Morgunblaðið - 20.08.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.08.1989, Blaðsíða 1
PATPONG GATA GLEDI - OG SORGAR OPNA GCÐ ER HEBi GUÐFAÐIR GR/ENINGJANNA Erlend Hrtngsjá 14 SUNNUDAGUR 20. ÁGUST 1989 SUNNUPAGUR BLAÐ ÞAI) eftir Brynju Tomer er haust árið 1912. Sögusviðið er Clavad- el-heilsuhælið i Sviss. Aðalpersónur Dala Diakonova og Paul Grindel. Hún er rússnesk og hann fransk- ur. Faðir hans er þekktur fast- eignasali í París en Paul notar ættarnafn móðurömmu sinnar, Éluard. Bæði eru ung og berkla- veik og eiga eftir að skrifa langa kafla í listasögu aldarinnar, hvort á sinn hátt. Gala fæddist inn í listræna og menningarlega sinnaða borgarfjöl- skyldu í Moskvu. Hún var elst þriggja systkina og hlaut „vestrænt uppeldi". Hún talaði og skrifaði frönsku eins og móðurmálið frá því hún var sjö ára. Hún las og lærði mikið, og dýrkaði Dostoievsky. Hún var veikbyggð en afar heillandi og þegar hún var 16 ára var henni boðið á dansleik sem skipulagður var tii að leita að konuefni fyrir keisarann. Hún var glæsileg, klædd skósíð- um svörtum pels þegar hún lagði af stað í ferðalagið frá Moskvu til Sviss. Eftir skamma dvöl á heilsu- hælinu kynntist hún Paul. Það fór ekki fram hjá neinum, hvorki hjúkrunarliðinu né öðrum að þau voru ástfangin, en það var einnig þessi óseðjandi þorsti eftir list og þekkingu sem tengdi þau. Paul var 17 ára og ákveðinn í að verða skáld, Gala var ákveðin í að standa við hlið hans alla ævi og örva hann til dáða. Hún var yrkisefiii aldarinnar Gala átti reyndar eftir að örva ýmsa listamenn til dáða seinna á lífsleiðinni. Hún hafði einstök mýstísk áhrif á menn og varð oft eitt helsta viðfangsefni þeirra. Skáldin ortu til hennar ástar- og dýrðarljóð og málararnir gerðu hana ódauðlega með olíu á striga. Hún málaði hvorki né skrifaði sjálf, en hlutverk hennar í listasögu ald- arinnar virðist hafa verið að vera yrkisefni. Þegar Gala og Paul voru saman á heilsuhælinu, hvatti hún hann til að koma ljóðum sínum á framfæri. Hún leitaði sjálf uppi útgefendur og sannfærði þá um hæfni unnusta síns. í kjölfarið var gefið út fyrsta ljoðasafn Pauls Éluards. Foreldrarnir lítt hrifiiir Þegar Paul tilkynnti foreldrum sínum frá trúlofun þeirra Gölu varð uppi fótur og fit í fjölskyldunni. Sérstaklega var móðir hans á móti sambandinu og sennilega hafa af- brýðissamar tilfinningar haft mikil SJÁ NÆSTU SÍÐU Hún fæddist í Rússlandi 1 893, giftist ung Paul Éluard skáldi sem elskaói hana meðan hann lifði og deildi henni meðal annars með málaranum Max Emst. Þá kom Salvador Dali til sögunnar. Hann vildi hafa hana hjá sér — alltaf — og hún hvatti hann og hjálpaði honum á sinn einstæða hátt til að verða einn af stórmeisturum aldarinnar Gala var helsta viðfangsefni Salvadors Dali. Þessi mynd er í eigu Dalileikhússafnsins í Fig- ureras.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.