Morgunblaðið - 21.01.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.01.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989 Lánasjóður íslenskra námsmanna; Ráðherra vill afsögn þriggja stjómarmanna Menntamálaráðherra, Svavar Gestsson, hefur farið þess á leit við formann Lánasjóðs fslenskra námsmanna, Sigurbjöm Magnús- son, að hann segi af sér sem sjóðs- sfjórnarformaður. Auk þess er það vilji ráðherra að tveir aðrir fulltrúar f stjórn LÍN segi af sér sfjóraarstörfiim. Þessir þrír full- trúar tóku allir sæti í stjóra LÍN í sfjóminni. Sigurbjöm sagði að svip- aðar aðstæður væm í fjölda annarra stofnanna. Stjómir þeirra skömðust á við líftíma ríkisstjóma. „Ef við segjum af okkur í stjóm sjóðsins nú og Svavar Gestsson skipar þrjá al- þýðubandalagsmenn í staðinn fyrir okkur, þá höfum við enga tryggingu fyrir því að þeir hætti í sjóðnum ef núverandi ríkissfjóm hrökklast frá á miðju tímabili. Ef ráðherrann vill breyta þessu, þá verður hann einfald- lega að flytja um málið lagabreytingu og þarf þá eitt yfir alla að ganga í þeim efnum," sagði Sigurbjöm að lokum. 77,5 millj. kr. tekjuafgangur af LIN: Eðlilegt að nota óráðstafað fé til að minnka skuldirnar - segir Sigurbjörn Magnússon stj órnarformaður árið 1986 og voru skipaðir f stjóra- ina f tíð Birgis ísleifs Gunnarsson- ar, þáverandi menntamálaráð- herra. Sigurbjöm Magnússon formaður stjómar LÍN sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði átt fund með ráðherra skömmu eftir áramót þar sem þessi vilji ráðherrans hefði komið fram. „Ráðherrann fór fram á þetta þar sem hann taldi að til árekstra gæti komið með okkur. Ég sagði hinsvegar hreint nei við þessum tilmælum ráðherrans. Stjómarmenn eru einfaldlega skipaðir til ákveðins tíma, í þessu tilviki til fjögurra ára, í senn og lýkur ekki okkar tímabili fyrr en á næsta ári, í október árið 1990. í meginatriðum er ég sam- mála menntamálaráðherra um að nýr ráðherra skipaði nýja stjómarmenn, en þá yrði sú regla að vera algild og hún að ganga yfir alla. Alþýðu- bandalagsmaðurinn Ragnar Ámason lektor hefði til dæmis setið í sjóðs- stjóminni frá árinu 1983, þá skipað- ur af ríkisstjóm Gunnars Thorodds- ens, allt ársins 1986, þá sem fulltrúi þeirra Alberts Guðmundssonar og Þorsteins Pálssonar," sagði formað- urinn. Sigurbjöm og Sigríður Ambjam- ardóttir, sem bæði eru sjálfstæðis- menn, eru fulltrúar menntamálaráð- herra í stjóm LÍN og Steingrímur Ari Arason, sem einnig er sjálfstæð- ismaður, er fulltrúi fjármálaráðherra LÁNAJÓÐUR íslenskra náms- manna skilaði um áramót 77,5 milljónum króna tekjuafgangi. Stjóra LÍN hefúr f bréfi til menntamálaráðherra og Qár- málaráðherra farið fram á að mega nota þetta fé til þess að greiða niður skuldir sjóðsins og draga þannig úr Qármagns- kostnaði hans á næstu árum. Meginskýring tekjuafgangsins er sú að óráðstafað fé frá árinu 1987 var flutt á milli ára, það er til árs- ins 1988, og eins hefur meira inn- heimst frá þeim tíma en gert var ráð fyrir í greiðsluáætlun. I bréfun- um til ráðherranna er bent á að varhugavert sé að fjármagna útlán sjóðsins að miklum hluta með dýru lánsfé eins og raunin hefur verið. „Þetta rýrir mjög eiginfjárstöðu sjóðsins þegar fram líða stundir og getur haft ófyrirsjáanlegar afleið- ingar fyrir stöðu hans í framtíð- inni. Stjóm sjóðsins mundi telja þetta táknræna aðgerð um það að stjómvöld viðurkenni þennan vanda og hyggist fjármagna sjóðinn í ríkari mæli á næstu ámm með bein- um framlögum í stað lánsfjár," seg- ir jafnframt í bréfunum, sem undir- ritað er að formanni sjóðsstjómar, Sigurbimi Magnússyni. Sigurbjöm sagði í samtali við Morgunblaðið að þessum óráðstöf- uðu íjármunum hefði verið komið fyrir í sérstökum sjóði og í fjárlög- um eru engin ákvæði um hvað beri að gera við þetta fé. Námsmenn í stjóm LÍN em frekar á því að féð sé notað til hækkunar námslána heldur en til niðurgreiðslu skulda. „Ef það er jafnframt vilji ráðherra, þá ætti hann að gefa þau fyrir- mæli. Það er að minnsta kosti ákvörðun af hans hálfu. Ráðherr- ann virðist ekkert svara mínum bréfum þrátt fyrir ítrekaða fyrir- spum um þetta mál.