Morgunblaðið - 01.08.1987, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 01.08.1987, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987 51 Guðbjörg Péturs- dóttir — Minning Fædd 13. ágríst 1905 Dáin 26. júlí 1987 Guðbjörg Pétursdóttir var fædd á Gjögri, Árneshreppi, Stranda- sýslu, 13. ágúst 1905. Foreldrar hennar voru Guðrún Þorsteinsdóttir og Pétur Jónsson. Hún gekk í bamaskóla í Árneshreppi. Lærði ljósmóðurstörf í Reykjavík árið 1924 og starfaði óslitið við ljósmóð- urstörf í Ámeshreppi í 32 ár. í fáeinum orðum langar mig til að minnast ömmu sinnar, Guðbjarg- ar Pétursdóttur. Hún lést á Hrafn- istu að morgni 26. júlí. Hún missti manninn sinn, Sörla Hjálmarsson, þann 1. mars 1984. Eftir það var lífsþróttur hennar ekki sá sami og áður. Ekki ætla ég að rekja æviferil hennar frekar, enda sjálfsagt aðrir færari um það en ég. Það er margt sem kemur upp í huga manns, þeg- ar hugsað er aftur í tímann. Frá barnsámm er mér efst í huga þeg- ar fjölskyldan hittist heima hjá þeim í Hörgshlíð 2. Það var sama hver fjöldinn var, alltaf var eins og hún hefði engum öðmm að sinna en okkur bamabömunum og sú hlýja og ástúð sem frá henni streymdi er manni ógleymanleg. Alltaf hafði hún tíma til þess að sinna okkur bömunum, spila við okkur eða leika við okkur á einn eða annan hátt. Sá albesti staður, sem hægt var að hugsa sér, þegar mannmargt var í Hörgshlíðinni eða þegar afi og systkinin höfðu mikið um að tala, var að flýja inn í eldhús til ömmu Bjargar og var víst að vel yrði tek- ið á móti manni þar. Ég gæti skrifað margar blaðsíður um þær stundir, sem hún gerði manni ógieymanlegar, en ég læt þetta duga. Góðhjartaðn og yndislegri ömmu get vart hugsað mér. Eg þakka fyrir allar þær ógleymanlegu stund- ir, sem ég átti með ömmu. Guð blessi og varðveiti minningu elsku ömmu minnar. Vilhjálmur Pétursson Kveðjuorð: Árni Gíslason Hafnarfirði Ámi Gíslason er látinn. Við hjón- in, í fjarlægð, gátum ekki fylgt honum hinsta spölinn, en útför hans var gerð frá Fríkirkjunni í Hafnar- firði kl. 3 í gær, föstudaginn 31. júlí 1987. Við báðir vorum aldir upp í Hafn- arfírði. Stutt var á milli húsa foreldra okkar, en nokkurra ára aldursmunur mun sjálfsagt hafa orðið þess valdandi að leiðir lágu ekki saman að ráði fyrr en á miðju aldurskeiði. Segja má að kynnin hafí í raun hafíst er við fómm ásamt eiginkonum í vinabæjarheimsókn til Noregs á vegum Hafnarfjarðarbæj- ar fyrir um það bil tuttugu ámm. Þar var bundist kunningja- og vina- böndum sem ekki slitnuðu. Ámi hafði stundað togarasjó- mennsku á yngri ámm, eins og undirritaður hafði gert á námsámm í sumarleyfum á stríðsámnum í byijun fimmta áratugarins. Höfðum við oft ánægju af að rifja upp endur- minningamar frá þeim afdrifaríka tíma. Síðar lágu leiðir okkar saman er hann varð framkvæmdastjóri fyrirtækisins Lýsi & Mjöl h.f. eftir að hafa verið verkstjóri þar um nokkurt árabil. Þar hafði hann for- ystu um rekstur mikilvægs fyrir- tækis í atvinnulífí Hafnarfjarðar. Á þessu tímaskeiði var undirrit- aður talsvert að vasast í pólitík og hafði ákveðnar skoðanir á því sviði. Það hafði Ámi Gíslason líka. En þær fóm ekki alltaf saman. Efast raunar um að hann hafí nokkum tíma kosið minn flokk, þegar ég var þar í forsvari. Ekki breytti það neinu um okkar kunningjabönd. Auðvitað