Morgunblaðið - 14.09.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
Landssamband sláturleyfishafa:
Ekkí verður gripið
til beinna ráðstafana
Morgunblaðið/Þorkell
Hugi Halldórsson gekk & fund forseta íslands, Vigdisar Finnbogadóttur, í gær og afhenti henni
blóm og bréf, sem sagði: „Kæra Vigdís. Ég þakka þér fyrir daginn. Hugi.“
Takk fyrir daginn
MEÐAL þátttakenda í heims-
hlaupinu i Reykjavík á sunnu-
dagiim var sjö ára drengur,
Hugi Halldórsson. I hlaupinu
varð hann viðskila við móður
sina, en þá kom annar þátttak-
andi til sögunnar, forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadótt-
ir.
Hún dró sig út úr hlaupinu,
gekk til Huga og spurði hvað
amaði að. „Eg er búinn að týna
mömmu minni." „Þekkirðu mig?“
spurði forsetinn. Því jánkaði Hugi.
Forsetinn fór með drenginn að
næsta lögreglumanni og eftir ráð-
færingar varð það úr að forsetinn
og Hugi héldu áfram för og gengu
sem leið lá í Alþingishúsið og
síðan í Stjómarráðið. Meðan móð-
ir Huga leitaði hans og var á leið
til lögreglunnar, bauð forsetinn
Huga heim, þar sem hann dvaldi
þar til fundum hans og móður
hans bar aftur saman.
Aðspurður hvað hefði verið
minnisstæðast frá þessum degi,
sagði Hugi: „Bara allt.“ En bætti
svo við: „Ja, þegar ég sá skrif-
borðið hjá Vigdísi, hugsaði ég:
„Hmmm, þetta er sko fallegt."
Og fundarborðið í Stjómarráðinu
er mjög flnt. Þar sitja menn allan
daginn og búa til umferðarreglur
og svoleiðis."
Verslanir virða verðstöðv-
un nær undantekningalaust
Á fundi stjómar Landssambands
sláturleyfishafa í gær var fjallað
um stöðu sláturleyfishafa, og
varð niðurstaða fundarins sú að
ekki skyldi gripið til neinna
beinna ráðstafana. Þess í stað
verði haldið áfram að Ieita leiða
ísfilm hf.
hyggst
sjónvarpa
STJÓRN ísfilm hf. hefur ákveðið
að sækja um leyfi til sjónvarps-
reksturs. Krislján Jóhannsson
stjómarmaður í fyrirtækinu
staðfesti þetta í samtali við Morg-
unblaðið.
Kristjári sagði að ekkert hefði
verið ákveðið um hvemig að rekstr-
inum yrði staðið en umsókn um,
leyfí yrði send útvarpsréttamefnd
á næstunni.
Fríkirkjan:
Fundurán
niðurstöðu
FUNDI safnaðarstjórnar
Fríkirkjunnar, sem haldinn var
{ gærkvöldi, lauk án þess að
tekin væri nokkur afstaða til
niðurstöðu fjölmenns safnaðar-
fundar á mánudag þar sem sam-
þykkt var að ógilda uppsögn
séra Gunnars Björnssonar úr
starfi sóknarprests og jafn-
framt lýst vantrausti á starf-
andi aafnaðarstjóm og skorað
á hana að segja af sér.
Guðmundur Hjaltason sóknar-
nefndarmaður sagði: „Málin voru
rædd ítarlega en jafnframt ákveð-
ið að skoða þau betur í þessari
viku og boða annan fund að því
loknu," sagði Guðmundur Hjalta-
son sóknamefndarmaður. Að öðm
leyti vildi hann ekki skýra frá því
sem fram fór á fundinum.
Jón Ögmundur Þormóðsson,
fulltrúi stuðningsmanna séra
Gunnars, hafði samband við blaðið
og vildi að fram kæmi að missagt
væri i frétt í gær að menn úr
hópi stuðningsmanna Gunnars
hefðu skorað á hann að beita sér
fyrir því að vantrauststillagan yrði
dregin til baka.
tíl lausnar í samráði við stjóra-
völd.
