Morgunblaðið - 05.11.1988, Síða 27

Morgunblaðið - 05.11.1988, Síða 27
 .... :••• • , '•:••.■-■. • = •' •:' v i.- :' '^v . \ 'ÍT MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988 27 Morgunblaðið/Þorkell Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari ásamt tengdadóttur sinni Ninu Kavtaradze píanóleikara. minnist með ánægju íslenskra nem- enda sinna, þeirra Gunnars Kvarans og Péturs Þorvaldssonar. Heima fyrir hefur Erling alið upp heila kynslóð sellóleikara. Eitt sinn sem oftar spilaði hann með Det konge- lige kapel og sá þá sér til undrunar að níu af tíu sellóleikurum hennar voru nemendur hans. Sá tíundi sagði það aðeins vera af landfræði- legum ástæðum, sem hann hefði ekki líka orðið nemandi hans .. . Það þarf ekki að hafa mörg orð um að Erling hefur spilað með öllum og alls staðar, en hvað með við- fangsefnin? „Atvinnutónlistarmaður verður að spila það sem hann er beðinn um, en það verður auðvitað að vera eitthvað gott. Vissulega á ég mér þó uppáhalds viðfangsefni, þreytist ekki á að spila sólósvítur Bachs eða verk eftir Beethoven. Það er ekki öll tónlist þannig að það sé hægt að spila hana á hvetjum degi, en Bach, jú. Tónlistarmaður verður að hrífast af því sem hann spilar þeg- ar hann spilar. Það verður að vera sjálfsagður hlutur að hrífast af við- fangsefninu. Eg er tortrygginn gagnvart svo- kölluðum sérfræðingum, þegar tón- listarmenn eru annars vegar. Sann- ur tónlistarmaður verður að vera vel heima í allri góðri tónlist. Á íslandi hef ég fengið tækifæri til að spila margvíslega tónlist, Bach og Lutoslavski og allt þar á milli. Efnisskráin núna er líka fjölbreytt. Fyrir nokkru spilaði ég sellókon- sert eftir Jón Nordal inn á geisla- Þorkeli disk fyrir íslensku tónverkamið- stöðina, mér til ánægju. Það er mikilvægt að það er mikið skrifað fyrir selló af nýjum verkum, svo það bætast alltaf ný viðfangsefni við. En í gamalkunnum viðfangs- efnum er lengi hægt að finna eitt- hvað nýtt, ég nefni enn og aftur Bach og það segir mikið um hvers konar tónlist þetta er. Það vaknar alltaf löngun til_ að breyta til frá fyrri flutningi. Áður voru kannski kaflar, sem mér fannst að ættu að spilast hratt, en nú kýs ég að spila þá hægar. Engar stórvægilegar kollsteypur, en alltaf eitthvað nýtt sem þessi tónlist gefur tilefni til að huga að.“ Að gefa sér tíma „Það gildir að stífna aldrei, halda forvitninni alltaf vakandi. En þá verður líka að gefa sér tíma, vera ekki alltaf að halda tónleika. Ég held ég hafi gætt þess, reynt að velja og hafna. Vinnan kemur í tömum, ekki jafnt og þétt, svo stundum koma annasamir tímar, en líka rólegri inn á milli. Það kann kannski að virðast undarlegt að vita að eftir tvö eða þijú ár á að mæta á tilteknum stað og spila til- tekið verk klukkan þetta og þetta, en mér finnst gott að vita af hlutun- um í tíma. Ég væri órólegri, ef ég gæti ekki lagt verkefnin niður fyrir mér á þennan hátt. Annars er ég víst bjartsýnismaður að eðlis- fari.. Hvað með að halda sér í góðu formi við hljóðfærið, hvernig ferðu að því? „Til þess þarf bara daglegar æfingar. Það sleppur enginn tónlist- armaður frá því að vinna. Ég er herra yfír mínum eigin tíma og það þarf þá líka sjálfsaga til að halda sér að verki. En ég þarf ekki að velta því fyrir mér