hafði það sitt að segja að eiginkonur okkar höfðu tengst traustum vináttuböndum. Við Margrét sendum Ester og fjölskyldu innilegustu samúðar- kveðjur. Stefán Gunnlaugsson Unnur Jóhanna Brown — Kveðjuorð Fædd 24. maí 1965 Dáin 24. júlí 1987 Föstudaginn 24. júlí var tilkynnt í útvárpinu að ung kona hafí farist í bílslysi. Svona fréttir heyrir maður allt of oft en það hvarflar aldrei að manni að það sé einhver sem manni er annt um. Skömmu síðar var hringt og tilkynnt um lát Unn- ar. Við vomm öll harmi slegin. Daginn áður var fyrsti sumarleyfis- dagurinn hennar og kom hún í bankann geislandi af gleði til að ná í gjaldeyri. Seinna um daginn ætl- aði hún að sækja nýja bflinn og sýna okkur hann áður en hún færi norður til Matta og Margrétar litlu. Allt var svo bjart framundan og lífíð blasti við. Ætlunin var að skreppa norður í nokkra daga áður en haldið yrði í langþráða ferð til Evrópu. Unnur var lífsglöð stúlka, alltaf var stutt í háan og glaðværan hlát- ur. Hún var sjálfstæð, ákveðin og dugleg bæði í vinnu og utan henn- ar. Allt sem hún tók sér fyrir hendur var gengið í af krafti og allt hefði þurft að gerast strax í gær. Margt var lagt á sig til að ná settu marki. Ekki er langt síðan við hlógum með henni, er hún var að lýsa maðk- atínslu sinni um hánætur. Hennar líf og yndi var litla dótt- ir hennar Margrét. Hún saknaði hennar, mikið þá daga sem hún var fyrir norðan hjá pabba sínum. Unn- ur hafði oft orð á því að það væri einmanalegt að koma heim úr vinn- unni þegar litli geislinn hennar kæmi ekki hlaupandi á móti henni. Stórt skarð er hoggið í hópinn sem aldrei verður fyllt. Minningin um Unni mun aldrei gleymast. Með þessum kveðjuorðum viljum við votta fjölskyldu hennar og að- standendum okkar dýpstu samúð. Starf sfólkV erzlunarbanka íslands, Grensásútibúi. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar aftnælisfréttir með mynd í dagbók um fóik sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. Rauði krossinn gef- ur sjónvarpstæki RAUÐI kross íslands hefur af- hent öldrunarlækningadeildum Landspítalans þrjú sjónvarps- teki að gjöf. í fréttatilkynningu frá Rauða krossi íslands segir að sjónvarps- tækin séu á háum hjólaborðum og sérstaklega ætluð til nota inni á sjúkrastofum. Tækin eru því aðallega ætluð þeim sjúklingum sem eru rúmfastir og eiga þess ekki kost að horfa á sjónvarp í setustofum sjúkrahúsanna. Rauði krossinn efndi til söfnun- ar í samvinnu við Bylgjuna fyrir síðustu jól og söfnuðust þá tæp- lega hundrað þúsund krónur sem ákveðið var að veija til kaupa á þessum sjónvarpstækjum. Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir afhendir forráðamönn- um Landspítalans gjöfina. Morgunblaðið/Jón Sig. Blönduós: Hlutavelta til styrktar kirkjubyggingu Blönduósi. Þessar ágætu stúlkur, sem eiga heima á Blönduósi, efndu á dögun- um til hlutaveltu og var ágóðanum varið til styrktar kirkjubyggingu á Blönduósi. Þær heita, talið frá vinstri: Amý Björg Eggertsdóttir, 6 ára, Petra Björg Kjartansdóttir, 9 ára, og Helga Kristín Gestsdóttir, 5 ára. Vinkonumar Sólveig Edda Ingvarsdóttir, Berglind Sigurþórsdóttir og Elva Dögg Simonardóttir efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparsjóð RKÍ. Söfnuðu þær 600 kr. til sjóðsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.