Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988 Lífeyrissjóður Vesturlands; Bókun lífeyrisrétt- inda endurskoð- uð affcur í tímann Á fulltrúaráðsfundi verkalýðsfélaganna sem aðild eiga að Lífeyrissjóði Vesturlands, er haldinn var í Borgarnesi á laugardag, gerði sljórn og endurskoðandi lifeyrissjóðsins grein fyrir vinnu við endurskoðun og leiðréttingu ákveðinna þátta bókhaldsins aftur í tímann. Á undanförn- um mánuðum hafa nokkur verkalýðsfélög gagnrýnt sjóðsstjórnina fyr- ir að hafa ekki lagt fram reikninga f nokkur ár og komið hafði fram krafa um að öll stjórnin segði af sér. Verkalýðsfélögin skipuðu nýja menn f stjórnina. Framkvæmdastjórn Vinnuveitendasambands íslands tilkynnti það á fundinum að annar fulltrúi vinnuveitenda sæti áfram, enda væru tvö ár eftir að skipunartíma hans, en nýr maður tæki sæti hins aðalmannsins um áramot. Sigrún Clausen, sem skipuð var í stjómina sem annar fulltrúi verka- lýðsfélaganna, segir að á fundinum hafi það verið skýrt að fullu af hverju reikningar hafa ekki verið lagðir fram fyrr og allri tortryggni eytt. Sama sagði Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands islands. Þórarinn sagði að fulltrúaráðs- fundi sem halda átti árið 1985 til þess m.a. að kynna reikninga ársins 1984 hefði verið aflýst vegna ófærð- Ekiðámann og á brott EKIÐ var á ungan mann á Hverfisgötu um kl. 5 aðfara- nótt sunnudags. Bifreiðinni var ekið viðstöðulaust á brott og beinir lögreglan þeim til- mælum til ökumanns að hann gefi sig fi-am. Atburður þessi varð á móts við húsið að Hverfisgötu 78. Maðurinn var að ganga suður yfir götuna, þegar bifreiðinni var ekið á hann og viðstöðulasut á brott. Maðurinn kvartaði und- an þrautum í hægri ökkla og var fluttur á slysadeild. Tvær stúlkur, sem voru með manninum, báru að bifreiðin, sem ekið var á hann, hefði verið ljósbrún fólksbifreið af minni gerð. Okumaðurinn er beðinn að gefa sig fram við slysarann- sóknardeild lögreglunnar í Reykjavík. Þá er einnig skorað á þá, sem kynnu að hafa séð atbUrðinn, að hafa samband við lögreglu. ar en reikningamir sendir félögunum í pósti. Á því ári var ákveðið að skipta um bókhaldsfyrirtæki, bók- hald sjóðsins og endurskoðun falin endurskoðanda á Akranesi, þar sem aðsetur sjóðsins er, í stað endurskoð- unarfyrirtækis í Reykjavík. Síðar var farið að færa iðgjaldabókhald sjóðs- ins í reiknistofu á vegum Sambands almennra lífeyrissjóða. Við þessar breytingar komu í ljós skekkjur hjá bankastofnunum við innheimtu af- borgana og vaxta af skuldabréfum sjóðsins og að iðgjaldabókhald stemmdi ekki við fjárhagsbókhald. Stjómin ákvað að láta fara ofan í þessi mál og fá botn í þau. Meðal annars þurfti að endurvinna bókun lífeyrisréttinda sjóðsfélaga frá stofn- un lífeyrissjóðsins. Fram kom á fund- inum að þetta hefði kostað meiri vinnu en áætlað var og því ekki ver- ið hægt að ganga frá ársreikninum á þessum tíma. Sigrún og Þórarinn sögðu að rétt hefði verið hjá sjóðs- stjóminni að ráðast í þetta verk en stjómin hefði átt að skýra málið fyr- ir eigendum sjóðsins til að forðast misskilning. Á fundinum vom kynntir ársreikn- ingar fyrir árin 1984 og 1985. Fund- urinn samþykkti reikningana fyrir árið 1985 en reikningamir fyrir árið 1984 voru ekki bomir upp þar sem þeir voru taldir rangir af ofangreind- um ástæðum. Fram kom á fundinum að bókhaldsvinnunni miðar vel áfram og er stefnt að því að ársreikningar fyrir árin 1986 og 1987 verði lagðir fram í vor og reikningum ársins 1988 verði lokið í haust. Þórarinn tók fram að ekkert benti til þess að reikningshaldi lífeyris- sjóðsins væri ábótavant í öðrum at- riðum og að lokinni þessari vinnu væri fullt traust á sjóðnum. Skáldsaga eftir Olaf Jóhann