Morgunblaðið - 17.10.1987, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
íbúðar- og versluriarhús
í Hafnarfirði til sölu
Vandað steinhús, byggt um 1960, með góðri 800 fm
lóð á fallegum útsýnisstað. Tvær hæðir samtals 280
fm. Á efri hæð eru 5-6 herb. íb. með tvennum svölum,
en á neðri hæð verslunarhúsnæði og lítil íbúð. 50 fm
útihús (bílsk. o.fl.). - Skipti á minni eign koma til greina.
Einkasala.
Opið í dag Árni Gunnlaugsson, hrl.,
kl. 13—17 Austurgötu 10, sími: 50764.
Húseign í Hafnarfirði
Nýkomið til sölu vandað og velhirt steinhús á góðum
stað við Austurgötu, tvær hæðir samtals 192 fm. Á
efri hæð eru 6 herb. og eldhús en á neðri hæð 3 herb.,
baðherb., þvottahús og geymslur. Bílskúr. Falleg 600
fm baklóð. Laust fljótlega. Einkasala.
Opið í dag Árni Gunnlaugsson, hrl.,
kl. 13—17 Austurgötu 10, sími: 50764.
SIMAR 21150-21370
Vorum að fá i sölu moðal annarra eigna:
SOLUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0ROARS0N HDL
Stór og góð við Alfheima
4ra herbergja íbúð á 4. hæð, 107,4 fm nettó. Nýlr gluggar. Nýl. eld-
hús. Sólsvalir. Gott kjherb. með wc. Endurnýjuð sameign.
3ja herb. íbúð við Hraunbæ
á 3. hæð, ekki stór, vel skipulögö. Gott bað. Vélaþvhús. Góð sameign.
Verð aöeins 3,1 mlllj.
Parhús í Smáíbúðahverfi
Efri hæð: 3 góö svefnh., baö og svalir. Neðri hœð: Stofa, eldh., forst.
og snyrting. Kj.: 2 rúmg. herb., sturtub., þvhús og geymsla. Bflskúr
24 fm nettó. Grunnflötur hússins er tæpir 60 fm nettó. Langtímalán
kr. 1,9 millj. fylgir. Skipti æskil. á góðri 4ra herb. íb. miðsvæðis í borginni.
Úrvalsíbúðir í smíðum
3ja og 4ra herb. við Jöklafold i Grafarvogi. Fokh. á næstunni, fullb.
u. trév. næsta sumar. Sameign fullgerð. Byggjandi: Húni sf. Tveir
bílsk. óseldir. Kynnið ykkur nánar skipuiag, teikningar og frágangsskil-
mála. Frábær grkjör.
8 ára úrvalsíbúð
við Dalsel á 2. hæð, 89,9 fm nettó, 3ja herb. Ágæt sameign. Suð-
ursv. Öll eins og ný (innréttingar, tæki og teppi).
2ja herb. íbúðir í Vesturborginni
við Boðagranda (öll eins og ný). Sérinng. af svölum. Ágæt sameign.
Mikið útsýni.
Við Sólvallagötu
(úrvals góð einstaklíb., ekki stór, í 15 ára reislul. steinh. Sér hiti. Skuld-
laus. Ákv. sala).
í Árbæjarhverfi eða nágrenni
Fjársterkur kaupandi óskar eftir einbhúsi eða raðh. aö meöalstærö.
Miklar og góðar greiðslur.
Fjöldi fjársterkra kaupanda.
Margskonar eignaskipti.
Opið í dag laugardag kl. 11 -16.
AIMENNA
FASTEI6NASALAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
HAFÐU ALLT Á
HREINU
FÁÐU ÞÉR
^rTDK
Morgunblaðið/BAR
Að loknum frumflutningi píanókonserts Áskels Mássonar, frá vinstri: Guðný Guðmundsdóttir, kon-
sertmeistari, Simon Kuran, 2. konsertmeistari, Roger Woodward, píanóleikari, Áskell Másson,
tónskáld, og Diego Masson, hljómsveitarstjóri.
Sínfóníutónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Efnisskrá: Mozart: Parísarsin-
fónían K.297, Áskell Másson:
Píanókonsert, Mussorgskí:
Myndir á sýningn.
