Morgunblaðið - 05.11.1987, Síða 1

Morgunblaðið - 05.11.1987, Síða 1
96 SÍÐUR B 251. tbl. 75. árg.________________________________FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1987_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsjns Kínverskir kommúnistar; V egvilltum hót- að brottrekstri Peking, Reuter. AGANEFND kinverska komm- únistaflokksins hefur hótað þvi að gera sérhvem flokksmann brottrækan sem hneigist til kapít- alisma. í skýrslu nefndarinnar sem birt var í gær segir að um- bótastefnu stjórnvalda fylgi sú hætta að „úrkynjaðar kapítalísk- ar hugmyndir" nái að skjóta rótum. í skýrslunni segir að nokkrir flokksfélagar hafi ekki verið pólitískt undir það búnir að axla þá ábyrgð Svíþjóð; Vilja skoða vopnabúr átta ríkja Stokkhólmi, Reuter. YFIRVÖLD í Svfþjóð hafa óskað eftir því við ríkisstjórnir átta ríkja, að sænskum rannsóknar- mönnum verði heimilað að skoða vopnabúr ríkjanna. Er þetta liður i rannsókn á ólöglegri sölu sænska vopnafyrirtækisins Bo- fors til írans og fleiri ríkja. Olof Rydbeck, sem annast rann- sókn málsins, sagði í viðtali við dagblaðið Dagens Nyheter í gær, að bón þessa efnis hefði verið kom- ið á framfæri við stjómvöld í Singapore, Túnis, Indónesíu, Ástr- alíu, Pakistan, Argentínu, Noregi og Irlandi. Hugmyndin væri sú að telja flugskeyti af gerðinni Robot-70, sem ríkin hefðu keypt frá Svíþjóð, og ganga þannig úr skugga um hvort einhver skeyti hefðu verið seld til írans. sem fylgir þeirri stefnu stjómvalda að auka samskiptin við umheiminn og þetta hafí kallað fram „alls kyns óheilbrigðar hugmyndir". 13. þingi kínverska kommúnista lauk á sunnu- dag og var ákveðið að fylgja áfram umbótastefnu Dengs Xiaoping flokksleiðtoga. Skýrsla aganefndar- innar var lögð fyrir þingið og segir í henni að þrátt fyrir allt hafi frammi- staða flokksmanna verið góð. Segir ennfremur að sérstaka áherslu beri að leggja á flokksaga og að allir flokksmenn séu jafnrétt- háir. „Spilltum meðlimum ber umsvifalaust að víkja úr flokknum," segja höfundar skýrslunnar og rekja nokkur dæmi um embættismenn sem fengið hafa skipun um taka pokann sinn eftir að hafa orðið uppvísir að spillingu. Pram (cemur einnig að á árunum 1982 til 1986 var 151.935 meðlimum vikið úr kommúnistaflokknum en það það þýðir að 3.165 flokksmenn hafa verið gerðir brottrækir á mánuði hverjum á þessu tfmabili eða rúmlega 100 á dag. Hátíðahöld í Teheran Reuter íranir flykktust út á götur höfuðborgarinnar, Teh- eran, í gær til að minnast þess að átta ár voru liðin frá því að byltingarverðir tóku sendiráð Bandaríkja- stjómar í borginni á sitt vald og tóku starfsmenn þess í 444 daga gíslingu. Irna, hin opinbera frétta- stofa írans, sagði milljónir manna hafa tekið þátt í hátíðahöldunum víða um landið. Bar fólkið spjöld þar sem Bandaríkjastjóm var fordæmd í hvívetna og iögð að jöfnu við Satan sjálfan. í gær vora einn- ig liðin 13 ár frá því Ayatollah Khomeini byltingar- leiðtogi fór í sjálfskipaða útlegð og var myndum af honum einnig haldið á lofti. Tveir menn létust í sprengingu í bænum Mahabad í norðvesturhluta landsins og sagði útvarpið í Teheran að þar hefðu flugumenn Bandaríkjastjómar verið að verki. Fundi kjarnorkuáætlananefndar NATO lokið; Einhugur um afvopnunar- stefnu Bandaríkjasljórnar Afvopnunarsáttmáli styrkir NATO, segir Reagan Bandaríkjaforseti Monterey, Washington, Bonn, Hamborg, Reuter. FUNDI kjamorkuáætlananefnd- I gær. Fundinn sátu vamarmála- ar Atlantshafsbandalagains i ráðherrar 14 aðildarrílga auk Montery í Bandaríkjunum lauk í I Einars Benediktssonar, fastafull- Hryllingi Stalínstímans hefur enn ekki verið lýst - segfir sovéski and- ófsmaðurinn Andrei Sakharov Moskvu, Reuter. SOVÉSKI andófsmaðurinn Andrei Sakharov segir i viðtali, sem birtist i gær i vikuritinu Moskvufréttir, að enn hafi Sov- étborgurum ekki verið skýrt frá þeim