Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.11.1988, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B OG LESBÓK 254. tbl. 76. árg. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Margaret Thatcher í Gdansk í Póllandi: Pólska stjórnin getur ekki snið- gengið Samstöðu Tugþúsundir manna fagna komu forsætisráðherrans ákaft Gdansk. Reuter. MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær þeg- ar hún heimsótti pólsku borgina Gdansk að Samstaða, ólöglega verka- lýðshreyfingin í Póllandi, væri „mjög sterkt afl“ sem pólsk stjóm- völd gætu ekki sniðgengið. „Ekkert fær stöðvað ykkur,“ sagði hún við Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu, og var greinilegt að hún var djúpt snortin þegar tugþúsundir Pólverja fögnuðu komu hennar til Gdansk, þar sem Samstaða var stofnuð. Heimsókn forsætisráðherra til Póllands lauk í gær. ráðherrann hefði rætt málið við Jaruzelski áður en hún hélt til Bret- lands. Tugþúsundir manna tóku á móti Thatcher þegar hún kom til Gdansk. Henni var ákaft fagnað og Pólveij- amir hrópuðu slagorð Samstöðu þegar hún og Walesa lögðu rósa- krans - sem var rauður og hvítur eins og fáni Póllands - við minnis- varða sem Samstaða reisti til minn- ingar um verfallsmenn sem her- menn skutu árið 1970. Þegar Thatcher hélt til Varsjár með flugvél reyndu þúsundir stuðn- ingsmanna Samstöðu að ganga fylktu liði að minnisvarða Sam- stöðu, en lögreglan dreifði mann- fjöldanum. Thatcher virtist tárast í kirkju í Gdansk þagar Walesa og aðrir kirkjugestir, meðal annars starfs- menn skipasmiðju, réttu upp hend- umar, mynduðu sigurmerki með fingrunum og sungu: „Guð gefi okkur aftur fijálst Pólland." „Ég varð að koma hingað og kynnast andrúmsloftinu í Póllandi af eigin raun,“ sagði hún við kirkjugesti, og þakkaði þeim hlýjar móttökur. Breskir embættismenn sögðu að Thatcher hefði látið svo ummælt við Walesa að hin ólöglega verka- lýðshreyfmg væri „mjög sterkt afl“ í Póllandi. „Samstaða er meirá en verkalýðshreyfing,“ höfðu þeir eftir henni. „Hún er tjáning á skoðunum og andófi í landi þar sem ekki er hægt tjá andófið á annan hátt. Hún er stórmerk hreyfing sem ekki er hægt að sniðganga." Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, lét svo ummælt að Thatcher væri „stórkostleg". Hann sagði að þau Thatcher hefðu rætt um ágreining Samstöðu og stjómvalda varðandi viðræður um framtíð Póllands, en ekki er vitað hvort af þeim verður þar sem Wojciech Jaruzelski, leið- tel?hmyLhÍfnr?ríku1mbr- Efasemdir um hvort Sovétmenn hyggist standa við Genfarsamninginn Reuter Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, og Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, votta pólskum verkamönnum, sem hermenn skutu til bana árið 1970, virðingu sína við minnisvörð sem Samstaða reisti í Gdansk. A bak við þau má sjá Samstöðumenn mynda sigurmerki með fingrunum. ættismennimir sögðu að Thatcher skildi vel óánægju Samstöðumanna með afstöðu stjómvalda og tals- menn Samstöðu töldu að forsætis- Brottflutningi sovéskra her- manna frá Afganistan frestað Moskvu, Washingfton. Reuter, Daily Telegraph. SOVETMENN hafa frestað brottför sovéskra hermanna frá Afganistan og sent afgönsku Reuter Selurá Spánarströnd Börn virða fyrir sér einn af fjölmörgum selum sem birtust nýlega á ströndinni Costa Verde á Norður-Spáni og munu þeir hafa verið að leita að lireinni sjó. Náttúruverndarsamtök hafa hafið baráttu fyrir því að selirnir verði verndaðir en talið er að þeir hyggist dvelja á Spánarströndum í vetur. stjórninni, sem á í vök að verjast i stríðinu gegn afgönskum skæruliðum, nýjar vopnabirgðir og liðsauka. Alexander Bessmertnykh, aðstoðarutanrík- isráðherra Sovétríkjanna, sem tiikynnti þessa ákvörðun, sagði hins vegar að Sovétmenn hygð- ust flytja alla hermenn sina á brott úr landinu fyrir 15. febrúar á næsta ári eins og kveðið er á um í samningi sem undirritaður var í Genf i apríl. Talið var að Sovétmenn vonuðust eftir því að Bandaríkjastjórn beitti sér fyrir því að vopnaflutningum til afg- anskra skæruliða frá Pakistan yrði hætt. Ronald Reagan Banda- ríkjaforseti lýsti yfir vonbrigð- um með ákvörðun Sovétmanna og talsmaður hans, Marlin Fitz- water, sagði að ákvörðun Sovét- manna myndi auka á spennu á svæðinu og vekti efasemdir um hvort Sovétmenn hygðust standa við Genfarsamninginn. „Það sem skiptir máli er ekki hve- nær brottflutningurinn hefiist að nýju heldur hvenær honum ljúki,“ sagði Bessmertnykh á blaðamanna- fundi í Moskvu. Hann bætti við að allir sovésku hermennirnir yrðu fluttir á brott frá Afganistan stæðu allir aðilar við Genfarsamninginn og hann kvartaði undan því að Pakistanir hefðu þráfaldlega gerst brotlegir við hann með því að út- vega skæruliðum vopn. Flestir fréttaskýrendur í Moskvu telja að ákvörðun Sovétmanna sé að hluta til sýndarhótun en einnig hernaðarleg varnaraðgerð til að gefa stjórninni í Kabúl færi á að mynda breiðari stjómarsamsteypu sem geti spornað við skæruliðunum. Hótunin um að stöðva brottflutn- inginn þar til Pakistanir breyttu stefnu sinni er einnig sögð endur- spegla vaxandi ráðaleysi Sovét- manna vegna slæmrar stöðu lepp- stjómarinnar í Kabúl og eigin heija í Afganistan, sem verða fyrir linnu- lausum árásum skæruliða. „Ég held að við hljótum allir að hafa orðið fyrir vonbrigðum," sagði Ronald Reagan Bandarikjaforseti við fréttamenn í Chicago í gær. Hann bætti þó við að eftirtektar- vert væri að Sovétmenn segðu sjálf- ir að frestunin væri einungis tíma- bundin. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta, sagði að ákvörð- un Sovétmanna myndi auka á spennu í Afganistan og vekti efa- semdir um hvort þeir hygðust standa við samninginn í Genf. „Við vonum að þeir ætli sér það,“ bætti hann við. Maldíveyjar: Flestir mála- liðanna nást Colombo. Reuter. INDVERSKIR hermenn hand- tóku í gær flesta málaliðana, sem gerðu valdaránstilraun á Maldív- eyjum í fyrradag, er þeir reyndu að flýja á stolnu skipi. Nokkrir leyndust enn á eyjunum í gær og var þeirra leitað. Ríkisútvarpið á Maldíveyjum skýrði frá því að sjö menn úr lög- regluliði maldíveysku stjómarinnar og þrír óbreyttir borgarar hefðu fallið þegar valdaránstilraunin var gerð. Maldíveyskur kaupsýslumað- ur sagði í símaviðtali við fréttarit- ara Reuters að óbreyttu borgararn- ir þrír hefðu verið gíslar innrásar- mannanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.