Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990 Börn sem safnað hafa til hjálparstarfs R.K.Í.! Rauöi Kross (slands býöur ykkur öllum aö kynnast afrískum jólum á morgun kl. 14-16 á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18. DAGSKRÁ 1. Hvenær eru jól í Afríku? 2. Hvernig eru jólin undirbúin? 3. Er jólasveinninn til í Afríku? 4. Eru gjafir á jólunum í Afríku? 5. Hvernig er jólaborðhaldið? 6. Hvað kosta jólin í Afríku? Svör viö þessum spurningum og fleirum koma fram á skemmtuninni. Verið velkomin! Rauði Kross íslands Auglýsing frá ríkisskattstjóro: VÍSITALA JÖFNUNAR- HLUTABRÉFA Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1990 og er þá miðað við að vísitala 1.janúar1979 sé100. 1. janúar 1980 vísitala 156 l.janúarl981 vísitala 247 1.janúarl982 vísitala 351 l.janúarl983 vísitala 557 l.janúarl984vísitala 953 1. janúar 1985 vísitala 1.109 l.janúar 1986 vísitala 1.527 l.janúarl987vísitala 1.761 1. janúar 1988 vísitala 2.192 l.janúar 1989 vísitala 2.629 l.janúar 1990vísitala 3.277 Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgun hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar við vísitölu 1. janúar þess árs sem ? útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin. \ Reykjavík 2. janúar 1990 RSK ! RÍKISSKATTSTJÓRI Undir oki alspryngis Til Velvakanda. Jón Þ. Haraldsson skrifar í Vel- vakanda 30. des. 1989 og kann ég honum þakkir fyrir að halda uppi umræðum um „alspryngið", enda var sá tilgangurinn með skrifum mínum að koma slíku af stað. Fyr- ir utan smávegis orðaskilmingar milli okkar Jóns, sem vonandi urðu hvorugum til meins eram við í raun- inni samheijar, því að hvorugum er gefið um „alspryngið“. Svo hefur mér verið farið í meir en þrjátíu ár, að mér hefur fundist það vera hið mesta kvalræði að búa undir væng þessarar upprunasögu, sem er rétt eins og hún væri tekin upp úr fyrstu Mósebók. En nú sér fram á betri tíma og „vetrarbrautavegg- ur“ sá sem Geller og Hucha hafa nýlega fundið ásamt nýrri kvasar- vetrarbraut Maartens Schmidts, ganga þvert á líkön þeirra, sem héldu að þeir gætu sett alheiminum takmörk. Síst vildi ég verða til þess að draga úr viðleitni manna til sjálf- Látiðúti- ljósin loga Blaðburðarfólk fer þess á leit við áskrifendur að þeir láti útljósin loga á morgnana núna í skammdeginu. Sérstakiega er þetta brýnt þar sem götulýsingar nýtur iítið eða ekki við tröppur og útidyr. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. stæðrar og gagnrýninnar hugsunar og tek ég þar undir með Jóni Þ. Haraldssyni. Þó að við metum og virðum starf vísindamannanna meir en f lest ann- að er sá galli á gjöf Njarðar, þar eins og annars staðar í mannlegu félagi, að mörgum hættir til. að ganga um of saman í hópum. „Dell- ur“ koma stundum upp í vísinda- heiminum, innan um allt sem vel er gert. Ein þeirra var alspryngis- kenningin; önnur var kenningin um að hvergi væru jarðstjörnur nema með þessari sól sem okkur skín. Slíkt var ekki annað en hégilja og það er af misskilningi ef menn halda eins og oft heyrist sagt, „að rangar kenningar leiði til réttrar niður- stöðu“. „Hverju ég aldrei trúði“ skrifaði Þorsteinn Jónsson á Úlfsstöðum eitt sinn á níræðisaldri sínum og taldi upp nokkrar kenningar af því tagi sem hann hafði mætt á lífsleið sinni. Ein þeirra var alspryngis- kenningin sem nú hefur loks hlotið verðugt nafn á íslensku - í andláti sínu. Þorsteinn Guðjónsson Börnin í umferðinni eru bömin okkar. Þar sem þau eru á eða við akbrautir, er nauðsynlegt að sýna sérstaka aðgát. Öll viljum við vernda börnin fyrir hættum í umferðinni. Það gerum við best með því að sýna gott fordæmi. Víkverji skrifar Víkveiji á góðar endurminningar frá sumarvinnu á Eyrinni fyrir 25 árum. Hann var svo heppinn að komast að sem fastamaður í gengi 6 og hafði því fasta vinnu allt sum- arið. Sumir voru ekki eins heppnir og höfðu stopulli vinnu. Á þessum árum var tæknin skammt á veg komin við hafnarvinn- una, a.m.k. ef mið er tekið af því sem þekkist í dag. Kassavara var á tré- brettum en sekkjum var staflað í lestir skipanna og þeir síðan hífðir í land í stroffum. Það gat tekið nokkra daga að ferma og afferma skipin. Kjamakarlar unnu við höfnina, sem gaman var að vinna með. XXX Víkveiji rifjar þetta upp hér af því tilefni að á dögunum bauðst honum að fara í skoðunarferð um athafnasvæði Eimskipafélags Islands í Sundahöfn. Tækniframfarir við uppskipun eru með ólikindum mikl- ar. Gámar hafa leyst bretti og stroff- ur af hólmi. Stórvirkir kranar hífa gámana frá borði á skömmum tíma. Stórir lyftarar aka með þá inn í vöru- skemmur, þar sem þeir eru affermd- ir. Merkileg sjón var að sjá frysti- gáma í röðum eins og hjólhýsahverfi í Flórída! Víkveija varð hugsað til gamalla daga, þegar fiskurinn var hífður um borð í netum og honum staflað í léstar frystiskipa. Þessi nýja flutningaaðferð hlýtur að bæta veru- lega meðferð á dýrmætri vöru. Skoð- unarferð Víkveija um Sundahöfn sannfærði hann um að vel hefur ver- ið haldið á málum hjá Eimskipafélag- inu. xxx Heimsókn í Laxfoss, stærsta skip íslenzka flotans, var ekki síður athyglisverð. Skipið er hvorki meira né minna en 174 metra langt. Að koma í lestir skipsins er eins og að koma inn á stóran íþróttaleikvang! Aðbúnaður skipveija og farþega er 1. flokks enda kom í ljós að fullbók- að var í farþegarými skipsins í allar ferðir í fyrrasumar. Boðið var til matarveizlu og var það ósvikinn matur upp á gamla mátann. Víkveiji getur vel hugsað sér að fara í Evrópu- reisu með Laxfossi einu sinni til til- breytingar frá flugferðum. XXX Morgunblaðið birti frétt í gær um merka nýjung hjá Heilsuvemd- arstöðinni í Reykjavík, þ.e. tilraunir með nefúðun gegn reykingum. Er skemmst frá því að segja að símam- ir á Heilsuvemdarstöðinni urðu rauð- glóandi og um hádegið í gær var búið að fullbóka á námskeið fram í apríl. Þetta sýnir að þeir era margir sem vilja losna úr viðjum tóbaksins. Hugs- anlega hafa einhveijir strengt ára- mótaheit og viljað reyna þessa nýju aðferð. Þetta kann líka að reynast lausn fyrir þá reykingamenn, sem eru svo djúpt sokknir að engar aðrar aðferðir hafa dugað á þá, hvorki dávaldar, nikótíntyggjó né annað. Víkveiji þekkir svona menn og hefur fylgst með baráttu þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.