Morgunblaðið - 07.04.1988, Blaðsíða 20
20
-r
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1988
Fluguf ótur og
fjöldahreyfing
eftir Valdimar Unnar
Valdimarsson
Alþjóð berst nú til eyrna að norð-
ur á Svalbarðseyri missi hópur
manna aleigu sína vegna gjaldþrots
kaupfélagsjns á staðnum. í höfuð-
stöðvum SIS yppta menn öxlum og
segja að sér komi málið ekkert við,
Sambandinu komi kaupfélögin ekk-
ert við. Þetta kann að virðast furðu-
leg þversögn en því miður er hún
sönn. Þessi þversögn er í raun hið
rétta eðli SIS, eins og það er og
hefur verið en átti aldrei að verða.
Gjaldþrot
I þeim landshluta þar sem eitt
sinn stóð vagga íslenskrar sam-
vinnuhreyfmgar hefur nú kaupfélag
orðið gjaldþrota. Slík örlög hefðu í
sjálfu sér ekki þurft að verða nein
sérstök saga til næsta bæjar ef
ekki hefði verið fyrir þá sök að
þetta kaupfélag hafði, eins og önn-
ur slík, átt hlutdeild í landshreyf-
ingu, Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga.
Félagar í Kaupfélagi Svalbarðs-
eyrar stóðu í þeirri trú, eins og fé-
lagar í kaupfélögum úti um allt
land, að kaupfélögin væru uppistað-
an í SÍS, Sambandið væri til vegna
kaupfélaganna og fyrir þau. Þeir
komust að því að þar hafði þeim
skjátlast hrapallega. Þeir komust
að því þegar farið var að gera lög-
tak í eignum þeirra. Eignum, sem
þetta fólk hafði sett að veði fyrir
félag, sem það hafði helgað starfs-
krafta sína — ekki aðeins í þágu
héraðsbúa heldur einnig í þágu
málstaðar, sem þetta fólk hélt að
væri enn í fullu gildi, málstaðar
samvinnuhreyfingarinnar. Þeir
komust að því að þar hafði þeim
skjátlast hrapallega.
„Flugufótur“
Þeir í Kaupfélagi Svalbarðseyrar
vildu ekki sætta sig við orðinn hlut
og hver láir þeim það? Þeir hugðust
því leita réttar síns gagnvart Sam-
bandsforystunni. Forystu, sem
gumar að því á tyllidögum að hún
sæki umboð sitt til fjöldahreyfing-
ar. Á tyllidögum tekst þeim venju-
Valdimar Unnar Valdimarsson
lega að leyna hinu rétta eðli sínu
en nú var það því miður ekki hægt.
Nú þurftu þeir nefnilega fyrir opn-
um tjöldum að afneita þessari sömu
„ijöldahreyfingu", sögðu það upp í
opið geðið á þeim sem starfað höfðu
í þágu Kaupfélags Svalbarðseyrar
að SIS kæmu samvinnufélögin ekk-
ert við.
Stjórnarformaðurinn birtist í
sjónvarpi, glaðbeittur á svip. Lýsti
yfir því, að á mjög svo skáldlegan
hátt, að ekki væri „flugufótur“ fyr-
ir kröfum þeim sem félagar í Kaup-
félagi Svalbarðseyrar gerðu á hend-
„Það er gömul saga og
ný að fjöldahreyfingar,
sem leyfa valdinu að
safnast í fárra hendur,
hætta að vera til fyrir
fjöldann — nema á tylli-
dögum. Því miður urðu
þetta örlög Sambands
íslenskra samvinnufé-
laga. “
ur Sambandinu vegna gjaldþrotsins
er gert hafði hóp manna að öreig-
um. Ekki „flugufótur" fyrir því að
SÍS kæmi til hjálpar fólkinu, sem
unnið hafði í þágu „fjöldahreyfing-
arinnar" en stóð nú uppi eigna-
laust. Þetta sagði stjómarformað-
urinn eftir fundinn, sem lagt hafði
blessun sína yfir milljónalaun Sam-
bandsforstjórans. Ekki flugufótur
fyrir fjöldahreyfingu — nema á tylli-
dögum — aðrir dagar eru fyrir for-
stjóra.
Ölmusumenn
Það varð sem sagt niðurstaða
Sambandsforystunnar að SÍS
kæmu kaupfélögin ekkert við. Þetta
varð niðurstaðan eftir að lögfróður
maður hafði verið fenginn til að
fara í gegnum alla lagabálka er
samvinnuhre}rfingunni tengdust.
Dagskipunin hafði verið einföld:
Beittu nú öllum hugsanlegum laga-
krókum til að sýna fram á að sam-
vinnuhreyfingin er ekki það sem
hún hefur þóst vera, er ekki það
sem frumkvöðlamir vildu að hún
yrði, er ekki það sem „fjöldahreyf-
ingin“ heldur að hún sé. Sýndu nú
fram á það, lögfróði maður, með
tilvísun í alla hugsanlega lagabálka,
forna og nýja, a𠄧öldahreyfingin“
er í rauninni ekki til og hefur aldr-
ei verið til. Segðu þeim í Kaup-
félagi Svalbarðseyrar að þeir hafi
alla tíð vaðið í villu og svíma og
geti nú siglt sinn sjó, eignalausir
öreigar. Svo skulum við bara vona
að á næsta tyllidegi séu öll þessi
sannindi gleymd og „fjökiahreyf-
ingin" risin á ný — í orði kveðnu.
Hinn lögfróði maður fann allar
þær smugur í lagabálkunum sem
Sambandsforystan hafði beðið hann
um að þefa uppi. Og stjórnarfor-
maðurinn veifaði niðurstöðunni og
talaði um „flugufótinn“, sem ekki
væri til. í sömu andrá vildi hann
gera félaga í Kaupfélagi Svalbarðs-
eyrar að ölmusumönnum. Þeir eiga
jú ekki hinn minnsta lagalega rétt
á aðstoð Sambandsins en við skul-
um, af góðmennsku okkar, gefa
þeim nokkrar krónur til að eiga þó
eitthvað handa þeim sem gera lög-
takið. Þeir eiga engan rétt en við
skulum gera þá að ölmusumönnum,
að gömlum og góðum íslenskum
sið. Lengra nær hugsjón íslenskrar
Sambandsforystu ekki í dag. Þegar
á reynir á „fjöldahreyfingin" ekki
Topp tíu
listinn*
1. Hvað heldurðu?
ál 61% 4
f: V
2. Á tali hjá 3. Fréttir Hemma Gunn 53%
60%
0 4. Fyrirmyndarfaðir 44%
0 5. Derrick 37%
^ 6.-8. Lottó 36%
0 6.-8. Matlock 36%
§ 6.-8. 19:19 36%
0 9. í skuggsjá 35%
0 10. Landið þitt ísland 33%
* Könnun Félagsvísindastofnunar á sjónvarpshorfun
dagana 3.-5. mars, gerð fyrir háðar stöðvarnar.
Sjónvarpið lét kanna fyrir sig sérstaklega dagana
6.-9. mars, einnar viku horfun í allt. Könnunin náði
til alls landsins, fólks á aldrinum 15 til 70 ára.
TOPP kallinn hjá Sjónvarpinu.