Morgunblaðið - 31.05.1988, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 1988
Við upphaf kosninga-
baráttunnar í Svíþjóð
eftir Áke
Sparring
KOSNINGAR fara fram í Svíþjóð
í september. Kosningabaráttan,
sem venjulega er langdregin, er
að hefjast um þessar mundir.
Enginn stjómmálaflokkur virðist
hafa yfirburði og ekki er deilt
um nein sérstök kosningamál að
þessu sinni. Hræðslan við að
Græningjar komist á þing sækir
á alla gömlu flokkana jafnt. Kom-
ist Græningjar á þing getur flokk-
urinn haft úrslitaþýðingu í stjórn-
armyndunarviðræðum eftir kosn-
ingar.
Til langs tíma hafa stjómmála-
flokkar í Svíþjóð skipst í tvær
stórar fylkingar, borgaralegu flokk-
ana og sósíalista. Sósíaldemókratar
hafa oftast náð að mynda ríkisstjóm
með stuðningi kommúnista án þess
þó að kommúnistar hafi átt ráðherra
í stjóminni. Kommúnistar hafa aldr-
ei skorast undan því að taka þátt í
þessu samstarfi um „stjóm verka-
manna“. Eftir að þeir hafa hlotið
viðurkenningu hafa kommúnistar
farið að láta til sín taka á þingi sem
hefur leitt til málamiðlana milli
þeirra og ríkisstjómarinnar sem
borgaralegu flokkamir hafa ekki
verið ánægðir með.
Alla jafna eru fylkingamar tvær
álíka stórar. Skoðanakannanir
benda til þess að svo sé einnig nú.
Kannanir á fylgi flokkanna vekja
orðið minni áhuga í Svíþjóð nú hin
síðari ár vegna þess að í ljós hefur
komið að fleiri og fleiri kjósendur
ákveða hvemig þeir kjósa síðustu
daga fyrir kosningar. 1985 var mun-
urinn á milli skoðanakannana og
úrslita kosninganna mjög mikill.
Hægrimenn, sem til langs tíma
höfðu mikið fylgi samkvæmt skoð-
anakönnunum og sáu fram á stórsig-
ur í kosningunum, fengu minna fylgi
í kosningunum en þeir höfðu haft
' fyrir kosningar, sama gildir um
flesta hina flokkana. Þjóðarflokkur-
inn, sem á hinn bóginn hafði fengið
lítið fylgi í skoðanakönnunum, fékk
þrefalt meira fylgi í kosningunum
árið 1985 en í kosningunum árið
1982.
Enginn einn stjómmálaflokkur
telur sér sigurinn vísan í komandi
kosningum. Ekkert bendir heldur til
þess að önnur fylkingin hafi yfir-
burði yfir hina við upphaf kosninga-
baráttunnar. Kjósendur sem skipta
um flokk fara yfirleitt ekki frá einni
fylkingunni til hinnar. Vinstriflokk-
urinn — kommúnistamir er illa hald-
inn og er flokkurinn klofínn í af-
stöðu til ýmissa mála. Samkvæmt
skoðanakönnunum nær hann ekki
því fjögurra prósenta fylgi sem þarf
til að komast á þing. Falli kommún-
istar af þingi er líklegt að borgara-
flokkamir nái meirihluta. Skilyrði
þess er þó að Græningjar komist
ekki heldur á þing. Líklegt er talið
að þeir fái menn kjöma. Græningjar
fá fylgi sitt ffá kjósendum úr öllum
flokkum, ekki síst frá kommúnistum.
Hafa þeir nú í töluverðan tíma verið
yfir 4% mörkunum.
Komist Græningjar á þing og fari
Vinstriflokkurinn út hefur afstaða
Græningja úrslitaþýðingu á þingi og
í stjómarmyndun. Þeir vilja sem
minnst um það segja hvora fylking-
una þeir muni styðja við myndun
ríkisstjómar. Þjóðarflokkurinn og
Hægriflokkurinn hafa sagt að þeir
muni ekki setjast i ríkisstjóm fyrir
náð og miskunn Græningja og það
er erfitt að fmynda sér að sósíal-
demókratar telji slíka vegsemd sér
sæmandi. Þetta gæti þýtt að gömlu
fylkingamar tvær hefðu lokið sínu
hlutverki.
Græningjar hafa nú þegar unnið
mikinn sigur, allir gömlu flokkamir
eru orðnir miklu „grænni" en áður
var. Allir hafa þeir haft töluvert
fyrir því að láta umhverfísmál til sín
taka og það gæti orðið Græningjum
skeinuhætt.
