Morgunblaðið - 15.04.1989, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 15.04.1989, Qupperneq 19
38 MORMUNBUíHB loAUGARDAGUtt 15. APRÍL 1989 Sérfræðingar í Vísindanefnd hvalveiðiráðsins gagnrýndu tillögur þessar og lýstu yfir því að rann- sóknimar myndu ekki verða til þess að auka þekkingu manna á hvölum en íslendingar hafa neitað að gefa eftir. Forráðamenn Hafrannsókna- stofnunar íslands halda því fram að áætlunin sé mikilvægt framlag til hvalarannsókna en prófessor Gísli Gíslason, yfirmaður Líffræði- stofnunar Háskólans, hefur for- dæmt áætlunina og sagt hana vera vísindavændi. „Hvalveiðar í vísinda- skyni eru til þess fallnar að skapa slæmt fordæmi en þær vom hafnar til þess að unnt yrði halda uppi rekstri hvalstöðvarinnar, til að við- halda þekkingunni í landinu og til að halda mörkuðum erlendis opn- um.“ Rannsóknimar þykja ekki hafa skilað sérlega merkilegum niður- stöðum. „íslensku vísindamennimir hafa komist að því að sandreyður lítur nokkum veginn eins út í Norð- ur-Atlantshafi og í Norður-Kyrra- hafi,“ sögðu nokkrir þeirra sem fylgdust með fundi Alþjóðahval- veiðiráðsins á síðasta ári. Kjötið af hvölunum sem íslend- ingar kveðast drepa í nafni vísind- anna er reyndar selt til Japan. For- ráðamenn Hvals segja veiðamar ekki skila neinum hagnaði, tekjur séu ákvarðaðar með tilliti til kostn- aðar en afgangurinn renni í sér- stakan sjóð stjómvalda. Að sögn Kristjáns Loftssonar, eiganda Hvals, var veltan árið 1986 3,2 milljónir sterlingspunda (um 288 milljónir ísl kr.) sem þýðir að hver hvalur hefur gefið af sér um 27.000 pund (rúmar 2,4 milljónir króna). Talsmenn Hvals halda því einnig fram að einungis 49 prósent hval- lqötsins séu flutt út til Japan í sam- ræmi við reglur Alþjóðahvalveiði- ráðsins. Að sögn Kristjáns Lofts- sonar er afgangurinn seldur innan- lands. Hins vegar er ferðamönnum jafnan sagt að íslendingar neyti ekki hvalkjöts og starfsmenn Hag- stofunnar viðurkenna að neyslan innanlands sé svo lítil að menn hafi ekki fýrir því að fylgjast með henni. Japanir kaupa ekki einvörðungu allt það hvalkjöt sem þeir komast yfir heldur em þeir tíðir gestir í hvalstöðinni. Að sögn starfsbræðra þeirra á íslandi koma japanskir fulltrúar jafnan til landsins í upp- hafí vertíðar til að hafa eftirlit með vinnslunni og til að velja kjöt til útflutnings til Japan. „Þeir hafa eftirlit með því sem við emm að gera,“ segir Kristján Loftsson. Fram til þessa hefur íslendingum tekist að veijast hótunum Banda- ríkjamanna um að gripið verði til refsiaðgerða haldi þeir áfram að hundsa alþjóðlegar reglur um hval- veiðar. Helsta vopn Islendinga er herstöð Atlantshafsbandalagsins í Keflavík sem Bandaríkjamenn vilja ekki missa. Greenpeace-samtökin hófu í fyrra herferð sem miðaði að því að fá fyrirtæki og almenning til að w&aÆ. Hluti greinar Ros Reeve um hvalveiðar íslendinga í vísindaskyni. Stærri myndin er tekin í Hvalfírði en innfellda myndin sýnir fryst hvalkjöt á leið á Japansmarkað. kaupa ekki íslenskan fisk og var þetta lokatilraun samtakanna til að þrýsta enn frekar á íslendinga. „Kaupið ekki fisk frá slátrara," var