lengur, sjálfsagi er fyrir löngu orðinn mitt annað eðli. Inn á milli fæ ég svo ný verk að læra og ekki hef ég á móti því, þvert á móti. En það er engin und- ankomuleið frá því að vinna. Vinnan er í eigin þágu og hana þarf til. Stundum hætta tónlistamemar námi, þegar það rennur upp fyrir þeim hve mikið þeir þurfa að leggja á sig. Og við því er ekkert að segja, því þeir snúa sér þá að öðru, en verða gjaman góðir áheyrendur. Og þeir em líka nauðsynlegir. Það er enginn fastur taktur í hvemig dagarnir líða hjá mér ..." segir Erling. „ .. .Nema við förum snemma á fætur," bætir Merete við. Erling tekur undir það, þau séu morgunfólk. „Annars lifum við ekki eftir fastri dagskrá, en ætli megi ekki segja að við lifum reglusömu lífi. Andstætt til dæmis rithöfund- um og málurum, þá miðast líf tón- listarmannsins við tónleika. Miðast við, að á ákveðnum stað og stundu þarf hann að geta gert sitt besta. Slíkar hugsanir íþyngja mér ekki daglega, en til þess að geta staðið sig skiptir máli að baksviðið sé í lagi,“ bætir Erling við og rennir augunum hýrlega til Merete, sem segist alltaf hafa verið heima og þá getað hjálpað til, ef á þurfti að halda. „Það er ekki hægt að vera án slíks,“ segir Erling. „Ég verð að eiga heimili, þar sem ég get endumýjað kraftana. Við höfum bæði áhuga á myndlist og okkur finnst gaman að fara á sýningar og á uppboð." „Ég vil helst ekki hugsa um allt það sem þarf til...“ Þú kennir líka. Hvemig kanntu þvi? „Ég er í þeirri öfundsverðu að- stöðu að geta sjálfur valið nemend- ur mína. Fyrir mér er kennsla bæði vekjandi og ánægjuleg. Ég kenndi áður bæði í Stokkhólmi og Köln, auk Kaupmannahafnar, en kenni nú eingöngu heima fyrir, auk þess sem ég kenni á námskeiðum hér og þar. Það er afar gaman að sjá árangur af kennslunni og núna þeg- ar ég hef verið að í 35 ár, þá em bamaböm gamalla nemenda farin að birtast hjá mér. Og nemendur mínir eru af mörgum þjóðemum. í kennslunni neyðist kennarinn til að taka afstöðu til hlutanna, er þvingaður til að sjá hlutina frá öðr- um sjónarhomum en sínum eigin. Hvað nemandanum viðvíkur, þá þarf hann að þroska eigin persónu, ekki að verða eftirmynd kennarans. Kennarinn má ekki vera harðstjóri. Hlutverk harðstjórans er auðvelt, ekki hitt. Þegar hefur verið leyst úr tæknilegum atriðum, þá kemur til kasta nemandans. Þá þarf hann sjálfur að þroska sig. Þá er spum- ing hvort hæfíleikar hans em svo styrkir, að hann geti staðið einn og óstuddur, án kennarans. Svo er misjafnt eftir- hveiju nemendur sækjast, sumir stefna á hljómsveit- arleik, aðrir á kammerleik, kennslu eða einleiksferil. En það segir nokk- uð um kennsluna, að eftir 35 ár er ég enn ekki orðinn þreyttur á henni.“ Ég vel nemendur mína eftir hæfi- leikum og persónuleika, get ekki skilið þar á milli. Og hvað þarf til? Góðar taugar, iðni, tilfínningu og næmni, hæfni til að skipuleggja tíma sinn. Einhveija blöndu af þessu öllu. Ég vil helst ekki hugsa um allt það sem þarf til... Og það er ekki hægt að kenna nema sumt, það er ekki hægt að kenna þá út- geislun, sem þarf til að hrífa áheyr- endur með sér. Það hafa aldrei ver- ið eins margir og eins góðir tónlist- armenn og um þessar mundir, en það er spuming, hvort það er mikið af áhrifamiklum persónuleikum í hópnum. Svo er spýtt út hljóðriíuii- um