Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988 13 Framfærsluví sital- an hækkar um 0,84% fram til réttra aðila, en mitt hlut- verk er meðal annars fólgið í að leiðbeina þeim sem rata í ógöngur. Nú verður væntanlega breyting á með tilkomu upplýsingafulltrúa og hef ég á undanfömum mánuðum safnað að mér ýmsum haldgóðum upplýsingum um innviði borgarinn- ar.“ Ólafur sagði að fyrir dyrum stæði útgáfa á kynningarbæklingi með upplýsingum um embætti, nefndir og ráð og síðast en ekki síst hver svarar hveiju hjá Reykjavíkurborg. Verður bæklingn- um dreift til borgarbúa. Upplýsingafulltrúa er einnig ætl- að að sjá um tengsl milli íbúasam- taka og borgaryfírvalda. Er honum ætlað að koma á framfæri helstu baráttumálum þeirra á hveijum tíma og sjá svo um að þeim sé fylgt eftir. „Hingað til hefur það verið nokkuð á reiki hvert íbúasamtök ættu að leita með sín mál, en von- andi hefur nú verið ráðin bót á því,“ sagði Ólafur. Ólafur mun sjá um kynningu á stofnunum borgarinnar, en þar er af nógu að taka. „Ég mun einnig sjá um að kynna einstaka fram- kvæmdir, eftir að ákvörðun hefur verið tekin um þær. Sem dæmi má nefna að fyrir dyrum standa breyt- ingar á eftirliti og innheimtu stöðu- mælasekta, sem verður mun öfl- ugra en hingað til. Það er að segja, eftir 1. mars verða bifreiðaeigendur að greiða sektir fyrir ólöglega stöðu bifreiða sinna,“ sagði Olafur. „Þá fellur undir starfssvið mitt að sjá um undirbúning blaðamannafunda og halda uppi tengslum við fjöl- miðla, allt eftir þörfum." Upplýsingafulltrúi gegnir einnig starfí framkvæmdastjóra ferða- málanefndar, en ferðamál er mála- flokkur sem er í örum vexti hér á landi. „Á þessu ári leggjum við megináherslu á að kynna Reykja- víkurborg sem ráðsteftiuborg — eða fyndarstað framtíðarinnar," sagði Ólafur. Upplýsingafulltrúi er til húsa á skrifstofu íþrótta- og tómstunda- ráðs á Fríkirkjuvegi 11. KAUPLAGSNEFND hefur reiknað vísitölu framfærslu- kostnaðar miðað við verðlag í febrúarbyijun 1988. Reyndist hún vera 253,37 stig eða 0,84% hærri en í janúarbyijun 1988. Af þessari 0,84% hækkun stafa um 0,1% af hækkun á verði mat- vöru, 0,1% af hækkun á verði fatn- aðar, rúmlega 0,2% af hækkun á verði tóbaks og áfengis 12. janúar sl., rúmlega 0,1% eru vegna hækk- unar á póst- og símagjöldum og um 0,5% vegna hækkun ýmissa vöru og þjónustuliða. Frá þessu dregst hins vegar 5,3% lækkun á verði bensíns frá 6. febrúar sl., sem olli 0,2% lækkun vísitölunn'ar. í frétt frá Hagstofunni segir: „Lítil hækkun framfærsluvísi- tölunnar nú í febrúar á rætur að rekja til áhrifa þeirra breytinga á tollum og vörugjaldi, sem tóku gildi um sl. áramót, en ekki var farið að gæta að vísitölunni í janúar. Hér er fyrst og fremst um að ræða verð- lækkun á komvöru, rafmagnstækj- um og búsáhöldum, tómstundavör- um, bílavarahlutum o.fl. Þrátt fyrir þetta má ætla, að áhrif lækkunar á tollum og vörugjaldi séu ekki enn að fullu komin fram í vísitölunni. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 25,4%. Hækkun vísi- tölunnar um 0,84% á einum mánuði frá janúar til febrúar svarar til 10,6% .árshækkunar. Undanfama þijá mánuði hefur vísitalan hækkað um 6,7% og jafngildir sú hækkun 29,4% verðbólgu á heilu ári.“ Fyrirlestur um John Lockes ATLI Harðarson heldur fyr- irlestur í boði Félags áhuga- manna um heimspeki sunnu- daginn 14. febrúar nk. Fyrir- lesturinn fjallar um stjórn- speki Johns Lockes og nefnir Atli erindið „Um samfélags- sáttmála og réttlætingu ríkisvalds“. Fyrirlesturinn hefstkl. 