“ Sigurbjöm sagði meginregluna vera þá að þeg- ar fjárveiting væri ekki nýtt, félli hún niður nema hún væri ætluð til sérstakra nota. Heildarráðstöfunarfé LÍN var á síðasta ári um tveir milljarðar kr. Á yfirstandandi ári fær LÍN um 1.617 milljónir kr. auk lánsfjár- heimildar upp á 915 milljónir kr. og gert er ráð fyrir endurgreiðslum upp á 250 milljónir kr. Samtals fær sjóðurinn því til ráðstöfunar á árinu tæpa 2,8 milljarða. Gert er ráð fyr- ir að tveimur milljörðum verði út- hlutað „Samkvæmt fjárveitingunni fyrir þetta ár, hefur sjóðurinn nægj- anlegt fé ef ekki koma til nein óvænt útgjöld. Hinsvegar er þessi lánsfjármögnun, sem tíðkast hefur í sjóðnum, mjög alvarleg og þurfum við á yfirstandandi ári að greiða 727 milljónir bara í vexti og af- borganir af lánum. Lánin em hjá veðdeildinni, lífeyrissjóðum auk er- lendra lána,“ sagði Sigurbjöm. Helmingur útlána -flPTTCL- GARÐURINN Aðalstræti 9 - Kringlunni LIN er flármagn- aður með lántökum Námslán hafa hækkað um 10% á launafrystingartímabilinu NAMSLAN hafa hækkað um 10% frá því að Iaunastöðvun tók gildl í júní síðastliðnum, en við af- greiðslu námslána er miðað við framfærsluvísitölu. Stjórn sjóðs- ins hefiir í bréfi til menntamála- ráðherra lýst áhyggjum sínum yfir því að stór hluti útlána LÍN er fjármagnaður með lántökum eða um það bil hehningur útlán- anna. Á liðnu ári vann stjóm sjóðsins að því að endurskoða framfærslu námsmanna og reyna að leggja mat á eðlilega framfærslu. Niðurstaða stjómarinnar var að ákjósanlegast væri að leggja mat á eðlilega fram- færslu út frá gögnum Hagstofu íslands um almennan framfærslu- kostnað og hafnað var hugmyndum um sérstaka framfærslukönnun meðal námsmanna. Stjómin varð ekki sammála um niðurstöðu. Pull- trúar ríkisstjómarinnar vom sam- mála um að núverandi framfærslu- viðmiðanir sjóðsins þjónuðu al- mennt vel hlutverki sínu sem lág- marksviðmiðanir en fulltrúar náms- manna lögðu til að lágmarksgrunn- færsla yrði þegar í stað hækkuð. Stjóm sjóðsins skrifaði mennta- málaráðherra bréf þar sem þessum niðurstöðum er lýst og gerði grein fyrir því hvað það muni kosta í auknum útgjöldum ef tillögur námsmanna ættu að ná fram að ganga. Til þess að hækka mætti grunnframfærslu samkvæmt kröfu námsmanna yrði að auka útgjöldin frá því sem nú er að raungildi um 500 millj. kr. á ári. Á yfirstandandi ári mun Lána- sjóðurinn veita tæplega tvo millj- arða kr. í lán og styrki til íslenskra námsmanna. Lánasjóðurinn þarf að greiða á árinu um 727 milljónir í vexti og afborganir af lánum sem sjóðnum hefur verið gert að taka á undanfömum árum. Rekstrarkostn- aður sjóðsins er um 60 milljónir kr. Samtals er fjárþörf sjóðsins um 2.800 millj. kr. á árinu. Á fjárlögum er fyrirhugað að fjármagna sjóðinn með þeim hætti að beint framlag rikissjóðs er 1.617 milljónir kr. Heimild sjóðsins til að taka lán, annað hvort innlend eða erlend, er 915 millj. kr. Endurgreiðslur náms- lána nema um 250 millj. kr. Það sem er áhyggjuefni varðandi þessar tölur, segir í frétt frá lánasjóðnum, er að um það bil helmingur útlána LÍN er flármagnaður með lántök- um. Hlutfall lána í fjármögnun sjóðsins er aukið á næsta ári úr 29% í 33% af heildarráðstöfunarfé sjóðs- ins. Aðeins lántökugjöld á þessu ári af þessum 915 millj. kr. eru 24 millj. kr. og afborganir og vextir strax á næsta ári af þessum 915 milljónum eru 130 millj. kr. sem bætast við þær 727 millj. sem þarf að greiða í afborganir og vexti á þessu ári. Á næsta ári fer tæplega helmingur ríkisframlagsins, um 800 þúsund kr., í að greiða afborganir og vexti af lánum sem LÍN hefur verið gert að taka á undanfömum árum. Slík fjármögnun sjóðsins get- ur ekki gengið til lengdar, segir í frétt frá LÍN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.