í gríð og erg. Kannski nokkur hætta á, að fullkomnunarkröfur nútímans sverfí homin af og geri þetta allt um of straumlínulagað." Erling hefur með sér félaga frá Kaupmannahöfn í þetta skiptið, Ninu Kavtaradze píanóleikara. Þau Erling og Nina Kavtaradze hafa leikið saman um hríð og þegar Erl- ing er spurður um tildrög samspils- ins draga þau Merete fram blaðaúr- klippu úr dönsku blaði. Þar segir frá því að listmálarinn Stefan Blöndal Bengtsson sá Nínu í sjón- varpinu og sá að hún var drauma- fyrirsæta. Hann hafði samband við hana, hún tók því strax vel að sitja fyrir hjá honum og það var í gegn- um þetta samband sonarins og Ninu Kavtaradze, sem Erling kynntist henni. Hún hefur búið í Danmörku í ellefu ár, spilar kammertónlist meðal annars með landa sínum, fíðluleikaranum Gidon Kremer, og franska flautuleikaranum Jean- Pierre Rampal, auk þess sem hún kemur fram sem einleikari. „Við höfum unnið saman í nokkur ár, okkur til mikillar ánægju. Um sam- spilið hef ég ekkert annað en há- stigsorð að segja og þannig hefyr það verið frá því fyrsta. Hún heflrr þessa mögnuðu rússnesku píanó- hefð að baki sér,“ segir Erling um Kavtaradze. Það er þá ekki ónýtt að heyra hana spila annan eins píanókonsert eins og þann fyrsta Tsjækofskís. Og það er heldur ekki ónýtt að eiga von á því að Erling Blöndal Bengtsson haldi áfram að koma til íslands að spila. Það dylst enginn á sviðinu og þar ber Erling svo glögglega með sér allt sitt góða þel. Það geislar af honum strax xig hann birtist með sellóið sitt í fang- inu, þegar hann gengur ögn álútur fram, strákslegur í fasi, í þetta skiptið líka í Gamla bíói, rétt eins og fyrir 42 árum. TEXTI: Sigrún Davíðsdóttir Háskólanám í listum eftir Birgi ísl. Gunnarsson Háskólanám í listum hefur oft komið til umræðu hér á landi og nú síðast í tilefni þess að núver- andi menntamálaráðherra hefur skipað nefnd þriggja fyrrverandi menntamálaráðaherra til að vinna að undirbúningi að stofnun Lista- háskóla íslands. í stefnuyfírlýsingu og starfsá- ætlun ríkisstjómar Þorsteins Páls- sonar var ítarlega fjallað um menn- ingar- og menntamál og í einum kafla var fram tekið að undirbúin skyldi löggjöf um Tónlistarskólann í Reykjavík, Leiklistarskóla íslands og Myndlista- og handíðaskólann, meðal annars með hliðsjón af námi á háskólastigi. Það kom í minn hlut að vinna að undirbúningi þess- arar löggjafar og því er ekki úr vegi nú að gera nokkra grein fyrir stöðu þessara mála og þeim hug- myndum, sem að baki bjuggu. Er þörf á háskóla í listum? Fyrst er rétt að svara spurning- unni: Er þörf á háskóla í listum hér á landi? Þeirri spumingu svara ég ótvírætt játandi. Hin brýna þörf kemur m.a. fram í því að háskóla- nám fer nú þegar fram hér á landi þó ekki sé í skólum sem bera há- skólanafn. Það á m.a. við um þá skóla sem tilgreindir voru hér að framan. Rannsóknarstarfsemi á þessu sviði er af skomum skammti hér á landi, en auk kennslu yrðu rannsóknir mikilvægt verkefni listaháskóla. Hvaða leið ber að fara? En hvemig á þá að skipuleggja þetta háskólanám? Þar koma ýms- ar leiðir til greina, en einkum hafa menn þó hugsað um þijá kosti: 1. Að stofna deild eða deildir í list- um við Háskóla íslands. 2. Að gera þá höfuðskóla sem nú starfa í helstu listgreinum að háskóla. 