Morgunblaðið - 17.10.1987, Page 61
4-4 1
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1987
61
Athugasemd við skrif
um útflutningsbætur
Til Velvakanda •
Föstudaginn 16. október birtust
í Velvakanda tilmæli frá skattgreið-
anda þess efnis að útflutningsbætur
á landbúnaðarvörum verði
afnumdar. Vegna þessara tilmæla
er rétt að skýra það, að samkvæmt
nýframlögðu fjárlagafrumvarpi er
fjárlagaliðurinn uppbætur á útflutt-
ar landbúnaðarafurðir uppá 915
milljónir króna. Hann skiptist þann-
ig að útflutningsuppbætur eru 486
milljónir en 429 milljónir renna í
framleiðnisjóð landbúnaðarins til að
greiða fyrir búháttabreytingum.
Þetta er í samræmi við búvörulög
sem kveða á um að ríkissjóður skuli
leggja fram sem svarar 9 prósent-
um af framleiðsluverðmæti land-
búnaðarafurða hvert ár og skuli það
skiptast með áðurgreindum hætti.
Þetta er sú lagaskylda sem hvílir á
fjármálaráðherra að framfýlgja. í
frumvarpinu er að öðru ieyti gætt
mikils aðhalds í framlögum til land-
búnaðar eins og kunnugt er en
fjármálaráðherra hefur ekki vald
til að ganga gegn vilja meirahluta
alþingis varðandi búvörulögin.
Karl Birgisson
upplýsingafulltrúi Fjármála-
ráðuneytis
Naglarnir auka öryggið í umferðinni
HAFÐU ALLTÁ
HREINU
FÁÐU ÞÉR
©TDK
Til Velvakanda
Mikil umræða hefur skapast um
neglda hjólbarða að undanfömu
vegna þess að komið hefur í ljós
að þeir slíta malbikinu á götum
borgarinnar meira en góðu hófí
gegnir. Sumir amast mjög við nögl-
unum og tala jafnvel um að þá
ætti að banna. En þá gleyma menn
aðalatriðinu sem er að naglamir
auka á öryggið í umferðinni. Ég
er sammála því að fækka mætti
nöglum í vetrardekkjum og setja
strangar reglur þar. Eins væri hægt
að stytta þann tíma sem aka mætti
á nagladekkjum að vetrinum án
þess að miklu væri hætt. En að
banna naglana væri glapræði og
myndi skapa miklu meira tjón í slys-
um en sparaðist í gatnaviðhaldi.
G.P.
Fyrrverandi sjóliði ósk-
ar eftir pennavinum
Til ritstjóra Morgunblaðsins
Ég skrifa í því skyni að komast
í samband við einhvem sem hefur
áhuga á að komast i bréfasamband
við mig. Ég er fæddur og uppalinn
í Cleveland, Ohio í Bandaríkjunum.
Þar hef ég búið og starfað alla æfi
en er nú kominn á eftirlaun og bý
ásamt konu minni í Naples í Florida.
í Heimstyijöldinni síðari gengdi
ég herþjónustu um borð í U.S.S
Williamsburg sem var undir stjóm
F.S. Hall kafteins. Við komum til
Reykjavíkur hinn 23. desember
1941 og héldum aftur heim til
Bandaríkjanna í mars 1943. Við
komum aldrei til íslands aftur en
þó starfsvettvangur okkar á vemd-
árskipi skipalesta væri enginn
rósabeður varð ég heillaður af
„landi miðnætursólarinnar". Einnig
af hinni dásamlegu borg Reykjavík
þar sem hin gamla Hótel Borg stóð
skammt frá tjöminni og stór kirkja
gnæfði á hæð þaðan sem útsýni var
yfír höfnina. Það var fyrsta bygg-
ingin sem ég heimsótti við komuna
til Reykjavíkur. Ég kom einnig til
Akureyrar. Þar kom ég í litla skóla-
byggingu uppi á hæðardragi við
bom fjarðarins. Þar nærri sá ég
þau einu tré sem nokkru sinni bám
fýrir augu mín á íslandi. Flest
þeirra voru ekki lengri en handleg-
ur manns. Ég hef jafnan lesið allt
sem ég hef komist yfír um landið
er ég varð svo heillaður af.
Ég hafði bréfasamband við
stráka víða um heim þegar ég var
strákur og enn held ég reglulegu
bréfasambandi við marga vini. Eg
velti því fyrir mér hvort ég ætti að
skrifa til Vigdísar Finnbogadóttur
forseta eða Davíðs Oddssonar borg-
arstjóra en ákvað að skrifa ritstjóra
stæðsta blaðs landsins.
Gætuð þér komið mér í samband
við einhvem sem hefði áhuga á
mjög þakklátur ef hægt væri að
liðsinna mér í þessu efni.
Virðingarfyllst
Clarence L. Berkey, Jr.
4301 - 29th Place, S.W.
Naples, Florida
HJÍIPIÐ BLINDUM
r. ///;
ISLANOl
Merkjasöluhappdrætti
Blindravinafélags íslands,
Ingólfsstræti 16,
er um helgina, 17. og 18. október.
Merkin verða afhent á eftirtöldum stöðum:
Hafnarfirði: Lækjarskóla og Víðistaðaskóla.
Kópavogi: Menntaskólanum og Kársnesskóla.
Seltjarnarnesi: Miðbraut 5.
Reykavík: Melaskóla, Vogaskóla, KFUM-húsinu, Langa-
gerði 1 og skrifstofu félagsins, Ingólfsstræti 16.
bréfasambandi við mig?
Ég yrði
Furðulegt „veður“-spjall
Til Velvakanda.
Ég sit sem þmmu lostin eftir
skítkast Páls Bergþórssonar, veður-
fræðings, í garð rallökumanna, í
veðurfregnum sjónvarpsins mið-
vikudagskvöldið, 14. október.
Algerlega að tilefnislausu talar
hann um ákveðinn hóp íþrótta-
manna, sem leiki sér að dauðanum
í lífshættulegri íþrótt, enda þótt sú
staðreynd liggi fýrir, að aðrar
íþróttagreinar, s.s. knattspyma og
skíðaíþróttir, hafí meiri slysatíðni.
Mér er spum: hvað kemur næst í
„veður“-spjalli“ Páls? Að knatt-
spymumenn eða skíðamenn leiki
sér að örkumlum og dauða?
Bölbænir yfír siglingamönnum
eða sjómönnum? Sleggjudómar um
júdómenn? Og hvað átti hálkan frá
deginum áður og rall fyrjr tíu dög-
um skylt við veður dagsins?
Ég hélt að veðurfræðingar væm
ráðnir til sjónvarpsins til þess að
ijalla um sérsvið sitt, veðrið, en
ekki til að hella úr skálum fáfræði
sinnar og hleypidóma um alls óskyld
efni.
Helga Jóhannsdóttir
OTDK
HREINN
HUÓMUR
MASTER
LEÐURSOFASETT
— MÝ SEWPIINIG
FJÖLBREYTT ÚRVAL - GOTT VERÐ
Opið til
kl. 4
BÚSTOFN
Smiðjuvegi 6, Kópavogi símar 45670 — 44544.