helsta slagorð herferðarinnar. Stærstu kaupendumir í Bretlandi, Tesco og Birds Eye, hafa enn ekki orðið við þessu ákalli þó svo bæði fyrirtækin hafi lýst yfír stuðningi við sjónarmið Greenpeace í hval- veiðideilunni og forráðamenn Tesco hafi ritað viðskiptaráðherra íslands bréf þar sem lýst er yfir áhyggjum fyrirtækisins og viðskiptavina þess vegna hvaladrápanna. Hins vegar hafa fyrirtæki bæði í Bandaríkjun- um og Vestur-Þýskalandi rift nokkmm stómm samningum um kaup á sjávarafurðum frá íslandi. Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra hefur gert hvalveiði- deiluna að persónulegu baráttumáli sínu og sú afstaða hans að ekki beri að líða útlendingum að hafa afskipti af stefnu íslendinga hefur gert það að verkum að deilan varð- ar fyrst og fremst þjóðarstolt líkt og gerst hefur í Japan. Þar eð efnahagur íslendinga hvílir svo til eingöngu á fiskútflutn- ingi þeirra er hvalveiðideilan komin á mjög alvarlegt stig. Herferð Gre- enpeace er tekin að bera árangur og upp em komnar deilur á þingi vegna tillögu um að hvalveiðar verði stöðvaðar í þijú ár. Gamalreyndur félagi í Greenpace segir: „Takist að stöðva veiðarnar kann það að marka endalok síðustu hvalveiðiný- lendu Japana“. r » ......: 19 Auglýsing frá Byggðastofnun Smábátaeigendur Ríkisstjórnin hefur falið Byggðastofnun að kanna þörf smábátaeigenda fyrir stofnlán. Því er nauðsynlegt að þeir eigendur smábáta, sem hug hafa á að sækja um lán, geri það fyrir 1. maí nk. Skilyrði fyrir lánveitingu eru m.a. eftirfarandi: 1. Að báturinn sé minni en 10 brl. 2. Að hann hafi verið keyptur eða smíðaður á árunum 1987 eða 1988. 3. Að umsækjandi sýni fram á getu sína til að endur- greiða lánið. Athygli umsækjenda er vakin á því að, lánin verða verð- eða gengistryggð með markaðsvöxtum. Lánin verða einungis veitt gegn 1. veðrétti í viðkomandi báti. Ekki hefur verið ákveðið hvert hámarkslán verður, en það verður þó ekki hærra hlutfall en 1/3af verðmæti bátsins. Þeir eigendur, sem óska eftir láni, eru beðnir um að senda bréf til Byggðastofnunar Akureyri, Geislagötu 5, 600 Akureyri, sími 96-21210, fax 96-27569. Til- greina þarf ástæður umsóknar og umbeðna fjárhæð. Ljósrit af kaupsamningi skal fylgja með. Þeir, sem hafa nú þegar sent umsóknir til Byggðastofnunar, þurfa ekki að endurnýja þær. Þegar endanleg ákvörðun hefur verið tekin um upp- hæðir lána og útlánareglur, verður haft samband við umsækjendur og þeir beðnir um frekari upplýsingar. ÍSLANDS- MEISTARAKEPPNI í SAMKVÆMISDÖNSUM Keppt verður í öllum aldursflokkum í suður-amerískum' og standarddönsum. Dómarar eru frá Englandi og Danmörku, Leonard Morgan, Anne Lindgard og Borge Pedersen. Setningarathöfn hefst í íþróttahúsinu v/Strandgötu í Hafnarfirði laugardag- inn 15. apríl kl. 14.00. Á sunnudag hefst keppni kl. 11 f.h. í bamaflokkum. Verðlaunaafhending verður strax að lokinni keppni í hverjum flokki. Húsíð opnað 1 klst. fyrír keppni. HJÓLHÝSI - TJALDVAGNAR - SUMARHÚS - FERÐAVÖRUR RÉTTU SUMARGRÆJURNAR OPIÐ DAGLEGA KL 10-22 SKIPHOLTI 33 VIÐ HLIÐINA Á TÓNABÍÓI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.