3. Að stofan einn Listaháskóla ís- lands. Enginn vafí er á því að Háskóli íslands gæti með sóma tekið við því verkefni að annast kennslu og rannsóknir í listum og víst hefur Háskólinn sýnt ýmsu menningar- og listalífí mikinn áhuga. Háskóli íslands hefur hins vegar ærin verk- efni fyrir og þau eiga eflaust eftir að vaxa á ýmsum öðrum sviðum en listasviðinu. Það er og alltaf spuming, hvað eigi að þenja eina stofnun mikið út og hvort ekki sé rétt að dreifa verkefnum á fleiri aðila. Ég hef því ekki talið rétt að flytja háskólanám í listum inn í Háskóla íslands. Löggjöf um hvern skóla Sú leið sem ég hef talið skyn- samlegt að fara í stöðunni nú er að sérstök löggjöf verið sett um hvem hinna þriggja skóla sem að ofan greinir og starfa á sviði tón- listar, myndlistar og leiklistar. Slík frumvörp eru tilbúin í ráðuneytinu og ætti að vera unnt að ná góðri samstöðu á Alþingi um að þau verði að lögum í vetur. Samkvæmt þeim fengju allir þessir skólar stöðu sem háskólar. Frumvarpinu um tónlistarháskóla þyrfti væntan- lega að breyta lítillega með tilliti til þeirra skóla, sem nú halda uppi kennslu sem telst á háskólastigi. Þessir þrír skólar em hver með sínum sérkennum og þeir byggjast hver á sinni hefð. Hver um sig hefur sitt starfslið, sína stjómend- ur og áhugahópa í kringum sig. Ég óttast að sameining þeirra í einn skóla með tiltölulega snögg- um hætti geti haft í för með sér mikla erfiðleika. Upp munu koma margvísleg mannleg vandamál og hætt er við að allt málið muni drag- ast úr hömlu og í raun munum við því sitja í sama farinum um hríð. Sameining síðar í einn Listaháskóla Hitt er annað mál að ég tel að stefna eigi að því í framtíðinn að sameina þessa skóla í einn Listahá- skóla. Ég hef hugsað mér að það gæti gerst á þann veg að skólam- ir þrír fengju sameiginlegt bygg- ingarsvæði. Skólamir myndu síðan hafa samstarf um að byggja yfir sig á sama svæði, en af því gæti leitt sameiningu síðar í einn Lista- háskóla, m.ö.o. málið myndi þróast í þann farveg. Hafði ég reyndar sett á laggimar starfshóp með fulltrúum frá skólunum þremur, menntamálaráðuneyti og Kenn- araháskólanum til að vinna að slíkra samvinnu og er þá haft í huga byggingarsvæði Kennarahá- skólans við Stakkahlíð. Samvinna við Kennaraháskólann er æskileg því að þar fer nú þegar fram kenn- aranám fyrir grunnskólakennara í myndmennt og tónmeni)t. Niður- staða úr þessari vinnu lá ekki fyr- ir þegar ég fór úr menntamála- ráðuneytinu. Arkitektur Að lokum er rétt að minnast á enn eina listgrein sem hlýtur að koma inn í þessa umræðu, en það Birgir ísleifúr Gunnarsson „Fyrst er rétt að svara spurningunni: Er þörf á háskóla í listum hér á landi? Þeirri spurn- ingu svara ég ótvírætt játandi.“ er húsagerðarlist (arkitektur). Allt slíkt nám þurfa menn nú að sækja til útlanda. Að frumkvæði Arki- tektafélags íslands setti ég á sl. vetri á fót nefnd til að kanna hvort ekki væri rétt að taka þetta nám upp hér á landi. Nefndin er enn að störfum og eitt af því sem hún mun fjalla um er hvar vista eigi slíkt nám. Kemur þá sterklega til greina að tengja það listaskólanum og myndi það verða styrk stoð og vafalaust flýta fyrir sameiningu í einn Listaháskóla. Höfundur er fyrrverandi menntamálaráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.