Morgunblaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JUNI 1990 19 hug sinn tii þess hvaða skref hann vill stíga næst, til þess að vinna að þeirri hugsjón sinni að hér verði til jafnaðarmannaflokkur á evr- ópska vísu.“ Hið svo kallaða „flokkseigenda- félag Alþýðubandalagsins“, með þá Svavar Gestsson, Steingrím J. Sig- fússon og Siguijón Pétursson í far- arbroddi, túlkar niðurstöður kosn- inganna á þá leið að þótt flokkur- inn hafi goldið afhroð í Reykjavík og tapað verulegu fylgi, þá megi til sanns vegar færa að hann hafi unnið eins konar varnarsigur. Hafa þeir látið í veðri vaka að honum beri að fylgja eftir með ákveðnum hreinsunum og afmarkaðri stefnu- mörkun. Tími tiltekta sé einfald- lega kominn hjá Alþýðubandalag- inu, þótt ólíklegt sé að um vorhrein- gerningu geti orðið að ræða. Stefna beri hins vegar að hausthreingern- ingu. Flokkseigendurnir telja að stefna sú sem Ólafur Ragnar tók fyrir sveitarstj órnarkosningarnar sýni að hann hafi veðjað á rangan hest og fyrir það verði formaðurinn að gjalda með höfði sínu. Flokkurinn þurfi ekki á neinu dulargervi að halda, og enn síður eigi hann að hafna fortíð sinni. I Ijósi þessa segja þeir einsýnt að formaðurinn og flokkurinn eigi enga samleið — draga reyndar flestir í efa að þeir hafi nokkurn tíma átt samleið. Margir alþýðubandalagsmenn telja brýnt að landsfundur verði haldinn eigi síðar en í september, með hliðsjón af því að þar þurfi að móta línurnar fyrir kosningabar- áttu flokksins fyrir næstu alþingis- kosningar. „Það er ljóst að flokkur- inn fer ekki út í kosningabaráttu án þess að taka fyrst á sínum innri vandamálum og það verður ekki gert án landsfundar. Að minnsta kosti sé ég ekki með hvaða öðrum hætti það verður gert,“ sagði Svav- ar Gestsson. Félagar úr Alþýðu- bandalagsfélagi Reykjavíkur sögðu við mig eftir flokksstjórnarfundinn sl. þriðjudagskvöld að þeir ættu afar bágt með að skilja skilgrein- ingu Ólafs Ragnars á fundinum, sem birtist í miðvikudagsblaði Morgunblaðsins: „Þetta var ítarleg og málefnaleg umræða og ég tel hana hafa verið mjög gagnlega." „Vissulega var umræðan ítarleg, en hún var ekki gagnleg fyrir Ólaf Ragnar, því hún var einvörðungu gagnrýni á framkomu og störf formannsins. Það gilti einu hvort það voru félagar úr Reykjavík eða utan af landi sem tóku til máls. Það er sama hvað hann staðhæfir, það kom skýrt fram á fundinum að hann er vita landlaus, og gæti allt eins kallað sig Ólaf landlausa hér eftir,“ sagði framkvæmda- stjórnarmaður úr Reykjavík. Stuðningsmenn Ólafs Ragnars segja málið ekki snúast um for- mennsku hans — hún sé aukaat- riði. Málið snúist um tilvist og framtíðarstefnu Alþýðubandalags- ins. Það hvort flokkurinn ætli að fylgja eftir skrifum Svavars Gests- sonar í þá veru að hér verði áfram við lýði „þjóðlegur, þröngur kommaíhaldsflokkur", skeri úr um það hvort flokkurinn i framtíðinni verði nokkurn tíma annað en það flokksbrot sem hann breyttist í í þessum sveitarstjórnakosningum. Guðrún Helgadóttir, þingmaður Alþýðubandalagsins í Reykjavík og forseti Sameinaðs þings, er ómyrk í máli um ástandið í feigin flokki: „Það sem mér finnst umhugsunar- efni fyrir okkar góða flokk er það að við höfum um árabil haft úrslita- vald í verkalýðshreyfingunni og einn af æðstu trúnaðarmönnum flokksins verið forseti ASI. Þrátt fyrir það er dagljóst að reykvískt verkafólk lítur ekki við Alþýðu- bandalaginu og kýs allt annað frek- ar. Þetta finnst mér að þessir ágætu menn sem eru að kasta grjóti í formanninn ættu að hug- leiða.