Morgunblaðið - 30.03.1989, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1989
29
Jónas Jósteins-
son - Kveðjuorð
Fæddur 7. september 1896
Dáinn 4. marz 1989
Ævi manns má líkja við bók. Hún
á sitt upphaf, síðan tekur við undir-
búningur undir lífið, þá manndóms-
árin, þegar meginævistarfíð er innt
af hendi, svo kemur ævikvöldið og
loks endirinn, þegar lokapunkturinn
er settur. Og eins og bækurar eru
mislangar, þá gildir sama um manns-
ævina. Sumir lifa aðeins skamma
ævi, en aðrir feta langan veg og
dveljast hér til hárrar elli. Og líkt
og bókin skiptist ævin í kafla, sem
hafa hver sitt sérkenni eftir því, hvert
viðfangsefnið er hvetju sinni.
Bækur lesum við yfírleitt frá upp-
hafí til enda, oft í einni striklotu,
einkum ef bókin er spennandi. Mönn-
um kynnumst við aðeins á vissum
skeiðum ævinnar. Þeir eru fáir, sem
við fylgjum frá upphafí til æviloka,
nema þá helzt nánustu ástvinir, sem
við deilum ævinni með.
Þessar eða svipaðar hugsanir
vakna oft hjá mér við andlát vina,
sem hafa á einhveiju skeiði ævinnar
verjð mér sérstaklega nákomnir.
Ég man ekki, hvenær fundum
okkar nafna og frænda fyrst bar
saman. Hitt er ljóst, að ég var ekki
hár í loftinu. Til þess lágu eðlilegar
ástæður. við vorum nágrannar og
húsagarðamir lágu saman. Við vor-
um náfrændur, bræðrasynir, þótt
mér fyndist það alltaf dálítið skrítið,
því að hann var 30 árum eldri en
ég og aðeins 5 ámm yngri en faðir
minn, fóðurbróðir hans. Og báðir
bámm við nafn föðurafa okkar.
Altmikill samgangtir var þá milli
heimila okkar. Eg minnist samvem-
stunda á heimili þeirra Grétu og Jón-
asar og bama þeirra, Kristínar og
Kára. Mér er minnisstætt, að Kári
var áéi fyrstu svolítið tortiygginn út
í mig. Hann átti svolítið erfítt með
að skilja, að tii væm fleiri Jónasar
en pabbi hans!
Svo var það í upphafí eins af
fyrstu köflum lífs míns, að leiðir
okkar lágu saman til náinna sam-
vista um skeið. Þegar lágvaxinn
snáði steig fyrstu sporin á mennta-
brautinni og hélt feiminn inn í heim
skólans, varð hann fyrsti kennarinn
minn og samleið okkar hélzt þau
árin, sem ég sótti fræðslu í Austur-
bæjarbamaskólann hér í Reykjavík.
Þessi ár em mér eftirminnileg og
ljúf í endurminningunni og þar á
kennarinn stærri þátt í lífí mínu en
flestir aðrir.
Jónas var afbragðs kennari, einn
af þessum hugsjónamönnum, sem
þjóðin virðist hafa verið óvanalega
rík af um seinustu aldamót. Honum
var það hugsjón að leiða nemendur
sína til sannra mennta. Hann var
vakinn og sofínn að reyna að auka
þekkingu okkar og átti afar auðvelt
með að hrífa okkur með. Hann var
lifandi í kennslunni.
Kannski er endurminning mín eitt-
hvað lituð rómantískum bjarma æsk-
unnar, en ég man ekki, að mér hafi
þótt nokkur tími leiðinlegur, þegar
hann sat við kennarapúltið. Og hann
var forgöngumaður á mörgum svið-
um í kennslu sinni. Ég held við höf-
um byijað að læra dönsku í 10 ára
bekk og námsbókin var afar
skemmtileg bamabók, sem vakti
áhuga okkar. Það er eflaust meginá-
stæða þess, að mér þótti danska með
skemmtilegustu námsgreinum í
skóla.
Og ég minnist þess, að við vomm
stolt af því að vera í bekk hjá Jón-
asi. Það var nánast eins konar gæð-
astimpill. Honum var jafnan falin
kennsla í góðum bekkjum, enda náði
hann afar góðum árangri í kennsl-
unni. Og að hætti góðra kennara var
áhugi hans á okkur ekki aðeins bund-
inn þeim ámm, er við vomm í bekk
hjá honum. Hann fylgdist með mörg-
um nemendum sínum áfram, gladdist
með þeim í velgengni og hryggðist
í mótlæti.
