Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.10.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. OKTOBER C 3 í i u¥‘ i ? iíií n ííumiifiíutiíHiisí; mm mmimmmmumuimmmMímmimmm dæmi hafi komið upp við aðra grunnskóla. Hinsvegar ber að geta þess, eins og Gunnar bendir raunar á, að unglingar eru yfirleitt mjög tregir til að gefa upplýsingar um áreitni af þessu tagi. Kvikmyndir og myndbönd áhrifavaldar Þeir aðilar sem sæti eiga í undir- búningsnefnd þeirri sem vinnur að herferðinni „Unglingar gegn of- beldi“ hafa að sjálfsögðu velt fyrír sér spurmngunni um ástæður of- beldisins. Árni Guðmundsson æsku- lýðsfulltrúi í Hafnarfirði segir að ofbeldið sé mjög tengt notkun áfengis og fíkniefna. Einnig megi nefna ýmsar einstaklingsbundnar ástæður eins og erfiðar heimilisað- stæður en kvikmyndir og myndbönd eru stórir áhrifavaldar. „Ég tel að sá fjöldi glæpamynda sem unglingar sjá gefi þeim mjög brenglaða mynd af því hvernig þeir eigi að leysa eigin vandamál," segir Árni. „í þessum myndum eru flest vandamál leyst með ofbeldi og ungl- ingar læra þar að leysa sín mál með barsmíðum." miðstöðva, skátá, ungmennafélaga og lögreglu auk æskulýðsfulltrúa. Sveinn Ottóson var fundarstjóri og gerði hann í upphafi grein fyrir forsögu þess að undirbúningsnefnd- in hóf þetta starf sitt. í málí hans kom fram að starfsmenn útideildar í Reykjavík hefðu í æ ríkari mæli orðið varir við ofbeldi í starfi sínu. Þar að auki hefði verið ráðist á einn starfsmann útideildar á síðasta vetri. Hefðu starfsmennirnir staðið ráðþrota og úrræðalitlir um hvernig bregðast ætti við vandanum. Síðan hefði kviknað sú hugmynd að standa fyrir færðslu- og kynningar- herferð meðal unglinganna sjálfra og fá sem flesta aðila, sem vinna með unglingum, til samstarfs. Upp- haflega átti herferð þessi að vera sl. vor en var frestað vegna verk- falls kennara. Henni var þó haldið á lífi og grundvöllur hennar breikk- aður þannig að nú er ætlunin að ræða einnig um félagslegt og kyn- ferðislegt ofbeldi unglinga auk hins Iíkamlega og andlega. Ómar Smári Ármannsson aðstoð- ar yfirlögregluþjónn í forvarnadeild Reykjavíkur sat þennan fund. Hann segir að hér á landi sé að verða beldi. Þær fela m.a. í sér þemaverk- efni um efnið, fræðslukvöld eins og tíðkast hafa í félagsmiðstöðvum, unglingar geri könnun á viðhorfum jafnaldra sinna í hverfinu á ofbeldi, unglingar vinni sérstakt fréttablað sem tengist þessu þema, og sýnd verði mynd um þetta efni í sjón- varpi sem unglingar gætu síðan rætt um í hópum á eftir. Ein af hugmyndunum er að fá unglinga til að kanna hlutfall of- beldis í sjónvarpi og gætu þau þá sjálf skilgreint hvað er ofbeldi og hvað ekki. Markmiðið með þessu væri að fá unglingana til að skoða og horfa á sjónvarp og kvikmyndir með gagnrýnu hugarfari. í tengslum við herferðina „Ungl- ingar gegn ofbeldi“ sem fara á í næsta mánuði er verið að útbúa sérstakt veggspjald og barmmerki. Þá munu strætisvagnar verða merktir þær vikur sem herferðin stendur. En meginmálið er að fá ungling- ana til að taka þátt í þessu starfi, færa umræðuna tíl þeirra sjálfra og fá þá til að hugsa um þessi mál. Slysadeild; prír & d&S með áverka afvöldum oflieWis........ fSS-í'EKJSf jsiswríMs tneöaUaW fyT^verka vegna of s;‘«csr;s'’3* k.Enlm vegna UK ___að 1 ro,ðSEJ; up-eg'an - Kvöldi til uro h skipad starís- Reykjaviii Uefu' “ mónnum. saro hóp, sWPað.akfn„a ástandiö í rollað er‘í koma roeð fi °«UJrr umniim oe Kon. „a cu\\a af ser 'gzz ?*£»**» -a- , (nóvember rúrrtiega Oflbeldishneigö vanda- 1 mál meðal ungling-a I? «1 kiím 4 A 4—.. „ flj * A 1 . Ráðist á tvo pilta í Árbæ, annar sleginn og hinn brenndur OFRF.I.niSHMPinr* — a r=,?»