Nokkrir sláturleyfíshafar vilja þó
ganga svo langt að slátra ekki í
haust nema rekstur sláturhúsanna
verði fyrst tryggður. Stjóm Lands-
sambands sláturleyfíshafa ákvað
þó ekki neinar sérstakar aðgerðir á
fundi sínum, en vill áfram leita leiða
til að fínna rekstrargrundvöll fyrir
afurðastöðvar í samvinnu við stjóm-
völd.
Hreiðar Karlsson, formaður
stjómar Landssambands sláturleyf-
ishafa, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að miðað við núverandi að-
stæður teldi hann að ekki væri
fært að selja kjöt af nýslátmðu á
meðan ríkjandi væri óvissa um verð-
lagningu og aðra réttarstöðu slátur-
leyfíshafa. „Við munum á næstunni
leita eftir nánari svörum varðandi
þessi mál. Þá eigum við einnig
óuppgerðar útflutningsbætur af
hálfíi ríkisvaidsins, og það er eitt
af því-sem okkur er brýnt að fá
gengið frá hið fyrsta til að geta
staðið við skuldbindingar okkar,"
sagði Hreiðar.
Rekstrartap sláturleyfíshafa á
framleiðsluárinu 1986 var um 70
milljónir króna, og á því fram-
leiðsluári sem lauk um síðustu mán-
aðarmót var tapið um 170 milljón-
ir.Áætlað tap sláturleyfíshafa á því
framleiðsluárí sem nú er að hefjast
er um 270 milljónir króna. Er þá
miðað við að verðlagning sem gerð
yrði í haust byggðist á einföldum
framreikningi, en tæki ekki til
greina aðrar leiðréttingar.
Verðlagsstofnun:
NÝGERÐ könnun Verðlags-
stofnunar sýnir að verslanir
hafa virt verðstöðvunina með
fáum undantekningum, að sögn
Georgs Ólafssonar, verðlags-
stjóra. Þá bendir hækkun fram-
færsluvísitölu um 0,7% milli
ágúst og september til þess að
verðstöðvunin hafi dregið úr
verðhækkunum, sagði Guð-
mundur Sigurðsson hjá Verð-
lagsstofnun, en búist hefði verið
við 1-1,5% hækkun. Þessi hækk-
un samsvarar tæplega 9% verð-
bólgu á ári. í verðkönnuninni,
sem náði til 19 matvöruverslana
á höfuðborgarsvæðinu, kemur
í ijós að verð er lægst i stór-
mörkuðum i Hafnarfirði og
Garðabæ.
„Kaupmenn og fyrirtæki hafa
verið mjög jákvæð gagnvart verð-
stöðvuninni og eftirliti Verðlags-
stofnunar," sagði Georg Ólafsson.
Hann sagði að yfírleitt hefðu menn
lækkað verð ef Verðlagsstofnun
hefði farið fram á það. Ef tilmæli
Verðlagsstofnunar væru ekki virt
yrðu nöfn viðkomandi fyrirtækja
birt opinberlega og hugsanlegt
væri að fara með mál fyrir dóm-
stóla. Slíkt hefði þó enn ekki kom-
ið til tals.
Guðmundur Sigurðsson sagði
að Verðlagsstofnun væri nú að
athuga þau tilfelli þar sem verð
hefði hækkað, en í sumum tilvik-
um væri þar um eðlilegar skýring-
ar að ræða. Til dæmis hefði sykur
hækkað víða frá miðjum ágúst,
en hann hefði hækkað á heims-
markaði áður en verðstöðvunin tók
gildi o g hærra verð á nýjum birgð-
um var því hugsanlega þegar
ákveðið er verð var kannað um
miðjan ágúst.
Sjá bls. 37: Lægsta verðið i
stórmörkuðum í Hafnarfirði
og Garðabæ.