Bemskuárin em einn af björtu
köflunum í lífsbók minni og þar skip-
ar kennarinn stóran sess. Jónas var
í mínum huga Kennarinn, með stór-
um staf og ákveðnum greini, hug-
sjónamaðurinn, sem sinnti ævistarf-
inu af innri köllun. Um hann gilti í
bókstaflegri merkingu, að hann kom
mörgum bömum til manns.
Svo skildu leiðir. Ég hélt áfram
námi og manndómsárin tóku við og
hann stóð áfram sinn trúa vörð við
uppfræðslu bama og ungmenna.
Samfundir stijáluðst, en alltaf
vissum við vel hvor af öðmm. Og
vegir okkar skámst öðm hveiju. Ég
mun hafa borið ábyrgð á því, að
hann var kjörinn í sóknamefnd Há-
teigssóknar, þótt ekki yrði um frek-
ara samstarf að ræða á þeim vett-
vangi.
Og alltaf fylgdumst við hvor með
öðram, frændurnir, þótt það verði
ekki rakið frekar hér.
Leiðir okkar lágu saman á nokkr-
um hátíðastundum í lífí fjölskyldu
hans, við brúðkaup dótturinnar og
tengdasonarins, Kristínar og Valdi-
mars, og skím bamabama.
Svo var það, þegar við fómm að
halda ættarmót, Hródælir, að leiðir
okkar skámst enn á ný. Þar var
hann svo sjálfsagður í fyrirrúmi, að
um það þurfti ekkert að ræða. Og
ætli við munum ekki lengi, sem
heyrðum hann kveða rímur í sam-
komuhúsinu í Hegranesi á fyrsta
ættarmótinu? Það var við sama tæki-
færi, sem frændi okkar, Jóhann
Konráðsson, söng seinast opinber-
lega, að því er ég bezt veit.
Þetta átti ekki að verða langt
skrif, engin bók, aðeins minninga-
brot, nánast örstuttur „ritdómur" um
kafla í lífsbók manns, sem mér þótti
vænt um og á mikið að þakka. Ég
vildi með fáeinum orðum tjá þakk-
læti mitt. Líf mitt væri fátæklegra
í dag, ef hans hefði ekki notið við.
Ég blessa minningu góðs manns og
frábærs fræðara bama og ung-
menna. Það er bjart yfír minningu
hans í mínum huga. Og ég veit, að
margir nemendur hans taka undir
þessi orð.
Guð blessi minningu Jónasar Jó-
steinssonar. -
Jónas Gíslason
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURÐUR MAGNÚSSON
fyrrverandi blaðafulltrúi,
er létinn. Eskihlið 23,
Dýrleif Ármann og dœtur.
smá ouglýsingar
Wélagslíf
I.O.O.F. 11 = 1703308V2 =
I.O.O.F. 5 = 1703308V2 = Bingó
a St.: St.: 59893307 VIII
Hjálpræðisherinn,
Kirkjustræti 2,
f kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufeili
Almennur biblíulestur i kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvistin í kvöld fimmtud.
30. mars. Verið öll velkomin.
Fjölmennið.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir sunnudag
inn 2. apríl:
Kl. 10.30 Skfðaganga á Hellis-
heiði. Verð kr. 800,-
Kl. 13.00 Qengið á Skarðsmýr-
arfjall og einnig gengið á
skfðum á Hellisheiði. Verð kr.
800,-
Brottför frá Umferðamiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl.
20.-23. aprfl - skfðagönguferð
til Landmannalauga.
Næsta myndakvöld verður í
Sóknarsalnum miðvikudaginn
12. april.
Ferðafélag fslands.
Aöalfundur badmintondeildar
KR verður haldinn fimmtudaginn
6. april Id. 21.00 í KR-heimilinu.
Stjómin.
AD-KFUM
Aöalfundur KFUM og skógar-
manna. Athl Fundurinn hefst
kl. 20.00 á Amtmannsstíg 2b.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffi
eftir fund. Allir kartar velkomnir.
Almenn samkoma
Almenn samkoma verður í
Grensáskirkju í kvöld kl. 20.30.
Ræöumaöur: Hafsteinn Engil-
bertsson. Allir velkomnir.
HtD útivist, 0,^,1
Útivist
Fimmtudagur 30. mars kl. 20.
Aðalfundur Útivistar.
verður haldinn i Fóstbræðra-
heimilinu, Langholtsvegi 109.
Aðeins þeir, sem greitt hafa ár-
gjald 1988, fá aðgang.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Nánari upplýsingar í fréttabréfi
Útivistar.
Fjölmennið.