“ Guðrún sagði jafnframt: „Eg tel mig ekkert verri alþýðubandalags- mann, þótt ég hafi stutt H-listann. Ég held að Ólafur Ragnar standi nokkuð sterkur víða um land, en það er auðvitað alveg ljóst að hann hefur alltaf haft ákveðinn hóp hér í Reykjavík á móti sér. Sannleikur- inn er sá að ógæfa flokksins í þess- um kosningum var sú að það er ekki hægt að hafa stjórnmálaflokk með tveimur formönnum. Svavar Gestsson hefur sífellt verið á sveimi í umboðslausu formannshlutverki. Svavar hefur aldrei hætt að vera formaður flokksins og slíkt kann ekki góðri lukku að stýra fyrir stjórnmálaflokk. Af hveiju kom ekki í ljós þetta feiknarlega fylgi Svavars Gestssonar og hans manna í þessum kosningum? Það sýnist nú ekki vera beysið, þegar úrslitin í Reykjavík eru skoðuð.“ Guðrún segir að ekkert hafí svo sem gerst varðandi styrkleika flokksins í Reykjavík annað en það að í staðinn fyrir Guðrúnu Ágústs- dóttur hafi Kristín Á. Ólafsdóttir verið kjörin borgarfulltrúi. „G-list- inn hefði hvort sem er aldrei feng- ið þijá fulltrúa. Guðrún er í þýðing- armiklu starfi fyrir flokkinn sem aðstoðarmaður menntamálaráð- herra og þar með er hún nú ekki verkefnalaus í flokknum.“ Það sem kann að koma í veg fyrir að draumur Steingríms Her- mannssonar forsætisráðherra um að stjórnin sitji út kjörtímabilið verði að veruleika, er óvissuþáttur- inn um framvindu mála í Álþýðu- bandalaginu. Þar takast nú þegar á hatrammar fylkingar, sem er að vísu ekkert nýtt þegar þessi flokk- ur er annars vegar. En það liggur í loftinu að átökin eigi eftir að harðna mjög, þannig að menn gætu þar farið að vega hver annan í mestu góðsemi, þegar sumri tekur að halla. Samstarfsflokkar Alþýðu- bandalagsins í ríkisstjórn hafa af því áhyggjur að innri átök í flokkn- um muni setja svip sinn á stjórnar- samstarfið í þá veru að Svavar Gestsson og Steingrímur J. Sigfús- son muni ekki reynast samstarfs- þýðir við slík átök. Þeir muni leggja kapp á að skilgreina sig og stefnu- mið sín í stjórnarsamstarfinu með þeim hætti að ágreiningur á stjórn- arheimilinu eigi eftir að fara vax- andi og átök harðandi. Þeir muni herða á afstöðu sinni til ýmissa mála, sem framsóknar- menn og kratar meta svo að jafn- gildi því að þeir verði andvígir „öll- um stærstu umbótamálunum sem ríkisstjórnin er með á dagskrá og þarf að keyra í gegn á því ári sem eftir er“, sagði einn ráðherra. Hann nefndi sem dæmi samningamál EFTA og EB, opnun fjármagns- markaðarins, opnun gjaldeyris- markaðar, afstöðu_ til stóriðju og nýrrar álbræðslu á íslandi. Því telja kratar og framsóknarmenn vel hugsanlegt að stjórnin eigi eftir að springa á hverju þessara mála sem er. Viðmælendur mínir úr ríkis- stjóm útiloka því síður en svo haustkosningar, og telja að ef af þeim verður, þá verði þær í nóvem- ber eða desember. Sigurvegari kosninganna um síðustu helgi, Sjálfstæðisflokkurinn hefur lítt komið við sögu í þessari umfjöllun, enda ekki virkur þátt- takandi í þeim kraumandi átökum sem eiga sér nú stað á vinstra vængnum. Raunar mun það ekki vera sjálfstæðismönnum neitt kappsmál að efnt verði til alþingis- kosninga í haust. Þeir telja margir því lengur sem stjórnin sitji, þeim mun meiri líkur séu á því að Sjálf- stæðisflokkurinn styrki enn stöðu sína á kostnað stjórnarflokkanna. Þeir geta sem best hugsað sér stjórnarandstöðuhlutverkið á því kosningaþingi sem framundan er og telja