Morgunblaðið - 09.06.1988, Síða 65

Morgunblaðið - 09.06.1988, Síða 65
r ivtúi .e auDAauTMMra ,aiaAjaMuoaoM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988 65 KNATTSPYRNA / 1. DEILD (SL-DEILDIN) Lárusi fagnad Morgunblaðið/Bjarni Eiriksson Lárus Guðmundsson kom Víkingum á bragðið í gærkvöldi á fyrsta leik félagsins á nýju svæði sínu við Stjömugróf í Fossvogsdal. Hann skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf Jóhanns Þorvarðarsonar. Hér fagnar Andri Marteinsson Lárusi, en Þorvaldur Leifturs-markvörður krýpur hnugginn. Víkingar brosandi heim affyrsta „heimaleik" Sigruðu Leiftur í nýliðaleiknum á góðum velli við Stiörnugróf VÍKINGAR fögnuðu sigri í sínum fyrsta heimaleik á nýjum velli sínum við Stjörnugróf í Fossvogsdal, er þeir lögðu Leiftur að velli, 2:1, í 1. deild- inni. Leikurinn var fjörugur, og hefði alls ekki verið ósann- gjarnt þó Ólafsfirðingarnir hefðu nælt í stig; þeirfengu ekki síðri færi. Víkingar voru betri í fyrri hálf- leiknum. Léku oft skemmtilega úti á velli, en varð hins vegar lítið ágengt er nær dró markinu. Eftir að Leiftur hafði Skapti tvívegis ógnað Hallgrímsson marki heimamanna skrífar tóku þeir röndóttu forystuna með ein- földu marki Lárusar Guðmundsson- ar. Jóhann Þorvarðarson gaf fyrir frá vinstri, Þorvaldur markvörður henti sér út en missti af knettinum og Lárus var á réttum stað og skor- aði auðveldlega. Norðanmenn komu ákveðnir til leiks eftir hlé en Víkingar virkuðu óöruggari að sama skapi. Leifturs- menn byijuðu eins og í fyrri hálf- leik, ógnuðu marki Víkings tvívegis og það var svo Steinar Ingimundar- son sem jafnaði á 67. mín. eftir góða fyrirgjöf Harðar Benónýsson- ar, og var það alveg í samræmi við gang leiksins. Steinar skoraði ör- ugglega af stuttu færi og hefur þar með gert bæði 1. deildarmörkin í sögu Leifturs. Atli Helgason gerði það svo að verk- um að áhangendur Víkings fóru brosandi heim úr Stjömugrófinni — hann setti sigurmarkið níu mín. fyrir leikslok. Þórður Marelsson gaf fyrir, knötturinn smaug yfir höfuð vamarmanna og Atli var réttur maður á réttum stað; henti sér fram og renndi knettinum laglega í ne- tið. Óveijandi fyrir Þorvald. Leikurinn var fjörugur sem fyrr segir en nokkuð kaflaskiptur. Bæði lið fengu góð tækifæri til að gera fleiri mörk, en markverðimir voru vel á verði. m Atli Einarsson, Víkingi, Stein- ar Ingimundarson, Leiftri. Vlkingur-Leiftur 2 : 1 Víkingsvöllur, íslandsmótið - 1. deild, miðvikudag 8. júní 1988. Mörk VCkings: Lárus Guðmundsson (26.), Atli Helgason (81.) Mark Leifturs: Steinar Ingimundar- son (67.) Gult spjald: FYiðgeir Sigurðsson, Leiftri (48.), Þórður Marelsson, Víkingi (49.). Rautt spjald: Enginn. Áhorfendur: Fékkst ekki uppgefið. Dómari: Guðmundur Sigurðsson, 4. Linuverdir: Ólafur Sveinsson og Bárð- ur Guðmundsson. Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson, Andri Marteinsson, Jón Oddsson (Sig- urður Guðnason vm. á 80. mín.), Atli Helgason, Stefán Halldórsson, Jóhann Þorvarðarson, Trausti ómarsson, Atli Einarsson, Lárus Guðmundsson (Bjöm Bjartmarz vm. á 75. mín.), Hlynur Stefánsson, Þórður Marelsson. Lið Leifture: Þorvaldur Jónsson, Guð- mundur Garðarsson, Ámi J. Stefáns- son, Sigurbjöm Jakobsson, Gústaf ómarsson, Halldór Guðmundsson (Friðrik Einarsson vm. á 80. mín.), Steinar Ingimundarson, Lúðvík Berg- vinsson, Hafsteinn Jakobsson, Friðgeir Siguiðsson (Helgi Jóhannsson vm. á 85. mín.), Hörður