Gerist Útivistarfélagar.
Árgjaldið er aðeins 1.900.- kr.
og innifalið er ársrit.
Útivist, ferðafélag.
AGLOW
- kristileg samtök
kvenna.
Fundur verður haldinn i menn-
ingarmiðstöðinni [ Gerðubergi,
föstudaginn 31. mars nk. kl.
20.00 til 22.00.
Gestur fundarins verður Guðrún
Dóra Guðmannsdóttir.
Kaffiveitingar kr. 250.-.
Allar velkomnar.
S^nhjóflp
f kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þribúðum, Hverfisgötu 42.
Fjölbreytt dagskrá með söng og
vitnisburðum. Samhjálparkórinn
tekur lagiö. Ræðumaður: Krist-
inn Ólason. Allir velkomnir.
Munið opið hús á laugsrdaglnn.
Samhjálp.
VLennsla
Vélritunarkennsla
Vélritunarskólinn, s: 28040.
&JÓNUSTA
NATIONAL olíuofnar
og gasvélar
Viðgerðar- og varahlutaþjón-
usta.
RAFBORG SF.,
Rauðarárstig 1, s. 11141.
RAÐAUGIYSINGAR
FÉLAGSSTARF
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
30. mars 1949-1989
Brynvörn lýðræðisins
Aðalfundur verkalýðs-
ráðs Sjálfstæðisflokksins
Aðalfundur verka-
lýðsráðs Sjálfstæö-
isflokksins verður
haldinn laugardag-
inn 1. april 1989 í
Sjálfstæðishúsinu
Valhöll, Háaleitis-
braut 1 og hefst
fundurinn kl. 10.00.
Dagskrá:
Kl. 10.00. Fundarsetning.
Kosning fundarstjóra.
Kosning ritara.
Kosning kjörnefndar.
Nefndakjör.
Kl. 10.15 Skýrsla stjórnar.
Umræöur.
Kl. 10.45 Ávarp, Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Kl. 11.15 Lagabreytingar (fyrri uiriræða). Lagðar fram ályktanir kjara-
og atvinnumálanefndar.
Kl. 12.00-13.00 Fundarhlé.
Kl. 13.00-14.00 Nefndastörf.
Kl. 14.30 Ræða, Ásmundur Stefánsson, forseti A.S.Í.
Kl. 15.00 Kaffihlé.
Kl. 15.30 Lagabreytingar (seinni umræða). Afgreiðsla ályktana -
umræður.
Kl. 17.00 Stjórnarkjör.
Fundarslit um kl. 18.00. s Stjórnin.
í dag, fimmtudaginn 30. mars eru 40 ár
liðin frá samþykkt Alþingis íslendinga um
inngöngu (slands í varnarbandalag vest-
rænna þjóða, Atlantshafsbandalagið. Ut-
anríkismálanefnd SUS og Heimdallur, FUS
minnast þessa merka atburðar með sam-
komu í Neðri deild Valhallar 30. mars kl.
17.00.
Inngangsorð: Davíð Stefánsson, formaður
utanríkismélanefndar.
Sýnd verður kvikmynd Vigfúsar Sigur-
geirssonar, „30. marz 1949“.
Ávörp: Gunnar Helgason, forstöðumaður
Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar, sem var
formaður Heimdallar árið 1949.
Magnús Þórðarson, uppiýsingafulltrúi Atlantshafsbandalagsins.
Lokaorð: Ólafur Þ. Stephensen, formaður Heimdallar.
Boðlð verður upp á kaffiveitingar og meðlæti.
Allir íslenskir lýðræðissinnar eru velkomnir. Sérstaklega eru þeir
boðnir úr röðum Heimdellinga og annarra sjálfstæðismanna, sem
vörðu Alþingishúsið fyrir kommúnistum fyrir 40 árum og stuöluöu
að varðveislu þingræðis og lýðræðis á l’slandi.
Utanrikismálanefnd S.U.S. og Heimdallur.
Umhverfismálahópur
málefnastarfs fulltrúaráðsins í Kópavogi og TÝS heldur fund í Hamra-
borg 1 í kvöld kl. 20.30. Umhverfisátak SUS kynnt. Önnur málefni. •
Allir sjálfstæðismenn velkomnir.
TÝR og fulltrúaráðið i Kópavogi.
Akureyri
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorn
Hádegisverðarfundur á Hótel KEA laugardaginn 1. aprfl kl. 12.00.
Efni fundarins: Málefni aldraöra á Akureyri. Framsögu flytur Birna
Sigurbjörnsdóttir.
Félagskonur mætið vel.
Stjómin.
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!