Morgunblaðið - 22.11.1989, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1989
„ Hir. domocri, Kam e/- að ó/eiia.
VitriicS. "
Já ’ann er heima núna því
hann fylgist með spennu-
þættinum Morðið í hjólbör-
unum.
\ < ^ ICZ-'
— O —
Jú, konan min er heima.
Það segir sig sjálft úr því
ég verð að slá blettinn ...
Hæpin Ijár-
festing
Til Velvakanda.
Nú nýlega bættist við enn eitt
glæsilegt fiskiskip í flota lands-
manna, frystitogarinn Júlíus Geir-
mundsson. Hann mun vera
smíðaður í Flekkefjord í Noregi,
svo ekki fengu íslenskar skip-
asmíðastöðvar það verkefni, og
mun hafa kostað 440 milljónir
króna, enda mun hann vera glæsi-
legastur íslenskra fiskiskipa eins
og reyndar er sagt um öll ný fiski-
skip þegar þau koma. Þar eð hann
er frystiskip mun hann skapa litla
sem enga atvinnu í landi heldur
nýta sameiginlega auðlind lands-
manna í þágu eigenda og áhafnar.
Nú mun varla vera um það
deilt að fiskiskipaflotinn er alltof
stór og ekki heldur um ofíjárfest-
ingu í honum. Þarna munu því
erlendar skuldir þjóðarinnar hafa
aukist um 400 milljónir og vorum
við þó fyrir ein skuldugasta þjóð í
heimi.
Næsta ár verður þriðja sam-
dráttarárið í röð í íslensku efna-
hagslífi. Fiskistofnarnir eru of-
veiddir og sumir segja að þorsk-
stofninn sé kominn að hruni.
P *■- »«* .^* * A ' ' '1
RJÚPNAVEIÐIMENN
Treystið öryggi ykkar sem
mest í hverri veiðiferð. Gætið
þess .ávallt að skotvopn ykkar
séu í fullkomnu lagi og vel hirt.
Hafið meðferðis áttavita og
kort og búnað til ljós- og^hljóð-
merkjagjafa. Hefjið veiðiferð-
ina árla dags og ljúkið henni
áður en náttmyrkur skellur yfir.
Verið ávallt stundvísir á
áfangastað.
Okkur veitir því ekki af að takast
á við þennan vanda og skapa ný
verðmæti í þjóðarbúið til að skapa
betri lifskjör og borga skuldir
okkar.
Til Velvakanda.
Stofnun hér í borg var með
könnun á tekjum fólks og kom
það fram i fjölmiðlum 9. og 10.
þ.m. Þar kemur fram að heildar-
tekjur fullvinnandi karla voru um
123 þúsund á mánuði, og þá hlýt-
ur að vera átt við meðaltekjur, þó
það komi hvergi fram í könnun-
inni. En við vitum að sumir hafa
meira, aðrir minna eins og gengur.
Meðalkaup 23 aðildarfélaga
Dagsbrúnar er 10.692 á viku eða
46.312 kr. á mánuði. Er þá miðað
við kaup eftir að starfsmaður hafi
unnið í greininni í 3 ár.
Hvað þarf Dagsbrúnarmaður
að vinna mikla yfirvinnu til að
hafa 123.000 kr. á mánuði. Kaup-
ið í yfirvinnu væri 481 kr. á klst.
Dæmið yrði svona:
Því er það áleitin spurning
hvaða aukningu á þjóðartekjum
þessi nýja fjárfesting muni skila.
Ásgeir Leifsson
123.000-46.312 = 76.688,481 =
159 ’klst. á mánuði í yfirvinnu,
það gerir um 7 klst. á dag 5 daga
vikunnar í yfirtíð. Semsagt meðal-
Dagsbrúnarmaður þarf að vinna
15 klst. á dag. Víða lýkur dag-
vinnu kl. 16 og þyrfti Dagsbrúnar-
maðurinn að vinna til 23 álla 5
daga vinnuvikunnar. Skyldi sá
maður ekki vera orðinn lúinn eftir
vikuna, skyldi honum veita af að
hvíla sig laugardag og sunnudag
til að vera tilbúinn í slaginn á ný.
