en minnist enn hins gómsæta bragðs beijanna og gleðinni yfír þessum merka fundi. Síðan hefí ég aldrei fengið eins góð jarðarber, jafnvel þótt ég hafí fundið villt jarðarber, sem víða er að fínna á íslandi. Villijarðarber eru mun bragðbetri en hin ræktuðu. Sem bam tíndi ég jarðarber í Hallormstaða- og Egilsstaðaskógi, en jarðarber vaxa víða í skóglendi. Þau vaxa meira að segja í skóglendi því sem bóndi minn hefur ræktað upp, á Garðaholti á Álftanesi, en ekki eru þau ber mörg. í Garðyrkjuriti 1979 segir dr. Einar I. Siggeirsson um jarðarben „Jarðarber (villijarð- arber) er af rósaættinni (Rosáceae) og er fjölær, sumargræn, jurtkennd planta með marggreindri trefjarót. Vex í skóg- og runnlendi, blómdældum, hlíðum og giljum móti suðri.“ Hérlendis rækta margir jarðarber í görðum sínum, og eru þau ber stór og uppskera oft mikil. í flestum nálæg- um löndum er jarðarbeijatím- inn liðinn, en hann er aftur á móti rétt að byija hér hjá okk- ur, við þurfum því að hafa hraðar hendur og tína berin jafnóðum og þau roðna. Jarð- arber eru flutt inn, stundum langt að, og fást jarðarber hér í búðum allt árið. Jafnvel um jólaleytið. Þau jarðarber sem við kaupum, eru oft nokkuð dýr og ekki eins fersk sem skyldi, en þau geymast illa. Og þótt þau séu flutt með flug- vélum, eru þau sjaldan alveg óskemmd í bökkunum. Þegar við kaupum jarðarber, þurfum við því alltaf að taka þau strax úr bökkunum og tína þau skemmdu úr, svo að þau skemmi ekki frá sér. Jarðarber eru ákaflega falleg, en sundur- skorin eru þau jafnvel enn fallegri. Þegar við skreytum tertur og ábætisrétti, ættum við því að skera þau í sundur langsum og láta skurðflötinn snúa upp, og sjálfsagt er að hafa laufíð á þegar við skreyt- um með beijunum. Jarðarber með sherry og rjóma 500 g fersk jarðarber ’Abolli flórsykur 1 dl sætt sherry 1 peli ijómi örlítið rifíð suðusúkkulaði 1. Þvoið jarðarberin, takið af þeim laufíð. Takið frá Vshluta, þau fallegustu og minnstu. 2. Meijið 2/ahluta beijanna með gaffli, setjið saman við þau flór- sykur og sherry. Hrærið saman með gaffli. Setjið í kæliskáp og látið standa þar í 3—4 klst. 3. Þeytið ijómann, blandið var- lega saman við beijamaukið. 4. Takið 10 ber frá af þeim beijum sem þið geymduð. Notið þau til skreytingar, en setjið hin saman við maukið. Ef berin eru mjög stór er betra að skera þau örlítið í sundur. 5. Skiptið ijómanum og jarðar- beijamaukinu jafnt í 4 skálar. 6. Skerið 10 jarðarber í sundur langsum. Látið laufíð vera á. Setj- ið síðan bitana ofan á hveija skál. Látið skurðflötinn snúa upp. 7. Stráið súkkulaði yfir og be- rið strax fram. Jarðarberjabaka með vanillukremi Þessi uppskrift er úr bók minni „220 gómsætir ávaxta- og beija- réttir". Bakan 50 g smjör eða jurtasmjörlíki ‘Adl sykur 1 eggjahvíta 2 dl hveiti 'Atsk lyftiduft Setjið hveiti, lyftiduft og sykur í skál, skerið smjörið smátt út í, blandið eggjahvítunni í. Hnoðið vel saman. Setjið á botninn og upp með börmunum á smurðu bökumóti, 22 sm í þvermál. Setjið mótið síðan í kæliskápinn í 1 klst. 2. Hitið bakaraofíiin í 190°C, blásturofn í 170°C. Pikkið botninn með gaffli, setjið síðan í miðjan ofninn og bakið í 25—30 mínútur. Fyllingin 2 dl mjólk ‘Avanillustöng eða 1 msk van- illusykur 1 msk maizenamjöl (ekki sósu- maizenamjöl) 1 msk sykur 2 eggjarauður 1 eggjahvíta 1 dl ijómi 250 g fersk jarðarber 1. Hrærið eggjarauðumar og hvítuna með sykrinum og maiz- enamjölinu. 2. Hitið mjólkina með sundur- flattri vanillustönginni eða van- iilusykrinum. Ef þið notið vanillustöng, skafíð þið vanillu- komin úr henni út í mjólkina. 3. Hellið heitri mjólkinni úr í eggjahræruna, setjið á helluna, hrærið stöðugt í þar til þykknar. Skellið pottinum í kalt vatn í eld- húsvaskinn um leið og þið takið hann af hellunni og hrærið vel í þar til kremið fer að kólna. Kælið síðan alveg. 