Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 56
é SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VIÐ MIKLAGARÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JULI 1989 VERÐ I LAUSASOLU 80 KR. Flugfreyjuverkfalli afetýrt á elleftu stundu; Tillaga ríkissátta- semjara samþykkt Flugfreyjur fá einar sokkabuxur VERKFALLI flugfreyja hjá Flug- leiðum, sem hefjasí átti á mið- nætti í nótt, var afstýrt á ellefta tímanum í gærkvöldi. Féllust deiluaðilar þá á sáttatillögu Guð- laugs Þorvaldssonar ríkíssátta- semjara. Aður hafði verið gengið frá flestum atriðum samningsins, þar á meðal launaliðum, en þar til í gær strönduðu viðræðurnar á kröfu flugfreyja um að fá tvennar sokkabuxur á mánuði. Þá kröfu gáfii þær eftir en jafhframt var samþykkt að flýta einni launa- hækkun upp á hálft prósent um tvo mánuði. Að sögn Sigurlínar Scheving hjá Flugfreyjufélaginu eru flugfreyjur ánægðar með að lausn fannst á deil- unni og ekki þurfti að koma til verk- falls. Þetta hefði verið löng og ströng samningalota og niðurstaðan væri svipuð því sem hefði samist um við þær starfsstéttir sem þær ynnu með. k. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, segir að gengið hafi verið lengra til móts við flugfreyjur en flesta aðra hópa og ekki hefði verið hægt að verða við kröfu þeirra um tvennar sokkabuxur því til viðbótar. Á hinn bóginn hefðu Flugleiðir stað- ið frammi fyrir því, að röskun yrði á flugi 3.500 farþega á næstu tveim- ur dögum ef af verkfalli hefði orðið, þó að tekist hefði að fá leiguvélar til að sinna fluginu. Félagið hefði metið stöðuna þannig að það mætti ekki við röskun á flugi nú til við- bótar við þá sem þegar hefði orðið í sumar og sáttatillaga ríkissátta- semjara hefði verið viðunandi í stöð- unni. Talið væri að þessi samningur hefði í för með sér tæplega tuttugu prósenta launahækkun; 16-17% í ár og um 3% á því næsta. Hvalvertíð lýkur senn SEXTÍU og þrjár langreyðar eru komnar á land í hvalstöð- inni í Hvalfirði. Hvalvertíð gæti lokið í þessari viku ef veður leyfir. Leyfilegt er að veiða 68 lang- reyðar á þessari vertíð, sem er sú síðasta í vísindaáætlun Haf- rannsóknastofnunar. Morgunblaðið/Garðar Rúnar Sigurgeirsson Rútan dregin upp úr gilinu um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Líklega er rútan ónýt. Rúta með 28 manns hrapaði 40 metra niður í gil: Kraftaverk hve allir sluppu vel segir Guðmundur Sigvaldason fararstjóri FJÖRUTÍU manna rúta frá Guð- mundi Jónassyni, með 28 manns innanborðs, valt út af veginum á Möðrudalsöræfiim og hrapaði 40 metra niður í gilskorning. Þrátt fyrir að rútan færi tvær veltur á leiðinni og að allar rúður i henni utan tvær brotnuðu, sluppu flest- ir farþeganna með minniháttar meiðsli. Um var að ræða hóp norrænna jarðfræðinga og sagði fararstjóri hópsins, Guðmundur Sigvaldason, að það væri krafta- verk hve allir sluppu vel firá þessu óhappi. Hann vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um málið. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Egilsstöðum varð óhapp- ið um kl. 8.30 í gærmorgun. Rútan Skaftárhlaup hófst í gær; Búist er við að ið nái hámarki HLAUP í Skaftá hófst í gær og búast menn við miklu hlaupi að þessu sinni. Bændur i Skaftár- tungu urðu hlaupsins fyrstir varir um miðjan dag í gær og óx áin mjög hratt fram eftir kvöldi, eða um 20 cm á klukkutíma, að sögn *Gylfa Júlíussonar, vegaverkstjóra í Vík. Fjallabaksleið nyrðri, veginum frá Skaftártungu inn að Eldgjá, var lok- að í gærkvöld, en mikil hætta er á að vegurinn skemmist í Skaftár- hlaupi, að sögn Gylfa. Náð var í hóp ferðafólks, sem statt var inn við Eldgjá, í gærkvöldi til að forðast að það lokaðist inni ef vegurinn skemmdist vegna vatnavaxta í ánni. Sólarhringsvakt hefur verið yfir ánni frá því í gær, en heimamenn búast við að hlaupið nái hámarki sínu í kvöld. Oddsteinn Kristjánsson, bóndi í Hvammi, fór inn að Eldgjá í gærkvöldi til að leita að ferðafólki og voru allir, 20-30 manns, komnir til byggða á ellefta tímanum. Þá var jafnframt farið að renna úr ánni eftir veginum og óttast var að hann kynni að grafast í sundur í nótt. Á fimm tímum, frá kl. 17.00 til 22.00, . óx áin um 70 cm. Siguijón Rist, vatnamælingamað- ur, sagði í samtali við Morgunblaðið að Skaftárhlaup hefðu orðið um það bil á tveggja ára fresti allt frá árinu 1955. Síðast hljóp Skaftá í ágúst í fyrra. „Það myndast svokölluð ketil- sig í Skaftáijökli. Eldvirkni gerir það að verkum að