14.30 og er haldinn í stofu 101 í Lög- bergi, húsi lagadeildar Háskól- ans. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Mánuð skal rita með tölustöf- Notið kennitölu, ekki nafn- um, þannig t.d. að janúar númer. 1988 heitir 01 1988. RSK Blátt eyðublaö er notað fyrir skil á staðgreiðslu vegna launagreiðslna ALDREI fyrir staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi. Staðgreiðsla opinberra gjalda Skilagrein vegna launagreiðslna 2 eo ^C/3 *co <o Kennitala 510287 - 1239 — «/> X3 oo «= \* <D ^ SZ *“ i Nafn - heimili - póststöö launagreiðanda co cr cz tz tz :o FYRIRTÆKIÐ hf Z E co => ■S e SUÐURREIT 200 2 03 C/3 XZ o c 109 REYK3AVÍK oj .— P CT OÆ <o o® 2 e! ‘CO Eo — Cn zZ 03 Ó CO JTZ 8 RSK 5.07 Greiöslutimabil 01 1988 Undirritaöur staöfestir aö skýrsla þessi er gefin eftir bestu vitund og aö hún er í fullu samræmi við fyrirliggjandi gögn. 05.02.1988 Dagsetning (J Undirskrift A Samtals skilaskyld staögreiðsla 37.938 4 B Fjöldi launamanna með skllaskylda staðgreiðslu 6 5 C Heildaríjárhæð greiddra launa 360.000 ó D Fjötdi iaunamanna með laun 7 7 A + B + C + D Samtala til vélrænnar 397.951 8 afstemmlngar lyrlr mótfakanda Engln laun greidd á timabillnu □ 9 Móttökudagur - kvittun Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó að engin stað- greiðsla hafi verið dregin af í mánuðinum. Staðgreiðslu sem dregin hefur verið af launum og reiknuðu endurgjaldi ber að skila í hverjum mánuði og eigi síðar en 15. hvers mánaðar. Með greiðslunum skal fylgja grein- argerð á sérstökum eyðublöðum „Skilagreinum“. Þessi eyðublöð eru tvenns konar: Blá fyrir launagreiðslur og rauð fyrir reiknað endurgjald (laun sem sjálfstæðum rekstraraðilum berað reiknasér). Allar fjárhæðir skulu vera í heilum krónum. Frumrit Greiðsluskjal Ef engin laun hafa verið greidd á tímabilinu skal setja X í þennan reit og senda skilagreinina þannig. í þennan reit skal koma samanlögð staðgreiðsla allra launamanna sem dregin var af þeim á tíma- bilinu.___ 5 Hér komi fjöldi launa- manna sem staðgreiðsla vardreginaf. Hér komi heildarupphæð þeirra launa (hlunnindi meðtalin) sem greidd voru átímabilinu. Hér komi pdi allra launa- manna sem fengu greidd laun á tímabilinu þar með taldir eru þeir sem ekki hafa náð staðgreiðslu. 8 Héma sKal setja töluna sem út kemur þegar búið er að leggja saman tölum- arúr reitum A, B, C, ogD. Skilagrein ber ávallt að skila í hverjum mánuði. Einnig þó að engin stað- greiðsla hafi verið dregin af í mánuð- inum. Þá er eyðublaðið fyllt út sam- kvæmt því. Það er mikilvægt að lesa leiðbein- ingamar aftan á eyðublöðunum vand- lega og fara riákvæmlega eftir þeim. Einnig er mikilvægt að skilagrein sé skilaðáréttueyðublaði. Sjálfstæðir rekstraraðilar þurfa sérstak- lega að gæta þess að rautt eyðublað skal aðeins nota fyrir reiknað endur- gjald þeirra sjálfra. Ef þeir greiða maka eða öðrum laun ber þeim að nota 2 eyðublöð: Rautt fyrir þá sjálfa og blátt fyrir maka og alla aðra. Allir launagreiðendur og sjálfstæð- ir rekstraraðilar eiga að hafa fengið eyðublöð fyrir skilagrein send. Þeir sem einhverra hluta vegna hafa ekki fengið þau snúi sértil skattstjóra, gjaldheimtna eða innheimtumanna ríkissjóðs. Ekki er nægilegt að greiða greiðsluna í banka eða póstleggja hana fyrir eindaga. Greiðslan þarf að berast skrifstofu innheimtumanns í síðasta lagi á ein- daga. Greiðslur sem berast eftir það munu sæta dráttarvöxtum. Athugið að allar upphæðir skulu vera í heilum krónum. Slaðgreiðslan er auðveld ef þú þekkir hana. RSK RlKISSKATTSTJÓRI I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.