4. Þeytið ijómann og setjið út Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON botninn frá og látið kökuna fuli- kólna á grind. Fyllingin 1 lítil dós jarðarbeijaskyr rifínn börkur og safi úr 1 lítilli appelsínu 1 msk vanillusykur 1 dl sykur 5 blöð matarlím 250 g fersk jarðarber IV2 peli ijómi 6. Setjið skyrið í skál, rífíð app- elsínubörkinn og setjið út í. Setjið sykur og vanillusykur út í. 7. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn í 10 mínútur. 8. Kreistið safann úr appelsín- unni, hitið og bræðið matarlímið í honum. Kælið örlítið, en hellið þá í mjórri bunu út í skyrið. 9. Þeytið ijómann og setjið 2/sút í. 10. Meijið helming jarðarbeij- anna og setjið saman við. Hellið þessu yfír kökubotninn. Setjið í kæliskáp og látið stífna. 11. Skerið laufíð af jarðarbeij- unum sem eftir em, skerið síðan langsum í tvennt og raðið ofan á kremið. 12. Sprautið því sem eftir er af ijómanum utan með kökunni. ís með jarðarberjum 'h kg fersk jarðarber •Adl flórsykur 1 lítri vanilluís 'Adl appelsínulílqor eða app- elsínuþykkni lAdl romm (má sleppa) 1 peli ijómi 1. Þvoið jarðarberin, takið af þeim lauf. Skerið síðan í tvennt. Setjið sykur saman við og geymið í kæliskáp í 2 klst. 2. Skerið ísinn í sneiðar, setjið í hrærivélarskál ásamt líkjör (app- elsínuþykkni) og rommi. Hrærið saman. Athugið að þíða ísinn tals- vert áður en þetta er hrært saman, annars getur ísinn skemmt vélina. 3. Þeytið ijómann og blandið út í. 4. Setjið ísinn í hringform og látið standa í kæliskáp í 1—2 klst. 5. Hvolfíð ísnum í kringlótt fat. Setjið jarðarberin inn í hring- inn og berið á borð. í kalt kremið. Takið bökuna úr mótinu, hellið kreminu í hana. 5. Skerið jarðarberin í tvennt langsum og raðið ofan á kremið. Látið skoma flötinn snúa upp. Jarðarbeijaterta með skyri Botninn 4 egg 170 g hveiti 100 g hveiti 'Atsk lyftiduft 1. Þeytið egg með sykri þar til það er ljóst og létt. 2. Sigtið hveiti og lyftiduft út í og hrærið saman með sleikju. 3. Smyijið springmót, 25 sm í þvermál. Setjið deigið í mótið. 4. Hitið bakaraofn í 200°C, blásturofn í 180°C. Setjið kökuna í miðjan ofninn og bakið í 30 mínútur. 5. Hvolfíð mótinu með kökunni á kökugrind og látið kólna örlítið, skerið þá niður með hringnum og losið hringinn frá. Losið síðan Selfosskirkja: Gísli Sigfurbjömsson gefur hálfa milljón í gluggasjóð Selfossi. GÍSLI Sigurbjörnsson í Hvera- gerði afhenti Selfosskirkju síðastliðinn sunnudag 500 þús- und krónur í gluggasjóð kirkj- nnnar í tilefni þess að 26. júlí voru liðin 35 &r frá því dvalar- heimilið Ás/Ásbyrgi í Hvera- gerði tók til starfa. í gjafabréfí er elliheimilisnefnd Ámessýslu þakkað samstarfíð, enn- fremur sýslumönnunum Páli Hallgrímssyni og Andrési Valdi- marssyni og sýslunefnd. Gjöfin í glúggasjóð Selfosskirkju er minningargjöf frá stjóm elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, til heiðurs og virðingar brautryðjend- um, heimilisfólki, starfsfólki og velunnurum. Gjöfín er gefin Sel- fosskirlqu til minningar um Þorvarð Guðmundsson Litlu Sandvík, Guð- jón A. Sigurðsson Gufudal, Dag Brynjólfsson Gaulveijabæ, Helga Kjartansson Hrauni, Eyjólf Guð- mundsson Grímslæk, Guðrúnu Snorradóttur Þórustöðum, Bjöm Jónsson Völlum, Egil Thorarensen kaupfélagsstjóra, Jörund Brynjólfs- Selfosskirkja. son alþingismann, Teit Eyjólfsson Eyvindartungu, Séra Sigurð Páls- son vígslubiskup og Þorstein Sigurðsson Vatnsleysu. I lok gjafabréfsins segir:„Þessum Morgunblaðið/Siguröur Jónsson er öllum innilega þakkaður skiln- ingur, stuðningur og vinátta oft í erfíðu starfí. Minning þeirra lifír í verkunum." — Sig. Jóns Leiðrétting í grein um lestarsamgöngur í blaðinu í gær var það ranghermt að Jón heitinn Þorláksson hefði stofnað tímaritið Eimreiðina. Það gerði að sjálfsögðu Valtýr Guð- mundsson, ritstjóri hennar frá 1895 til 1918. Meinloka blaðamanns stafaði af því að JÓn var, eins og Valtýr, mik- ill áhugamaður um lagningu jám- brauta hér á landi. Hann rítaði hins vegar um þetta hugðarefni sitt í tímaritið Lögréttu. Morgunblaðið biðst afsökunar á þessum mistökum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.