Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 47

Morgunblaðið - 20.11.1987, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987 47 Katrín Hildibrands- dóttir - Minning Fædd 8. febrúar 1911 Dáin 13. nóvember 1987 í dag verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði amma okkar, Katrín Hildibrandsdóttir. Kata amma, eins og við kölluðum hana, lést á Garðvangi í Garði 13. nóvember sl., 76 ára að aldri. Fyrir 7 árum varð hún fyrir því óláni að lærbrotna og var hún rúm- liggjandi upp frá því. Lengst af lá hún í Sjúkrahúsi Keflavíkur en síðustu mánuði á Garðvangi í Garði. Við erum þakklátar fyrir þær ljúfu minningar sem við eigum um ömmu. Alltaf tók hún vel á móti okkur þegar við heimsóttum hana til Keflavíkur og eins er hún var ráðskona fyrir norðan. Þegar við dvöldum að heiman var gott að skrifast á við hana, því ung hjörtu eru uppfull af leyndarmálum lífsins og tók hún virkan þátt í því. Er við hófum okkar búskap og langömmu- bömin komu í heiminn hvert af öðru stóð ekki á ömmu að pijóna fallegar flíkur á þau og kom það að góðum notum. Kveðjustundin er alltaf sár en hvfldin var henni kærkomin. Við og fjölskyldur okkar þökkum henni samfýlgdina og biðjum Guð að taka hana í sinn náðarfaðm. . Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Sigrún, Katrín Gerður og Valgerður Júlíusdætur. Kristín Þor- finnsdóttir - Minning •> Fædd 2. febrúar 1924 Dáin 10. nóvember 1987 t Þökkum auðsýnda samúð, tryggð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÁRNA GUÐLAUGSSONAR . frá Miðkoti, Dalvfk. Þórgunnur Þorleifsdóttir, Svanhildur Árnadóttir, Vigfús R. Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga' og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. (Hallgrimur Pétursson.) í dag verður til moldar borin, Kristín Þorfinnsdóttir, sem andaðist á heimili sínu 10. nóvember sl. Við starfsfélagar hennar á Droplaugar- stöðum viljum þakka henni fyrir allar góðar stundir sem við áttum með henni. Frá henni streymdi hlýja og umhyggja. Geðgóð og víðsýn kona var hún. Við biðjum þess að algóður Guð vemdi hana. Ættingj- um hennar vottum við okkar inni- legustu samúð. „Þreyttur leggst ég til náða náðar faðir gættu mín. Alla mædda, alla þjáða endumæri miskunn þín. Gef þú öllum góða nótt gef að magni nýjan þrótt. Ollum þeim þú aftur vekur eilíft líf þeim burt þú tekur". (Ólafur Indriðason.) Starfsfólk Droplaugarstaða ALCr ÁHREINU MEÐ &TDK Hótel Saga Simi 12013 Blóm og skreytingar við öll tœkifœri t Innilegt þakklæti til allra sem sýndu samúð og hlýjan hug við andlát og útför eiginmanns míns, FRANKLÍNS BRYNJÓLFSSONAR. Jenný Lind Þórðardóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför bróður míns, GUNNARS BJARNASONAR frá Vestmannaeyjum. Anton Bjarnason. t Innilegustu þakklætiskveðjur sendum við öllum þeim sem auð- sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför INGVA RAFNS EINARSSONAR, Götuhúsi, Eyrarbakka. Fyrir hönd aðstandenda, Þorbjörg Katarínusardóttir. t Þökkum innilega sýnda samúð og hlýhug vegna andláts og jaröar- farar móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐLAUGAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Reykholti, Fáskrúðsfirði. Guð blessi ykkur öll. Þorsteinn Sigurðsson, Aðalbjörg Magnúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Alúðar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför BJÖRGVINS FILIPPUSSONAR. Margrót Björgvinsdóttir, Filippus Björgvinsson, Baldvin Björgvinsson, Ingibjörg Björgvinsdóttir, Ingólfur Bjcrgvinsson, Bjarni Helgason, Sjöfn Árnadóttir, Þyrf Huld Sigurðardóttir, Ingólfur Jónsson, Anna Tyrfingsdóttir, Aðalhelöur Kjartansdóttir, Jónas Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum öllum auðsýnda samúð og hlýhug við andiát og útför elskulega bróður okkar, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR frá Asparvfk. Systklnin frá Asparvlk og aðrir vandamenn. Ami Snævar Gunn- laugsson-Minning Fæddur 8. desember 1950 Dáinn 13. nóvember 1987 Það var hræðilega sárt að frétta það 9. nóvember sl. að faðir okkar lægi á gjörgæsludeild Borgarspítal- ans mikið veikur og væri vart hugað líf. Við lifðum þó í voninni en hún brást og það var kannski það besta úr því sem komið var. En við vitum að honum líður vel núna hjá Guði og líka að hann er hjá okkur þó að við sjáum hann ekki. Bráðum koma jólin og það verður skrítið að fara ekki í heimsókn til pabba. Við eigum eftir að sakna pabba. Við biðjum góðan guð í bænum okkar á kvöldin að gæta hans. Þá líður okkur betur. Við vitum líka að við eigum eftir að hittast aftur, t Innilegar þakkir fyrir auðáýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdafööur og afa, SIGURÐAR A. PÉTURSSONAR, Hringbraut 60. Vigdfs Jónsdóttir, Ingveldur Sigurðardóttir, Annie Sigurðardóttir, Pétur Sigurðsson, Stefanfa Jónsdóttir, Jón Sigurðsson, Kristfn Kristjánsdóttir. einhvem tímann. Við kveðjum elsku pabba okkar. Einar og Sigurlaug t Þökkum auösýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengda- móður og ömmu, AÐALHEIÐAR KRISTÍNAR HELGADÓTTUR, Hátúni 10, Reykjavfk. Elsa Smith, Sigurður Þórir Sigurðsson, Helgi Bergmann Sigurösson, Þórunn Ástrós Sigurðardóttir, Ágúst Sigurðsson, Guðjón Sigurðsson, Hilmar Sigurðsson, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem með hlýju handtaki, samúðarkveðjum, blómum og krönsum, auðsýndu okkur samúð og virðingu við andlát og útför eiginmanns míns, fööur og fóstra, GUÐMUNDAR SIGURÐSSONAR f Sviðugörðum. Guð blessi ykkur öll. Sigrfður Slgurðardóttir, Sigurður Guðmundsson, Selma Albertsdóttir og fjölskylda. Lokað Vegna jarðarfarar ERLENDAR PÁLS GRÍMSSONAR verða bifreiðaverkstæði okkar og smurstöð lokuð frá kl. 12.00-15.00 í dag. Hekla hf. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins i Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á 5 miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki erú tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.