“,NEIGÐ mí,!la! u"Kli"8ia cr dhyggjuefni forráðamanna felagsmiðstbðva, grunnskola og annarra sem meðal unglinga sb l Ilestum hverfum borgarinnar og nágrannasvei — saman lítill hópur unglinga scm beitir b---,s ^ barsmíðar og hefndaraðgerðii nágranna. í síðustu 1 " hvcrfi, til að undirbúa sér- •rð gegn ofbeldi sem 1 efna til í félagsmið- ^grunnskólum í nóv- félagsmið- [orgunblaðið ra?ddi um að þótt þau •u rakin hafi átt larhverfi eigij Vlestu] verki á\ hrclldu \dtvaS ofb® \v*ö**£ jtrður borg' ...ssvkb' ÖSPU ■» wcrÍwP)“"" f,v»g,rcf v,m»ro m*» \Vng“ KW." aíis'0 seW Viat" thV*V' bró°° vóð bcss° bcssa VVAD g\U ÓrvAfl' IW1 IVA'’ befur uug iiW \>ar rtðS rbve botgtt VkW'" sagð' i\W v Wvð SíttttTí .1 V Ofbeldi unglinga hefur nokkuð verið i fréttum að undanfornu. Hnífar sem lögreglan hefvir tekið af unglingum. „Butt- erfly“ hnífur er milli baugf- ingurs og löngutangar. Sveinn Ottósson starfsmaður úti- deildar, sem einnig á sæti í nefnd- inni, tekur undir með að áfengi sé iðulega með í spilinu. „En hjá ungl- ingunum tengist þetta einnig því að vera „töff“ þó þeir geti ekki skilgreint það hugtak nánar,“ segir Sveinn. „Við hjá útideildinni viljum meina að hluti af þessum slagsmál- um og ofbeldi unglinga séu afleið- ing tilfinninga hjá þeim sem þeir geta ekki ráðið við að fengið útrás fyrir á annan hátt.“ Árni Stefán Jónsson tekur undir þau sjónarmið að kvikmyndir og myndbönd séu áhrifavaldar. „Mað- ur sér samiíkingarnar við mynd- bönd og kvikmyndir greiniléga. Eftirmyndin er til staðar í þeim,“ ségir Árni Stefán. Brugðist við vandanum Undirbúningsnefndin sem vinnur að herferðinni efndi til fundar í Tónabæ í síðustu viku. Á fundinn voru boðaðir fulltrúar skóla, félags- sama þróun og átt hefur sér stað á hinum Norðurlöndunum. Nauð- synlegt sé að bregðast við þeirri þróun strax og reyna að kæfa hana í fæðingu. I Svíþjóð til dæmis varð málið það alvarlegt að stofnaðir voru hópar svipaðir The Guardian Angels eða „Rauðu húfurnar“ til að hafa eftirlit með verstu stöðun- um. Og þar í landi hefur verið mik- il umræða um þetta vandamál. Ómar Smári segir að lögreglan fagni því starfi sem unnið hefur verið í títtnefndri undirbúnings- nefnd og muni lögreglan leggja þessu framtaki lið eins og kostur er. Hugmyndir nefndarinnar Soffía Pálsdóttir forstöðumaðdr félagsmiðstöðvarinnar Fjörgyn í Grafarvogi var ein af framsögu- mönnum fundarins í Tónabæ en hún á einnig sæti í nefndinni. Hún ræddi um nokkrar af þeim hagnýtu leiðum sem hægt er að fara til að vekja unglinga til umhugsunar um of- ÞETTA VAR BARA FYLLERÍISRU6L „GOSI“ (ath. naftiinu breytt að ósk viðmælenda) er 17 ára gamall fyrrum meðlimur í „Fellagenginu“ einni af unglingaklíkum. Hann segir, í samtali við Morgunblaðið, að mest af þeim átökum og ofbeldi sem hann lenti í með félögum sínum úr klíkunni fyrrum hafi verið lítið annað en fylleríisrugl. Yið lentum oft í slagsmálum ef við fórum f miðbæinn um helgar.Og iðulega enduðu þau slagsmál með því að okkur var stungið í steininn," segir Gosi. „Þetta var orðið svo algengt hjá okkur á tímabili að þótt við ættum ekki upphafið að látunum eða jafnvel vorum aðeins í grennd við átök tók lögreglan oft sem gefið að við hefðum staðið að þessu og hirti okkur.“ í máli Gosa kemur fram að í klíkunni hefðu verið um þijátíu einstaklingar bæði piltar og stúlkur. Þótt eiginlegur leiðtogi eða foringi hafi ekki verið til staðar var samt um ákveðna goggunarröð að ræða og réðist virðing einstaklinganna innan klíkunnar einkum af tvennu, aldri viðkomandi og hæfni hans til að slást. RJETT VID FYRRUM MEDLIM Í..FELLA GENGINU" Þegar Gosi er Spurður um hvaða orsakir hafi legið að baki þessu ofbeldi verður fátt um svör. „Ég pældi lítið í því á sínum tíma en áfengi var yfirleitf með í spilinu. Og það þurfti ekki mikið til að æsa okkur upp ef við vorum á fylleríi. Það þurfti kannski ekki annað en að stjakað væri við manni, jafnvel óvart, og maður svaraði því með hnefahöggi.“ Annað sem Gosi nefnir til sögunnar sem ástæðu ofbeldisins var sú keðjuverkun sem getið er um í upphafi þessarar greinar. Hann nefnir dæmi þar sem „Fellagengið“ beinlíns mælti sér mót við aðra klíku, „Vesturbæjarklíkuna“, til að gera út um eitthvert ágreiningsefni með allsheíjar slagsmálum. „Þá mættum við fimmtíu saman niður í miðbæ en þeir mættu ekki,“ segir hann. „Ef ég man rétt var ástæðan fyrir því að við vildum slást við þá sú að þeir höfðu lamið vin okkar, sem raunar var ekki í „Fellagenginu" heldur úr sama hverfi ogvið.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.