Morgunblaðið - 20.12.1987, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.12.1987, Blaðsíða 9
HUGVEKJA MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987 9 Hver ertu? eftir sr. HALLDÓR GUNNARSSON 4. sd. í aðventu Jóh.: 19.-28. Svona spumingu svörum við með því að segja til hafns, greina frá foreldrum, segja frá hvaðan maður sé og ef enn frekar er spurt, þá er sagt frá ættinni. í þetta sinn er ekki verið að spyija um nafn þitt, nafnnúmer, stöðu, heimkynni eða ætt heldur um það sem mestu skiptir: Hver ertu? Hver er hugur þinn að baki orðanna, vilji þinn, andardráttur, ósjálfráð hreyfíng, hjartsláttur- inn, taugaboðin og starfsemin öll sem er að baki því lífsundri sem þú ert? Getur þú svarað mér? Ég veit ekki um neinn sem getur svarað þessari spumingu sem í dag á síðasta sunnudegi aðvent- unnar er borin upp. Framundan er hin mikla hátíð jólanna, hátíð fæðingarinnar, hátíð þess upphafs, sem allt okkar líf tengist. Hvaðan kemur þú þá, hver varstu og hver er á bak við þetta mikla lffskraftaverk, sem fæðing þín er? Jólin eru svar við þessari spum- ingu. Boðskapur englanna, stjarn- an sem lýsir vitringunum, ljósið sem við kveikjum, sem hrekur myrkrið á braut, jólatréð, sem er svo Æérstakt og öðruvísi en öll önnur tré, gjafímar sem gleðja og bamshugurinn sem tekur alltaf eins á móti jólum. Gagnvart komu jólanna erum við öll eins, böm í stórum heimi með óskiljanleg lögmál rafmagns og ljóss, krafta og sameinda, tíma og hraða, Qarlægðar og nálægð- ar, allt innan okkar sólkerfís sem er svo óskiljanleg vídd en jafn- framt einnig að sólkerfunum fjölgar eftir því sem sjónaukar stækka og þekking eykst. Gagpvart allri þessari óræðu og óendanlegu stærð ertu í dag spurður um hið smæsta, um þig. Og það eru jafn óskiljanleg lög- mál sem em þar einnig að verki, sem eru að baki hugans og vilj- ans, samvizkan, sem er þar einnig að baki. Ogþú veizt ekkert svar. Þegar við verðum að gefast upp þá er svo yndislegt að verða bam að nýju. Taka á móti jólunum ívöfðum helgifrásögnum, sem þó jafnframt staðfestir það óskiljan- lega. Til er gömul helgisaga um hin fyrstu jól sem segir frá því að Guð sendi fjóra engla til jarðarinn- ar til að undirbúa hin fystu jól. Það vom englar trúar, vonar, kærleika og gleði. Englunum kom saman um að færa jarðarbúum einstakt tré, sem átti að vera öðmvísi en öll önnur tré. Það átti að bera með sér trúna, þannig að það bæri á greinum sínum sigur- merki hins nýfædda jólabams, krossinn, tákn þjáningarinnar og sigursins. Það átti að bera með sér vonina, hinn sígræna lit og fölna aldrei, sem væri tákn þess lífs sem sigraði dauðann. Það átti að bera með sér kærleikann með þeim hætti að það gæti alltaf ver- ið til skjóls og það átti að bera með sér gleðina með þeim hætti að einu sinni á ári um hver jól átti það að gleðja hvem einasta mann. Tréð sem englamir færðu okk- ur til jarðarinnar var grenitréð, sem ber merki krossins, er sígrænt, veitir skjól og gleður okkur í stofunni heima svo óend- anlega mikið. Hver er lífsmátturinn á bak við jólatréð, á bak við það smæsta í náttúmnnar ríki. Áttu nokkuð annað betra svar en að það séu jólin? Fæðing manns og Guðs, fæðing Jesú Krists. í orðum Heilagrar ritningar sem kirkjan okkar hefur valið til umhugsunar á þessum degi er sagt frá því þegar gyðingar sendu presta og Levíta til að spyija Jó-' hannes skírara: Hver ertu. Hann var aftur og aftur spurður þessar- ar spumingar „og hann játaði og neitaði ekki, og hann játaði: Ekki er ég hinn smurði.. . Þeir sögðu þá við hann: Hver ert þú? — til þess að við getum flutt svar þeim er oss sendu. Hvað segir þú um sjálfan þig? Hann sagði: Ég er rödd manns, er hrópar í óbyggð- inni: Gjörið beinan veg Drottins, eins og Jesaja spámaður hefur sagt... Og þeir spurðu hann og sögðu við hann: Hví skírir þú þá ef þú ert ekki hinn smuriði... Jóhannes svaraði þeim og sagði: Ég skíri með vatni;... hann sem kemur eftir mig, og skóþveng hans er ég ekki verður að leysa." Síðar sagði Jóhannes: „Hann á að vaxa, en ég að minnka." Þetta var svar Jóhannesar gagnvart spumingunni: Hver ertu? Líttu til hans sem kemur til þín á hveijum jólum, stendur við dyr hjarta þíns og knýr þar á. Og ljúkir þú upp þeim dymm verð- ur líf þitt með öðmm hætti en áður, því máttur hans, blessun og handleiðsla vex, en eigingimi þín minnkar. Trúin, vonin, kærleikurinn og gleðin er komin til þín í jólatrénu, sem vill flytja þér boðskap engl- anna um frið á jörðu. Gjafímar sem þú hefur pakkað inn, jólakort- in sem þú heftir sent og ljósin sem þú hefur kveikt höfða til þess sama: Hann á að vaxa en ég að minnka. Guð blessi þér komu hátíðar- innar. HÉR ERU UPPLÝSINGAR SEM SKILA HAGNAÐI Sérfræðingar Fjárfestingarfélagsins hafa ávallt kappkostað að gefa sem gleggstar upp- lýsingar um alla möguleika varðandi spamað. Til marks um það höfum við gefið út marga veglega bæklinga. í öllum þessum bækling- um eru haldgóðar upplýsingar um sparnað- arkosti sem skila þérhagnaði þegar á reynir. FJARFESTINGARFELAGIÐ Hafnarstræti 7 101 Reykjavík s: (91) 28566 Kringlunni 103 Reykjavík s: (91) 689700 Allt frá árinu 1976 hefur Fjárfestingarfélagið verið í fararbroddi í öftugri upplýsingastarf- semi og faglegri ráðgjöf. Komdu við á verð- bréfamarkaði okkar í Kringlunni og Hafnar- stræti 7 og ræddu við ráðgjafa okkar. Fáðu þér upplýsingabæklinga í leiðinni. Þú getur einnig hringt eða sent okkur svar- seðilinn og við sendum þér bæklingana um hæl. Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa Gengi: 18. des. 1987: Kjarabréf 2,518 - Tekjubréf 1,321 - - Markbréf 1,286 - Fjölþjóðabréf 1,140 SVARSEÐILL Vinsamlegast sendið mér neðangreinda bæklinga: Nafil: Naftinr.: □ Kjarabréf □ Verðbréfamarkaðurinn | □ Tekjubréf □ Fjármálareikningur < □ Markbréf □ Frjálsi lífeyrissjóðurinn Heimili: Staður:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.