Morgunblaðið - 17.10.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
17
Sætabrauð
með kaffinu
Helmilishorn
Bergljót Friðriksdóttir
Kökubakstur hefur áreiðanlega
minnkað á heimilum síðustu árin
og þarf ekki að sjá eftir því. Enginn
mælir með kökuáti dags daglega
en af sérstökum tilefnum, og stöku
sinnum án þeirra, hlýtur að vera í
lagi að fá sér kökusneið. Uppskrift-
imar sem hér fylgja með eru kökur
bakaðar í einu lagi en svo skomar
í stykki eða sneiðar að bakstri lokn-
um. Ofan á þeim er fylling sem
bökuð er með og kökumar því til-
búnar beint úr ofninum.
Hnetukökur
Botninn:
3 dl hveiti
V2 dl sykur
125 g smjör eða smjörlíki
1 eggjarauða
Ofan á er smurt 1 dl af apríkósu-
sultu.
Yfir er sett lag úr:
2 eggjum
1 dl sykur
2 dl hveiti
125 g smjöri eða smjörlíki
Deigið er hnoðað, sykur og
hveiti sett í skál, smjörinu bland-
að saman við og vætt i með
eggjarauðunni. Deigið geymt á
köldum stað um stund áður en
flatt er út, sett í ofnskúffu eða
mót 25x25 sm. Apríkósusultunni
smurt yfir.
Egg og sykur þeytt vel, hveiti
hrært saman við og að siðustu
kældu, bræddu smjörlikinu. Sett
jafnt yfir sultuna.
Til skrauts: IV2 dl brytjaðir
hnetukjamar og V2 dl perlusyk-
ur.
Kakan bökuð i ca. 30 min. við
175°C i miðjum ofni. Kakan látin
kólna í forminu áður en hún er
skorin í stykki. Geymist í þéttum
kassa.
Tosca-kökur
Botninn:
4 egg
3 dl sykur
2 tsk. lyftiduft
4 dl hveiti
4 msk. mjólk
225 g smjörlíki
Tosca-bráð úr:
75 g smjör eða smjörlíki
3 dl brytjaðar möndlur
IV2 dl sykur
2 msk. hveiti
2 msk. mjólk
Deigið er venjulegt hrært deig,
egg og sykur þeytt vel, smjörlíkið
brætt og kælt. Hveiti með lyfti-
dufti í, mjólk og bráðið smjörlíki
sett saman við eggjahræruna til
skiptis. Deigið sett í smurt form eða
ofnskúffu 40x40 sm. Bakað í miðj-
um ofni í ca. 20 mín við 175°C.
Bráðin:
Smjörið brætt í potti, möndlur,
sykur, hveiti og mjólk sett út í og
látið sjóða varlega (ekki við of háan
straum). Kakan tekin út eftir 20
mín. og bráðinni smurt yfir, sett
aftur í ofninn í ca. 8—10 mín. Það
á að koma gullinn litur á bráðina.
Kakan látin kólna að nokkru áður
en skorið er í stykki eða sneiðar.
Geymist vel í frysti.
Ný skemmti-
dagskrá
á Hótel Sögu
NÝ SKEMMTIDAGSKRÁ,
Hringekjan, hefst í Súlnasal Hót-
ei Sögu í dag, laugardag. Þar
koma fram ýmsir skemmtikraft-
ar og dansarar, svo sem íslenski
jassbailettflokkurinn, Bjami
Arason söngvari, Jóhanna Linnet
söngkona og Örn Árnason.
Skemmtidagskráin er eingöngu
fyrir matargesti í Súlnasal og hefst
klukkan 20.00. Hljómsveit Grétars
Orvarssonar sér um undirleik nema
í dansatriðum og leikur einnig á
dansleik sem fer fram eftir skemmt-
unina.
s
töh/uprentarar
Tölvuprentarar frá STAR styðja þig í starfi. Þeir eru
áreiðanlegir, hraðvirkir og með úrval vandaðra leturgerða.
STAR prentarar tengjast öllum IBM PC tölvum og öðrum
sambærilegum.
Leitin þarf ekki að verða lengri. Hjá Skrifstofuvélum hf. eigum
við ekki aðeins rétta prentarann, heldur einnig góð ráð. Nú er
tíminn til að fullkomna tölvuumhverfið með góðum prentara.
-STAR ER STERKUR LEIKUR.
Verð frá kr. 25.500,-
- og við bjóðum þér góð kjör.
Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37
Akureyri:Tölvutæki-Bókval
W Kaupvangsstræti 4, sími: 26100