hiti undir jöklinum bræðir frá sér á tveimur til þremur stöðum þannig að mikið vatn safn- ast saman og brýst síðan fram í Skaftárhlaupum. Stærð hlaupanna hefur verið allt frá 50 og upp í 250 gígalítra," sagði Siguijón. Hann sagði að hlaupið væri fyrst sjáanlegt þegar það kæmi undan jöklinum við bæinn Skaftárdal rétt sunnan við Langasjó. Það rynni síðan í Skaftá og sem leið liggur niður í sjó í gegn- um Kúðafljót annars vegar og hins- vegar austur hjá Kirkjubæjar- klaustri og niður í sjó um svonefnd- an Skaftárós. Siguijón sagði að hlaupin gætu komið á hvaða tíma árs sem væri, algengust væru þau þó í leysingatíð. Venjulega er farið að minnka í ánni eftir þriggja daga hlaup, en vatna- vextimir ná hámarki sínu eftir einn til einn og hálfan sólarhring. Hann sagði að Skaftárhlaupum fylgdi oft mikil brennisteinsfýla og væri lyktin oft fyrsta vísbendingin um hlaup í ánni. Lyktin fyndist jafnvel í Reykjavík, ef vindáttin stæði þannig. hlaup- í kvöld Hinsvegar virtust suðvestlægar áttir vera ríkjandi nú þannig að brenni- steinsfnykurinn bærist þá helst inn á hálendið. var að fara niður bratta brekku austan í eystri fjallgarðinum skammt frá Lónakíl. í brekkunni er kröpp beygja og er bílstjóri rút- unnar ætlaði að hægja á henni við beygjuna reyndust hemlar rútunnar óvirkir. Skipti engum togum að rútan fór fram af veginum og valt 40 metra niður í gilskorning. Á leið- inni mun bílstjórinn og tveir far- þeganna hafa kastast út um fram- rúðuna. Örskömmu eftir óhappið lét fólk er leið átti um veginn vita af því sem gerðist. Sendir voru tveir sjúkrabílar, ásamt tveimur lækhum, á staðinn frá Egilsstöðum. Einn farþeganna var strax fluttur til Grímsstaða þar sem flugvél sótti hann og flaug með hann á sjúkra- húsið á Akureyri en talið var að hann hefði skaddast innvortis. Við skoðun reyndist svo ekki vera en hann var viðbeinsbrotinn og nokkuð marinn. Annar farþegi var sendur með sjúkraflugi frá Egilsstöðum til Akureyrar til nánari skoðunar síðdegis í gær. Aðrir farþegar voru fluttir á heilsugæslustöðina á Egilsstöðum og reyndust hafa sloppið með minniháttar skrámur og mar utan einn sem skarst illa á andliti. Lög- reglan á Egilsstöðum tekur undir með Guðmundi Sigvaldasyni að það sé kraftaverki líkast hve vel farþeg- arnir sluppu úr þessu óhappi. Grafa og veghefill voru sendir á slysstað til að ná rútunni upp úr gilskorningnum en hún mun mikið skemmd og óvíst hvort hún kemst á götuna aftur. Mikil hlýindi um allt land 22,7 stiga hiti á Egilsstöðum í gær HEITT hefiir verið í veðri um allt land undanfarna daga og verð- ur að öllum líkindum áfram fram á föstudag samkvæmt upplýsing- um veðurstofunnar. Fór hitinn víða yfir 20 stig á Norður- og Aust- urlandi í gær. Hlýindunum fylgja vatnavextir í jökulám og lokað- ist hringvegurinn um tíma um helgina er Virkisá í Oræfasveit rauf skarð í veginn. Verði framhald á þessum hlýindum er talin hætta á mildum jökulleysingum og verulegum vexti í ám af þeim sökum. Mestur hiti á landinu í gær var 22,7 stig á Egilsstöðum. A Akur- eyri mældist hitinn 21,5 stig. Mest- ur hiti í Reykjavík í gær var 14 stig. Heitur lofthjúpur er yfir landinu þessa dagana og er svokölluð frostlína I 10 til 11 þús. feta hæð en það gerist að öllu jöfnu ekki nema einu sinni til tvisvar á ári. Er gert ráð fyrir að lofthjúpurinn verði áfram yfir landinu næstu daga og að hitinn verði 8 til 10 stig sunnanlands fram á föstudag en að hann hækki upp I 13 stig á föstudag. Hitanum fylgir úrkoma sunnanlands næstu tvo daga en með suðaustanáttinni á fimmtudag og föstudag fer að rigna. Samkvæmt upplýsingum vega- eftirlitsmanna er fært um Sigöldu í Landmannalaugar. Vegurinn um Uxahryggi er fær og jeppar og stærri bílar komast um Kjöl. Þá er hægt að komast að norðan í Kverkijöll og Öskju en Sprengi- sandur er ófær. Er áætlað að kanna leiðina að sunnan og norðan um næstu helgi en mikill snjór er þar enn og mikið vatn í öllum jökul- ám. Að sögn Árna Snorrasonar, for- stöðumanns vatnamælinga Orku- stofnunar, hefur snjóa nú leyst víðast hvar á landinu, nema á mið- hálendinu og hæstu heiðum aust- anlands. Vöxtur í ám nú stafi af jökulleysingum vegna hlýindanna að undanförnu. Hingað til hafi vöxtur einkum orðið í smærri ám, en stóru vatnsföllin þurfi hins veg- ar lengri tíma til að ná miklum vexti. Verði framhald á hlýindun- um megi búast við verulegum vatnavöxtum í stærri jökulánum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.