Olafsson VAKA-Helgafell hefur gefið út fyrstu skáldsögu Ólafs Jóhanns Olafssonar, Markaðstorg guð- anna. Bókin er um 256 síður að stærð og skiptist verkið í fimm þætti. í umfjöllum um Markaðstorg guðanna á bókarkápu segir að þetta sé margræð skáldsaga og listavel fléttuð. Á yfirborðinu birtist spenn- andi söguþráður sem nái strax at- hygli lesandans, en í stflnum felist galdur sem verði þess valdandi að efnið risti mun dýpra en virðist í fyrstu. Viðfangsefni Ólafs Jóhanns Olafssonar sé í raun ekki sjálf at- burðarásin, heldur viðbrögð aðal- persónu sögunnar, Friðriks Jóns- sonar, við þeim aðstæðum sem skapast, — uppgjör hans við sjálfan sig og umhverfi sitt. Sögusvið bókarinnar Markað- storg guðanna er víðara en almennt gerist í íslenskum skáldsögum síðari ára: ísland, Bandaríkin og Japan. Efnið er jafnframt marg- þætt: Fjölskyldulíf, alþjóðaviðskipti, mannleg samskipti, reynsla og freistingar í fírrtum, síminnkandi heimi. Ólafur Jóhann Ólafsson Ólafur Jóhann Ólafsson er Reyk- víkingur, 26 ára að aldri, en hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarin ár þar sem hann starfar sem framkvæmdastjóri hjá stórfyr- irtækinu Sony. Bókin Markaðstorg guðanna er prentuð og bundin í Prentsmiðjunni Odda hf. Baráttufúndur launþegasamtakanna í Háskólabíói. Morgu nblaðið/KG A Baráttufundur launþegasamtakanna: Með samningsrétti og með verkfellsrétti viljum við styrlga okkar samtök •• - segir Ogmundur Jónasson formaður BSRB „FUNDURINN var mjög vel heppnaður. Það var hátt í hús- fyllir í Háskólabíói,“ sagði Ög- mundur Jónasson formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um baráttufund launþega- samtakanna á laugardag. Yfir- skrift fundarins var: Veijum heimilin, — með samningsrétti, — gegn atvinnuleysi. Að fimdinum stóðu BSRB, Alþýðusamband ís- lands, Bandalag háskólamanna- rikisstarfsmenn (BHMR), Kenn- arasamband íslands, Samband bankamanna og Félag bókagerð- armanna. Ögmundur Jónasson og Ásmundur Stefánsson fluttu ræður og á eftir var kórsöngur, ljóðalestur og almennur söngur. „Stöndum vörð umheimilin“ í upphafí ræðu sinnar sagði Ög- mundur að tilgangur fundarins væri að sýna í verki viljann til þess að veija samningsréttinn. Á honum byggðist tilveruréttur samtakanna. Hann ræddi m.a. um tilverurétt verkalýðshreyfingarinnar. Hann ræddi síðar um fijálsa vexti sem hann nefndi okur og sagði síðan: „Stjómvöld sem víla ekki fyrir sér að banna með lögum samnings- og verkfallsrétt tugþúsunda ein- staklinga verða að skilja að við er- um búin að fá nóg af því að vera tilraunadýr í tilraunabúi hinnar bönnuðu verkalýðshreyfíngar og fijálsu peningá. Með samningsrétti og með verk- fallsrétti viljum við styrkja okkar samtök. Og með okkar samtökum viljum við gera íslenskt samfélag betra. Við munum standa vörð um heimilin. Við munum sýna fulla ábyrgð og sameinast um að bægja frá atvinnuleysi. Við munum beita samtakamætti okkar til að útrýma valdhrokanum og innleiða mann- gildishugsun. Því sú hugsun er okk- ar pólitík. Og við erum líka pólitísk þegar kemur út í þjóðfélagsumræð- una þar sem samtök atvinnurek- enda og margvísleg hagsmunasam- tök standa sterk og sameinuð. Þar er okkar pólitík að beita okkur fyr- ir jöfnuði, atvinnulýðræði, fyrir þeirri hugsjón að hér skapist ekki gjá á milli ríkra og snauðra, að við varðveitum það andlega, menning- arlega stéttleysi sem er eitt það dýrmætasta sem við eigum. Þetta hlýtur að vera okkar pólitík. En til þess að koma stjómvöldum í skilning um að þeim beri að viður- kenna réttindi okkar þurfum við að standa saman. Ekki bara samtökin eða stjómir þeirra, heldur fólkið sem í þeim er. Við þurfum öll að standa saman. Við megum aldrei gleyma því að samtök byggja