Borgaraflokkarnir
í erfiðri aðstöðu
Fyrir borgaralegu flokkana,
hægrimenn, Þjóðarflokkinn og Mið-
flokkinn, verða þetta erfiðar kosn-
ingar. Þessir flokkar hafa gefið
gagnkvæm hátíðleg loforð um, að
verði borgaralegur meirihluti á
þingi, verði mynduð borgaraleg
stjóm. Mikið skilur á milli í afstöðu
þessara þriggja flokka. Afstaða til
umhverfis- og efnahagsmála er afar
ólík. Flokkamir lifa enn við minning-
amar um stöðuga árekstra á ámnum
1976-82 þegar þeir, eftir 44 ára
stjómartíð sósíaldemókrata, fengu
tækifæri til að sýna hvað í þeim bjó
- sem var ekki eins mikið og efni
stóðu til.
Það er mikilvægt fyrir borgara-
legu flokkana að breyta þeirri mynd
af sænskum stjómmálum sem virðist
vera föst í sessi, að sósíaldemókratar
séu stjómarflokkur og borgaraflokk-
amir stjómarandstöðuflokkar.
ímynd sem virtist styrkjast eftir
hörmulega frammistöðu sósíaldemó-
krata í stjómarandstöðu. Til þess
að breyta þessari ímynd verða borg-
araflokkamir að komast í ríkisstjóm.
Árið 1976 tóku þeir við stjóm þegar
heimurinn stóð frammi fyrir mesta
erfíðleikatímabili í efnahagsmálum
frá því á stríðsámnum. Nú virðist
annað slíkt tímabil standa fyrir dyr-
um, meðan sósíaldemókratar hafa
verið við völd í mörg ár á tímum
batnandi efnahagsástands.
Ríkisstjómin hefur kosningabar-
áttuna án þess að boða nýjar aðgerð-
ir, hún ber því við að ekki séu til
peningar til að gera róttækar breyt-
ingar. Þess í stað reynir stjómin að
benda á hvað hefur unnist á síðustu
sex ámm undir hennar stjóm. Margt
gott hefur gerst, atvinnuleysi hefur
minnkað í 1,6%, en það var ekki
heldur mikið á tímum borgaralegu
stjómarinnar. Fjárlagahallinn er
kominn í lag og erlendar skuldir
hafa ekki aukist. Fyrirtæki skila
hagnaði og einkaneysla hefur aukist
á síðustu ámm eftir margra ára
stöðnun. Ríkisstjómin vill halda því
fram að þetta megi þakka stefnu
hennar sem hún kallar „þriðju leið-
ina“ í stjómmálum.
Borgaraflokkamir og sérfræðing-
ar viðurkenna ekki þessa skilgrein-
ingu stjómarinnar. Eigin mistök og
árangur sósíaldemókrata skýra þeir
með því að benda á ástand í al-
þjóðlegum efnahagsmálum. „Þriðja
leiðin" er ekki til, segja þeir. Lækk-
un olíuverðs og fall dollarans bjarg-
aði greiðsluhalla ríkisins, skatta-
hækkanir fjárlagahallanum. Van-
hæfnin til að spara í ríkisbúskapnum
hefur leitt til meiri verðbólgu og
meira launaskriðs í Svíþjóð en í öðr-
um OECD-löndum. Þar liggur skýr-
ingin á því hvers vegna hagvöxtur
í Svíþjóð er svo lítill. Þetta hefði
leitt til aukinna erfiðleika í efna-
hagslífi ef krónan hefði ekki verið
felld á laun með því að breyta sam-
setningu „gjaldmiðla-körfunnar"
sem gengi sænsku krónunnar miðast
við. I stuttu máli sagt, ríkisstjómin
hefur verið heppin. Fjármálaráð-
herrann hefur svarað þessari stað-
hæfingu á þann veg að það sé betra
að hafa ríkisstjóm sem er heppin
en óheppna stjóm.
Óróleiki á
vinnumarkaðnum
Það sem núverandi ríkisstjóm
hefur ekki heppnast að gera er að
halda aftur af launahækkunum. Á
síðasta ári reyndi stjómin að grípa
inn í kjarasamninga með slæmum
árangri. í ár hefur hún látið það
vera. Það eina sem stjómin hefur
gert nú er að segja að 4% launa-
hækkun sé allt sem þjóðarbúið þoli,
7% launahækkanir muni þýða að
rauntekjur lækki, verðbólga aukist
og greiðsluhalli ríkissjóðs vaxi í
15-20 milljarða sænskra króna. Ekki
er hægt að treysta á að olíuverð
fari lækkandi. Vegna þess að enn
ein gengisfelling er útilokuð verður
að leggja byrðamar á herðar al-
mennings í landinu, að sögn stjóm-
arinnar.
Niðurstaða samninga varð 7%
launahækkanir. Hækkunin verður
meiri eftir að einstök sérfélög hafa
samið. Vegna þess að samningsaðil-
ar hafa viljað koma til móts við óskir
ríkisstjómarinnar um 4% launa-
hækkun hefur verið samið um að
hækkanimar komi ekki til fyrr en í
árslok. Það verður því á næsta ári
sem afleiðingamar fara að koma í
ljós. Jafnvel þótt efnahagsástand í
heiminum versni ekki, fær næsta
ríkisstjóm að kljást við vandamál
eins og aukið atvinnuleysi, minnk-
andi velmegun og niðurskurð í fram-
lögum til ríkisfyrirtækja og sveitar-
stjóma.