Parísarsinfónían eftir Mozart
er yndisleg tónsmíð og var að
mörgu leyti vel leikin, þó stjóm-
andinn hætti ekki á að spenna
verkið upp í verulegan hraða og
héldi því þar með í góðu jafn-
vægi, sem vissulega á vel við
Mozart, þó hann hins vegar sjalf-
ur hafi oft á tíðum haft mestu
ánægju af því að tefla á tvær
hættur og því sé tónlist hans, sém
margir telja að sé yfirborðsleg,
gædd dýpri og margslungnari til-
fínningasemi en hjá mörgum þeim
sem slá um sig miklum tilþrifum
og vel merkjanlegri tilfínninga-
semi.
Aðaltíðindi kvöldsins voru
frumflutningur á píanókonsert
eftir Áskel Másson. Roger Wood-
ward flutti verkið ágæta vel og
trúlega í góðu samspili við hljóm-
sveitina undir stjóm Diego
Masson, þó undirritaðan gruni að
einleikari og hljómsveit hafí átt
að enda einn þáttinn „akkúrat"
samtímis. Konsertinn er á köflum
töluvert viðfangsefni fyrir einleik-
arann en einnig er píanóið notað
sem samleiksaðili t.d. þar sem
einleikslínan er „dúplemð" í
hljómsveitinni nokkuð oft. Kafla-
skipan verksins er eilítið ójöfn,
t.d. mjög löng einleiks „kadensa"
í viðamiklum fyrsta kafla, allt of
stuttur hægur þáttur og inn í
þáttunum nokkuð lengi dvalið við
einstaka hugmyndir.
Hvað sem líður lengd hvers
kafía og verksins í heild hefur
Áskell Másson samið alvarlegt og
áhrifamikið tónverk og er tónmál
hans mjög að færast frá „effekta-
leik“ í átt við tónrænni íhugun,
sem gefur þessu verki hans stórl-
átan og áhrifamikinn svip.
í efnisskrá er sérkennilegt
dæmi um sambandsleysi þeirra
sem sjá um efnisskrána við þá sem
halda tónleikana, því þar er marg-
ritað að hljómsveitargerðin á verki
Mussorgskís sé eftir Ravel. Rétt
mun vera og leiðrétt er með sér-
kennilegum hætti á lausum fylgi-
miða, að umritun verksins fyrir
hljómsveit sé gerð af Ashkenazy,
sem fylgir frumgerð tónskáldsins
af meiri nákvæmni en Ravel. Það
má endalaust deila um þessar
umritanir og gera samanburð
hvort saxófónn eigi verr við en
enskt hom í Gamla kastalanum
og hvort fíðlueinleikurinn í gyð-
ingadúettinum sé eins áhrifamikill
og trompettleikurinn hjá Ravel.
Hvað sem þessi munur hefur að
segja, þá er verkið svo sterkt og
sérkennilegt að munurinn á rit-
hætti hverfur á köflum og þá er
það Mussorgskí sem hefur orðið.
Að slepptum samanburði við Ra-
vel má Ashkenazy vel við una,
því verk Mussorgskís hljómaði
mjög vel í gerð hans og var á
köflum prýðilega flutt af Sinfóníu-
hljómsveit íslands undir ágætri
stjóm Diego Masson.
Tónskáldínu færð blóm að loknum frumflutningnum.
Upplýsingabanki Ríkisútvarpsins
Upplýsingabanki Ríkisútvarps-
ins var tekinn í notkun 1. október
sl. að sögn Helga S. Helgasonar
auglýsingasljóra Rikisútvarpsins.
Bankinn hefur að geyma upplýs-
ingar um auglýsendur, vörur
þeirra og þjónustu.
í upplýsingabankanum verða
geymdar i eitt ár allar auglýsingar
sem fram hafa komið í Ríkissjón-
varpinu, Rás 1 og Rás 2. Um 100
þúsund auglýsingar eru komnar inn
í bankann en nú eru elstu auglýsing-
amar í honum frá því í maí sl.
„Tilgangurinn með þessum
tölvuvædda gagnabanka er sá að
veita neytendum, á einfaldan hátt
og þeim að kostnaðarlausu, aðgang
að nýjustu upplýsingum um ákveðna
vöm eða þjónustu, vömmerki eða
fyrirtæki. Þessi nýjung hefur gengið
mjög vel. Fólk hefur hringt og
spurst fyrir um hefílbekki og kart-
öfluútsölur, svo dæmi séu tekin.
Upplýsingabankinn er einnig
mikilvægur fyrir auglýsendur, því
hann lengir líftíma auglýsinganna
og bætir þar með nýtingu auglýs-
ingafjár", sagði Helgi.
Símanúmer upplýsingabankans
er 693060.