Benónýsson. Langþráð mörk Vals og loks sigur Völsungurenn án stiga á botninum VALSMENN gerðu góða ferð til Húsavíkur í gærkvöldi. is- landsmeistararnir settu sín fyrstu mörk í deildinni á þessu keppnistímabili og sigruöu heimamenn sannfærandi á ágætum grasvelli. Fyrstu 25 mínútumar gerðist fátt markvert. Leikurinn ein- kenndist af miðjuþófí og ládeyðu, en um miðjan hálfleikinn dró til ■■■■■i tíðinda. Síguijón Frá Reyni Kristjánsson, Guðni Eiríkssyni Bergs og Valur áHúsavik Valsson fengu allir ákjósanleg mark- tækifæri, en Þorfinnur Hjaltason markvörður Völsungs kom í veg fyrir að Valsmennimir skomðu. En mark lá í loftinu og það var Siguijón, sem braut ísinn eftir góða sendingu frá Jóni Grétari Jónssyni. Sigutjón var rétt utan við vítateig og þmmaði í bláhomið. Gjöf Jöfnunarmark heimamanna skrif- ast á Þorgrím Þráinsson. Guðmund- ur markvörður renndi á hann og Þorgrímur ætlaði að senda tii baka en gaf á Aðalstein Aðalsteinsson, sem þakkaði fyrir sig og skoraði auðveldlega. Mttur varamannslns Valsmenn tvíefldust við markið, náðu undirtökunum og ekki leið á löngu þar til Tryggvi Gunnarsson, sem kom inná sem varamaður, hafði náð forystunni fyrir þá á ný. Eftir mikinn darraðardans inni í vítateig Völsungs barst knötturinn til Tryggva, sem var einn á auðum sjó, og hann setti knöttinn af ör- yggi í netið. Skömmu síðar var Kristjáni 01- geirssyni vikið af velli fyrir að mót- mæla dómi, hafði áður fengið gult spjald, og sóknarleikur Islands- meistaranna varð enn meira ógn- andi. Hann bar árangur og Tryggvi innsiglaði sigurinn — skoraði í autt markið eftir að hafa leikið á Þor- finn. Tryggvi Gunnarsson. Þorfinnur Hjaltason og Aðal- steinn Aðalsteinsson, Völs- ungi. Siguijón Kristjánsson, Tryggvi Gunnarsson, Ingvar Guðmundsson og Jón Grétar Jónsson, Val. Völs.-Valur 1 : 3 Húsavíkurvöllur, íslandsmótið - 1. deild, miðvikudaginn 8. júlí 1988. Mark Völsungs: Aðalsteinn Aðal- steinsson (49.). Mörk Vals: Siguijón Kristjánsson (43.) °8 Tryggvi Gunnarsson (58. og 81.). Gult spjald: Kristján Olgeirsson, Völs- ungi. Rautt spjald: Kristján Olgeirsson (69.). Áhorfendur: Fékkst ekki uppgefíð. Dómari: Eysteinn Guðmundsson 8. Línuverðir: Geir Þorsteinsson og Þor- varður Björnsson. Lið Völsungs: Þorfínnur Hjaltason, Helgi Helgason, Kristján Olgeirsson, Skarphéðinn ívarsson, Bjöm Olgeirs- son, Guðmundur Þ. Guðmundsson, Snævar Hreinsson, Sveinn Freysson, Stefán Viðarsson (Jónas Hallgrímsson vm. á 68.), Aðalsteinn Aðalsteinsson og Theódór Jóhannsson. Líð Vals: Guðmundur Baldursson, Þorgrímur Þráinsson, Siguijón Kristj- ánsson, Magni Blöndal Pétursson, Jón Grétar Jónsson, Steinar Adolfsson, Guðni Bergsson, Hilmar Sighvatsson (Tryggvi Gunnarsson vm. á 38.), Valur Valsson, Ingvar Guuðmundsson, Bald- ur Bragason. Ekki aflur snúið Valsmenn réttu úr kútnum á Húsavík og langþráður sigur var í höfn. „Það var orðið tíma- bært að við sigruðum. Við erum komnir á skrið, nú verður ekki aftur snúið og ekkert nema sigur hér eftir kemur til greina," sagði Þorgrímur Þráinsson, fyrirliði Vals, við Morgunblaðið. „Skjálfti fór um um mig, þegar þeir gerðu jöfnunarmarkið, en það rættist úr þessu hjá okkur. Bar- átta okkar var góð og henni þurf- um við að halda áfram. Hins veg- ar vona ég að Völsungi fari að ganga betur, því það er leiðinlegt að vera einn og yfirgefinn á botn- inum,“ bætti Þorgrímur við.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.