hörmungum sem Jósef Stalín, fyrrum Sovétleiðtogi, leiddi yfir þjóð sina. Viðtalið var tekið þremur dögum áður Mik- hail S. Gorbachev, Sovétleiðtogi, hélt ræðu sina á mánudag í til- efni þess að um þessar mundir em 70 ár liðin frá þvi kommún- istar bmtust til valda í Rúss- landi. Er þetta í fyrsta skipti frá árinu 1970 sem ummæli höfð eftir Sakh- arov birtast í sovéskum fjölmiðlum. Andrei Sakharov. Athygli vekur einnig að í viðtalinu gengur Sakharov mun lengra í gagnrýni sinni á stjómarhætti Stalíns en Gorbachev gerði i hátíð- arræðunni. Viðtalið birtist undir fyrirsögn- inni: „Andrei Sakharov: Það er algjörlega nauðsynlegt að segja sannleikann." Sakharov, sem sleppt var úr útlegð á síðasta ári, lofar Nikita Khrushchev, sem tók við af Stalín, og segir hann hafa verið „framúrskarandi leiðtoga". Þá hvetur Sakharov til þess að sagn- fræðingum verði heimilað að segja „meira en hálfan sannleikann" og lýsir þeirri skoðun sinni að brýnt sé að látið verði af því pukri sem einkennt hafi umfjöllun um sögu Sovétríkjanna. í viðtali við fréttamann Reuters- fréttastofunnar í Moskvu í gær sagði Sakharov að hann hefði búist við að Gorbachev myndi fjalla á opinskárri hátt um valdatið Stalíns í ræðu sinni en raun bar vitni. Kvaðst hann bæði hafa búist við og vænst afdráttarlausari yfirlýs- inga, sagðist telja gleðilegt að GorbaChev hefði ákveðið að skipa nefnd til að rannsaka valdatíð Stalíns. trúa íslands hjá NATO. Fundar- menn lýstu yfir afdráttarlausum stuðningi við væntanlegan sátt- mála risaveldanna um uppræt- ingu meðal- og skammdrægra kjarnorkuflauga á landi og fögn- uðu því að stefnt væri að helm- ings fækkun langdrægra flauga. Ronald Reagan Bandaríkjafor- seti sagði í sjónvarpsræðu i gær að þess yrði gætt í hvivetna að fyrirhugað samkomulag risa- veldanna yrði ekki til þess að veikja vamir Vestur-Evrópu og lýsti þeirri skoðun sinni að það myndi verða til þess að treysta samstöðu aðildarríkjanna enn frekar. Háttsettur embættismaður innan bandalagsins sagði að með svo af- dráttarlausri stuðningsyfirlýsingu vildu fundarmenn gera banda- rískum þingmönnum ljóst að þess væri vænst að Bandaríkjaþing stað- festi afvopnunarsáttmálann og var þess raunar getið sérstaklega í loka- yfirlýsingu fundarins. í viðræðum sín á milli létu fundarmenn í ljós þá von að staðfesting þingsins lægi fyrir í ágústmánuði á næsta ári en þá er áætlað að uppsetningu meðal- drægra bandarískra kjarnorku- flauga verði lokið í Evrópu í samræmi við ákvörðun bandalags- ins frá árinu 1979. Minntust menn í þessu samhengi á að Bandaríkja- þing hefði aldrei staðfest SALT II-samkomulagið um takmörkun langdrægra kjamorkuflauga sem risaveldin gerðu með sér í júní árið 1979. Caspar Weinberger, vamar- málaráðherra Bandaríkjanna, bað menn að hafa þetta í huga og hvatti til þess að ekki yrði hætt við uppsetningu flauganna fyrr en öld- ungadeild Bandaríkjaþings hefði staðfest sáttmálann. Fundarmenn ræddu einkum hvemig treysta megi kjamorku- vamir Vestur-Evrópu eftir að risaveldin hafa upprætt meðal- og skammdrægar flaugar. Engin ákvörðun var tekin en í lokayfírlýs- ingu fundarins sagði að unnið yrði að endumýjun vígvallarvopna með kjamorkuhleðslum til að vega á móti yfírburðum ríkja Varsjár- bandalagsins á sviði þess háttar vopna og hins hefðbundna herafla. Reagan Bandaríkjaforseti sagði í ræðu í gær að framsýni leiðtoga ríkja Vestur-Evrópu hefði gert það að verkum að nú væri samkomulag um fækkun kjamorkuvopna nánast í höfn. Sagði hann að Bandaríkja- menn myndu aldrei víkja frá skuldbindingum sínum um að koma ríkjum Evrópu til varnar og lýsti yfir því að afvopnunarsáttmálinn yrði ekki undirritaður væri einhver hætta á að með því yrðu vamir Vestur-Evrópu veiktar. Sjá nánar um ræðu Reagans for- setaog„Ekkisamið . . .ábls.34.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.