Morgunblaðið - 17.10.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
25
Bundið slitlag
á þjóðvegum
landsins
280
km
um 300 km
Samtais um 1720 km
í ársiok 1987
226
km
226
km
168
km
143 144
km km
91
km
104
km
HHN
fyrir '80 '80 '81 '82 '83 '84 '85 '86 1987
Bundið slitlag
IMaiarvegir
AKVEGIR þeir sem hér eru
sýndir eru einungis númeraðir
vegir, hringvegurinn, tveggja og
þriggja tölu vegir svo og fjallvegir
með F-númerum. Athygli skal vakin á
að linutáknið sýnir vegina hér um eins
kílómeters breiða. Æskilegt væri að um helm-
ingur þessa kerfis yrði lagður bundnu slitlagi.
Vegagerð ríkisins:
Bundið slitlag komið á um 1720 km
— þegar búið að leggja á 70% af þjóðveginum til Akureyrar
VEGAGERÐ ríkisins hefur lagt bundið slitlag á um 1720
km af þjóðvegum landsins. Þar af voru um 300 km lagðir
í sumar og er vonast til að hægt verið að leggja um 250
til 300 km á næsti ári að sögn Helga Hallgrímssonar aðstoð-
arvegamálasljóra. Þegar hefur 70% af þjóðveginum til
Akureyrar verið lagður bundnu slitlag.
Ættfræði-
bókasafn
á uppboði
Klaustur-
hóla á
sunnudaginn
Uppboðsstarfsemi Klaustur-
hóla er að fara í gang eftir
sumarið og sunnudaginn 18.
október kl. 17.00 verður bóka-
og tímaritauppboð á vegum
fyrirtækisins haldið í Templ-
arahöllinni á Eiríksgötu 5.
í fréttatilkynningu frá Klaust-
urhólum segir að á uppboðinu
verði ýmis rit, fomritaútgáfur og
fræðigreinar, leikrit, æviminning-
ar, ferðabækur og landafræðirit,
saga lands og lýðs, rit Sögufélags-
ins, Minningarrit, Þjóðsögur og
sagnir, blöð og tímarit frá ýmsum
tímum, ættfræði og æviskrár. Má
þar nefna: Staðarbræður og
Skarðssystur, Skútustaðaætt,
Hver er maðurinn? 1-2, Ættartala
Steindórs Gunnarssonar,
Strandamenn og Dalamenn 1-3,
Reykjahlíðarætt, Kollsvíkurætt,
Laxamýrarættin, Ættir Skagfirð-
inga, gamla skráin _ og fjöldi
annarra ættarskráa. Úr héraða-
sögum má nefna: Skagfirsk fræði
1-10, Saga Reykjavíkur 1-2,
Arbækur Reykjavíkur, Saga
Hafnarfjarðar, Saga Vestmanna-
eyja 1-2, Blanda 1-9.
Uppboðið hefst á sunnudaginn
kl. 17.00 en bækumar verða til
sýnis í Templarahöllinni kl. 14.
00-16.00 sama dag.
„Samkvæmt fjárlagafrumvarpi
ríkisstjómarinnar er um 7 til 8%
raunaukningu á fjárveitingum til
vegagerðarinnar að ræða á næsta
ári frá því sem var í ár, miðað við
byggingarvísitölu og ef verðlags-
forsendur standast," sagði Helgi.
„Við vonumst til að þessi aukning
endist okkur til að halda áfram
sem hingað til og leggja 250 til
300 km af bundnu slitlagi á ári.“
Áhersla er lögð á þá þjóðvegi
sem mest umferð er um. Unnið er
í takt við langtímaáætlun sem
gerð var í fyrra og samkvæmt
henni eru vissir kaflar á hringveg-
inum sem ekki er áætlað að leggja
bundnu slitlagi enn sem komið er.
„Þegar hefur að mestu verið
ákveðið hvað verður framkvæmt
á næsta ári en nú verður athugáð
hvað þessi aukning gerir. í heild
má segja að framkvæmdir dreifíst
um landið eins og hingað til,“ sagði
Helgi.
AUK hf. 93.7/SlA