En hvar býðst svona mikil yfir-
vinna í dag. Ég veit að öfugt við
aðrar þjóðir sækjast íslendingar
eftir yfirvinnu, því miður, og er
yfirvinna komin inn í samninga
sumstaðar, þ.e. að lágmarksyfir-
vinna skuli vera og er skömm að
því að slíkt skuli vera í samning-
um.
K.S.
YFIRVINNA
HÖGNI HREKKVÍSI
Yíkverji skrifar
Um árabil hafa verið viðvaranir
á sígarettupökkum, þar sem
greint er frá því, að reykingar séu
hættulegar heilsu manna. í síðustu
viku gengu í gildi lög í Bandaríkjun-
um, sem skylda framleiðendur á öli
og öðrum áfengum diykkjum til að
hafa viðvaranir á framleiðslu sinni.
Á slík viðvörun að vera á öllum
slíkum dósum eða flöskum í Banda-
ríkjunum frá og með föstudeginum
17. nóvember. Á ílátunum skal
standa:
„Viðvöiun frá stjómvöldum:
(1) Landlæknir segir að konur eigi
ekki að drekka áfengi á meðan þær
eru þungaðar vegna hættu fyrir fóst-
rið. (2) Neysla áfengis minnkar getu
þína til að aka bifreið eða vinna við
vélar og kann að valda heilsutjóni."
Samkvæmt reglunum eiga allar
dósir og flöskur með áfengi á banda-
rískum markaði, hvort heldur þær
eiga uppiuna sinn þar eða erlendis,
að bera þessa viðvörun. Séu ílátin
fyrir 23,6 sentilítra eða meira á við-
vörunin að véra skráð með stöfum
sem ekki eru minni en tveir millimetr-
ar á hæð. Ef ílátin eru minni getur
viðvörunin verið með eins millimetra
stöfum.
xxx
Fréttir herma, að ýmsir telji þess-
ar reglur of óljósar, þar sem
ekki sé sagt, hvar á ílátin eigi- að'
setja viðvörunina eða hvemig letur
eigi að nota. Hér verður ekki staldr-
að við framkvæmdina á þessum
bandarísku reglum, heldur þá stað-
reynd að þær skuli hafa verið settar
og hrundið í framkvæmd.
Við skulum nefnilega minnast
þess, að hér á landi er það einmitt
ríkið sem einokar sölu á þessum
heilsuspillandi vamingi og tóbaki að
auki. Ér þetta ein af mörgum þver-
sögnum sem við stöndum frammi
fyrir, þegar við metum forsjá ríkis-
ins. Ríkið myndi líklega ekki líða
mörgum hér á landi að bjóða á al-
mennum markaði vaming með sams-
konar viðvörun og er á tóbaki hér á
landi. Nú hlýtur sú spuming að
vakna, hvort ekki eigi að fara að
dæmi Bandaríkjamanna og vara al-
menning við áfengisneyslu hér með
svipuðum hætti og þeir gera hjá sér.
xxx
Víkveiji fór með erlendu kunn-
ingjafólki í ferð til Þingvalla og
til Gullfoss og Geysis í fögru verði á
sunnudag. Gestimir heilluðust mest
af hverasvæðinu við Geysi. Var ævin-
týri líkast að ganga þar um í vetrar-
stillunni. Fjöldi ferðamanna var þar,
að minnsta kosti miðað við árstíma.
Viðurgemingur í Hótel Geysi var eins
og best verður á kosið.
í góðum bílum sem eru vel búnir
til vetrarferða og traustir þótt hálka
sé á vegum er ekki síður ánægjulegt
að sýna blessað landið í vetrarklæð-
um en sumarskrúða. Til þess að auð-
velda slík ferðalög er mikils virði, að
jafn góð þjónusta skuli veitt allan
ársins hring og unnt er að fá í Hót-
el Geysi.