á fólki, einstaklingum. Þar býr kraft- ur og þann kraft þurfum við að virkja. Þann kraft munum við virkja. Við höfum öll verk að vinna, í sameiningu, að beijast fyrir frels- inu og þar með brauðinu. En fram- tíðin er okkar þvf við vitum að þar sem er vilji þar er vegur. Þar er okkar vegur," sagði Ögmundur. „Vanvirða við Alþjóða- vinnumálastofhunina“ Ásmundur Stefánsson riíjaði upp að í stjómarskránni væri orðið nauðsyn notað tvisvar. Alþingi megi kveða til aukafunda þegar nauðsyn beri til, það hafí verið gert þrisvar sinnum. Þá megi setja bráðabirgða- lög ef brýna nauðsyn beri til. Það hafi verið gert 256 sinnum, eða 6 sinnum á ári að jafnaði. Það væri einmitt vegna slíkra laga sem fund- urinn væri haldinn. Ásmundur sagði frá kæru ASÍ til Alþjóðavinnumálastofnunarinnar vegna bráðabirgðalaganna í maí þegar kjarasamningar vom bannað- ir og launin fest. Kæran var lögð fram vegna þess að ísland hefur staðfest tvær alþjóðlegar sam- þykktir um verkfallsmál og samn- ingsrétt. Hann sagði: „Við höfum vænst þess að nefnd Alþjóðavinnu- málastofnunarinnar um samtaka- frelsi mundi afgreiða málið á fundi sfnum nú í nóvember. Það gerðist ekki vegna þess að ríkisstjóm ís- lands.hefur sýnt Alþjóðavinnumála- stofnuninni þá vanvirðu að svara ekki fyrirspum hennar um málið. Þetta var okkur tilkynnt með bréfi í byijun þessarar viku. Með öllu framferði sínu skipa íslenskir ráð- herrar sér á bekk með þeim ríkis- stjómum sem opinbera skömm sína þannig að ekki fer á milli mála." Ásmundur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að félagsmála- ráðherra hefði lýst því yfír um helg- ina að svar stjómarinnar væri til- búið og yrði sent nú í byijun vikunn- ar. Vonaðist hann til að það yrði gert og þá yrði þetta mál væntan- lega tekið fyrir á næsta fundi nefnd- arinnar um samtakafrelsi, sem yrði í febrúar eða mars á næsta ári. Hann sagði að sér þætti líklegt að þessi töf stafaði af því að ríkis- stjómin hafi ekki viljað fá úrskurð í málinu fyrr en búið væri að af- greiða bráðabirgðalögin á Alþingi. Síðar í ræðu sinni sagði Ásmund- ur: „Að undanfömu hefur dregið mikið úr kaupmætti. Launafólk al- mennt hefur orðið fyrir alvarlegri tekjurýmun. í þessu ljósi er hún undarleg umræðan sem nú fer fram af hálfu stjómmálamanna og at- vinnurekenda um að laun verði að lækka. Þeir verða að skilja það að launin em ekki aðeins kostnaðarlið- ur í bókhaldi fyrirtækja. Við Iifum á laununum. Launin em okkar lifi- brauð. Mörg fyrirtæki lifa því að- eins að við höfum ráð á að skipta við þau. Ef kjör yrðu skert ofan í þann samdrátt sem þegar er orðinn væri ekki aðeins stefnt í stóraukinn ójöfnuð eins og gerðist 1983. Það væri meðvitað stefnt í alvarlegt heimatilbúið atvinnuleysi. Þá ósvinnu og heimsku megum við ekki láta yfir okkur ganga. Það er ranghugmynd ráðherra að þjóðin sé gjaldþrota. Reynslan sýnir að sú þráhyggja að kjara- skerðing leysi allan vanda hefur beðið skipbrot. Við krefjumst raun- hæfra lausna. Launakostnaður veldur ekki óvissu í atvinnumálum, heldur vaxtaokur og óráðsía.“ „Rikisstjórnin sjái að sér“ Aðspurður um hugsanlegar að- gerðir þessara samtaka í framhaldi af fundinum sagði Ögmundur í gær að það væri óráðið. „Næsta skrefið er að sjá hvort stjómin sér ekki að sér og viðurkenni samningsréttinn," sagði hann. Ásmundur Stefánsson sagði að innan ASÍ og BSRB væri ekki búið að ákveða hvemig staðið yrði að samningum eftir áramótin. „Það er þó ljóst að samtökin hljóta að gera allt sem í þeirra valdi stend- ur til að tryggja það að samnings- rétturinn verði virtur. Ekki einung- is að fá að semja heldur einnig að samningamir verði látnir standa," sagði hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.