Opinberir starfsmenn
til vandræða
Mikil ólga hefur verið á sænskum
Ingvar Carisson, formaður Sós-
íaldemókrataflokksins.
Lars Weraer, formaður Vinstri-
flokksins.
vinnumarkaði undanfarið. Sérstak-
lega hafa opinberir starfsmenn, sem
hefur fjölgað ár frá ári, verið til
vandræða. Bæði borgaralegu stjóm-
ina og stjómir sósíaldemókrata hefur
skort þor og vilja til að skera niður
í ríkisrekstrinum. Þar sem fé hefur
skort hefur myndast launamismunur
milli opinberra starfsmanna og
starfsfólks hjá einkafyrirtækjum.
Bilið milli þessara hópa hefur breikk-
að í tíð núverandi ríkisstjómar.
Launþegar jafnt og atvinnurek-
endur hafa bmgðist hart við þessari
þróun. Þegar skattasérfraeðingar
rikisstjómarinnar ætluðu að snúa sér
að einkafyrirtækjunum var ógnunin
svo auðsæ að stjómin var tilneydd
að bjóða ívilnanir vegna skatta-
hækkananna. Þegar velmenntaðir
flugmenn flughersins fóm að drag-
ast aftur úr í launum og hótuðu að
leggja „eldingunum“ og „drekun-
um“, varð að bæta úr því hið snar-
Barnahópur Kvennaathvarfsins:
Bók sem kennir
bömum að forðast
líkamlega áreitni
MIKILL fjöldi baraa hefur fylgt mæðrum sínum í Kvennaathvarfið i
Reykjavík allt frá stofnun þess i árslok 1982. Ári seinna var því barna-
hópur stofnaður innan Samtaka um kvennaathvarf, sem var ætlað
að styðja við börnin í athvarfinu og sérstakur barnastarfsmaður var
ráðinn. Nú hefur barnahópurinn gefið út litla bók sem ber nafnið
„Þetta er líkaminn minn“, eftir Lori Freeman en myndir gerði Carol
Deach. Bókin er ætluð forskólabörnum og foreldrum þeirra og i henni
er Ieitast við að kenna bömunum öryggi i samskiptum við fullorðna.
Þetta er fyrsta bókin á íslensku um þetta efni og er hugsuð sem fyrir-
byggjandi miðill til að hindra kynf erðislega áreitni gagnvart börnum.
Verkefni bamahópsins hafa í æ
ríkara mæli beinst að öllum bömum
í þjóðfélaginu og hvemig beita megi
fyrirbyggjandi aðgerðum til þess að
draga úr ofbeldi, kúgun, kynferðis-
legri áreitni og vanrækslu. Liður í
þessu starfí er útgáfa bókarinnar
„Þetta er líkaminn minn“.
í bókinni er íjallað á nærfærinn
hátt um vandmeðfarið efni, án þess
að hræða eða segja hryllingssögur,
en bömum gerð grein fyrir yfirráð-
um sínum yfir eigin líkama og til-
finningum. Höfundur bendir á það
hvemig lítil böm geta varist líkam-
legri áreitni án þess að það valdi
hræðslu eða sektarkennd. Athuganir
hafa sýnt að böm, sem fengið hafa
fræðslu, eru betur í stakk búin til
að komast hjá áreitni.
Aðstandendur bamahópsins segja
að búast megi við viðbrögðum bama
við textanum og því sé nauðsynlegt
að þeir sem lesi hann með baminu
kunni að bregðast rétt við. í bækl-
ingnum „Kynferðisleg áreitni - hvað
er það?“, sem bamahópurinn gaf út
Aðstandendur baraahóps Kvennaathvarfsins með bókina „Þetta er líkaminn minn'
í samvinnu við menntamálaráðuney-
tið og Bamavemdarráð íslands, er
einmitt fjallað um algeng viðbrögð
bama við kynferðislegri áreitni og
hvemig foreldrar geta rætt við bar-
nið í framhaldi af því.
Bókin hefur verið kynnt fyrir for-
stöðukonum leikskóla og dagheimila
og vonast er til að menntamálaráðu-
neytið styrki útgáfuna. Hægt er að
fá hana keypta á skrifstofu samtak-
anna í Hlaðvarpanum við Vestur-
götu 3, í Máli og menningu og hjá
Námsgagnastofnun. Bæklingnum
hefur verið dreift til allra bama-
vemdamefnda á landinu og liggur
frammi hjá Félagsmálastofnun
Reykjavíkur, heilsugæslustöðvum og
víðar.
f ráði er að taka einnig upp
fræðslu meðal eldri bama með efni
við hæfi hvers aldurshóps svo sem
með brúðuleikhúsi og leikþáttum.
Og fleiri fræðslubæklingar em
væntanlegir um illa meðferð á böm-
um.