Tónleika-
ferð Syk-
urmolanna
Frumvörp til laga um verðbréfasjóði og eignarleigu:
Hægt að skylda verðbréfa-
fyrirtæki til fjárbindingar
JÓN Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, lagði fram á ríkisstjórn-
arfundi í gærmorgun tvö frum-
vörp til laga um fjármálastarf-
semi utan bankakerfisins. Ann-
ars vegar er um að ræða frum-
varp um verðbréfaviðskipti og
verðbréfasjóði og hins vegar
frumvarp til laga um eignar-
leigustarfsemi eða fjármögn-
unarleigu. 1 frumvarpinu er
heimild tíl þess að láta sömu
reglur gilda um bindiskyldu
verðbréfasjóða og verðbréfa-
fyrirtækja og gilda um bindi-
skyldu innlánsstofnana.
í fréttatilkynningu frá við-
skiptaráðuneytinu segir að verð-
bréfafrumvarpið sé viðamikið.
Með þvf sé settur rammi um starf-
semi verðbréfamiðlara, verðbréfa-
fyrirtækja og verðbréfasjóða og
leysi það af hólmi eldri lög nr.
27/1986, sem séu um margtófull-
komin.
Meðal helstu nýmæla í frum-
varpinu er að settar eru ítarlegar
reglur um skilyrði sem verðbréfa-
miðlarar verða að uppfylla og um
starfsskyldur þeirra gagnvart við-
skiptavinum og eftirlitsaðilum.
Ný ákvæði eru um verðbréfafyrir-
tæki og starfsemi þeirra en engin
slík ákvæði eru í gildandi lögum
og ítarleg ákvæði um rekstur
verðbréfasjóða. Ströng ákvæði
eru um tilsjón bankaeftirlits
Seðlabankans og settar reglur um
lágmarkshlutafé verðbréfafyrir-
tækis og um lágmark eigin fjár
þess og ákvæði um viðskipti verð-
bréfafyrirtækja og verðbréfasjóða
með verðbréf. Þá eru ákvæði um
rekstrarform, dreifíngu fjárfest-
inga og lausafjárstöðu verðbréfa-
sjóða. Skýr ákvæði eru um heim-
ild stjómvalda til að hlutast til
um rekstur verðbréfafyrirtækis
bijóti það gegn ákvæðum laganna
og ákvæði um hörð viðurlög.
í eignarleigufrumvarpinu eru
sett lágmarksskilyrði fyrir rekstri
slíks fyrirtækis. Eigið fé má ekki
nema lægri upphæð en 8% af
heildarskuldbindingum þess á
hveijum tíma. Þá eru lágmarksá-
kvæði um eftii eignarleigusamn-
inga og um upplýsingaskyldu
gagnvart viðskiptavinum.
Frumvörpin eru samin af nefnd
sem viðskiptaráðherra skipaði í
febrúar í vetur til þess að und-
irbúa fyllri lagasetningu um starf-
semi á fjármagnsmarkaði.
aðljúka
New York. Frá Árna Matthlassyni, blaða-
manni Morgunblaðsins.
SYKURMOLARNIR héldu i nótt
síðustu tónleika sina í tónleika-
ferð um Bandarikin, þar sem
hljómsveitin hefur leikið á um
30 tónleikum. Tónleikarnir voru
i Boston, en á sunnudagskvöldið
lék hijómsveitin i New York
fyrir troðfullu húsi áheyrenda.
Á meðal áheyrenda á tónleikun-
um í New York, sem haldnir voru
á tónleikastaðnum Ritz þar sem
rúmast á milli 1500 og 2000
manns, voru meðal annarra for-
eldrar sumra hljómsveitarmeðli-
manna, en þeir komu gagngert frá
íslandi til þess að sjá hljómsveitina
spila. Einnig voru David Bowie,
Iggy Pop og meðlimir hljómsveit-
arinnar Talking Heads á meðal
áheyrenda, auk meðlima í ýmsum
þekktum hljómsveitum. Sykurmol-
amir koma heim til íslands næst-
komandi sunnudag, en þá taka
þeir sér stutt frí áður en þeir hefj-
ast handa við að hljóðrita efni á
nýja LP plötu og undirbúa væntan-
lega tónleikaferð um Evrópu.