að það eigi eftir að reyn- ast stjórnarflokkunum bæði erfitt og kostnaðarsamt hvað fylgi varð- ar. Þeir hyggjast einfaldlega nota tímann til þess að undirbúa kosn- ingabaráttu sina sem best, jafn- framt því sem þeir hugsa sér gott til glóðarinnar að kynda sem best þeir geta undir kötlum sundrungar stjórnarflokkanna. Uppsagnir hjá Þorgeiri og Ellert: Mikið reiðar- slag* fyrir bæj- arfélagið -segir Gísli Gíslason bæjarstjóri „ÞESSI tíðindi komu sem reiðar- slag yfir bæjarfélagið því við vor- um farin að vona að atvinnu- ástandið í bænum væri að lagast," sagði Gísli Gislason, bæjarstjóri á Akranesi, um uppsagnir um 100 starfsmanna hjá skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi sem taka gildi á næstu mánuðum. „Við höfum bent á að stjórnvöld hafi það í hendi sér hvort fyrirtæki í skipasmíðaiðnaði fái verkefni frá innlendum aðilum eða hvort erlendar stöðvar fái þau. Til eru ýmsir sjóðir og stjórnvaldstæki sem beita má í þessu skyni. Hitt er svo annað mál að það er hlutverk forsvarsmanna skipasmíðafyrirtækja að sjá til þess að fyrirtækin séu samkeppnishæf við erlenda aðila,“ sagði Gísli. „Þeirrar tilhneigingar hefur gætt í flestum bæjarfélögum að skipta við fyrirtæki á staðnum til þess að halda verkefnum innan bæjarmarkanna. Hið sama gildir um landið og með útreikningum má eflaust færa rök fyrir því að þegar öll kurl koma til grafar sé hagstæðara að láta inn- lenda aðíla um verkefni á sviði skip- asmíða." Gísli kvaðst ennþá vonast til þess að ekki þyrfti að koma til uppsagna hjá Þorgeiri og Ellert en ef svo færi yrði atvinnuástand í bænum afleitt. „Við höfum á undanförnum árum aðailega reynt að finna lausn á at- vinnuleysi kvenna, sem hefur verið töluvert, en þessar uppsagnir bæta ekki úr skák, verði af þeim. Bæjarfé- lagið er með talsverðar framkvæmd- ir í gangi í sumar, til að mynda bygg- ingu leikskóla, framhaldsskóla, heil- sugæslustöð, dvalarheimili fyrir aldr- aða og framkvæmdir við höfnina auk gatnagerðaframkvæmda. En ljóst er að mikill vandi skapast ef ekkert verður að gert. Bæjarfélagið hefur reynt að afla Þorgeiri og Ellert verk- efni og fékk fyrirtækið til að mynda til að smiða lóðsbát fyrir Akranes- höfn. Haldið verður áfram á þeirri braut að reyna að liðsinna fyrirtæk- inu við að afla verkefna," sagði Gísli. Skeiða- og Hruna mannavegur: Lægsta tilboð 55% af áætlun LÆGSTA tilboð í lagningu 7 km kafla á Skeiða- og Hrunamanna- vegi var 55% af kostnaðaráætlun. Tilboð Smára Kristjánssonar upp á 14,8 milljónir, var lang lægst þrettán tilboða, en kostnaðará- ætlun Vegagerðarinnar var 27 milljónir. Vinnu við vegarkaf- lann, sem er á milli Hólakots og Flúða, á að ljúka fyrir 1. nóvem- ber í haust. Borgarverk hf. í Borgarnesi átti lægsta tilboð í lagningu klæðninga á Norðurlandi vestra í sumar, 70,5% af kostnaðaráætlun. Tilboð fyrir- tækisins var 13,1 milljón en kostn- aðaráætlun var 18,6 milljónir. Stefán Þengilsson á Svalbarðs- strönd bauð best í lagningu tæplega eins km kafla á Svalbarðseyrarvegi í sumar. Stefán vill leggja veginn fyrir 8 milljónir sem er 66% af kostnaðaráætlun upp á 12,1 milljón. Bijótur sf átti lægsta tilboð í efnisvinnslu á Vestfjörðum, 46,7 til 49.3 milljónir eftir tilhögun verks- ins. Kostnaðaráætlun er 43,9 til 45.4 milljónir. Króksverk bauð best 5 efnisvinnslu á Norðurlandi vestra, 13.5 milljónir kr., sem er 94,5% af kostnaðaráætlun Vegagerðainnnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.